Vísir - 16.09.1963, Side 16
rnffl
Mánudagur 16. september 1963.
í landhelgi
Aðfaranótt suiuiudags kom
varðskipið Óðinn að brezka tog
1 aranum Thuringia frá Grimsby
l að ólöglegum veiðum út af Glett
i.nganesi, 2 mílur innan mark-
anna.
Farið var með togarann til
Seyðisfjarðar og fór þar fram
I málsrannsókn í gær.
Deilan nð leysast?
Famannafundur um sáttutill. / dag
KI. 2 í gær lauk nær
tveggja sólarhrínga
sáttafundi í farmanna-
deilunni með því að
samninganefndimar
staðfestu með undir-
skrift sinni nýtt sam-
komulag, sem þær
höfðu komizt að fyrir
sitt leyti, og verður það
lagt fyrir farmannafund
í Sjómannafélagi Reykja
víkur á fundi, sem hefst
í Iðnó kl. 5 í dag. í hinu
nýja samkomulagi mun
m. a. vera gert ráð fyrir
stighækkandi kaupi eft-
ir starfsaldri og breyttu
fyrirkomulagi á greiðslu
fyrir yfirvinnu.
Einar Amalds, yfirborgardóm
ari, stýrði hinum langa sátta-
fundi, sem lauk í gær. Að hon-
um loknum var víst flestum orð
ið mál á að fá sér blund og
sváfu menn af nóttina. En í
morgun voru stjóm og samn-
inganefnd Sjómannafél. Reykja-
vfkur semma á fótum og komu
saman á fund til undirbúnings
almennum farmannafundi i fél-
Frh. á bls. 5.
Sjö slösuðust ú Hell-
isheiði í fyrrinótt
BÍLL VELTUR Á
HRINGBRAUT
Sjö manns slöðuðust við bílveltu
sem varð á Hellisheiði, skammt
austan við Skiðaskálann aðfaranótt
sunnudagsins. Einn hinna slösuðu
var fluttur i sjúkrahús en gert var
að meiðslum hinna sex f Slysavarð
stofunni og að því búnu var þeim
leyft að fara heim.
Bifreiðin sem valt var sendiferða
bifreið sem var á leið til Reykja-
víkur af skemmtun er haldin var
í Aratungu í Árnessýslu í fyrra-
kvöld. Bifreiðin var skráð fyrir 2
Það slys varð sl. Iaugardag á
Reykjavíkurflugvelli að maður
varð fyrir skrúfublaði á kennslu-
flugvél og slasaðist töluvert. Mað-
urinn var þegar f stað fluttur á
slysavarðstofuna og siðan í Land-
spítalann.
Hlöðubruni
Húsavik í morgun.
Síðastliðinn laugardagsmorgun
gereyðilagðist hlaða ásamt heyi að
Bakka á Tjömesi. í hlöðunni voru
miili 250 og 300 hestar af heyi.
Slökkviliðið á Húsavík var kvatt
á vettvang, en þegar það kom á
staðinn, var hlaðan fallin og svo
mikill eldur I heyinu, að ekki varð
við neitt ráðið.
farþega auk ökumanns, en í henni
voru alls 8 manns. Hafði verið
komið fyrir sætum aftur í bifreið-
inni og töldu farþegarnir að það
hafi verið sæmilega rúmt um þá.
Þegar bifreiðin var komin lang-
leiðina að Skíðaskálanum seinni
hluta nætur, um 5 leytið, lenti hún
út af veginum og hafnaði á hraun-
bletti utan vegar. Mennirnir köst-
uðust allir til í bilnum, sumir
hrukku fram á framrúðuna, sem
brotnaði í mél, og hlutu við það
Á Iaugardagskvöldið var kennslu
flugvél að hita sig upp á Reykja-
víkurflugvelli. Inn; í flugvélinni sat
nemandinn sem er með einkaflug-
mannsréttindi og var að æfa sig
undir atvinnupróf. Flugkennarinn
skrapp frá vélinnj inn í flugaf-
greiðslu Flugsýnar, en í sama
mund bar að útlending. Skuggsýnt
var og sá nemandinn ekki mann-
inn fyrr en hann lenti í skrúfu-
blaðinu og hentist hann síðan frá
því. Maðurinn sem fyrir slysinu
varð er útlendingur og meiddist
hann töluvert á öðru lærinu. Þess
skal getið að flugvélin var með
ljós og áður en kennarinn yfirgaf
fiugvélina gekk hann I kringum
hana. — Samkvæmt upplýsingum
frá Landspítalanum er líðan manns
ins eftir atvikum góð.
meiri eða minni áverka, bæði á
andliti og víðar. Allir, sem í bif-
reiðinni voru, slösuðust, að einum I
undanteknum, sem að vísu skrám- í
aðist lítillega á hendi og fæti, en
svo óverulega, að honum þótti ekki
taka því að leita Iæknisaðgerðar.
