Vísir - 16.09.1963, Side 5

Vísir - 16.09.1963, Side 5
V í SIR . Mánudagur 16. september 1963. 5 ús. fjár siátr- Húsavík í morgun. Slátrun sauðtjár hófst á Húsavík í morgun. Slátrað verður sanitals 35 þúsund fjár og mun slátrun standa til 18. okt. n. k. Úr einum hreppi verður Iangsam iega mest slátrað úr Mývatnssveit. Bændur eru þar yfirleitt fjárríkari en í öðrum sveitum sýslunnar, en það sem þykir þó meir um vert er hversu fé þaðan er vænt. Húsmæð- ur sem kaupa slátur á haustin sækjast fremur eftir að fá þau úr fé Mývetninga fteldur en öðru fé. iæðes forsefa — Framhald af bls. 8. vér búum við. Norður-Atlants- hafið er vort sameiginlega út- haf. Meðfram ströndum þess búa hinar elztu og traustustu lýðræðisþjóðir. Norður-Atlants- hafið er nú á tímum Miðjarðar- haf lýðræðisins. Vort land ligg- ur nálægt miðju, og vér skilj- um hvað í því felst. Herra varaforseti. Vér þökk- um innilega þessa heimsókn, sem er vottur vináttu og sam- starfs. Við sendum Bandaríkja- þjóð beztu kveðjur og árnaðar- óskir. Vér óskum þess að þér og frú Johnson, dóttir og fylgd- arlið flytjið heim með ykkur góðar endurminningar. Þér eruð hér í vinahóp. Ég bið gesti vora að rísa úr sætum. Við minnumst forseta Bandaríkjanna, Mr. Kennedy. FðnritðfiijaiioiÍeiEan f'ramhald ’ af bls. - 16. aginu, sem boðaður hefur verið í Iðnó kl. 5 í dag.' Þar munu trúnaðarmenn félagsins skýra efni hins nýja samkomulags, en síðan mun fara fram almenn atkvæðagreiðsla um það. Þess- um fundi lýkur í kvöld og þar með verkfallinu, ef samkomu- lagið verður samþykkt á fund- inum. 16 skip munu nú hafa stöðv- azt af völdum verkfallsins, síð- asta skipið sem stöðvaðist var Langjökull, sem kom til Reykja víkur s. I. föstudag. lorffuknattleiks- keppnin í París Alþjóða körfuknattleikskeppn in á að hefjast í París kl. 8 f kvöld, mánudagskvöld, hefur keppnin þannig dregizt f einn dag, en hún átti upphaflega að byrja á sunnudagskvöldið. I kvöld keppa England við Svíþjóð og ísland við Luxem- burg. Á þriðjudaginn keppa Is- land við Frakkland og England við Luxemburg. Á miðvikudag- inn ísland við Sviþjóð og Frakk land við Luxemburg. Á fimmtu daginn á ísland frí en Frakk- land keppir við England og Lux emburg við Sviþjóð. Á föstudag inn verður siðasti keppnisdag- ur, þá keppir England við ís- land og Frakkland við Svíþjóð. Af þessu má sjá, að írland sem fyrst átti að taka þátt í keppninni hefur nú fallið niður en England komið í staðlnn. Hljómsveit Svav- ars Isests endur- tekur kljómleikana Hljómsveit Svavars Gests, sem nýkomin er úr Iangri ferð um land allt, hélt sína fyrstu hljómleika í Austurbæjarbíói í gærkvöld. Hús- fyllir var og skemmti fólk sér hið bezta, enda var efnisskráin fjöl- breytt og skemmtileg. Skiptist á tónlist og skemmtiefni, og er þarna á ferðinni skemmtiefni fyrir alla aldursflokka. Hljómleikarnir verða endurtekn- ir í Austurbæjarbíói annað kvöld. igggfgp » Hægt að smyrja 100 bíla á dag S.l. laugardag opnaði Volks- wagen-umboðið nýja og glæsi lega smurstöð að Láugavegi 172. Á smurstöðinni er hægt að smyrja samtímis 3 bQa og verða eingöngu smurðir bílar af Volks agen og Land Rover gerð, Smurstöðin er einliver sú full komnasta hérlendis. Stór hluti hennar er flísalagður. I gólfinu undir hverri lyftu eru tvö sterk ljós sem lýsa upp allan undir- vagn bílanna og eru því allir handlampar óþarfir. „Smurtroml ur“ eru allar á sérstökum stæð um á gólfinu og er það til mik- ils hagræðis. Einnig eru allar vélar og dælur í sér einangrunar herbergi og