Vísir - 02.12.1963, Qupperneq 15
V1S IR . Mánudagur 2. desember 1963.
!5
LBT'S GET THIS STKA.IGI IT— Ttf/S IS MY
eESPOHSIBILITy! WHEWI TELL YOU TO,
KEEf7 AWAY FKOW THESE IHFECTEt7 )
'-'I PUWOS. . .VOU OBEY *\El j---'
Emoir
Ff»turt SvndicAte. Ii
m*'
Ská'M
Það komu allt í einu hrukkur
1 andlit Leroyers, án þess fyrir
því væri sjáanleg nokkur sér-
stök ástæða, og svo jánkaði
hann þessu bara frekar þurr-
lega.
—■ Ég hef starfað mikið og
orðið margt að reyna, sagði
Bernier án þess að skeyta um
að Leroyer hafði mælt þurrlega,
og nú finn ég, að ég er farinn
að þreytast og óttast, að — í
stuttu máli — ég eigi ekki mörg
ár ólifuð. Það hefði ekki verið
sársaukalaust að kveðja dóttur
mína þannig, að hún væri ekki
vel stæð. Á okkar tíma er ekld
hægt að veita sér margt á' 6000
franka tekjum. Það veit ég vel,
því að ég hef sjálfur orðið að
lifa á þeim. Ég gat þó lagt dá-
lítið til hliðar, því að ég er
maður aðgætinn og sparsamur.
En fyrir dóttur mína fannst
mér þetta allt of lítið. Og þcss
vegna gafst ég ekki upp í þessu
máli — hennar vegna hafði ég
þrek til þess að berjast — til
sigurs.
Leroyer barði létt með fing-
urgómunum á, skrifborðsplötu
sína og var næsta taugaóstyrk-
ur.
— Þú hugsar ekki um annað
en Cecile þína?
— Já, um Cecile mína, einu
gleði mína hér í heimi —- ég
óskaði mér þess, að hún gæti
fengið að njóta gæða lífsins —
og er hamingjusamur, því að nú
get ég tryggt framtíð hennar.
Það er alltaf erfitt fyrir ungar
stúlkur að giftast vel. Nú getur
hún sjálf valið.
Bernier hafði mælt af ákefð,
næstum hita. Nú þagnaði hann.
Leroyer hristi höfuðið lítið
eitt. Bernier sá það og spurði:
— Ertu mér ekki sammála?
— Mér finnst nú, að menn
megi ekki vera of kröfuharðir.
— Hvers vegna ekki? Ceciie
er falleg og vel upp alin. Hiin
hefur marga góða kosti og nú
er hún í ofanálag orðin rík. Hún
hefur rétt til metnaðar. Hún
ætti skilið að giftast fursta.
Leroyer hristi aftur höfuðið.
— Já, ég skil það, að þú gleðj
ist yfir að geta gert margt fyrir
barn þitt, sem þú aldrei gaít
fyrr — jafnvel til eyðslulífs,
sem þú að vissu leyti hefur bú-
ið hana undir með mikilli eftir-
látssemi, — þú fyrirgefur að ég
segi það, en ég játa, að það er
stórt atriði hve heitt þú elskar
hana og víst er hún indæl stúlka
svo að ég get svo sem vel skilið
hrifni þína, en það er margt
sem þú gleymir — sumu manstu
ekki eftir að minnsta kosti.
— Hverju gleymi ég?
— Cecile er hjónabandsbarn?
— Já, en við hvað áttu?
— Heyrðu nú, vinur minn,
sagði Leroyer og horfði beint
framan í Bernier, þú veizt að
við þig tala ég alltaf eins og
mér býr í brjósti, og þú mátt
ekki nú frekara en áður taka
því jlia, að ég mæli af hrein-
skilni, kannske miskunnarlausri
hreinskilni. Það verður ekki í
fyrsta sinn, sem við tölum um
þessa hluti. Ef þú — fyrir löngu
— hefðir farið að mínum ráð-
um — ættirðu ekki nú sorg-
legar minningar.sem útlit er fyr
ir að þú hafir gleyrnt í gleði
þinni yfir nýfengnum auði, en
samvizka mín býður mér að
vekja þessar minningar aftur til
lífsins í huga þér —- hafirðu
verið búinn að verpa þær moldu.
Skilurðu hvað ég er að fara?
—- Sannast að segja veít ég |
það varla. '
— Þú segir þetta i hfein-
skilni?
— Efastu um, að ég segi
satt?
XVIII.
— Nei, svaraði Leroyer, i
ég geri það ekki, en orð þín !
sanna, að minni þitt er ekki
eins gott og það eitt sinn var.
Hlustaðu á mig.
Bernier hreyfði sig, eins og
hann væri gripinn óþolinmæði.
