Vísir


Vísir - 05.09.1963, Qupperneq 16

Vísir - 05.09.1963, Qupperneq 16
VÍSIR Fimmtudagur 5. sept. 1963. Hyllingarhátíð fyrir Guðrúnu Hyllingarhátíð verður haldin Guðrúnu Bjamadóttur á Hótel Sögu n.k. laugardag. Þetta verður eins konar móttöku- og kveðjuhá- ttð fyrir Guðrúnu, því að hún staldrar ekki lengi við í þetta sinn. Ýmis skemmtiatriði verða ,t.d. sýn ing á vetrarfatnaði frá Bernharð Laxdal, sem Tízkuskólinn sýnir, sumar allstórar, gjafir frá ýmsum fyrirtækjum í Reykjavík verða af- hentar Guðrúnu ,flutt verður ávarp og skemmtiþáttur. Endar hátfðin í miklum dansleik. /andbúnaðarvara Eins og getið var í blaðinu í gær hafa fulltrúar bænda i verðlagningarnefnd landbúnað- arafurða krafizt milli 30 og 40 % hækkunar á búvörum bænda í haust, eða nánar tiltekið 3614% hækkunar, eins og Sverr ir Gíslason, formaður Stéttar- sambandsins skýrði frá í yfir- litsræðu sinni við setningu Stétt arsambandsfundarins f gærmorg un að Hótel Sögu. Sæmundur Friðriksson, framkvæmdastjóri sambandsins, sagði frá því að byggingarkostnaður við Bænda- höllina næmi nú yfir 100 millj- ónum króna og er ýmsu þó ó- lokið. Hann sagði að gera mætti ráð fyrir að húsbúnaður og tæki til hallarinnar næmu um 20 milljónum að kostnaðarverði. Á ÞRIÐJA HUNDRAÐ ÞÚSUND. Hermóður Guðmundsson í Ár- nesi krafðist þess í umræðum Lokunartími verzlana ræddur í borgarstjórn um stjórnarskýrsluna, að bú- vöruverðið hækkaði um 67% og Sveinn Jónsson á Egilsstöðum gerði kröfu til þess að bændur ættu að hafa að meðaltali á þriðja hundrað þúsund krónur í árstekjur, fyrst 150 þúsund og síðan til viðbótar 60 þúsund krónur hver bóndi, sem þóknun fyrir að gegna ábyrgðarmiklu starfi. En það var einróma álit bænda fulltrúanna á Stéttarsambands- þinginu i gær, að þessir menn hefðu skotið hátt yfir markið. Sveinn sagði að starf bónd- ans væri metið á við starf dreggjatappara í áfengisverzlun- inni. EKKI TEKIÐ UNDIR ÖFGARNAR. Það sannaðist m. a. af því að enginn fulltrúanna, sem tal- aði á eftir þeim Hermóði og Sveini í gær, tók undir öfgar þeirra, enda voru þeir lítt sann- færandi. Hins vegar bentu flest- ir fulltrúanna á það, að sann- gjarnt væri að hagur bænda- stéttarinnar væri enn réttur en töldu ekki einhlítt að það yrði einungis gert með hækkun af- urðaverðs. í því sambandi var m. a. talað um staðaruppbót til bænda, sem greidd er í ýmsum löndum til bænda, sem búa við sérlega erfiða aðstöðu. RIERK TILLAGA. Einnig var á fundinum I gær lögð fram merk tillaga frá stjórn stéttarsambandsins um að nefnd verði skipuð til að at- huga skipulag iandbúnaðarins yfirleitt og framtíðarskipan hans og markmið með tilliti til reynslu annarra þjóða og þess, hvort islenzkur iandbúnaður á framvegis að framleiða nær ein- göngu fyrir inniendan markað eða einnig jafnframt til útflutn- ings. Framh. á bls. 5 STEYPIR 200 M Á DAG Tillögur um lokunartíma sölu- búða verða ræddar f borgar- stjóm í kvöld. Mun Sigurður Magnússon gera grein fyrir til- lögunum, en hann hefur samið þær ásamt Páii Lfndal, skrif- stofustjóra borgarstjóra. Leitaö hefur verið umsagnar fjöl- margra aðila um málið, m. a. samtaka kaupmanna, sem málið snertir, svo og Neytendasam- takanna og Verzlunarmannafé- iags Reykjavíkur. Tillögurnar fjalla m. a. um að heimiia verzlunum að selja eftir sérstökum reglum vörur sínar lengur en verið hefur og leitazt verður við að skilgreina Fóskrúðsfirði 8. september nánar en gert hefur verið starfs- svið veitingahúsaverzlana og kvöldsölubúða og koma á auknu samræmi milli verzlunarheim- ildar kvöldsölubúða og annarra verzlana. Fundurinn í borgarstjórn hefst kl. 17 f dag. Undanfariö hefur Reykjavfk- sem veldur tölverðum breyting- urborg verið að reyna nýja vél, um f gatnagerð. Hér er um að ræða steypuvél, sem rennur á spori og steypir gangstéttar- brúnir. Lokið er við að reyna vélina, pg að sögn starfsmann- anna, sem'vjnna við hana, hefur hún reynzt nijo*g vel. Reykjavíkurborg keypt f i sumar tvær svipaðar vélar frá Bandarfkjunum. önnur vélin steypir kant og syllu út frá hon um, en hin aðeins kant. I. M. Ijósmyndari Vfsis, tók þessa mynd f morgun, þar sem verið var að vinna með stærri vélinni í Eskihlfð. Engin binding er f steypunni, og rfður á miklu að rétt bleytustig sé f steypunni. Afkastageta vélarinnar er talin vera um 200 metrar á dag. — Steypuvélin blandar efnið sjálf, og er það þvf þurrt þegar það kemur úr steypubílnum. Nokkr- ar tafir hafa verið undanfarið, vegna þess að möl hefur farið í sandinn, en hér er án efa um að ræða töluverða nýjung f gatnagerð, m. a. sparar vélin mikla mótavinnu. Héraðsmót Sjólfstæðismanna Að Búðum Ungi listamaðurinn Stundar nám í húsagerðarlist — Heldur múlverkusýningu Vlð litum inn f Ásmundarsal við Freyjugötu f morgun og hitt um þar fyrlr ungan mann, Jes Einar Þorsteinsson. Hann var að undirbúa málverkasýningu, sem hann ætlar að opna annað kvöld — Er þetta fyrsta sýning þín Jes? — Já, ég hef aldrei fyrr haft sýningu eða tekið þátt í sýn- ingu. — Hefurðu lengi fengizt við myndlist? — Já, alveg frá því að ég var krakki og byrjaði að krota. Á menntaskólaárum mínum var ég á kvöldnámskeiðum í Handíða- og Myndlistaskólanum og svo hef ég verið dálítið við mynd- listarnám I Frakklandi, en þar hef ég dvalizt undanfarin 8 ár við nám í húsagerðarlist. Framh. á bls. 5 Héraðsmót Sjálfstæðismanna á Austfjörðum verður haldið að Búðum, Fáskrúðsfirði sunnudaginn 8. september kl. 4 síðdegis. Bjarni Benediktsson dómsmálaráðherra og Jónas Pétursson al- þingismaður flytja ræður. Til skemmtunar verður einsöngur og tvfsöngur. Flytjendur verða óperusöngvararnir Kristinn Hallsson og Sigurveig Hjaltested, undir- leik annast Ólafur Vignir Albertsson pfanóleikari. Ennfremur skemmtir Brynjólfur Jóhannesson, leikari. Dansleikur verður um kvöldið. „Kómó“ Ieikur.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.