Vísir - 20.11.1963, Blaðsíða 6

Vísir - 20.11.1963, Blaðsíða 6
V í S IR . Miðvikudagur 20. nóvember 1963. 6 Fjórar nýjar y Framh. af b!s. 1. — Það voru notaðar flugvél- ar sem þú keyptir? — Já, ég keypti þær notaðar af Bandarfkjaher. Nv.iar kosta þær 6 millj. kr. stykkið en ég fékk þær fyrir 1 millj. kr. eða tæplega það. Þær eru 7 ára gamlar. — Hvað með greiðsluskil- mála? — Það verður að borga þær að sumu Ieyti fvrirfram og að hinu leytinu við móttöku. — Þú ert ríkur! — Það er óneitanlega erfið- ieikum bundið að borga þessa fjárhæð. Hinu kvíði ég þó meir ef ég fæ ekki aðstöðu tii að geyma vélarnar allt árið á Ak- ureyri sökum skýlisleysi., — Ekkert flugvélaskvli til? — Ekki ennþá. Það hefur lengi staðið til, en ekki orðið af því ennþá. Fjárskortur hefur hamlað framkvæmdum. En ef ekki verður byggt flugskýli á Akureyri á næstunni verð ég að geyma vélarnar f Revkjavík yfir veturinn. Það sér það hver sjálfur hversu henpilegt það er. — Hvað ætlastu svo fyrir með allan þennan flugvélakost? — Það verður tfminn og reynslan að skera úr. En fvrst og fremst til flutninga á fólki og vörum. Ifka til siúkraflugs. Það er yfrið nóg að gera ög ég hef á undanförnum árum flneið víðs vegar um land, en á of liti- um; og óheppilegum vélum. — Hefurðu hugsað þér að taka upp áætlunarflug til á- kveðinna staða? — Ekkert ákveðið ennþá með það, en það er ekkert því til fyrirstöðu ef svo ber undir. — Þú þarft að ráða til þín hejlan heruaf flugmönnum. — Vafalaust eitthvað, en á þeim er enginn skortur um þessar mundir. Ég gæti ráðið til mfn 20 — 30 flugmenn á stund- inni ef ég kærði mig um. t>að er mikið um atvinnulausa flug- menn. Annars þarf ekki nema einn flugmann á hveria þessara véla, þó aðstaða sé fyrir tvo. Það þarf heldur ekki neinn véla- han, eða aðra aðstoðarmenn f þær. Fyrsti snjórinn — Framh. af bls. 16 með sleða sína, sem blessuðu ^ þá náðargjöf að fá snjóinn til að reyna sleðana, sem þau hafa fengið svo fá tækifæri til að reyna. Mjög víða, einkum þó í úthverfunum áttu menn í erfið, leikum með bíla sfna. Sums- staðar reyndu menn að láta „renna f gang“, en það gekk erfiðlega, enn aðrir spóluðu sig áfram eftir götunum. Það var greinilegt að Revkvfkingar voru ekki viðbúnir fyrsta snjónum. Fyrir utan hjólbarðaverkstæði hafði víða myndazt þröng, þar voru menn að kaupa snióhjól- barða í stað sumarhjólbarðanna, sem til þessa hafa dugað. Strætisvagnaferðir í morgun , trufluðust talsvert, vagnarnir héldu margir hverjir ekki áætl- un og fjöldi manns kom of séint til vinnu og varð að bera fram afsökun við húsbónda sinn þ.e.a.s. ef hann var þá ekki að basla við að setja keðjur á bíl sinn. Á strætisvagnastöðum norpaði fólkið eftir vagninum, illa klætt í snjóskaflana, en leigubifreiðastjórar, sem voru við vinnu í morgun höfðu ærinn starfa. Nokkuð hefu-r bætt á snjóinn norðanlands og á Akureyri var snjókoma f morgun. