Vísir - 16.09.1963, Blaðsíða 1

Vísir - 16.09.1963, Blaðsíða 1
VISIR Ólafur Thors forsætisráðherra býður Lyndon Johnson varaforseta velkominn. Forseti íslands herra Ásgeir Ásgeirsson fagnar varaforseta Bandaríkjanna við komu hans til Bessa- staða. Forsetafrú Dóra Þórhallsdóttir er lengst til hægri. (Ljósm. Vfsis, I. M.). // Úr augum fálks les muBur hiartulugið" — mælti Johnson vnrnforseti í ávnrpi á Lækjnrtorgi Flugvél Lyndon B. Johnson, varaforseta Bandaríkjanna, lenti í heilirígningu á Keflavíkur- flugvelli í morguci kl. 10.45. Áugnabliki áður en varaforset- inn og fjölskylda hans stigu út úr flugvélinni gerði upp- styttu og sá lítið eitt til sóiar. Utanrfkisráðherra fslands, Guð- mundur I. Guðmundsson tók á móti varaforsetanum fyrir hönd íslenzku rfkisstjómarinnar. Jafnskjótt og varaforsetinn hafði heilsað opimberum full- trúum, gekk hann til mann- fjöldans, sem var mestmegnis amerískar fjölskyldur af flug- velHnum og tók í hendur svo margra sem hamn gat á þeim fáu mínútum, sem hann hafði til umráða á vellinum. Lá við slagsmálum um eiginhandarárit- anir hans.Þá fór varaforsetinn í þyrlu til Bessastaða en þar tóku forseti fslands hr. Ásgeir Ásgeirsson og frú hans Dóra Þórhallsdóttir á móti honum. Eftir að skipzt hafði veríð á gjöfum hélt varaforsetinn í bifreið til Reykjavíkur, hitti ríkisstjómina í Stjómarráðinu og síðan til hádegisveröar í boði forsetahjónanna að Hótel Sögu. Skömmu áður en flugvél varaforsetans lenti á Keflavlk- urflugvelli hóf 12 manna hljóm- sveit varnarliðsins að leika marsa fyrir framan Flugvallar- hótelið til að fagna komu vara- forsetans. Var þarna aðallega Framhald á bls. 2 Fjölmennum í HÁSKÓLABÍÓ í dag kl. 5 e. h. flytur varaforseti Bandaríkj- anna Lyndon B. Johnson ræðu í Háskólabíói. Er skorað á alla lýð- ræðissinna að mæta á fundinum. Komið verð- ur fyrir gjallarhornum utan á húsinu og í and- dyri þess, svo þar verði einnig unnt að hlýða á ræðuna. Ein deild kommúnistaflokks- ins hefir boðað fylgismenn sina til mótmæla fyrir utan húsið, þrátt fyrir bann lögreglunnar um fundarhald þar. Því fram- ferði svara allir lýðræðissinnar bezt með því að fjölmenna til fundarins. Varaforsetinn við Stjómarráðið. James Penfield, ambassador Bandarikjanna (t. v.) og Guðmundur I. Guðmundsson utanríkisráðherra (t h.)

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.