Vísir - 05.09.1963, Page 7
VlSIR . Fimmtudagur 5. sept. 1963
7
Ég skil ekki hvað þjófar eru
sólgnir í að stela úrum sagði
Vilhelm Norðfjörð stórlcaupmað
ur í stuttu viðtali við Vísi fyrir
skemmstu. Þjófarnir athuga það
ekki að í flestum tilfellum
hengja þeir snöru um eigin háls
um Ieið og þeir stela úri.
Það var í tilefni af því að
rannsóknarlögreglunni í Reykja-
vík hafði með fárra daga milli-
bili tekizt að upplýsa tvo mestu
úraþjófnaði sem til þessa hafa
verið framdir á íslandi, að Vísir
sneri sér til Vilhelms Norðfjörðs
stórkaupmanns, en hann er aðal
eigandi annars fyrirtækisins,
sem brotizt var inn hjá. Vísir
langaði að vita hvað úrakaup-
mennirnir sjálfir hafa til mál-
anna að leggja.
— Er meiri vandkvæðum
bundið að stela úrum heldur en
öðrum verðmætum?
— Vissuiega. Það stafar ein-
kum af því að undir venjuleg-
um kringumstæðum er erfitt
fyrir þjófinn að hagnýta sér úr
nema þá til eigin nota. Sölu-
möguleikar fyrir hann á úrum
eru mjög tæpir.
— Hvers vegna?
—- Vegna þess að öll úr sem
til landsins flytjast eru skrásett
hjá útsölunum. Á öllum dýrari
úrum er hlaupandi númer, en
venja er að úrasalarnir auð-
kenni hin, þannig að ef stolið
úr kemur einhversstaðar fram
getur eigandinn sannað eignar-
rétt sinn á því á óyggjandi hátt.
Og sem dæmi um það hve
erfitt það er fyrir úraþjófa að
koma úrunum í verð skal á það
bent, að um það bil einni klst.
afgreiðslumaðurinn skrifað upp
öll númer á hinum stolnu úrum,
ásamt nöfnum á hverju einu
þeirra og lýsingu. Afrit af þess
ari skrá var afhent öllum úr-
smiðum borgarinnar svo til sam
stundis, þannig að um leið og
eitthvert hinna stolnu úra kæmi
þangað til viðgerðar, eða yrði
boðið til sölu, myndi viðkom-
andi úrsmiður á augabragði sjá
að úrið .væri stolið og um leið
hvaðan þvf hefði verið stolið.
— Hafa úraþjófnaðir verið
upplýstir á þennan hátt?
— Iðulega, en stundum þó
ekki fyrr en mörgum árum
seinna en þjófnaðurinn var fram
inn. Fyrir mörgum árum var
innbrot framið í úra- og skart-
Vilhelm Norðfjörð stórkaupm.
gripaverzlun Jóhannesar Norð-
fjörð h.f. sem þá var til húsa
í Pósthússtræti, og stolið þáðan
úrum fyrir um 50 þúsund krón-
ur, sem var mikið verðmæti I
ið í innbrotinu í Pósthússtræti,
heldur úr sem stolið hafði verið
í úrsmíðavinnustofu Björns og
Ingvars hér í borg. Samt sem
áður leiddi þetta til handtöku
þjófsins sem framið hafði inn-
brotið í Pósthússtræti.
Annað dæmi get ég nefnt.
Það er ekki ýkja langt síðan að
ég frétti af tilviljun af Alpina-
úri, sem selt hafði verið hér
í borg. Þar sem fyrirtæki mitt
hefur haft umboð fyrir Alpina
úr um 25 ára skeið, fannst mér
þetta undarlegt og skrifaði verk
smiðjunni til að vita hverju
þetta sætti, hvort annað um-
boð hefði verið sett á laggimar
í Reykjavík án þess að ég vissi,
eða hvort orsakanna væri ann-
arsstaðar að leita.
Með því að fá uppgefið núm-
er á viðkomandi úri og senda
upplýsingar um það til verk-
smiðjunnar kom í ljós að úrinu
hafði verið stolið £ stórinnbroti í
Kaupmannahöfn nokkru áður.
Málið var fengið íslenzku lög-
reglunni í hendur og hafði hún
upp á manninum sem selt hafði
úrið í Reykjavík. Jafnframt kom
í Ijós að að þvf hafði verið
smyglað frá Kaupmannahöfn og
þessi rannsókn leiddi síðan til
handtöku innbrotsþjófanna í
Kaupmannahöfn.
Ég held að þessi dæmi ætti
að nægja til þess að benda þjóf
um á að láta úr í friði. Ég minn-
ist ekki margra úraþjófnaða,
sem ekki hafa komizt upp.
