Vísir - 16.01.1964, Blaðsíða 5
VÍSIR . Fimmtudagur 16. janúar 1964.
5
Flugvöllurinn —
Framh. af bls. 16.
ar 3000 m, 2100 m og 2000 m.
Auk þess eru 150 til 300 metra
Títskot í beinu framhaldi af
brautarendum, og möguleikar
til lengingar. Aðfiug og brott-
flug er algerlega hindrunar-
iaust, blindlendingarkerfi vallar
ins er sambærilegt við það
bezta sem til er í dag, og leyfir
lendingu í allt að 200 feta
skýjahæð. Veðurfar er mjög
svipað og gerist við Faxaflóa,
og hefur það verið sannað með
rannsóknum sem gerðar voru á
klukkutíma fresti í 14 ár. Kefla-
víkurflugvöllur er 47 kílómetra
frá núverandi miðborg Reykja-
víkur, og gæti verið kominn í
vegasamband, jafngott og bezt
gerist erlendis, á 12 mánuðum.
Auk þess er á vellinum mjög
afkastamikið og fullkomið af-
greiðslukerfi fyrir flugvélaelds-
neyti. Það kerfi er neðanjarðar,
en f því er mikið öryggi, og er
bruna og árekstrahætta mun
minni en þegar tankbílar eru
notaðir. Hægt er að fylla á 20
vélar samtímis.
Þá sagði flugvallarstjóri að
því hefði verið haldið fram, að
Keflavíkurflugvöllur væri allt
of langt frá Reykjavík, til þess
að hægt væri að hafa innan-
landsflug þaðan. Veðrabrigði
væru oft svo snögg, að það gæti
veL farið svo, að ólendandi væri
í Vestmannaeyjum, um það
leyti sem farþegar kæmu á flug-
völlinn frá Reykjavík, þó að
veður þar hefði verið gott er
þeir lögðu af stað.
1 því sambandi sagði flugvall
arstjóri, að það eina sem kæmi
Vestmaimaeyingum að reglu-
legu gagni, væri að byggja þar
góðan flugvöll, og að það væri
einmitt þannig sem hann teldi
réttast að verja því fé sem ann-
ars myndi fara í byggingu hins
nýja flugvallar. Það eina sem
gæti komið innanlandsfluginu
að verulegu og varanlegu gagni,
vmri að byggja almennilega flug
velli út um landsbyggðina.
Hann sagði einnig að hann
gæti ekki séð hvaða vit væri
í að eyða hundruðum milijóna
til byggingar á flugvelli, svo að
segja við hliðina á fullkominni
flugstöð, sem metin er á 4000
milljónir króna.
Auk þess væru nú í þann
mund að hefjast miklar fram-
kvæmdir, sem miðuðu að því að
gera völlinn enn fullkomnari, og
öruggari. Fyrirhugað væri að
byggja nýja slökkvistöð, en
slökkvilið þar nú þegar er bæði
þrautþjálfað, og tæki fullkom-
in. Þá verður og reistur nýr
flugturn, búinn nýjustu og full- j
komnustu radartækjum, og nýju
ákaflega fullkomnu aðflugstæki
bætt við. Loks er meiningin að
endurreisa flugstöðvarbygging-
una, og hafa uppdrættir þegar
verið gerðir. Að lokum sagði
Pétur, að sá tími væri á næsta
leiti, að flugfélögin þyrftu að
endurnýja flugvélakost sinn, og
fá sér stærri og hraðfleygari
vélar. Þetta myndi óhjákvæmi-
lega verða til þess sð stækka
þyrfti flugvelli, og búa þá ná-
kvæmari og dýrari öryggistækj
um. Augljóst væri að það myndi
verða þjóðarheildinni að mestu
gagni, ef þeir fjármunir sem nýr
flugvöllur við Faxaflóa myndi
kosta yrðu í stað þess notaðir
til nýbygginga og endurbóta á
flugvöllum þeim sem eru víðs
Vegar á landinu. Yrði sú stefna
tékin, myndi þess skammt að
bíða að fullkominn varaflugvöll-
ur fyrir millilandaflug myndi
rísa á t.d. Akureyri, eða þá ein-
hvers staðar annars staðar á
Norðausturlandi.