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni var Öxnadalur og öxnadalsheiði þó fær talin stór um bílui.i og á Norðurleiðinni yfirleitt ekki um aðra trafala að ræða fyrir kraftmikla bfla. Á Bröttubrekku hefur snjó ekki fest að ráði ennþá, en svell myndast þar og þarf að gæta varúðar. í Dalasýslu er víða þæfingsófærð komin og leiðir algerlega lokaðar efti-r að kemur vestur f Gilsfjörð. Leiðir í námunda við Reykja- vfk oru seinfarnar í morgun, meir vegna blindu heldur en ó- færðar, þvf að yfirleitt hafði ekki fennt f skafla heldu-r var að mestu jafnfallinn snjór og hann ekki djúpur. Mjólkurbílum að austan seinkaði f bæinn af því hve illa sást til vegarins og sama gegndi um bíla sem fóru Hvalfjörð. Þar áttu bílar f erf- iðleikum i brekkum og sendi Vegagerðin stóran bíl, útbúinn snjótönn, þeim til aðstoðar. Austan af Fljótsdalshéraði var Vísi sfmað f morgun að þar færu samgöngur einkum fram á snjóbílum. Aðalófærðin er á neðanverðu Héraðinu og niður á firðina reyna ekki aðri-r bílar að komast heldur en snjóbílar. ðiícf Þeirf-jeppar sem hafa farið inn- an úr Fljótsdal niður á Egils- staði hafa verið 7 — 8 klst. hvora leið. Veizlan -- Framh. af bls. 1. voru pelli og purpura að mið- aldasið. Er fylkingin gekk f. sal- inn lék hljómsveit íslenzka þjóð- sönginn. Beggja vegna í göngum stóðu hallarverðir, „Beefeaters" heiðursvörð f hinum skrautlegu búningum sínum. Fögnuðu for- setahjónin hverjum gesti sem til veizlunnar kom en hana sátu um 450 manns. Nokkrir Islendingar voru þar viðstaddir, allmargir brezkir ráð- herrar, en meginþorri gestanna voru „City“ menn, þ. e. framá- menn verzlunar, banka og trygg- ingafélaga Lundúna, auk fulltrúa borgarstjórnarinnar. Reiddur var fram fimmréttaður matur og var matseðillinn skreytt ur myndum frá íslandi. Snætt var við kertaljós. Borgarstjórinn C. James Harmann flutti vins. lega ræðu og minntist langs sam- bands landanna. m. a. verzlunar- sambandsins. Ræða forseta Is- lands vakti mikla athygli. Dáðust menn að þvf hvílíkt vald hann hafði á enskri tungu og lofaði m. a. fyrrverandi borgarstjóri Bela- bere það mjög er við ræddumst við undir borðum. Forseti íslands sæmdi borgar- stjórann Fálkaorðunni af hárri gráðu. Emil Björnsson símaði .m.a. eftirfarandi f morgun: Yfirborgarstjórinn í London, Clement James Harmann, flutti mjög vinsamlega ræðu í garð Islands f veizlu þeirri, er hann hélt forseta íslands í Guildhall í gærkveldi. Hann gat þess, að for- seti íslands væri fyrsti erlendi þjóðhöfðinginn, er hann héldi veizlu. Hann ræddi um sögu Is- lands og samskipti við Bretland. Hann sagði, að þjóðirnar hefðu ávallt átt mikil viðskipti og mið- að við fólksfjölda ættu Islending- ar meiri viðskipti við Bretland en nokkur þjóð önnur utan samveld- isins. Þeir keyptu vörur f Bret- landi fyrir 30 pund á mann á ári hverju. Borgarstjórinn nefndi Is- land Aþenu norðursins og sagði að Bretar væru stoltir af að geta kallað Islendinga frændur. Hann ræddi um góða enskukunnáttu Is- lendinga og dáðist að þvf hvílíkt vald forseti fslands hefði á enskri tungu. Clement James Harmann borgarstjóri sagði, að íslendingar væru mikil bókmenntaþjóð og bókmenntir þeirra hefðu haft mik il áhrif á mörg ensk skáld. Þá ræddi hann um sjálfstæðisbaráttu íslendinga og lýðræðisskipulag. Hann sagði, að hið fslenzka þjóð- félag væri grundvallað á þing- ræðislegu lýðræði, sem væri brezk „tradition". Þó væri þing- ræðið eldra á Islandi en í Bret- landi. Borgarstjóri vék því næst að landafundum Islendinga tii forna og nefndi Leif heppna og landa