Vísir - 15.10.1963, Blaðsíða 6

Vísir - 15.10.1963, Blaðsíða 6
VlSIR . Þriðjudaginn 15. október 1963. utlönd í uor^un útlönd í morgun útlönd í morsim útlqnd í mörgun- MAROKKOHtRSVtlTIR KO 100 KlLÓM. INMI Hermálaráðherra Alsír tilkynnti í gærkvöldi, að Marokkómenn hefðu gert innrás í Sahara og væru marokkanskar her sveitir, studdar skrið- drekum og flugvélum, komnar nærri 100 kfló- metra inn í þann hluta Sahara, sem Alsír til- heyrir. Sagt var og í fréttum frá AI- sír, að varnarsveitir Alsír berð- ust af mikilli hreysti gegn „deyj andi konungsveIdi“ Marokko. — Tveir hátt settir alsfrskir hers- höfðingjar voru sagðir fallnir. Þá var tilkynnt, að samtökum Afríkuþjóða hefði verið tilkynnt um þessa atburði. Fyrst var sagt frá bardögum um landamærastöðvarnar Massi- Beidi og Tinjoud, en þær eru tæplega 30 km. innan landamær anna. 1 Marokko var sagt, að þessar stöðvar hefðu verið tekn ar eftjr harða bardaga, seip stóðu 3 klukkustundir, og hefði þarna verið álíka mannmörgu liði að mæta og Marokkomenn tefldu fram. Ekki var greinilegt af fréttum I morgun snemma, á hverra valdi þessir bæir væru. Hassan konungur ávarpaði þjóð sfna í útvarpi og kvað Mar okko fúst til beinna viðræðna um landamæradeilurnar, en það mundi ekki hvika frá rétti sfn- um. Áður hafði verið sagt frá samkomulagi utanríkisráðherra •Marokko og Alsír um fund, og einnig um fund lielztu manna Tunis, Marokko og Alsír, en svo var að sjá af fréttum f morgun snemma, að tveir alsírskir sendi- menn væru á leið til fundar við marokkanska fulltrúa, en flug- vél þeirra hafi tafizt í Oran. Af hálfu Alsírstjórnar er því haldið fram, að Marokko hafi ágirnd á málmnámum í jörð f þeim Iandshluta, sem þeir hafa vaðið inn á, en einnig hafi þeir í huga að fá greiðan aðgang að landamærum Mauretaníu, sem þeir einnig ásælast. WnuaWRMIIMHMÉnMaWMlBI — ... í dag lætur dr. Adenauer, forsætisráðherra Vestur-Þýzkalands, af embætti, en við tekur Ludwig Erhard, efnahagsmálaráðherra. Á myndinni með dr. Adenauer og Erhard er Eugen Gerstenmaier, þingforseti, sem tilkynnir í sambandsþinginu, að dr. Adenauer láti af embætti. Kristilegir lýðræðissiimar og frjálsir demokratar hafa sameinazt um Erhard sem eftirmann hans og fer atkvæða- greiðsla um hann fram á þingi á morgun. Það er taiið „fyrirfram vitað“, að hann verði kjörinn. Ýmsir leiðtogar, þeirra á meðal Kennedy forseti, hafa farið lofsamlegum orðum um farsæla 14 ára stjóm Adenauers. ÁKVEÐIB í DAG UM EFTlRMANí MACMILLAN BUTLER varaforsætisráðherra Bretlands hefir boðað stjómarfund í dag, en Elisabet drottning kom heim í gær að aflokinni Skotlands- dvöl, og Macmillam er enn að hress ast og mun geta gengið á fund henmar þá og þegar. Það er þannig allt að verða til- búið undir forsætisráðherraskiptin og yfirlýsingar um þau mun að vænta þá og þegar, en allan dag- inn I gær voru ráðherrar og aðrir helztu menn flokksins á stöðugum fundum um málið. Það hefur nokkuð verið rætt um líkur fyrir að Home utanríkisráð- herra verði fyrir valinu, — ef ekki næst samkomulag um annan hvorn þeirra Butler eða Hailsham lá- varð. í Alger óvissa er enn um eftirmann Macmillans en ákvörðunin kann að verða tekin í dag. ■.V.V.V.V.VV.V.V.V.^V.V'.'.V.V.V.V.V.V.VAV.