Hinir hlutu meiri eða minni áverka
og einn þeirra, Vilhelm Þór Árna-
son, Efstasundi 91, slasaðist illa á
höfði og mæddi mjög blóðrás, var
fluttur í sjúkrahús að athugun í
Slysavarðstofunni lokinni. Að sár-
um hinna allra var gert í Slysa-
varðstofunni.
Bílar, sem komu á slysstaðinn
skömmu eftir að bifreiðin valt,
fluttu hina slösuðu til Reykjavíkur.
ökumaðurinn á bifreiðinni sem
valt reyndist ódrukkinn, en hánn
kvaðst enga grein geta gert sér
fyrir óhappinu, telur hugsanlegan
möguleika á að hann hafi sofnað
við stýrið.
| Sigldi ó lönd-
unarkrana
Brezki togarinn Aduba sigldi
í fyrradag á einn löndunarkrana
síldarbræðslunnar á Seyðisfirði
og skemmdist kraninn það mik
ið, að löndun með honum stöðv-
aðist. Kom þetta sér mjög illa,
þar sem Iöndun gekk mjög hægt
fyrir og löndunarstöðvun var.
Tjónið á krananum var metið,
og setti togarinn tryggingu fyrir
þvf. Viðgerð á löndunarkranan-
um hófst strax á laugardag.
Mjög harður árekstur varð á
Hringbraut vestan við Elliheimilið
síðdegis í gær.
Áreksturinn varð á seinni hluta
7. tímans e. h. og skeði með þeim
hætti, að lítilli fólksbifreið — 4ra
manna —- var ekið inn af Blóm-
vallagötunni í veg fyrir stóra 6
manna fólksbifreið, sem kom eftir
Hringbrautinni.
Þetta varð harður árekstur, þann
ig að litla bifreiðin valt á hliðina
og skemmdist mikið. Stóra bifreið-
in skemmdist tiltölulega lltið að
því er lögreglan tjáði Vísi f morg
un. Fólk í hvorugri bifreiðinni sak
aði.
í morgun höfðu orðið fjórir bif
reiðaárekstrar í Reykjavík fyrir kl.
10. Ekki varð slys á mönnum, en
sumir bílanna skemmdust mikið.
Lífil veiði
Reytingsafli var á síldarmiðunum
s. 1. sólarhring og hafa 11 skip
tilkynnt um afla, samtals 7350 mái.
Sfldin veiddist um 50 mflur SA af
Gerpi.
Veður var gott á miðunum f nótt,
en nú er að koma bræla, SV kaldi.
Þar sem lltill afli berst nú að
landi, er löndun farin að ganga
betur og er nú á sumum höfnum
austurlands hægt að fá löndun
svo til strax.
Löndun á Raufarhöfn gekk mjög
vel f s. I. viku, en engin skip eru
þar nú, og er þvi laust um 10
þúsund mála þróarpláss.
Þessi skip tilkynntu um afla s.l.
sólarhring: Lómur 800 mál, Engey
900, Gunnar 800, Akraborg 500,
Auðunn 500, Höfrungur II. 750,
Stefán Ben 250, Garðar GK 750,
Freyfaxi 700, Vigri 800, Páll Páls-
son GK 600
Borgarróð hefir samþykkt:
Samhærileg launakjör borgarstarfs-
manna og ríkisstarfsmanna
Otlit er nú fyrir að borgar-
starfsmenn f Reykjavík semji
við borgaryfirvöldin um svipuð
launakjör og samizt hefir um við
rfkisstarfsmenn. 28 flokka kerf
ið, sem ríklsstarfsmenn taka
laun eftir, var samþykkt í borg
arráði s.l. föstudag og kemur
fyrir borgarstjóm á næsta fundj
hennar. i
Á föstudaginn var lagt fram
bréf f borgarráði frá launanefnd
Starfsmannafélags Reykjavíkur-
borgar og launamálanefnd borg
arinnar, ásamt samkomulagi um
niðurröðun fastra borgarstarfs
manna í launaflokka, en þar er
gert ráð fyrir 28 launaflokkum.
Borgarráð samþykkti þetta sam
komulag fyrir sitt leyti og verð
ur það lagt fyrir borgarstjórnar
fund n.k. fimmtudag. 1 sem allra
stytztu máli sagt gerir þetta
samkomulag ráð fyrir sambæri
legum launakjörum borgarstarfs
manna og ríkisstarfsmanna.
Formaður Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar og launa-
nefndar þess er Þórður Ágúst
Þórðarson, en f launamálanefnd
borgarinnar eru Auður Auðuns,
Birgir ísleifur Gunnarsson, Ósk
ar Hallgrímsson og Guðmundur
Vigfússon.
Samkomulagið, sem borgar-
ráð hefir þegar fyrir sitt leyti
fallizt á, nær ekki til lögreglu-
manna þar eð þeir eru ekki f
Starfsmannafélagi Reykjavíkur-
borgar heldur í sérstöku félagi,
sem verið er að semja við um
þessar mundir.
LENTI I FLUG-
VÉLARSKRÚFU