Vísir - 02.01.1964, Blaðsíða 5
V1SIR . Fimmtudagur 2. janúar 1964.
5
/ óveðrínu á nýársnótt
í óveðrinu á nýársnótt eyðilagð-
ist stór byggingakrani við nýbygg-
ingu efst í Bólstaðahlíð. Stykki í
krananum mun hafa staðið á sér
þannig að hann stóð á móti vindi
og brotnaði að lokum.
Kranar sem þessir munu ekki
notaðir, ef eitthvað er að veðri, að
því er byggingameistarinn við bygg
ingu þessa tjáði okkur í morgun.
Er það gert í öryggisskyni, enda
geta óhöpp af þessu tagi alltaf hent
sig, og sjálfsagt að vera á verði
gegn þeim.
Myndin sýnir gjörla hvernig kran
inn hefur kengbognað og lagzt 1
jörðu, en sem betur fór lagðist
hann ekki yfir mótauppsláttinn,
enda hefði tjónið orðið mun veru-
legra hefði svo farið.
r
Avarp forsetans
Framhald af bls. 7
styrkur. Persónuleg viðkynning
og vinátta við nágranna- og við-
skiptaþjóðir vorar og ráðamenn
þeirra, er vorri fámennu þjóð
nauðsyn. Þekking á íslandi nú-
tímans fer vaxandi meðal þeirra
sem máli skiptir. Vér erum ekki
lengur utan sjóndeildarhrings-
ins, og vér fögnum því, þegar
oss er sýndur skilningur og vina-
hót.
Ég vil að lokum bæta við sög-
una og bókmenntirnar öðrum ó-
launuðum fulltrúa íslands erlend-
is, en það eru allir íslendingar,
sem þar búa, ýmist við nám eða
heimilisfastir. Við höfum á ferð-
um okkar hitt fjölda þeirra, og
ekki sízt nú á Englandi og Skot-
landi. Það er ánægjulegt, hve oft
máður verður þess var, hve vel
þeir bera ættlandi sínu söguna
mfeð framkomu sinni, hæfileikum
og starfi. Tryggð og ástúð sem
þéþ sýna við svona tækifæri er
mpð ágætum. Það ber oss að
þakka, enda má Fjallkonan vart
við því að missa neitt af börn-
um sínum.
Að svo mæltu óskum við hjón-
in, öllum gleðilegs nýárs og
þjóðinni gæfu og gengis á þessu
nýbyrjaða ári og guðsbiessunar.
stríði innan þjóðar? Hvergi á þó
innbyrðis ófriður og stéttarstríð
minni rétt á sér en í okkar ör-
smáa þjóðfélagi, þar sem allir |
eru vaxnir af sömu rót og raunar j
náskyldir I orðsins eiginlega skiln j
ingi. Hættum þeirri togstreitu j
stéttanna, sem engum færir á-1
báta. Látum það ekki henda, að ;
öflugum samtökum, sem stofnuð ;
eru til almennings heilla, sé beitt!
gegn handhöfum rlkisvaldsins, '
sem löglegur meirihluti hefur trú
að fyrir umboði sínu.
Sameinumst um að gera þeim,
er örðugast eiga, lífið léttara og
búa þjóðinni allri hagsæld og frið
I okkar ástkæra en erfiða landi.
Að svo mæltu óska ég öllum
íslendingum gleðilegs árs 1964.
Leltin —
Framh. af bls. 1.
I tækinu hafði staðið á sér
ventill
og gefið of lítið loft.
Bárður Jónsson er maður í meðal! bifreiðin öll
lagi hár, dökkskolhærður með : hana upp. Mun hún vera gjörónýt.
þunnt hár. Hann mun vera klæddur
Björguðust —
Framh. af bls. 16.
unum út og lágu þau fyrir utan
húsið öll illa brunnin.
— Klukkan var um 11 á ný-
ársdagsmorgun þegar gestkom-
andi maður vakti okkur og kall-
aði: Eldur, eldur. Eftir nokkrar
mínútur vorum við öll komin
út, flest á náttfötunum einum
saman. Mér tókst að komast
inn aftur og ná I buxurnar
mínar, en tæpum tveim mínút-
um eftir að við vorum komin
út var húsið að heita má al-
elda. Konan mfn tók sængina
með sér og var það það »eina
.sem-okkur-tókst að bþarga, ÖH,
húsgögnin Irú .-kolbrunrtint en*
innbú var allt óvátryggt, sagði
Ingimundur.
1 Teigi bjó Ingimundur, á-
samt konu sinni Stefaníu Guð-
mundsdóttur og fimm börnum,
einnig bjó móðir hans I hús-
inu, en hún var ekki heima, þeg
ar eldurinn kom upp. Talið er
að eldsupptökin .hafi verið I aust
urenda hússins, en þar svaf mað
ur sem var gestkomandi og
vakti hann heimilisfólkið.
Teigur er timburhús, ein hæð
og ris, byggt 1929 og stendur
það við Nesveg. Eins og fyrr
segir var allt innbú óvátryggt
og hefur þvl fjölskyldan orðið
fyrir tilfinnanlegu tjóni.
Bifreið veltur —
Framh. af bls. 16.
höfuðhögg. Voru þeir fluttir f
sjúkrahús.