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V/.V.V.VAV.y 5 Atvinna — enskur Enskur maður, sem vill læra íslenzku og mun dvelja hér til næsta vors, óskar eftir einhvers konar atvinnu. — Margt kemur til gr^ina, kennsla o. fl. eða tækniieg teikning. Uppl. í síma 14172. Flóra / Reykjav'tk Það er ekki á hverjum degi, sem fellibyljir heiðra Island með návist sinni. Og það slíkur geysi bylur, sem varð 5000 manns að aldurtila suður á Haiti fyrir fá- um dögum! Þegar Reykvíkingar komu á fætur í gærrnorgun, mátti sjá að veður var allt válynt. Og er líða tók á morguninn, herti'veðr ið, svo að varla var stætt í úthverfum borgarinnar. Allmörg dæmi voru til bess að yngstu bornin fóru ekki í skólann vegna veðurofsans og undir há- degið rauk særinn óskaplegavið höfnina og Skúlagötuna. En sem betur fór var það ekki nema jaðar þessa mikla hvirfilvinds, sem snerti vestur- strönd íslands og sem betur fór kom ekki hér til neinna tíðinda svipuðum þeim og á. hinni sól- fögru eyju Haiti í Iíarabíska hafinu. Hin h'/imhiðu hlé Mér hafa borizt r.okkur bréf frá kvikmyndah’ásagestum vegna skrifanna hér um daginn V.VAV.VAVAV WAVA’. um hin hroðalegu hlé i kvik- myndahúsunum. Bréfritarar segj ast allir vera á sama máli um að þau séu óskiljanleg og til stórlegra leiðinda fyrir gesti kvikmyndahúsanna. Einhvern tíma mun atkvæðagreiðsla hafa farið fram í bíóunum um þau. Hví ekki að Iáta aðra slíka at- kvæðagreiðslu fara nú fram? Ekki er vafi á því að fæstir gestir munu telja sér nauðsyn- lega kortérshvild eftir klukku- tíma setu í bíóinu, eins og nú er upp á þá þvingað. Losfæt þorskhrogn . Ég hef jafnan augun opin fyr- ir nýjum kræsingum í verzlun- um borgarinnar, þar sem mér finnst maturinn, ekki síður en listin, auðga lífið. Fyrir ör- skömmu eru komin á markað- inn þorskhrogn gerð að hinurn bezta kavíar, og er það sjávar- afurðadeild SlS sem þetta góð- meti sendi á markaðinn. Allir kannast við grásleppuhrognin gómsætu, sem hér hafa alllengi fengizt, en þessi þorskhrogn eru góð viðbót á borðið og hið mesta hnossgæti hverjum sæl- kera. Verzlur.armenn matarbúða höfuðstaðarins eiga þakkir skild ar fyrir hina miklu fjölbreytni AV.VA' '-•.“.V VAVAVA'.V í innfluttum krásum, sem nú eru á boðstólum, ýmis raritet |I meira að segja frá Rússlandi og "I Kína. Og þá er ekki síður að finna nú í sumum verzlunum *« drjúgan skerf af öllu heimsins kryddi — hluti sem aldrei sá- Ij ust hér áður. Svo nú er auðvelt að setja saman indverskt curry eða fuglahreiður frá Ceylon, svo Ij maður tali nú ekki um ekta J. ungverskt paprikugúllas, sem er >1 eins og það réttilega á að mat- I" reiða. Ég leyfi mér að fullyrða, að ■; þessi sundurgerð í hráefni er I? eitt af því, sem gerir Reykavlk að sæmilegri stórborg, svo mað ur tali nú ekki um ánægju þeirra útlendinga, sem hér búa 'I og finna mat og krydd loks við sitt hæfi í reykvískum verzlun- 1» um. ■» ■ ■ SálfræBideild skóla ;■ Eitt þarf ég að leiðrétta að "I iokum. í sjalii hér á laugardag- ■; inn um Sálfræðideild skóla var 1« ekki nógu skýrt tekið fram, að % hún er til húsa í Tjarnargötu 12, og er forstöðumaður henn- J. ar Jónas Pálsson — viðtalstími ■!! milli 11-12 á morgnana. Hins II; vegar er það Geðverndardeild J. barna, sem er til húsa í Heilsu- «J verndarstöðinni. Kári. I* *. W.V.V.VAVAVAVAVAV/

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.