Vísir - 16.09.1963, Side 3

Vísir - 16.09.1963, Side 3
VlSIR . Mánudagur 16. september 1963. A/ Fegurst var aS sjá íslenzku fíöllin // Á sama tfma og Lyndon John son varaforseti Bandaríkjanna gekk á fund ríkisstjómar Is- lands í Stjómarráðshúsinu við Lækjartorg, ók frú hans Lady Bird með fyigdariiði sínu eftir Laufásveginum og að heimili bandaríska sendiherrans. Þar tók sendiherrafrú Penfield á móti henni og voru allmargar íslenzkar konur þar saman komnar til að bjóða hana vel- komna. Þær höfðu setið góða stund í sendiráðinu vegna frestunar þeirrar, sem varð á för hinna bandarísku gesta, og var eftir- vænting þeirra mikil, að taka á móti hinum tignu gestum. Á hinu smekklega heimili sendi- herrahjónanna var komið fyrir stóru kaffiborði með ótal tert- um og kökum, af amerískri gerð. En heimilishundurinn Bosco var bundinn við fótinn á flygli heimilisins. Meðal hinna íslenzku kvenna sem biðu þarna voru frú Auður Auðuns, Ragnhildur Helgadótt- ir, Sigríður J. Magnússon, Lára Sigurbjörnsdóttir, Aðalbjörg Sig urðardóttir, Ólöf Pálsdóttir, Theresla Guðmundsson, Nína Sæmundsson, Guðrún P. Helga- dóttir, Hrefna Tynes, Valborg Snævarr, Helga Magnúsdóttir á Blikastöðum, Lilly Ásgeirsson, Sarah Ross Helgason. Þar var einnig Elisabeth Carpenter, sem er blaðafulltrúi varaforsetafrú- arinnar. Rétt eftir hádegi kom bifreið forsetafrúarinnar að sendiráð- inu og voru með henni í bifreið- innj frú Penfield og frú Rósa Ingóifsdóttir kona íslenzka utan ríkisráðherrans. Varaforsetafrú- in var gfeesilega klædd í rauðri dragt og með gráan hatt. Frú Penfield kynnti íslenzku konurnar fyrir henni á mjög skemmtilegan hátt. Þegar hún kynnti frú Sigríði J. Magnússon bætti hún því við, að íslenzkar konur hefðu mikil réttindi. Og þegar hún kynnti frú Theresiu lét hún það fylgja, að hún hefði gegnt einhverju erfiðasta starfi sem til væri á íslandi, veður- stofustarfi, en hér væri erfitt að spá um veðrið. Þegar hún kynnti Nínu Sæmundsson mynd höggvara fyrir varaforsetafrúnni skýrði hún frá þvl að hún hefði dvalizt lengi I Ameríku og með- al annars gert höggmyndina yfir anddyri Waldorf Astoria. Vara- forsetafrúin fékk mikinn áhuga á þessu og sagðist sannarlega skyldi skoða vel höggmyndina á Waldorf, næst þegar hún kæmi þar. Fréttamaður Vísis, Steinunn Briem var I boðinu og spurði varaforsetafrúna, hvernig henni hefði litizt á Island, þegar hún nálgaðist það. — Það var stór- kostlegt, sagði hún, þegar við flugum yfir íslenzku fjöllin. Ég hafði að vísu lesið um það I bókum, að þau væru falleg, en sjón er sögu ríkari. Hún sagði fréttamanninum, að hún hefði sjálf verið blaðakona á yngri árum og langaði hana frekar til að spyrja heldur en að svara spurningum. Maður þarf að hafa mikla andagift til að geta alltaf svarað spurningum. — sagði Lady Bird í samtali við Vísi Kona bandaríska sendiherrans, frú Penfield, býður Lady Bird velkomna í bandaríska sendiráðið við Laufásveg. Frú Lilly Ásgeirsson lengst L v. Enda spurði hún margs og hafði mikinn áhuga fyrir ís- lenzkum málefnum. Þegar hennj voru boðnar kræsingar, kvaðst hún verða að afþakka það, vegna þess að annars flæri línan illa I öllum þessum ferðalögum við þá dásamlegu gestrisni, sem þau hefðu allsstaðar notið. En þegar henni var borin svokölluð Englakaka, sagði hún: — Þessu get ég ekki