Báðir mennimir eru frá Borgar
nesi. Bifreiðastjórinn heitir Gunn-
ar Kristjánsson en með honum
var Axel Þórarinsson. Bifreiðastjór
inn mun ekki hafa verið vanur bif-
reiðinni. Farið var með útbúnað
að Bægisárbrú til þess að ná bif-
reiðinni upp. En það tókst illa. Fór
I sundur er hífa átti
Framh. af bls. 9.
einu — leiðina til bættra lífskjara.
Öll vonum við, að stríð á milli
þjóða séu úr sögunni. En halda
menn þá heilladrýgra að eiga I
I tvlhnepptan jakka með ljósum
teinum, og vestispeysu, brúnum Iág
um skóm og með dökka húfu með
skyggni. Einnig getur vferið að hann
sé klæddur Ijósum rykfrakka, sem
hann hafði gleymt, en tók hjá vina
fólki sínu á Nýbýlavegi, þar sem
hann sást síðast. Bárður mun hafa 1
verið lítilsháttar meiddur á vinstra
fæti og stingur því við.
Hafi menn orðið varir við Bárð
eftir kl. 4,30 á mánudag eru þeir
beðnir að hafa samband við Kópa
vogslögregluna.
Nýr bæjargjaldkeri
á Ákureyri
Ráðinn hefur verið nýr bæjar-
gjaldkeri á Akureyri, Guðmundur
Jónsson, viðskiptafræðingur. Hann
hefur starfað nokkur ár á bæjar-
skrifstofum Akureyrar.
Fjórir sóttu um starfið sem var
auglýst laust til umsóknar skömmu
eftir að bæjarritarinn varð veikur
og varð að láta af störfum en þá-
verandi bæjargjaldkeri tók við störf
um hans.
Óskum öllum viðskiptavinum vorum
og öðru landsfólki
gleðilegs nýárs
Búnaðarbankinn
Iðnaðarbankinn
Samvinnubankinn
Sparisjóður vélstjóra
Bárugötu 11
Sparisjóðurinn Pundið
Klapparstíg 27
Verzlunarbankinn
Eimskipafélag Reykjavíkur
Yélsmiðjan Dynjandi
Dugguvogi 13
Bílasala Matthíasar
Höfðatúni 2
Vélsmiðjan Járn h.f.
Síðumúla 15
Radioverkstæðið Hljómur
Skipholti 9 ^
I .v, . þíff f .
f| P4tneinaða yerksniiðjuafgréiðslan
(SAVA) í Bræðraborgarstíg 7
Félag ísl. stórkaupmanna
Félag ísl. iðnrekenda
Björgvin Sehram
Heildverzlun, Vesturgötu 20
Bruninn
Framh. af bls. 16.
ist. Mátti heita að húsið yrði al-
elda á örskammri stundu.
Svo litlu mátti muna að fólkið
gat nauðuglega bjargast út, allt
meira og minna fáklætt, en syni
Ingimundar, sem er um fermingu
varð að bjarga út, því hann var
þá meðvitundarlaus orðinn af reyk.
Fljótlega eftir að hann kom I
ferskt loft komst hann til meðvit-
undar aftur og jafnaði sig. Full-
yrða má að þarna hafi mjóu mun-
að.
Klukkan var um 11 þegar
slökkviliðinu barst vitneskja um
eldsvoðann. Húsið var þá alelda
orðið og mjög erfitt um allar að-
stæður til slökkvistarfs, ekki sízt
vegna roksins sem var mikið. Stóð
eldurinn beint á nærliggjandi hús,
sem er steinsteypt, en það tókst
að verja.
Enda þótt Teigarhúsið standi
uppi er það allt kolbrunnið að
innan og er talið gerónýtt. Engu
varð bjargað úr því og allt var
innbúið óvátryggt nema gömul og
lág trygging á innbúi ekkjunnar
sem átti húsið. Fólkið stendur því
allslaust uppi', en nágrannar skutu
skjólshúsi yfir það I gær.
Um eldsupptök er ekkert vitað,
nema hvað talið er að þau hafi
veHð á rishæðinni.
Slökkviliðið hefur haft ýmis-
legt fleira að gera um áramótin,
þfett ekki sé um stórbruna að
ræða. í gærmorgun var það kvatt
að Njálsgötu 1. Þar hafði verið
kveikt I timburstafla undir hús-
tröppum, en eldsins varð fljótlega
vart og tókst slökkviliðinu að kæfa
hann áður en teljandi skemmdir
hlytust af. í gærkveldi var það
kvatt að veitingahúsinu Glaumbæ
við Fríkirkjuveg. Kviknað. hafði í
rusli I geymsluskúr, en þar var
einnig. fljótlega slökkt.
Á gamlársdag var slökkviliðið
oft kvatt á vettvang. Þá munaði
litlu að illa færi I verzlunihni
Álfabrekkú við Suðurlandsbraut
þegar kviknaði í flugeldum inni í
verzluninni. Með snarræði tókst
að sópa flugeldunum niður í vask,
en þrátt fyrir það urðu nokkrar
skemmdir af eldi, vatni og reyk,
þó minni en áhorfðist.
Sama dag kviknaði í útvarps-
grammófóni á Smáragötu 6,
sennilega út frá biluðum rofa í
tækinu. Skemmdir urðu ekki nema
á fóninum.
Slökkviliðið var kvatt á nokkra
aðra staði, en af litlu tilefni og
a.m.k. þrisvar var það gabbað.