Vísir - 16.01.1964, Blaðsíða 16
»7
-
hér á landi
■1962
Samkvæmt upplýsingum, er
Vísir fékk f morgun frá dr. Ólafi
Bjamasyni, er veitir forstöSu
krabbameinsskráningunni hafa
117 fegið lungnakrabba hér á
landi á tímabilinu 1954—1962
að báðum árum meðtöldum.
Dr. Ólafur Bjarnason skýrði
Vísir svo frá í morgun, að frá
árinu 1954 hefði farið fram
skráning krabbameinstilfella á
Framh á bls. 5.
Ennisvegur full-
gerðurnæstu daga
Samkvæmt upplýsingum frá
vegamálastjóra í morgun er vega-
gerð fyrir Ólafsvíkurenni á Snæ-
fellsnesi í þann veginn að ljúka
og verður væntanlega lokið að
mestu eða öllu f lok þessarar viku.
Öllum sprengingum og annarri
jarðvinnu er fyrir nokkru lokið og
nú er verið að bera ofan í síðasta
vegkaflann, en búizt við, að því
verði lokið einhvern næstu daga.
Framh. á bls. 5
LyfíB MZTA TRAXA T getur læ,
lega eina tegund krabbameins
alger-
l
konam
Hin óþreytandi barátta lækna
og vísindamanna gegn krabba-
meininu heldur áfram um heim
allan, t.d. má nefna að í einni
stofnun í Bandaríkjunum eru
reyndar um 1000 nýjar tegundir
lyfja árlega, sem fundin eru upp
f því skyni að beita þeim við
krabbamein. Níels Dungal pr.ó-
fessor sagði í viðtali við Vísi,
að það lengsta sem menn
hefðu komizt með lyflækning-
um krabbameins ennþá væri í
einstöku tilfellum lækning dauð
vona sjúklinga um skeið, mán-
uði eða ár, jafnvel að sjúkling-
arnir næðu starfsorku þann
ttoa—. Frá -hessu væri þó ein.
gleðileg undantekning: Eitt lyf
Metatraxat, hefir í ýmsum til-
fellum Iæknað algerlega eina
tegund krabbameins, sem áður
var algerlega ólæknandi og
bráðdrepandi. Það er svonefnt
Chorion Epitheliom, en það er
krabbameinsæxli, sem er að
.vísu jsjaldgæft en vex út frá
fylgju, í sambandi við barns-
burð eða hafnlos. Það með hef-
ir þá verið fundið upp lyf sem
getur læknað algerlega eina
hættulegustu tegund krabba-
meins.
Dungal nefndi annað ameriskt
lyf, Actinomysin D. og þýzka
lyfið E 39, sem kunnugt er orð-
ið í Evrópu, en hvorugt þessara
lyfja hefir reynzt eins afgjör-
andi og Metatraxat gagnvart
þeirri tegund sjúkdómsins, sem
það læknar. Lyfið E 39 er fáan-
legt hér á landi.
Prófessor Dungal kvað þessi
lyf hafa það sameiginlegt að
Framh. á bls. 5
Umferðarslys
í morgun
í morgun um klukkan hálftíu
varð umferðarslys á mótum Njáls-
götu og Barónsstígs.
Roskinn maður sem er hátt á
70. aldri, Þorlákur Guðmundsson,
Njálsgötu 80, varð fyrir bíl rétt
austan við Barnósstígsgatnamótin.
Hann slasaðist eitthvað og var
fluttur f slysavarðstofuna.
Samkvæmt upplýsingum frá
rannsóknarlögreglunni í morgun
hafði bílnum verið ekið austur
Njálsgötu og að sögn ökumannsins
hafði hann farið hægt yfir gatna-
mótin. En rétt þegar hann var
kominn yfir þau sá hann mann
fyrir framan bílinn og var árekst-
ur óumflýjanlegur.
Maðurinn sem varð fyrir bílnum,
Þorlákur Guðmundsson, var á leið
norður yfir Njálsgötuna og var
nærri kominn yfir hana þegar
bfllinn ók á hann, enda kastaðist
hann við höggið upp á gangstétt-
ina. Ummerki sáust á bifreiðinni
Framh. á bls. 5
Verður þetta aðalfiugvöllur landsins?
Veiði á línubáta var misjöfn í
gær, en nokkrir bátar fengu góðan
afla, svo sem Blíðfari ,sem landaði
14 lestum í Hafnarfirði, Anna, er
landaði 10,4 lestum á Akranesi og
Sigurður 9,1 lest einnig á Akra-
nesi. Anna er frá Siglufirði og
leggur upp á Akranesi.
Aflinn á Akranesbáta var niður
f 2 lestir, og afli Hafnarfjarðarbáta
frá 6-14 lestir. Fiskurinn er mest
vænn þorskur. Enginn bátur reri
frá Akranesi í morgun, en bátar
frá Suðurnesjum munu hafa róið.
Haraldur og Höfrungur II. eru að
búa sig á sfldveiðar.
byggingar í nágrenninu kreppa
að, þannig að ógerlegt er að
leyfa lendingu í minna en 400
feta skýjahæð, ekki er hægt að
lengja brautirnar þannig að
nýjustu millilandavélar geti lent
þar, og ógerlegt er að koma
fyrir nauðsynlegum blindflug-
tækjum. Keflavíkurflugvöllur
hins vegar uppfyllir allar þær
kröfur sem gerðar yrðu til flug-
vallarins á Álftanesi, ef hann
yrði byggður. Aðalflugbrautirn-
ar eru 3, og eru brautarlengdim
Framh. á bls. 5
segir Péfur Guðmuui3ssou fSugvuSSursfjéri þur
Ég tel alis ekki rétt að byggja
nýjan flugvöll á Álftanesi, og
ekki heldur að láta framkvæma
dýra bráðabirgðaviðgerð á
Reykjavíkurflugvelli, sagði Pét-
ur Guðmundsson, flugvaliar-
stjóri á Kefiavíkurflugvelli, á
fundi með fréttamönnum í gær.
Nýr flugvöllur myndi kosta
hundruð milljóna, sem er óþarfi
að eyða á þann hátt, og flestir
eru sammála um að Reykjavík-
urflugvöllur hafi lokið hlufverki
sínu sem aðalflugvöllur Iands-
ins. Til þess eru margar ástæð-
ur.
Sérfræðingar telja að undir-
stöður hans séu að gefa sig,
VISIR
Fimmtudagur 16. janúar 1964.