Vísir - 16.09.1963, Page 2
2
VlSIR . Mánudagur 16. september 19637
Koma Johnsons-
'1
Framhald af bls. 1
um að ræða fjölskyldur Banda-
rfkjamanna á Keflavfkurflug-
velli. Sennilega hafa skólabörn
verið í talsverðum meirihluta.
Flugvélum varnarliðsins hafði
mörgum verið raðað meðfram
flugbrautinni, 25—30 flugvél-
um. Islenzkir löggæzlumenn og
lögregluþjónar varnarliðsins
gættu mannfjöldans.
L aust eftir 10.45 var flugvél
varaforsetans, Boeing 707, ein
af flugvélum Bandaríkjaforseta,
komin að flugvallarhótelinu.
Þá voru komin til að taka á
móti honum Guðmundur f.
Guðmundsson utanríkisráðherra
og frú, Björn Ingvarsson lög-
reglustjóri og frú, ambassador
Penfield og frú, ambassador
Thor Thors og frú auk Buie að-
mfráls, yfirmanns varnarliðsins.
Eftir að tröppum hafði verið
rennt upp að fremri dyrum
flugvélarinnar gengu þau um
borð og heilsuðu varaforsetan-
um og fjölskyldu hans, frú
Lady Bird Johnson og Lindu
Bird Johnson, dóttur hans.
Bandaríski ambassadorinn
kynnti hina íslenzku fulltrúa.
Þá var hellirigning úti fyrir.
En augnabliki síðar, er vara-
forsetinn birtist ásamt konu
sinni og dóttur á tröppum flug-
vélarinnar, stytti algerlega upp
og sólin lét loksins sjá sig.
Áhorfendur fögnuðu Lyndon
B. Johnson af miklum ákafa,
og hann veifaði til þeirra. Eftir
að hafa sagt nokkur orð í Rík-
isútvarpið, sem útvarpaði beint
frá flugvellinum, gekk hann
yfir til áhorfendanna, til að
heilsa upp á fólkið að sið banda
rískra stjórnmálamanna. Fólk-
ið, börn og fullorðnir, kepptúst
um að fá að taka í hendina á
varaforsetanum. Var mikil ólga
í áhorfendahópnum, komst hann
allur á hreyfingu og einstaka
bandarískar konur virtust ekki
ætla að ná sér eftir að Johnson
hafði tekið í hendina á þeim.
Varaforsetinn útbýtti eigin-
handaráritunum til barnanna
og kepptust heimilisfeður um
að geta náð í áritanir .fyrir
börnin sín. I einu tilfellinu lá
við handalögmálum tveggja á-
kafra feðra, sem sóttust eftir
sömu árituninni, og varð ákaf-
inn svo mikill að þeir rifu kort-
ið, sem varaforsetinn hafði rit-
að á í sundur. „Þetta er eins
og { Bandaríkjunum," sagði
Lyndon Johnson löndum sfnum
til skemmtunar.
Eftir að hafa heilsað upp á
fjölda manns, fór varaforsetinn
og fjölskylda hans yfir f þyrl-
ur. I aðra þyrluna fóru vara-
forsetinn, utanríkisráðherra og
frúr þeirra, Penfield ambassa-
dor og lögreglumenn en f síðari
þyrluna dóttir varaforsetans,
frú Penfield, Thor Thors og frú
og tveir bandarískir blaðamenn.
Fylgdarlið varaforsetans fór f
tveim flugvélum til Reykjavík-
ur.
í þyrlu til
Bessnstaðo
Þyrlunum var flogið kringum
Keflavíkurflugvöll og síðan til
Bessastaða. Þar lentu þyrlurn
ar á flötinni framan við kirkj
una. Forseti íslands herra Ás
geir Ásgeirsson og forsetafrú
Dóra Þórhallsdóttir tóku á móti
gestunum við þyrlurnar. Lftil
stúlka afhenti frú varaforsetans
og dóttur hans blómvönd. Síðan
var gengið í Bessastaðastofu.
Eftir stuttar viðræður var skipzt
á gjöfum. Afhenti forseti ís-
lands fagurt drykkjarhorn úr
silfri, með áletrun, til minning-
ar um heimsóknina, en varafor-
setinn sérstaklega smíðaðan
kortkassa með fullkomnu heims
korti, sem verður endurnýjað
eftir þvf sem tilefni gefst til.
Einnig afhenti hann Iitla mynd
af sjálfum sér. Varaforsetinn
kvaðst vona „að vinátta íslands
og Bandarfkjanna stæði óbreytt,
þótt einhver breyting yrði á kort
unum“.
Frá Bessastöðum var ekið til
Reykjavíkur.
Avarp á
Lækjarforgi
Fjöldi manns hafði safnazt
saman á Lækjartorgi og í
Bankastræti milli klukkan 11
og tólf, búizt var við að vara-
forsetinn kæmi kl. 12, en hann
kom ekki fyrr en stundarfjórð-
ungi síðar. Þá var orðinn gífur-
lega mikill mannfjöldi á Lækj-
artorgi og í nærliggjandi göt-
um, þótt matartími væri. Fánar
Lyndon Johnson ræðir við ríkisstjóm Islands. Talið frá vinstri: Ingólfur Jónsson, Gylfi Þ. Gfslason,
Emil Jónsson, Bjami Benediktsson, Guðmundur I. Guðmundsson, Ólafur Thors og Lyndon Johnson.
voru dregnir að hverjum hún i
Miðbænum, fólkið beið i eftir-
væntingu, þótt fremur kalt væri
f veðri og sólarlaust.
Þeir Erlingur Pálsson yfirlög
regluþjónn og Lárus Salómons-
son héldu uppi reglu, það er að
segja auðri akbraut framan við
Stjórnarráðið, spjölluðu við fólk
og gerðu að gamni sínu, eins og
þeirra er vandi.