D
GUGORIC FARA FRAM
TAFLMÓmU
TAL 0G
ÚR Á
Önnur umferð í hinu alþjóðlega
skákmóti f Lido var tefld í gær.
Þar gerðist það, að Tal vann Inga
R. og virtist honum veitast það
létt í 26 leikjum. Eftir þetta er
Tal orðinn efstur. Þó má segja að
Gligoric sé enn jafn honum, þar
sem hann á unna biðskák móti
Wade, en Friðrik hins vegar kom-
inn aftur úr þar sem hann á jafn-
teflislega biðskák við Gabrinda-
svilu.
TAL GEGN INGA.
Tal hafði hvítt og lék eins og
oftast e2 —e4 og tefldi hvassasta
afbrigði af spænska leiknum. Strax
eftir 17 leiki var hann kominn með
töluvert betri stöðu, sem var ávöxt
ur mjög nákvæmrar taflmennsku.
1 19 leik varð Inga á að leika
slæman leik (Rd7) og eftir það
var ekki að sökum að spyrja, Tal
virtist töfra fram hverja leikflétt.
Lyfið —
Framh. af bls. 16.
þau væru frumueyðandi, hindr-
uðu vöxt krabbameinsfruma og
þá annarra fruma, og hefðu þvi
slæm áhrif á myndun blóðkorn-
anna, sem stöðugt þarfnast end-
urnýjunar. Einkum þarf að
gæta vel áð hvítú blóðkói'hú'n-
um þegár þessi lyf 'erú hötúð,'
telja þau og fylgjast með því
að þeim fækki ekki of mikið.
Það er því ekki hættulaust að
nota þessi lyf ennþá, En hins
vegar færi nokkuð i vöxt að til
þeirra væri gripið er aðrar
lækningaaðfreðir krabbameins,
skurðlækningar og geislalækn-
ingar hefðu reynzt árangurs-
lausar og sjúklingarnir komnir
í dauðann hvort eð væri.
Og í sumum tilfellum hafa
læknar þá séð merkilega góðan
árangur af lyfjunum, þannig að
æxlið hefir hjaðnað niður, þótt
það hafi ekki horfið með öllu,
og líf sjúklingsins lengzt og
honum liðið betur þótt sjaldn-
ast hafi orðið um fullkomna
lækningu að ræða nema á fyrr-
nefndri tegund krabbameins í
konum með lyfinu Metatraxat.
innisvegur —
Framh. af bls. 16.
Bílar hafa frá því fyrir áramót
hafið umferð um veginn og ekk-
ert til fyrirstöðu að aka hann þótt
ofaníburði sé ekki að fullu lokið.
Vegagerð fyrir Enni hefur mikla
samgöngubót í för með sér fyrir
íbúana á norðvestanverðu Snæ-
fellsnesi, en einkum er hún þýð-
ingarmikil fyrir samgöngur miili
Heilissands og Ólafsvíkur. Með
þessari vegabót fyrir Ólafsvíkur-
enni, sem allt til þessa hefur verið
ófær leið venjulegum bifreiðum,
opnast einnig hringakstur um allt
Snæfellsnesið, sem jafnframt er
ein í röð fegurstu ferðamannaleiða
á öllu landinu. Má búast við að
ferðafólk fjölmenni úr þessu vest-
ur á Snæfellsnes á sumrin.
Aðrar vegaframl mdir á land-
inu liggja niðri uih j-essar mundir
sagði vegamálastjóri í morgun.
nema hvað unnið er að undirbygg-
ingu Keflavíkurvegar suður á
Vogastapa.
una á fætur annarri út úr stöðunni
og varð Ingi að gefast upp, þegar
Tal var kominn með tvo menn yfir
hann.
GABRINDASVILA
GEGN FRIÐRIK.
Gabrindasvila lék að venju e2 —
e4 sem mun vera hennar fasti
byrjunarleikur, byggði sfðan upp
mjög trausta sóknarstöðu svo að
Friðrik varð að leggja sig allan
fram til að jafna stöðuna. I þeim
tilgangi sprengdi Friðrik upp mið-
borðið, en vegna traustrar upp.