neitað. Hún var mjög aðlaðandi og sá ekki þreytumerki á henni þrátt fyrir, 15 þús. km. ferðalag. Hún var glaðleg og vildi allt um ísland vita. Sérstaklega var hún áhugasöm um þjóðbúning- inn, sem tvær hinna íslenzku kvenna klæddust I. ff — sagði Lynda Byrd, þegar stú* dentar færðu henni rokk að gjöf Ungfrú Lynda Bird Johnsson kom að Háskóla fslands kl. 25 minútur yfir tólf. Þar tóku á móti henni stúdentar úr hinum ýmsu deiidum Háskólans. í and- dyri skólans færði Ragnheiður Briem henni fagran blómvönd. Fimm manns munu fylgja ungfrú Lyndu I dag. Þau Hrefna Harðardóttir, Styrmir Gunnars- son, Sigurður Gissurarson og frú Bittnir. Eftir að Lynda Bird hafði heilsað stúdentunum gekk hún um Háskólann og skoðaði hann undir leiðsögu Jóns E. Ragnars sonar. Skoðaðj hún meðal ann- ars háskólakapelluna. Þar lék Guðjón Guðjónsson, guðfræði- nemi eitt lag á orgelið. Síðan var haldið til kennarastofunn- ar og þar drukkið kaffi, en Lynda Bird vildi aðeins Coca Cola. í kennarastofunni rabbaði hún við stúdentana og spurði mikið um námsfyrirkomulag og próf I Háskólanum. Hún var spurð að því hvað hún ætlaði að ge[a, þegar hún kæmi heim. Lynda Bird sagðist ætla. að byrja í skólanum n.k. mánudag. En hún er að búa sig undir B.A. próf í sögu. Meðal annarra kvenstúdenta, sem tóku á mótj henni má nefna Guðrúnu Agnarsdóttur, Áslaugu Ottesen, Kristrúnu Ólafsdóttur. Þá voru þarna full trúar stúdenta, stúdentaráðs og fulltrúar námsmanna I sérstök um háskóladeildum. I háskólanum sýndi hún mik inn áhuga á gömlum bókum sem henni voru sýndar, Guðbrands- biblíu, Gráskinnu o. fl. Eftir 15 til 20 mínútna dvöl ók Lynda Bird ásamt föruneyti sínu að Þjóðleikhússkjallaran- um, en þar mun hún snæða mið degisverð. Eftir það mun hún m. a. skoða Árbæjarsafnið og einnig mun hún fara I ökuferð um Reykjavík. Um leið og Lynda Bird kvaddi Háskólastúdentana færðu þeir henni að gjöf rokk. Lynda var mjög hrifin að gjöfinni og um leið og hún veitt; henni mót- töku sagði hún „þetta er alveg eins og rokkurinn hennar ömmu“. NORRÆNU SUND- KEPPNINNi LOKIÐ Norrænu sundkeppninni lauk I gær, 15. sept. Enn eru ekki komn ar neinar tölur um heildarþátt- töku en útlit er fyrir að þátttaka hafi verið meiri en árið 1960 er síðast var synt. Vísir hafði í morgun samband við Þorstein Einarsson íþrótta- fulltrúa og sagði hann að Akur- eyri væri eini bærinn sem hann hefði fullnaðartölur frá. Þar syntu alls 2600 manns, þar af 1966 Ak- ureyringar. Komið var á keppni milli hverfa, hvert þeirra yrði fyrst að synda boðsund út I Grímsey. Bænum var skipti í 5 hverfi þar sem áætlað væri að 500 manns gætu synt 200 metra og fór fram keppni milli þeirra. En ef 500 synda 200 metra gerir það sam- tals 100 kílómetra, sem er vega- lengdin út í Grímsey. Tvö hvérfi komust á áfangastað og voru hin nálægt því. Árið 1960 syntu 2094 bæjarbuar á Akureyri 200 metra. 1 Sundiaugum Reykjavíkur syntu 1 allt 3959 en sfðast syntu 5026. I Sundhöll Reykjavíkur syntu nú nærri 5750 en síðast syntu þar 7424. I sundlaug Vest- urbæjar syntu nú 2749 en það er I fyrsta skipti sem Norræn sund- keppni fer þar fram. í sundlaug Austurbæjarskólans munu eitthvað á 4. hundrað börn hafa synt 200 metrana. Mikill mannfjöldi synti 200 metrana 1 Reykjavík I gær, eða um 625. r

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.