Vísir - 13.02.1964, Síða 3
V1SIR . Fimmtudagur 13. febrúar 1964.
3
öskudagurinn hefur löngum
verið haldimt með sérkennileg-
um hætti á Akureyri. Þar tíðk-
aðist það t. d. lengi að berja
kött úr tunnu, en nú er svo
komiö, að bömin í bænum ,eiga
þenman dag. Þau iðka þá margs
konar skemmtanir, einkum þá
að fara um götumar i grímu-
búningum í gervi álfakonunga,
sjörænrngja og kúreka. Siðan
ryðjast kúrekamir inn í verzl-
anir bæjarins, draga upp skamm
byssur og biðja kaupmenninga
um að afhenda kassann eða góð
hlöss af sæigæti. Og hinir full-
orðnu taka þátt í þesum leik.
Þennan dag em allir í góðu
skapi á Akureyri.
Myndsjáin í dag birtir mynd
af fáeinum hópum grímuklæddra
ævintýrapersóna frá Akureyri.
Bömin byrja að æfa þennan dag
einum eða tveimur dögum fyrir
fram. Þau skipta sér niður í
hópa og syngja bæjarbúum til
skemmtunar. í staðinn vænta
þau þess að kaupmenn og fleiri
gefi þeim peninga og sælgæti.
Penrngamir renna til Rauða
krossins, én sælgætinu skipta
krakkamir á milli sín.
Stærsti hópurinn safnaðist saman við Kaupfélag Verkamanna, söng þar og skemmti, enda var búðarfólkið örlátt á sælgæti við
indíána og kúreka.
- Ji g|. Mfj
lll
'y
Myndimar af grímuklæddum
bömum á götum Akureyrar
sýna ýmis gervi, ræningja töfra
menn, hreppstjóra og konunga,
sótara, matsveina, svertingja,
kínverja og hjúkrunarkonur. Og
litlu stúlkurnar tvær Iengst til
vinstri klæddu sig í gervi þar
sem önnur er heitir Steinunn
túlkaði það með spilum að henni
þætti gaman að spila svartapét-
ur, en hin Margrét. túlkaði það
með úrklippum á blaðhaus Vísis
að Vísir væri alltaf fyrstur með
fréttimar.