Vísir - 02.12.1963, Síða 7

Vísir - 02.12.1963, Síða 7
7 V í S IR . Mánudagur 2. desember 1963. ÍÞRÓTTIi — Framh. af bls. 2. liðsins nú var hinn síðasti í mót- inu og enda þótt liðið væri fyrir leikinn dæmt til að sitja á botn- inum, var sigurinn jafn sætur. Víkingur náði að skora tvö fyrstu mörkin en iR jafnaði. Vík- ingum tókst enn að ná forystu og komust tvö mörk yfir. Allan leik- inn höfðu þeir yfir og léku mun betur en heldur áhugalitlir ÍR- ingar. 1 hálfleik var staðan 8:4, en skömmu eftir hlé var staðan orðin 11:6 fyrir Víking, en sigur- inn komst þó í verulega hættu þegar ÍR-ingar minnkuðu bilið í 13:11 örskömmu fyrir leikslok en Pétur fyrirliði Bjarnason tryggði sigurinn með vítakasti: 14:11, sem verður að teijast sanngjarnt fyrir betri leik hjá Víl-ing. Beztu menn Víkings voru Rós- mundur og Sigurður Óli, en hjá ÍR var Gunnlaugur sá sem mest kvað að. Dómari í tveim fyrri Ieikjum var Sveinn Kristjánsson og gætti oft ekki samræmis í dómum hans. LIÐIÐ ÚR 2. DEILD VAR NÆR BÚIÐ AÐ FELLA ’SLANDSMEISTARANA. - Valur, skipað mjög ungum og efnilegum leikmönnum, sem eru nú líklegastir til að flytjast í 1. 'eild, sköpuðu íslandsmeisturunum Fram það verkefni að verja titil :inn, sem að vísu tókst, en með miklum hörmungum þó. Valur komst yfir í byrjun með 3:1, sem féll vel í smekk áhorfenda, ef dæma mátti eftir hrópunum, enda sækjast menn eftir óvæntum úr- slitum. Fram tókst þó að koma kyrrð á með því að ríkja algjör- Iega í fyrri hálfleik og hafa 9:4 í hálfleik. Tvöföld vörn Vals kom liðinu hins vegar svo úr skorðum að um miðjan seinni hálfleik hafði Fram aðeins skorað tvívegis, en Valur fimm sinnum, og stóðu leikar þá 11:9. Sigurður Einarsson skorar þá 12:9, en Sigurður Dagsson 12:10 og Jón Carlsson 12:11, sem sann- arlega færði líf í leikinn. Það var hins vegar leikreynsla Framaranna sem gerði út um leikinn, ekki hvað sízt þegar Valsmenn skutu i tíma og ótíma og gleymdu að 'iugsa hvaða úrræði væru bezt. Þess vegna komst Fram í 14:11 og vann öruggan sigur 15:12. Framliðið lék ekki tiltakanlega lé- legan leik, en auðvitað ekki neinn stjömuleik heldur. Valsliðið kom í óvænt með getu sinni í síðari 'iálfleik og má örugglega spá svo ungu liði góðri framtíð. Beztu menn Vals voru þeir Bergur Guðnason og Sig. Dags- son, en hjá Fram þeir Ingólfur, Jón Friðsteinsson, Sigurður Ein- arsson og Guðjón. Dómari var Gunnlaugur Hjálm- arsson og dæmdi ágætlegá. Hollenzku nylonúlpurnar komnar aftur rnea fatriaðinn á fjölskylduna Laugaveg 99, Snorrabrautar megin - Sími 24975 Bíll til sölu Zephyr 4 til sölu. Tilboð óskast. Bíllinn er til sýnis á Hólsvegi 10 í kvöld og næstu kvöld. / Reykjav'skurmó'inu i handknatileik Staðan í Reykjavíkurmótinu í handknattleik (liifl. karla) er úú‘ þessi: y- Ármann KR 10:6. ik Víkingur — ÍR 14:11. i: Fram - Valur 15:12. FRAM 5 4 1 0 74:48 9 ÁRMANN 5 3 0 2 54:56 6 KR 5 2 2 1 49:51 6 VALIJR 5 2 0 3 54:56 4 ÍR 5 2 0 3 45:48 4 ÞRÓTTUR 5 2 0 3 47:69 4 VlKINGUR 6 1 1 4 62:63 3 Síðustu leikir mótsins eru á föstudaginn kemur og eru þessir: Ármann — Valur. Þróttur — KR. Fram - ÍR. Markhæstu menn mótsins eru þessir: Ingólfur Óskarsson, Fram, 27 Bergur Guðnason, Val, 23 Reynir Ólafsson, KR, 23 Þórður Ásgeirs&on, Þrótti, 19 Hörður Kristinsson, Ármanni, 18 Rósmundur Jónsson, Víking, 17 Gylfi Hjálmarsson, ÍR, 16 Árni Saniúelsson, Ármanni, 15 Gunnlaugur Hjálmarsson, ÍR, 13 Karl Jóhannsson, KR, 13 Dr/ Filip Pálsson, tannlæknir í Málmey, hefir nýlega gefið tann- læknadeild Háskólans Svensk tand- Iakare. tidskrift frá upphafi, en það hóf útkomu árið 1900. Metur Há- skótinn mikils þessa ágætu gjöf. H$. isja fer austur um land til Vopnafjarð- ar 7. desember. Vörumóttaka mánu dag og þriðjudag til Djúpavogs, Breiðdalsvíkur, Stöðvarfjarðar, Fá- skrúðsfjarðar, Reyðarfjarðar Eski- fjarðar, Norðfjarðar, Seyðisfjarðar, Borgarfjarðar og Vopnafjarðar. Far- seðlar seldir á föstudag. Ms. Skjuldbreið fer vestur um land til Akureyrar 4. desember. Vörumóttaka árdegis í dag til Húnaflóa- og Skagafjarð- arhafna, Ólafsfjarðar og Dalvíkur. Farseðlar seldir í dag. ARMSTÓLAR Sterkir Léttir Fjölhreytt úrval úklæöa Kristján Siggeirsson hf, 1 Laugavegi 13 — Simi 13879 Bifreiðaeigendur ATHUGIÐ! Opið alla daga — helga sem virka - frá kl. 8,00 f. h. til kl. 23,00 e. h. Höfum fyrirliggjandi flestar stærðir af fólks og vörubílahjólbörðum Einnig flestar stærðir af snjóhjólbörðum. — Hagstætt verð. H[óíbarðaviðgerðin Múla v/Suðurlandsbraut — Sími 32960.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.