Þegar Vísir hafði leitað álits
Vilhelms Norðfjörðs á úraþjófn
aði og tilgangsleysi þeirrar „at-
vinnugreinar", sneri blaðið sér
til annars úra- og skartgripasala
,íiReyk*jÖvIk1!'en það er Mágh'ús
Ásrnunössón úrsmiður. Hann
hefur senilega orðið oftar fyrir
hattbarðinu á úraþjófum en
í mörg ár var það árátta innbrotsþjófa að ráðast á sýningarrúðu I
úra- og skartgripaverzlun Mangúsar Ásmundssonar í Ingólfsstræti 3
og brjóta hana til að stela úrum. Um skeið var hún brotin á hálfs-
mánaðarfresti. En nú er þetta gaman úr sögunni. Magnús hefur kom-
-srsJÍöannEi ! iöii ina •U9Ó, —
ið fyrir öryggisútbúnaði fyrir iunan rúðuna, enda er öllum innbrots-
tilraunum þár Éætí. 11 ' ‘1';’ “ "
eftir að úraþjófnaðurinn mikli
var framinn í úra- og skart-
gripaverzluninni í kjallara Bóka-
verzlunar Sigfúsar Eymundsson
ar í s. 1. janúarmánuði, hafði
.V ■>>.»»>>>v>>;>■.•.>»»>»».>;
þá daga. Um það bil þremur
árum seinna kom úr til við-
gerðar hjá einum úrsmið borgar
innar. Það var þó ekki eitt af
þeim úrum sem stolið hafði ver-
Cr þessari verzlun — í kjallara Bókaverzlunar Sigfúsar Eymunds-
sonar í Austurstræti — var um miðjan janúar s. 1. stolið úrum og
öðrum verðmætum fyrir rúmlega 100 þús. kr. Þjófurinn hefur nú fund-
izt — eins og flestallir úraþjófar yfirleitt. Það er enn ein sönnun
þess að úraþjófnaður svarar ekki kostnaði.
nokkur annar hérlendur úra- og
skartgripasali. í verzlun hans
£ Ingólfsstræti 3 hefur verið
brotizt svo oft inn að Magnús
er hættur að hafa tölu á inn-
brotunum.
— Hefur verið unnt að upp-
lýsa þau öll?
— Ekki öll, en mörg þeirra.
Það getur tekið nokkurn tíma,
e.t.v. mörg ár unz ferill þjófsins
verður rakinn. En hann er £ stöð
ugri hættu. Einn góðan veður-
dag lendir stolið úr f viðgerð.
Úrsmiðurinn veitir númeri úrs-
ins athygli, sér að þv£ hefur
verið stolið og gerir lögreglunni
aðvart. Ekkert er líklegra en að
úr þvf verði hægt að leita þjóf
inn uppi, jafnvel þótt hann hafi
verið búinn að selja úrið.
En hvað sem því líður hafa
mörg úrin komið í leitirnar,
sum á mjög óvæntan hátt.
— Hvernig?
Tvö atvik eru mér sérstaklega
minnisstæð. I öðru tilfellinu
kom leigubílstjóri til mín eftir
að hafa lesið um innbrot í verzl-
unina mína f Vfsi. Hann kom
með úr sem hann sagðist háfa
tekið að veði fyrir ökugjald nótt
ina sem innbrotið var framið,
og er hann las fregnina um inn-
brotið í Vísj tók hann að gruna
að ég ætti úrið. Sú var líka
raunin — ég átti úrið. Með að-
stoð leigubílstjórans tókst að
hafa uppi á þjófnum, og þá fyrst
varð ég undrandi. Þetta var gam
Magnús Ásmundsson úrsmiður.
all félagi minn, nágranni og
kunningi sem ég hafði iðulega
gert ýmiss konar greiða án þess
að hafa nokkru sinni tekið eyri
fyrir.
í hinu tilfellinu var ég erlend-
is þegar brotizt var inn f verzl-
unina til mín og þá stolið 9 úr-
um. Svo líða nokkur ár án þess
nokkuð bæri til tíðinda. Þá bar
það allt í einu við að krakkar
sem voru að leika sér í húsa-
garði við Grettisgötu fundu 5 úr
grafin í mold. Við athugun kom
f Ijós að þetta voru nokkur
þeirra úra sem stolið var úr búð-
inni minni forðum.
— Voru þau ekki ónýt eftir
allan þenna tíma?
- Sum þeirra voru ónýt með
öllu, en tvö þeirra, af Mido-
gerð, gengu hárrétt á eftir eins
og ekkert hefði f skorizt. Þau
eru líka rnjög sterk.
— Eru innbrotsþjófarnir enn
að ónáða þig?
— Nei, nú eru þeir hættir,
loksins. Stundum var brotizt inn
á hálfsmánaðar fresti, venjulega
með grjótkasti á sýningarrúðuna
og síðan stolið því sem til náð-
ist. Ekki alltaf miklu — stund-
um engu. Ég hafði naumast við
að setja rúður f gluggann.
— En af hverju eru þjófarnir
hættir?
— Ég útbjó skáp úr óbrjótan-
legu gleri fyrir innan gluggann.
Það hefur verið gerð ein tilraun
til að ráðast á hann, og merkin.
sjást á honum enn. En þjófurinn
fékk engu áórkað og varð að
hverfa slyppur burt. Síðan hef-
ur verzlunin mín verið látin í
friði.