Vísir - 06.09.1963, Side 3
V í S I R . Föstudagur S. sept. 1963
í GÆRDAG kom islenzka Iands-
Iiðið saman á Café Höll og rabb-
aði saman yfir veitingum. Það
var létt yfir hópnum og greini-
legt að gott andrúmsloft ríkir
í herbúðum okkar manna. Eftir
kaffidrykkju var haldið í Laug-
ardal, þar sem landsleikurinn
hefst á morgun kl. 16. Myndirn-
imar sýna það sem þar gerðist.
Karl Guðmundsson skýrði út
„taktík“ Iiðsins, sem vitanlega
er algjört hernaðarleyndarmál,
og þegar blaðamann bar að
Átökin viB „brezka Ijánið" mdirbúin
garði og kom inn í litla leik-
fimisalinn í Laugardal var eins
og hann hefði komið inn í mitt
kjarnorkuver með njósnatæki á
lofti. „Enga blaðamenn, þeir eru
stórhættulegir,“ kölluðu piltarn-
ir hver í kapp við annan og því
fór sem fór, við fengum enga
nasasjón af hernaðarlist Karls,
en fengum að smella af mynd
af piltunum sitjandi á leikfimi-
dýnum fyrir framan töfluna.
Liðsmenn mátuðu í gær nýja
landsliðsbúninga, fallegar bláar
peysur og ein myndin sýnir ein-
mitt þegar fyrirliðinn, Ríkharð-
ur, er að máta sína peysu. Hin-
ir leikmennirnir eru Árni Njáls-
son og Hörður Felixson.
Læknar fengu ærið starf, all-
ir voru vandlega skoðaðir. I-
þróttalæknir, Jón Eiríksson,
sést t. d. hlusta Helga Daníels-
son og úrskurðurinn er auðvit-
að „stálhraustur“. Jón Ásgeirs-
son sést Iíka leggja hendur á
Bjarna Felixson, en Jón hefur
undanfarin ár nuddað landsliðs-
menn og dyttað að melðslum
knattspyrnumanna okkar.
Áð lokum fengu knattspymu-
mennimir útrás í léttum leik.
Helgi Dan. sést kasta sér eftir
knettinum en á bak við er m. a.
Sæmundur Gíslason úr Iandsliðs
nefnd og er í heldur vfgalegrl