fundi hans. Kvað borgarstjóri ■ hafið gera þjóðirnar að nágrönn- -%fnJi œ’ttfcBÉ fikiðtíí "'í "" jtjfp. fif ft'ðívcjí" i •» ■■] XJS Borgarstjóri sagði, að landhelg- isdeilan væri góðu heilli leyst fyrir 2 árum og öll sárindi, er skapazt hefðu við hana úr sög- unni nú. Hann sagði, að ísland nútímans væri á eins hraðri fram farabraut og önnur Evrópulönd þar sem framfarir væru mestar. Hins vegar væri Islendingseðlið óbreytt. Las borgarstjóri því næst upp snialla lýsingu á því eðli eft- ir Sir Richard Burton. Borgarstjórinn sagði ennfremur: Vinátta þjóða okkar er byggð á gagnkvæmri virðingu og sam. vinnu í alþjóðamálum. Við erum ákveðnir baráttumenn fyrir frelsi, lýðræði og einstaklingsfrelsi og heimskunnir fyrir að vilja verja þær hugsjónir. Vináttusamband þjóða okkar hefur aldrei verið traustara en nú og nærvera for- seta íslands í kvöld er tákn ensk- íslenzkrar vináttu og hið ánægju- legasta merki f sögu þeirrar vin- áttu milli þjóðar okkar. Forseti Islands færði drottn- ingu f gær að gjöf útgáfu Háskóla íslands af íslendingabók Ara fróða. En hún er bundin í dökk- rautt skinn, silfurskreytt víra- virki. Fyrirmynd víravirkisins er tekin frá íslenzku kvensilfri, sann- kallað drot'>ningargersemi. Að lokinni heimsókninni f Bucking- ham Palace ritaði forseti nafn sitt í gestabók ekkjudrottningar- innar í Clarence House, sem er aðsetur hennar. Fréttamyndir voru af komu forsetahjónanna í báðum sjón- varpsdagskrám brezka útvarpsins í fyrrakvöld og tveggja dálka mynd í Times af brezka forsætis- raðherranum að taka á móti for- seta íslands á Victoria-járnbraut- arstöðinni. I dag heldur forseti mikla mót- töku fyrir Islendinga á einu veg- legasta hóteli borgarinnar, Dor- chester. Leiðrétting Þau mistök urðu við umbrot blaðsins í gær, að niður féll kafli úr upphafi fréttarinnar frá heimsókn forseta íslands til Bretlands. Var það hluti úr frétt, er Björn Björns- son fréttaritari Vísis í London sfm- aði til blaðsins, sem féll niður. Það, sem féll niður var eftirfarandi: „Gosey var aðalumræðuefnið í veizlu þeirri, er Sir Alec Douglas Home, forsætisráðherra Breta, hélt forseta íslands í Downingstreet 10 í gærkveldi. Hinir brezku stjórn- málamenn, er sátu veizluna sögðu f gamansömum tón, að greinilegt væri, að forsjónin hefði sent Is- landi hina nýju eyju til þess að íslendingar gætu nú enn einu sinni fært út fiskveiðilandhelgi sína. Þeir gamansömustu sögðu, að sennilega væri nýtt þorskastríð í uppsigl- ingu!“ Hér kemur fram að það er Björn Biörnsson en ekki Emil Björnsson sem er fregnritari blaðsins í London.. Aðalfundur — Framh. af bls. 16 þakkaði hinum mörgu samstarfs- mönnum sfnum starf þeirra og per- sónulegan vinarhug í sinn garð. I stjórn Fulltrúaráðsins voru kjörnir Gunnar Thoroddsen, fjár- málaráðherra, Baldvin Tryggvason, framkvæmdastjóri, og Höskuldur Ólafsson, bankastjóri. 