fæst við það aukið rými í sjálfri smurstöðinni. Þá er og sérstök olíugeymsla. I sambandi við smurstöðina er vistleg biðstofa fyrir eigendur bílanna og einnig afgreiðsla. Vegna þess hversu tækin eru fljótvirk og fullkomin verður með fullum afköstum hægt að smyrja um 100 bíla á dag. Eig- endur bílana geta vallð um hvort þeir velja olfur frá Skelj- ungi, Olíuverzluninni eða OIíu- félaginu. Verkstjóri á smurstöðinni er Skúli Ólafsson. Hlaða brennur áAkureyrí Akureyri í morgun. í fyrrakvöld brann hlaða til kaldra kola á býlinu Kotá hjá Ak- ureyri. I’ hlöðunni voru 350—400 hestar af heyi, tókst að ná miklu af því út, en sumt er ónýtt og óvíst hversu tekst til um verkun á hinu. Það var laust fyrir kl. 9 í fyrra- kvöld að elds varð vart í hlöðunni á Kotá, en hún var gamalt báru- járnshús á trégrind. í henni voru 350—400 hestar af heyi. Þegar slökkviliðið kom á vett- vang, var mikill eldur kominn bæði í hlöðu og hey, Samt tókst slökkvi Á sýningunni SKRIFSTOFUTÆKNI 1963, sem haldin verður í Verzlunarskóla íslands, dagana 14. — 22. þessa mánaðar, gefst almenningi í fyrsta skipti hérlendis kostur á að sjá IBM skýrsluvélar og vélasamstæður starfræktar. Sýningin veröur opin frá kl. 2-7 síðdegis og verða vélarnar látnar vinna fjölþætt verkefni daglega frá kl. 5 til 7 e. h. Á ÍSLANDI Oftó A. Micheísen KLAPPARSTÍG 25—27 — SÍMI 20560 liðsmönnum með harðfylgi að draga út mikinn hluta heysins út úr hlöðunni með dráttarvélum. Heyið liggur nú á túninu fyrir utan, sumt virðist óskemmt að öðru leyti en því að það er renn- blautt af vátni, sem dælt var á eldinn.Annað er aftur á móti mjög skemmt af eldinum, og annað ó- nýtt með öllu. Reynt verður að þurrka heyið sem minnst er skemmt ef tök verða á, en þurrkar eru nú litlir, enda flestar nætur verið frost. Presfar sefftir inn í embæffi ó Efúsavíb Húsavík í morgun. í gær var nýi sóknarpresturinn á Húsavík, séra Bjöm H. Jónsson, settur inn í embættið af prófast- inum í Suður-Þingeyjarsýslu, séra Sigurði Guðmundssyni á Grenjað- arstað. Mikið f jölmenni var viðstatt og var athöfnin í hvívetna hin virðulegasta. Prestkosning fór fram á Húsavík 7. júií s. 1. Umsækjendur voru að- eins tveir, séra Björn og Hreinn Hjartarson cand. theol. Séra Björn H. Jónsson á marg- þættan starfsferil að baki, var m. a. um skeið lögregluþjónn og enn fremur gagnfræðaskólakennari í Reykjavík, en síðast var hann sókn arprestur á Árnesi á Ströndum. Hey og hlaða voru vátryggð. Talið er að um sjálfsíkveikju hafi verið að ræða vegna þess að heyið hafi verið látið of illa þurrt inn f hlöðuna í sumar. Eigandi hlöðunnar er Kristinn Björnsson bóndi á Kotá, sem rek- ur þar stórt bú með 20 kúm, 100 svínum og auk þess hæsnabúi nokkru. SKIPAFRÉTTIIl SKIPAUTGCRB RÍKISINS Dll«s. Esja fer vestur um land til Akureyr- ar 17. þ.m. Fareðlar seldir á morgun. Ms. Herðubreið fer austur um land í hring- ferð 17. þ.m. Farseðlar seldb á morgun. M.s. Skjuldbreið fer vestur um land til Akur- eyrar 18. þ.m. Vörumóttaka f dag til Breiðafjarðarhafna, á- ætlunarhafna Húnaflóa og Skagafjarðar, Ólafsfjarðar og Dalvíkur. Farseðlar seldir á morgun. úseignir til sölu Ný, glæsileg 7 herbergja íbúð ásamt bílskúr í Safa- mýri tilbúin undir tréverk og málníngu, tvöfalt gler í gluggum, til sölu nú þegar. Einnig er til sölu einbýlishús í Smáíbúðahverfi 7 her- bergi og eldhús ásamt bílskúr, allt mjög vandað. — Upplýsingar í síma 22851. «s«s»w»aBi»3s;í’ -- i.ijiiiimsjsiss&im&m. ■

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.