— Það verður að hafa það,
sagði Leroyer, en ég verð að
segja það, sem mér fínnst, að
ég verði að segja. Við erum svo
góðir vinir og höfum verið svo
lengi, að ég læt það ekki hafa
áhrif á mig, þótt þú virðist vera
í slæmu skapi, en það stendur
varla lengi. Þegar þú varst auo-
ugur og allur auður þinn var
bundinn f fyrirtækjum, og þú
gazt ekki kippt fé þínu úr þeim,
datt mér ekki í hug að bera
fram þá spurningu, sem ég ætla
að gera nú. Þegar ófyrirsjáan-
leg óhöpp og harka vátrygginga
félaganna hafði nær bugað þig
og þú áttir eftir aðeins litla upp
hæð, sem þú trúðir mér fyrir,
og ég var svo heppinn að geta
látið vaxa og skila góðum arði,
fannst mér ekki hentugur tími
til þess að fitja upp á því, sem
ég ætla að gera nú. Nú er staða
þín öll önnur. Þú hefur unnið
mál þitt og hefur mikið fé til
1 umráða, og þú skuldar ekkert.
, Þú ert ekki lengur ungur, margt
j ættirðu að hafa og hefur vafa-
ilaust lært af reynslunni, og ég
| treysti, að þú verðir ekki svo
I óhygginn, að setja fé þitt í vafa
! söm fyrirtæki.
! — Það geri ég ekki, það væri
hreint brjálæði — og ég held,
að ég sé með fullu viti.
— Þá ætti framtíð þín líka
að vera örugg, og þú ættir að
geta notið lífsins í ró og næði,
eftir fremur stormasama ævi til
þessa. Þú getur einbeitt þér að
því að tryggja framtíð dóttur
þinnar. En, kæri gamli vin, sef-
ur samvizka þín, eða er hún
kannske dáin? Hvarflar hugur
þlnn aldrei til liðna tímans?
Leroyer mælti hátíðlega, næst
um alvarlega.
Bernier hnyklaði brúnir og
mátti sjá, að honum geðjaðist
ekki að því, að Leroyer hafði
fært talið inn á þessa braut.
— Þú ætlar vitanlega að fara
að tala um Angelu við m!g?
— Já og sú staðreynd, að þú
ætlar svo vera, sannar, að þú
hugsar sjálfur um barnið, sem
á rétt til að bera nafn þitt, þar
sem þú gekkst við því, en neir-
aðir um alla föðurlega um-
hyggju.
Bernier reis skyndilega á
fætur og virtist í svip ætla að
rjúka út, en er hann bjóst til
að svara, greip Leroyer fram í
fyrir honum, og hélt áfram:
Hjólbarðaviðgerðir
Höfum rafgeýmahieðsJu og hjólbarðaviðgerðir. Seijum
einnig nýja ódýra hjólbarða og rafgeyma. Höfum felg-
ur á margai legundir bifreiða. - Opið á kvöldin kl.
19—23. taugardaga ki. 13—23 og sunnudaga frá kl.
10 f.h. til 23 e ,h
HJOLBARÐASTOÐIN. Sigtúni 57, sími 38315
Hreinsum vel og fljótf
Hremsum allan tatnað Sækjum - Sendum
EFNALAHGIN LINDIN H.E., Skúlagötu 51, sími 18825
Hatnarstræti 18. simi 18820
Ve g§ff@sting
iofffesting
Mælum upi
Sefjum upp
5IMI 1374 3
L I Nf DARGÖTU 25
LAUGAVEGI 90-02
Seljum í dag Landrover-
diesel árgerð 1962.
Hárgreiðslustofan
HÁTÚNI 6, simi 15493.
Hárgreiðslustofan
SÖLEY
Sólvallagötu 72.
Sími 14853.
Hárgreiðslustofan
P I R O L A
Grettisgötu 31, simi 14787.
' Hárgreiðslustofs
'VESTURBÆJAR
1 Grenimel 9, sími 19218.
1 Hárgreiðslustofa
lAUSTURBÆJAR
| (María Guðmundsdóttir)
Laugaveg 13. sími 14656
I Nuddstofa á sama stað.
1 Hárgreiðslu- og snyrtistofs
STEINU og DÓDÓ
Laugaveg 18 3 hæð (lyfta)
Sími 24616
Hárgreiöslustofan
Hverfisgötu 37. (horni Klappar- 4
stigs og Hverfisgötu). Gjörið!
svo vel og gangið inn. Engar I
sérstakai pantanir úrgreiðslut
P E 8 M A, Garðsenda 21, sími
I 33968 — Hárgreiðslu og =nyrti-
| stofa.
Dömu, hárgreiðsla við allra hæfi!
TJARNARSTOFAN,
rjarnargötu 10, Vonarstrætis-
meain Sími 14662
Hárgreiðslustofan
„ JSL
O) o
Háaleitisbraut 20 Simi 12814
IMEGRUNARNUDD
Dömui athugið. Get bætt við I
' mig nokkrum konum i megrun-
| arnudd Snyrtistofa Guðbjargar /
i Guðmundsdóttur. Laugavegi 19. T
, sími 12274 1
Tarzan kallaði á híaomi, og skip spítala í New York. Tarzan lætur Grípur um úlnlið hennar, og snýr og allt sem hér skeður. Og þegar
ar henni að koma til baka, en hún sér það ekki vel líka, og stikar henni snögglega við. Við skulum ég skipa þér að gera eitthvað,
skeytir því engu, og arkar áfram á eftir henni. Hann tekur mun hafa allt á hreinu, segir hann reiði þá hlýðir þú.
eins róleg og hún væri stödd á stærri skref, og nær henni brátt. lega, þetta þorp er á minni ábyrgð
Hiforfiostir
Miklatorgi