Margir lóta
17 manns hafa sýkzt af
berklum á Akureyri síðan i
haust, þar af 13 börn. Land-
læknir, dr. Sigurður Sigurðsson,
bendir á að þrátt fyrir alla þá
glæsilegu sigra, sem unnizt hafa
á berklaveikinni hér á landi, sé
smitunar og sýkingarhættan
enn fyrir hendi. Hún þurfti ekki
að minnka að sama skapi og
smitunaruppsprettunum fækk-
aði, því að jöfnum höndum auk-
is’t þá fjöídí þeirra, sem næmir
eru fýrir veikinni. Hvér upp-
spretta geti því valdið marg-
földum usla á við það sem áð-
ur var. Andvaraleysi f berkla-
vörnum þjóðarinnar geti þvf
haft hinar alvarlegustu afleið-
ingar.
Héraðslæknirinn á Akureyri,
Jóhann Þorkelsson, sagði Vísi
Afleiðing —
Framh. af bls. 1.
var þá um borð í Heklu
á leið til þings og vænt-
anlegur til borgarinnar
kl. 11.30.
Birgir Finnsson sagði enn-
fremur: Kauphækkanirnar voru
það miklar, 15% almenn hækk-
un, að útflutningsframleiðslan
þarf einhverja aðstoð. Hin al-
menna kauphækkun hlýtur einn
ig að hækka bætur almanna-
trygginganna um 30 milljónir
a.m.k. í fjárlögum þessa árs er
gert ráð fyrir minni niðurgreiðsl
um en á undanförnum árum,
en nú kerriur til athugunar hvort
þær eigi ekki að verða óbreytt-
ar, eða svipaðar og verið hefir
á brýnustu nauðsynjavörum, og
er það enn ein afleiðingin af
kauphækkununum. Allt þetta,
sem til athugunar kemur og úr
þarf að Ieysa, kostar peninga
og þá þarf einhvern veginn að
útvega".
Þá minntist þingforseti á það
að á þeim seinni hluta þings,
sem nú fer í hönd, verður sam-
in fyrsta vegaáætlunin samkv.
nýju vegalögunum. Verður það
eðlilega umfangsmikið verk þar
sem engar eldri áætlanir eru til
að byggja á f vegaáætlun felst
skipting skal gera
slíkar ð- Sveggja ára
fresti.
byggingar Gabrindasvilu urðu þær
sviptingar Friðrik sfzt í hag.
En með skemmtilegum taktísk-
um leikjum náði Friðrik alveg að
jafna stöðuna og er kannski með
fullt eins góða stöðu f bið, en
staðan er nú þessi:
Gabrindasvili hvítt: Kf3, Hd4, Bc2,
peð: a2, b6, c3, e4, g3 og h4.
Friðrik svart: Kf6, He7, Bb7, peð:
a6, b5, c4, f7, g6 og h5.
WADE GEGN
GLIGORIC.
Wade náði að byggja upp mjög
skoða sig
í morgun, að óvenju margt fólk
hefði komið til skoðunar í
berklavarnastöðinni á Akureyri
að undanförnu og mætti eflaust
rekja þann áhuga til þeirrar
staðreyndar, að 17 manns af
Akureyri hefðu sýkzt af berkl-
um og farið til hælisvistar á
Kristnesi síðan í haust, þar af
13 börn. Héraðslæknirinn kvað
þó ofmælt að almennur uggur
hefði gripið um sig í bænum í
þessu sambandi, enda væri eng-
in ástæða til þess. Talið væri
víst að tekizt hefði að grafast
fyrir orsök þessarar smitunar
og þar með koma í veg fyrir
áframhaldandi smitun.
Jóhann Þorkelsson kvað það
ávallt geta komið fyrir að
berklasmitberi fyndist ekki und-
ir eins, og í þessu tilfelli hefði
viljað svo til að tvö eða þrjú
barnmörg heimili hefðu orðið
fyrir smitun. Þess vegna væru
tilfellin svo mörg. En það hefði
verið fylgzt með þessu fólki
jafnóðum og það smitaðist svo
að segja, og það þegar sent í
Kristneshæli. Mætti segja að
engin hætta væri á ferðum
Fiskverðið —
Framh. af bls. 1.
