Vísir - 05.09.1963, Blaðsíða 4

Vísir - 05.09.1963, Blaðsíða 4
VÍSIR . Fimmtudagur 5. sept. 1363- HfcíL. .33WTagigSnaKa«Bim^aranSllK!tfeieHg;'CT>.TiglBB3g«3Hng1Eia3E?ronma«BgC' / frjálsu landi segir Lyndon B. Johnson, vnrnforseti Bnndnríkjanna um sjólfan sig, en hann kemur í opinbera heimsókn til íslands 17. þessa mónaðar „Ég er frjáls mað- ur, Bandaríkjamaður, bandarískur þingmaður og lýðræðissinni. — Ég er einnig frjálslyndur, íhaldsmaður, Texasbúi, skattgreiðandi, bóndi, verzlunarmaður, faðir og kjósandi- Ég er ekki jafn ungur og áður, en ég er heldur ekki eins gamall og ég hafði búizí við“. Þannig Iýsir Lyndon B. Johnson, varaforseti Bandarikjanna sjálfum sér. Á honum er von hingað til lands í opin- bera heimsókn á næst- uni, og því ekki úr vegi, að gefa íslendingum kost á að fræðast ögn meira um þennan tigna gest. Johnson kemur frá Texas, eins og hann segir sjálfur frá, með stolti. í Texas er ekkert smátt, landið er stórt, fólkið er stórt Lyndon B. Johnson varaforseti Bandaríkjanna. og það sópar af hreyfingum þess. Og það sem meira er, hjartað er einnig stórt. Þegar varaforsetinn kom til Parlsar í fyrra, rakst hann á fátækan kamelekil, bauð honum að heimsækja sig í Bandaríkj- unum, og veitti honum tækifæri til að ferðast um þvera og endi- langa Ameríku, Johnson leysti síðan Frakkann Ut með nýrri bifreið og nú ekur kamelekillinn fyrrverandi í leigubifreið og hef ur 300 krónur i stað 80 króna í dagkaup. Allt þetta gat John- son látið ógert, en það sýnir vel hug hans og innræti. En menn verða ekki vara- forsetar Bandarlkjanna með því að gera góðverk, enda pólitískir hæfileikar Johnsons ótvlræðir. „Skipulagsmeistarinn frá Tex- as“, hefur hann verið kallaður, vegna óvenjulegrar stjórn- málavizku, sem hefur leitt hann eins langt á framabrautinni og frekast er kostur. Löngu áður en hann varð varaforseti, háfði hann verið leiðandi maður I Bandaríkjunum. Síðan 1953 hef- ir hann verið foringi meirihluta þingmanna, verið form. I stjórn málanefnd Demokrata, verið for maður I nefndum sem höfðu um sjón með flugvélatækni og geim flugi og ótal, ótal fleira. Hann er maður sem hefur öðlazt mikla og dýrmæta reynslu á sviði löggjafar, stjórnmála og atvinnulífs. Lyndon Johnson er 55 ára. Hann var I fyrstu skólakennari, en lagði jafnframt stund á land búnað. Þannig tókst honum að vinna sér inn fyrir námsgjöld- um og iauk hann prófi frá Texas State Teachers Coliege 1930. Hann kenndi I tvö ár, en stjórn málaáhuginn náði yfirtökunum og Johnson hélt til Washington ákveðinn I þvi að gerast stjórn málamaður. Þar varð hann full- trúi I einu ráðuneytanna. Franklin D. Roosevelt kom fljótt auga á þennan metorða- gjarna og áhugasama Texas- kennara, sem jafnan vann 18 tíma á sólarhring. Sá dugnaður varð ekki stöðvaður fyrr en 1955 — með snert af hjarta- slagi. Héldu þá margir, að starfs ferli hans væri lokið, en svo var þó ekki, og enn I dag er starfsdagur Johnson’s oft á tíð- um 15—18 tímar. Roosevelt fól Johnson snemma ýmis verkefni og Johnson reyndist þeim vax- inn, þvl hann leysti þau öll vel af hendi. 1937 sló hann fyrst I gegn 1 bandarískum stjórnmálum. — Hann bauð sig fram I Texas og vann þar glæsilegri kosn- ingasigur en sögur höfðu farið af. Aðeins nokkrum klukkustund Johnso-n 1 „Texasbúningi“ sínum, en varaforsetinn er fæddur Texasbúi og þingmaður þess fyikis. um eftir að hann greiddi þvi atkvæði að Þýzkalandi og Japan skyldi sagt stríð á hendur árið 1941, var Johnson kominn I ein kennisbúning sinn, fyrsti þing- fulltrúinn, sem skráður var í herinn. Hann var framúrskar- andi hermaður og hlaut silfur- stjörnuna fyrir hreysti 1 flugleið angri yfir Nýju Guineu. Johnson kvæntist konu sinni Claudia Taylor, sem þekkt er undir nafninu „Lady Bird“ og eiga þau tvær dætur. Frú John- son erfði eftir föður sinn, all mikið fé, og keyptu þau hjón in fyrir þá peninga útvarpstöð og síðar sjónvarpstöð, Johnson notaði þessar stöðvar I kosning? baráttu sinni. ISI Lyndon Johnson lítur út eins og sannur Texasbúi. Hann er rúmlega sex fet á hæð, þétt- vaxinn og sterklegur, með skörp augu og ber Texashatt sem fer vel á hans gráhærða höfði. Hann talar ætíð hreinskilnis- lega, segir meiningu sína, og kemur oft ónotalega á óvart meðal diplómatanna, með hisp ursleysi sínu. Hann er maður blátt áfram en samt sem áður persónuleiki, sem tekið er eftir. HSI Híngað kemur varaforsetinn 16. september. Hann kemur á- samt konu sinni, dóttur og öðru fylgdarliði. Af dagskránni, sem út hefur verið gefin, má sjá að Johnson hyggst ekki sitja hér auðum höndum. Utanríkisráð- hennar Guðmundur 1. Guð- mundsson og kona hans taka á móti gestunum á Keflavíkur- flugvelli og fylgja þeim til Bessa staða 1 heimsókn til forseta ís- lands. Síðan heimsækir vara- forsetinn rlkisstjórnina 1 Stjórn arráðshúsinu. Eftir hádegi verður Reykja- vík skoðuð og um eftirmiðdag- inn fer Johnson til Þingvalla. Kl. 17.15 heldur varaforsetinn ræðu I Háskólabíó. Forseti Is- lands býður til hádegisverðar i Hótel Sögu til heiðurs varafor- seta Bandaríkjanna og forsætis- ráðherra Ólafur Thors heldur kvöldverðarboð að Hótel Borg. Gestirnir búa að Hótel Sögu og fara frá Reykjavik að morgni þriðjudagsins 17. september. BKSBBBHHi

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.