Vísir - 13.02.1964, Qupperneq 5
5
VíSIR . Fimmtudagur 13. febrúar 1964.
u‘.n,-K«®aa!í3i
Frá bandarísku herbsekistöðinni á Guantanamo
HART Á MÓTIHÖRÐU í
SKIPTUM VID
Fidel Castro varð ekki kápan
úr því klæðinu, að Ioka fyrir
vatnið, sem streymt hefir úr
fjöllum Kúbu til Guantanamo,
herbækistöðvar Bandaríkjanna á
eynni, en með því ætlaði hann
að knýja bandarísk yfirvöld til
þess að sleppa úr haldi kúbönsk
um fiskimöimum, sem eru fyrir
rétti í Florida, sakaðir um Iand-
helgisbrot. Bandaríkjastjóm á-
kvað að grípa til sérstakra ráð-
stafana til þess að ■ sjá herbæki-
stöðinni fyrir vatni, og annarra
sem ailar miða að því, að vegna
herbækistöðvarinnar verði
Bandaríkin ekkert upp á Kúbu
komin.
Vatn til stöðvarinnar er nú
flutt f tankskipum og á meðfylgj
andi mynd er eitt slíkt í höfn-
inni í Guantanamo. Tvö tank-
skip flytja 4 milljónir gallóna af
vatni til eyjarinnar á hverjum
3 — 4 dögum.
í herbækistöðinni hafa starfað
um 3000 kúbanskir verkamenn
og haft góðar tekjur af. Eftir
að lokað var fyrir vatnið er
minni þörf fyrir kúbanskt
vinnuafl en áður og er þegar bú
ið að segja upp nokkrum hluta
þessa vinnuliðs.
Þá hefir verið tilkynnt, að
hætt verði að leyfa konum og
bömum bandarískra hermanna
að búa á Guantanamo. Hefir ver
ið tekið fyrir frekari slík leyfi,
en konur og börn sem era nú í
Guantanamo verða flutt heim
smám saman á næstu 2 árum.
Þetta er gert af öryggisástæð-
um, þvf að framundan kunna
að vera tfmar átaka — næstum
áreiðanlega í einhverri mynd.
Johnson forseti hefir ákveðið,
að enga linkind skuli sýna f
skiptum við Kýbu. Hann tók á-
kvörðun í því efni eftir marga
fundi með Dean Rusk, utan-
ríkisráðherra, McNamara land-
varnarráðherra og öðram helztu
ráðherrum og ráðunautum.
Stefnan er nú: Hart á móti
hörðu.
Kassagerð —
Framh. af bls. 16.
Kristján skýrði Vfsi svo frá að
Kassagerð Reykjavfkur gæti nú
framleitt þær öskjur og umbúðir
sem þyrfti í landinu og meira en
það. Er nú að hefjast útflutning
ur á umbúðum þaðan, en þær
era framleiddar á mjög sam-
keppnisfæru verði. Vélak'osfur
verksmiðjunnar er einn hinn full
komnasti í Evrópu. Hins vegar
miðast hið lága verð við góða
nýtingu vélanna og myndi því
verðið hækka ef önnur kassa-
gerð tæki til starfa, sem gegndi
þeim sömu verkefnum og verk-
smiðjan leysir nú af hendi.
Sem dæmi um það hve hag-
stæð viðskipti Sölumiðs.töðvar-
innar og annarra firma hafa ver
ið við KasSagerðina má geta
þess að árið 1949 kostuðu 5
punda öskjur utaij um fisk 83
aura. Síðan hefir erlendur gjald-
eyrir hækkað f verði um 360%
og vinnulaun um 400%. En öskj
urnar hafa aðeins hækkað um
helming, eða í kr. 1.60.
Unnt hefir verið að halda verð
inu svo langt niðri vegna hins
fullkomna vélakosts, og með
mjög góðri nýtingu vélanna. Og
á komandi hausti mun Kassa-
gerð Reykjavíkur Iækka þær um
búðir, sem mest eru notaðar, er
verulega í verði frá því sem nú
Meðvitundarlaus-BB
Framh. af bls: 16 !
koma á móti þeim pg ók hann aust
ur Þvottalaugaveginn. Kvaðst
konan þá hafa kallað aðvörunar-
orð til barnanna, en það skipti
engum togum, jeppinn ók fram
hjá og um leið hljóp Guðmundur
litli aftur fyrir bíl föður síns út á
götuna og þvert í veg fyrir jepp-
ann.
Ökumaður jeppans, ungur piltur,
kvaðst ekkert til barnanna hafa
séð og vissi ekki fyrr til, en hann
heyrir eitthvað skella á bílnum og
í sömu andrá sér hann drenginn
kastast upp á hægra frambrettið.