Samkvæmt lögunum um verð
lagsráð sjávarútvegsins á fisk-
verðið að liggja fyrir um ára-
mót. Á Verðlagsráðið að skila
gögnum sínum til yfirnefndar
fyrir 10. desember, ef um áfrýj
un er að ræða en að þessu sinni
fékk Verðlagsráð frest hjá sjáv-
arútvegsmálaráðuneytinu og
skilaði ekki gögnum sínum til
yfirnefndar fyrr en rétt fyrir ára
mót. Af þeim sökum hefur yfir-
nefndin ekki getað lokið störf-
um á tilskildum tíma.
Kunnugir telja, að úrskurður
yfirnefndar sé væntanlegur í
næstu viku. Bíða sjómenn og út-
vegsmenn úrskurðarins með mik
illi eftirvæntingu. í yfirnefnd-
inni eiga þessir sæti; Hákon
Guðmundsson, formaður, til.
r.efndur af Hæstarétti, Helgi G.
Þórðarson og Valgarð Ólafsson
tilnefndir af fiskkaupendum og
Tryggvi Ófeigsson og Tryggvi
Helgason og Kristján Ragnars-
son, tilnefndir af fiskseljendum.
trausta stöðu frá byrjun og fékk
þægilega sóknarstöðu. Gligoric
kaus að staðsetja menn sína uppi
í borði og bíða átekta. Þá sýndi
það sig hvað veilulausar stöður
þola mikinn sóknarþunga og einu
sinni er Wadedék ónákvæman leik,
greip Gligoric tækifærið til að
sprengja upp á miðborðinu og ná
sterkri gagnsókn, sem virðist ætla
að nægja til vinnings. Er næstum
furðulegt að sjá, hvernig hann
sneri taflinu við í einum fimm
leikjum.
Staðan hjá þeim er nú svona:
Wade, hvítt: Kgl, Hdl, Bd4, Re3,
Rh5, peð: a4, b3, f2, g4, h3.
Gligoric, svart: Kg8, Hcl, Bb7,
Bf8, Rd3, peð, b4, e4, f6, g7, h7.
varðandi þessa sjúklinga, marg-
ir þeirra hefðu ekki veikzt neitt
sjáanlega, og allir væru á góð-
um batavegi. Jóhann Þorkels-
son sagði að það sannaðist hér,
að fátt væri svo með öllu illt að
ekki boðaði nokkuð gott. Végna
þessar slysalegu berklasmit-
unar á Akureyri hefði fjöldi
fólks látið berklaskoða sig. En
skilningur fólks á þörf þess
væri einmitt forsenda þess að
berklaveikin græfi ekki um sig
að nýju. Menn mættu aldrei
vera of vissir um fullnaðarsigur
yfir henni.
117 —
Framh. af bls. 16.
vegum Krabbameinsfélags ís-
lands. Hefur Krabbameinsfélag.
ið fengið frá sjúkrahúsunum og
öðrum stofnunum skýrslur um
krabbameinstilfellin og skráð
þau.
Vísir spurðist fyrir um, hversu
mörg tilfellin af lungnakrabba
hefðu verið frá 1954 og fékk
þessar upplýsingar:
Á tímabilinu 1954 —’58 fengu
14 konur lungnakrabba og 30
karlar. En á tfmabilinu 1958-
1962 fengu 25 konur lungna-
krabba en 48 karlar. Alls nema
krabbameinstilfellin á báðum
tímabilunum því 117. Á fyrra
tímabilinu eru þau 44 talsins en
á því síðara 73. Aukningin er
því 66%. Dr. Ólafur Bjarnason
skýrði Vísi svo frá, að aukning
dánartilfella af völdum lungna-
krabba væri svipuð frá fyrra
tímabilinu til hins síðara.
Umferðaslys —
Framh. af bls. 16.
eftir áreksturinn, sem benda til að
höggið hafi verið næsta mikið, m.
a. brotnaði glerið á vinstra ljós-
kerinu, Ijóskershringurinn færðist
úr skorðum og smádældir sáust á
bílnum.
Ekki er vitað hvað Þorlákur
hefur meiðzt mikið, hann Var með
áverka og skrámur á höfði, en
annars furðu hress þegar hann var
fluttur I slysavarðstofuna. Ekki
var búið að rannsaka meiðslin þeg-
ar Vísir átti tal við lögregluna í
morgun.
17berklatilfelli á Akureyri