Vísir - 23.12.1963, Síða 1

Vísir - 23.12.1963, Síða 1
Jólahátíðin í ARGYLE Séra Kristján Róbertsson þjónar nú íslenzka sðfnuðinum í Argyle í Kanada. Hann ritar hér grein um dWH sina þar og minnist sérstaklega á undirbún- ing jólanna þar vestra, sem er með nokkuð öðru sniði en hjá heimaþjóðinni. nannBpoQOBooaqnnaoojnn JJvaC er Argyle? Þeirrar spum * ingar var ég oft spurður um það leyti, er við hjónin vorum að yfirgefa Island fyrir rúmu ári sfðan. Sjálfur hafði ég ekki þá skýr svör á reiðum höndum, en nú skal reynt að svara þeirri spumingu í höfuðatrið- um. Argyle er hérað eða byggð í sunnanverðu Manitoba-fylki, og þar af leiðandi nánast f miðju Kanada. Byggðin er ekki stór um sig, rúmlega 20 kfló- metrar frá norðri til suðurs, en öllu styttra frá suðri til vest urs. Tveir bæir em sinn í hvor um enda byggðarinnar, Glen- boro að norðan, en Baldur að sunnan. Um alla byggðina em svo bóndabæir á víð og dreif, og er sums staðar allþéttbýlt. Lega byggðarinnar er mjög hag stæð bæði hvað snertir sam- göngur og markaðsstöðvar. Stórborgin Winnipeg er aðeins 160 kflómetra norðaustur af Argyle, og Brandon, sem hefur um 35 þús. íbúa og er mikill verzlunarbær, er um 80 kíló- metra fyrir norðvestan. Landa mæri Bandaríkjanna eru svo aðeins um 60 kílómetra fyrir sunnan. Vegir allir em mjög góðir í hvaða átt sem farið er. Argyle-byggð er víðast hvar mjög frjósöm og fögur, með frjósömustu landbúnaðarhémð um Manitoba. Hveitirækt og holdanautarækt er aðalatvinnu vegur bænda og virðist gefa þeim góðan arð. Sunnan til í byggðinni em ávalar, skógi- vaxnar hæðir með smávötnum á milli, fagurt landslag og gimi legt fyrir sumargesti, ekki sízt vegna vatnanna, en við sum þeirra em ákjósanlegir baðstað ir. Kiwanis Beach er sumarbað staður skammt fyrir sunnan fjórir íslenzk-Iútherskir söfnuð ir stofnaðir, og störfuðu þeir með miklum blóma um langt skeið. Fjórar fallegar og reisu legar kirkjur f byggðinni bám hinni íslenzku trúararfleifð fag urt vitni. j£n tfmamir breytast og menn imir með. íslenzkir bænd- ur em nú að verða f minnihluta í Argylebyggð, og fólk af blönd uðu þjóðemi og uppmna setur nú svip sinn á bæina Glenboro og Baldur í stað íslendinga. í byggðinni sjálfri em belgískir og franskir bændur að leggja undir sig landið smátt og smátt. Fólk af enskum og skozkum uppmna er i meiri- hluta f bæjunum en þó er þar líka talsvert af fólki af öðrum þjóðemum, Ukrainumenn, Þjóð verjar, Svíar, Norðmenn, jafn- vel einstaka Kfnverjar, Gyð- ingar og Júgóslavar. Fmm- byggjar Kanada, Indíánamir, hafa svo bækistöðvar hér f ná- grenninu og eru tiðir gestir í 000000000000000000000 <• fe.i SERA KRISTJAN ROBERTSSON RITAR VISI FRÁ ISLENDINGABYGGÐ INNI 1 CANADA 00000000000000000000000000000000000000000000 Glenboro og fer aðsókn þang- að vaxandi með hverju ári. Skammt fyrir suðvestan Argyle eru líka tveir kunnir baðstaðir, Ninette og Killarn- ey. Er þar oft fjölmennt yfir sumarmánuðina, enda er nátt- úrufegurð mikil á báðum stöð- um. Argylebyggð var fyrst num- in af íslendingum laust eftir 1880, og um skeið voru íslend- ingar nær einvaldir í byggðinni og íslenzka töluð á nálega hverju heimili. Snemma vora bæjunum. Þetta má því heita hin furðulegasta blanda af þjóð emum, en allir lifa saman í sátt og samlyndi, og þjóðemis rígur er hér ekki til. Uppruna- legt þjóðemi skiptir ekki leng- ur máli. Allir eru fyrst og fremst Kanadamenn, og sér- kenni hinna ólíku þjóðerna hverfa smátt og smátt. íslenzk an er nú sem óðast að svngja sitt síðasta vers hér í Argyle. Enn er aö vísu til fólk, sem tal ar allgóða íslenzku, en bað fólk er þó flest miðaldra eða eldra. f Argyle. Jóladýrðin er sú sama i öllum löndum. Lúthersku kirkjumar eru nú ekki lengur einar um hituna í byggðinni, og fólk af alls kon- ar þjóðemum sækir nú hinar lúthersku kirkjur ekki síður en íslendingar. Kirkjumálið er því eingöngu enska nú 'orðið. Eftir 20—30 ár má ætla að íslenzka heyrist ekki hér lengur manna á meðal. Svo vikið sé að fréttum héð an úr byggðinni, þá var sum- arið hér um slóðir með eindæm um gott. Hitar voru þó allmikl ir með köflum, frá 27 og upp í 35 gráður á Celcius yiku eftir viku. Einstaka daga brá hit:nn sér hærra, en það var samt ekki oft. Þrumuveðrin voru þægileg tilbreyting í hitamoll- unni, en þau eru að jafnaði nokkuð tíð hér í Manitoba á sumrum. Veturinn hefur einnig verið ljúfur og kurteis það sem af er. Snjór féll ekki að ráði fyrr en fyrir rúmri viku, og frostið hefur ekki bitið illilega ennþá. Hingað til hefur frostið ekki orðið meira en um 20 stig á Celcius, en f janúar og febrúar má búast við að það fari niður í 35 — 40 stig. Annars einkenn ist veturinn hér yfirleitt af hreinviðri og stillum. Tólahátfðin færist nú óðum nær " hér sem annars staðar, og er æði tími síðan farið var að minna á hana af sumum. Kaup mennimir hér hafa mikinn á- huga á jólunum, og er sá áhugi ekki eingöngu trúarlegur. í byrjun nóvember hefst jóla- kapphlaupið og skreytingar verzlananna, og fer ofboðið síð an jafnt og þétt vaxandi til jóla. Útiskreytingar eru þegar orðnar allmiklar hér í sjálfum bænum, stjömur og ljósakeðj- ur hangandi þvert yfir götur og allstórt tré er komið upp á að- alkrossgötum bæjarins. Allt á þó þetta eftir að vaxa því nær sem dregur jólum. Úti- skreytingar við einstök hús og gluggaskreytingar í hýbýlum manna eru líka algengar hér um jólin, og setja þær svip sinn á bæinn, þótt misjafnlega séu þær smekklegar, eins og gengur. Slíkar skreytingar eru þegar komnar upp við nokkur hús, þar á meðal við hús Fred Fredericksons kaupmanns, en hann er jafnan fyrstur manna' hér í bæ að skreyta i kringúm hús sitt fyrir jólin. Fred er af íslenzkum ættum. ættaður af Melrakkasléttunni, vel metinn og vinsæll hér, enda drengur hinn bezti. Framhald á bls. 30. VISIR Mánudagur 23. desember BLAÐ II. I

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.