Og loksins kom varaforsetinn.
Fyrir bifreið varaforsetans og
föruneytis hans fór lögreglumað
ur á mótorhjóli og siðan annar
bfll með lögreglumönnum, en í
bílnum með Lyndon B. John-
son varaforseta Bandaríkjanna
var Guðmundur í. Guðmunds-
son utanríkisráðherra.
Viðstöddum virtist varaforset
inn mjög líkur því sem hann
er á Ijósmyndum, mjög hár og
myndarlegur maður, frjálslegur
og glaðlegur í bragði. Hann
heilsaði þegar með handabandi
þeim er næstir honum stóðu,
er hann steig út úr bifreið sinni,
en mannfjöldinn hrópaði ferfalt
húrra fyrir Johnson varaforseta
og klappaði og veifaði f kveðju
skyni, og hann á móti.
Þá gerðist það, að varaforset-
inn flutti stutt ávarp til mann-
fjöldans á gangstéttinni framan
við hliðið á girðingunni umhverf
is Stjórnarráðsblettinn, en Ragn
ar Stefánsson major, sem var
í bíl varaforsetans, þýddi jafn-
óðum. Johnson sagði m. a., að
það væri komizt svo að orði f
heimalandi hans að lesa mætti
hjartalag fólks úr augum þess
og þakkaði þær vinsamlegu við-
tökur er hann hafði hlotið. Hann
afsakaði þá töf, sem orðið hefði
á komu hans, kvaðst nú þurfa
að ganga inn í Stjórnarráð ís-
lands og eiga þar þýðingarmik-
inn fund með Ólafi Thors, for-
sætisráðherra, en síðari kæmi
hann aftur og myndi þá taka í
höndina á öllum viðstöddum.
Þvf gamni og þeirri alvöru, sem
fólst í þessum ummælum, var
tekið á viðeigandi hátt af mann-
fjöldanum, sem hyllti aftur for-
setann er hann gekk inn í
Stjórnarráðið. Svo sem eins og
einni mínútu eftir að hann hvarf
inn úr dyrunum kom rigningar-
skúr, sem menn höfðu verið að
óttast.
A fundi
ríkissfjórnar
Innan veggja Stjórnarráðs-
byggingarinnar hitti Lyndon
Johnson íslenzku rfkisstjðmina,
fyrst forsætisráðherra Ólaf
Thors og sfðan hvem af öðrum.
Síðan var slegið upp fundi rík-
isstjórnarinnar og varaforsetans
sem kemur hingað sem persónu-
legur fulltrúi Kennedy Banda-
ríkjaforseta. Var m. a. rætt um
ýmsa þætti heimsmálanna, sem
efstir eru á baugi, m. a. Kína-
málin, Þýzkalandsmálin, afvopn
unarmálin og sitthvað fleira.
Var hér aðeins um óformlegar
viðræður að ræða. Viðstaddir
vom Thor Thors ambassador og
James Penfield ambassador.
Frá stjómarráðinu ók vara-
forsetinn til Hótel Sögu, en þar
var hádegisverður í boði for-
setahjónanna. 1 dag fer hann til
Þingvalla og heldur sfðan ræðu
í Háskólabíói, en situr sfðan
kvöldverðarboð ríkisstjómarinn-
ar að Hótel Borg. Hann fer frá
íslandi um kl. 23.
Góðaksturskeppni
um næstu helgi
Lyndon Johnson afhendir forseta íslands kortakassa, með heimskortum, sem á sér aðeins örfáar hlið-
stæður. Forsetafrúin, frú varaforsetans og dóttir hans horfa á. Aðeins sex virðingarmenn hafa fengið
slíka kassa áð gjöf, þ. á m. páfinn og Winston Churchiil.
Næstkomandi laugar-
dag hyggst Bindindis-
félag ökumanna gangast
fyrir góðaksturskeppni í
Reykjavík. Keppni þessi
verður að nokkru leyti
svipuð þeim góðaksturs
keppnum sem áður hafa
farið fram bæði hér í
Reykjavík og á Akur-
eyri Oftast áður hefur
keppnin farið að ein-
hverju leyti fram utan
borgarinnar, en að þessu
sinni verður eingöngu
ekið innan hennar.
Um fjörutíu þrautir verða Iagð
ar fyrir þátttakendur. Keppnin
hefst á skoðunarsvæði bifreiða-
eftirlitsins við Borgartún og
lýkur henni fyrir utan verk-
smiðjuhús 0. Johnsson og
Kaabef við Sætún. Margvísleg-
ar þrautir verða lagðar fyrir
ökumenn. Þeir verða spurðir
ýmissa spurninga á leiðinni og
einnig verða ýmis óvænt atvik
látin henda ökumennina á leið-
inni. Góðaksturskeppnin verður
mjög umfangsmikil og gizkað
er á að 50 til 60 starfsmenn
vinni að framkvæmd hennar. 1
hverjum bíl verða sérstakir leið
sögumenn, einnig munu bifreiða
eftirlitsmenn og lögregluþjónar
vinna við keppnina.
Keppnisstjóri verður Sigurð-
ur Ágústsson lögregluvarðstjóri
og eftirlitsmaður með keppninni
verður Gestur Ólafsson, for-
stöðumaður Bifreiðaeftirlitsins.
í góðaksturskeppninni verður
einkum reynt á viðbragðsflýti
ökumanna, aksturshæfni, öryggi
og kunnáttu f umferðareglum.
Tala þátttakenda í keppninni er
bundin við 25.
Formaður Bindindisfélags öku
manna er Ásbjörn Stefánsson,
læknir.