Um leið og ökumaðurinn hemlaði
kastaðist drengurinn af bílnum og
niður á götuna. Hann var fluttur
í sjúkrabifreið í slysavarðstofuna
og þaðan í Landakotsspítala, þar
sem mikil aðgerð var gerð á hon-
um í gær.
Guðmundur litli er einkum
meiddur á höfði. Hann var enn
ekki kominn til meðvitundar fyrir
hádegið í dag.
drasBÍ —■
Framh. af bls. 16
skeið. Eftir það tók að hlýna í
veðri. Desembermánuður var
mjög mildur, en janúar þó sér-
staklega heitur og var hitinn í
honum 4 gráður yfir meðallag.
Aðeins einn annar janúarmán-
uður á þessari öld hefur verið
jafn hlýr, en það var árið 1947.
Ekki kvaðst Páll Bergþórsson
vera k)jnnúgur.,-hitastigi -á öld-
inni sem íeið, en taldi þó vart
hugsanlegt að jafnhlýr janúar
hafi komið yfir ísland nema ef
vera skyldi 1846 — 7. Þá þóttu
veður óvenju góð og hlýtt í
veðri og veðurlýsing á þorran-
um þá ekki óáþekk og nú.
Eins og kunnugt er voru
fyrstu dagarnir í febrúar kaldir
og allmikið frost, en stóð ekki
nema 4 — 5 daga. Þá breyttist
aftur til hlýinda og hefur verið
það síðan. í Reykjavík hefur
hitinn komizt tvívegis upp í 9
stig, þann 8. og 11. þ. m., en
mestur hiti á landinu, það sem
af er mánaðarins, varð í Vopna- |
'irði 7. febrúar. Þar komst hit-
inn upp I 12 stig.
Ekki kvaðst Páll þora að spá
neinu fram í tímann með veðr-
íttuna En eins og sakir stæðu
væri sunnan- og suðaustanátt
ríkjandi og veðrabreyting ekki
fyrirsjáanleg.
neinni sök því það er ekki löng
Ieið milli Eyja og Reykjavíkur,
enda fljótfarin, og þá væri ekkert
auðveldara en fara þeim mun fleiri
ferðir.
Rannsókn
Sendisvein
vantar hálfan eða allan daginn.
ATVINNUMÁLARÁÐUNEYTIÐ
ARNARHVOLI.
Fnan-b af bls 16
ryðja honum burt áður en flug-
vélar geta lent þar. Var búizt við
að því verki yrði lokið fyrir eða
um helgina og úr því telur Björn
Pálsson sig geta Ient Lóunni og
öðrum minni vélum sínum á nýju
brautinni, þótt hún sé ekki lengri
orðin.
Að því er Björn telur getur
hann lent í 6 — 7 stiga vindhraða
ef vindur stendur beint á stuttu
brautina, en á löngu brautinni er
hægt að lenda í allt að 9 stiga
vindhraða ef vindur er á austan.
Lóan — sú vélin scm Björn
Pálsson hyggst einkum nota til
Vestmannaeyjaflugs tekur 15 far-
þega, eða um það t>il helmingi
færri farþega heldur en Dakota-
vélar Flugfélagsir.s. Björn sagði að
þetta rnyndi þó ekki koma að
Framh. af bls. 1
sóknum erlendis er sú að mjög
oft hefir andlegt og líkamlegt á-
stand fanganna og þjóðfélagsað-
stæður ekki reynzt vera sem
skyldi. Og með þvf að ’beeta úr
þessu ástandi hefir þegar náðst
merkilegur árangur.
Vísir hefur náð tal af Lárusi
Helgasyni lækni. Hann varðist
allra frétta, kvað rannsókn sína
hér á landi aðeins vera á byrjun-
arstigi og því væri ekkert hægt
að láta uppi um niðurstöður
hennar. En hann tók það fram,
að allir aðilar þessa máls hefðu
sýnt mjög mikinn skilning og ver
ið fúsir til samvinnu.
Flugvél —
Framh. af bls. 1
frá Vísi hittu þá Mr. Johnstone
og Mr. Lacier að máli í Hótel
Sögu í morgun. Þetta eru tveir
ungir og geðþekkir menn, lög-
fræðingar fyrirtækisins.
„Við getum annars lítið frætt
ykkur að svo komnu máli,“ við
erum ekki annað en Iögfræðing-
ar fyrirtækisins og munum ekki
taka stórar ákvarðanir. Við höf-
um fengið aðstoð íslenzkra „koll
ega“ í lagastétt og sennil. munu
viðræður við stjórn Loftleiða
hefjast í dag eða á morgun.“
Það munu vera lögfræðingar
frá málaflutningsskrifstofu
Lárusar Fjeldsted, sem verða
með Canadair-mönnum við samn
ingaborðið að því er frétzt hef-
Nýir
KVÖLDKJÓLAR
þingholtsstrœti 3 slmi 11987
Fallegf árval
CESEST
ratBEaaa
r