1 varastjórn voru kjörin frú Gróa Pétursdóttir, borgarfulltrúi, Jóhann Hafstein, dómsmálaráðherra, og Ágúst Haf- berg, framkvæmdastjóri. Formenn Sjálfstæðisfélaganna eru sjálfkjörnir í stjórn Fulltrúa- ráðsins. ^trengjasveit --- Framhald af bls. 9. hefði verið tæknilega frábær og borið blæ nákvæmrar ögunar jafnframt hjartanlegri leikgleði. „The Observer“ sagði um sömu hljómleika, að þeir hefðu verið eftirminnilegir. Strengja- sveitin hefði verið frábærlega vel samæfð, blæbrigði leiks hennar góð og sannfærandi og hún hafi sameinað í fullkomnu jafnvægi glæsileik, mildi, við- kvæmni, glaðleik og styrk. Eft- ir hljómleika „I Solisti Veneti“ í hljómleikasal Glyptoteksins í Kaupmannahöfn skrifaði gagn- rýnandi Berlingske Tidende, að strengjasveitin hafi haft ung- legan og frísklegan hljóm, yfir leiknum hafi leikið blær leik- gleði og einlægni, samfara miklu tæknilegu öryggi og fág- uðum samleik. Eldsvoði - Framh. af bls. 16. á staðinn með 4 bíla og allt iið ið var kallað út. Þegar á staðinn kom var mik- ill eldur í norðurenda bygging- arinnar. Nóg vatn var á staðn- um, en hinsvegar var bæði sterkur austan strekkingur og kuldi. Þakið á verksmiðjunni er fremur bratt og gekk slökkvi- liðsmönnum illa að fóta sig á því, vegna þess að vatnið fraus á þakinu og gerði það slökkvi- liðinu nokkuð erfitt fyrir. Fljót- lega gat slökkviliðið rofið gat á þakið að vestanverðu, en að austan var sprautað inn um þak glugga. Miklar skemmdir urðu á hús- inu í eldsvoðanum, en talið er að vélar hafi sloppið að mestu. Uppi í risinu var m.a. geymt nokkuð magn af bókum, þar á meðal mikið safn af Skírni. Það óhapp henti hinn dug- mikla va-ra-slökkviliðsstjóra Gunnar Sigurðsson, að hann féll niður um lúgu eða gat er hann var að vinna að slökkvistarfinu uppi á lofti I verksmiðjunni. Féll hann þó ekki alveg niður, - heldur upp að höndum, en við fallið brotnuðu 3 rifbein. Bruninn í Pípuverksmiðjunni í gær er þriðji stórbruninn, sem verður á Rauðarárstígnum á skömmum tima. Þann 18. júlí sl. var hinn mikli Isaga-bruni, við hliðina á Pípuverþsmiðjunni og 11. þ.m. kviknaði í mótor- verkstæði Egils Vilhjálmssonar, sem er rétt hjá Pípuverksmiðj- unni. Allt er þetta iðnaðarhús- næði og nemur tjónið milljón- um króna. Samkv. upplýsingum frá Magnúsi Eggertssyni, varð- stjóra í rannsókarlögreglunni voru eldsupptök ókunn í morg- un, en helzt var álitið að kvikn að hefði í út frá rafmagni. Þökkum af alhug auðsýnda samúð við andlát og jarðarför JÓNS SIGURÐSSONAR loftskeytamanns Lára Þórdís Jónsdóttir Guðlaug Jónsdóttir Sigriður Jónsdóttir Svanhildur Thors F. Hákonardóttir Sigurður Jónsson Katrín Jónsdóttir WiIIiam Gunnarsson Þórður Thors KONUR - HANDKLÆÐI Þær konur, sem eiga handklæði hjá mér, sæki það til mín sem fyrst. Ásta Baldvinsdóttir Eskihlíð 18. Sími 12770 ANDLITSBÖÐ - SNYRTING Andlitsböð, handsnyrting, augnabrúnalitun og megrunarnudd Sími 12770 HANDRIÐ Smíðum handrið. hliðgrindur og önnumst ýmsa aðra jámsmiðavinnu. Fljót afgreiðsla. Verkstæðið Langholtsvegi 31. Sími 35093 og 36497. HÚSASMÍÐI Getum tekið að okkur húsbyggingar og fsetningar á hurðum. Sími 36092 eftii kl. 7. SANDBLÁSTUR Sandblásum timbur og járn. Smíðum einnig skorsteinsfestingar fyrir sjónvarpsloftnet. Málmiðjan, Barðavogi 31. Sími 20599. STÚLKA óskast Afgreiðslustúlka óskast. Veitingahúsið Laugavegi 28B. STÚLKUR ÓSKAST Tvær stulkur óskast Þvottahúsið Bergstaðastræti 52 Símar 17140 og 14030 INNHEIMTUMAÐUR ÓSKAST Vel borgað — Tilvalið aukastarf Uppl. i símum 14856 og 17333

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.