Vísir - 10.03.1964, Blaðsíða 2

Vísir - 10.03.1964, Blaðsíða 2
V í SIR . Þriðjudagur 10. marz 1964. Reynsluleysið kom í Ijós í leiknum gegn Ungverjum Ungverjar og ungverskir áhorfendur gjörsamlega yfirbuguðu isiendinga Það má segja að íslenzka þjóðin öll hafi andvarpað þegar fréttir bárust um að Ungverjat hefðu sigrað ís- land í hehnsmeistarakeppn inni í handknattleik í Brati slava með 21:12. Síminn hjá Vísi stanzaði vart strax eftir að leiknum lauk. Það var greinilegt að áhugi al- mennings á þessum leik var geysimikill, — og von- brigðin voru sár. En það þýðir ekki að sakast um það, íslenzka liðið verður að bíta í það súra epli að komast ekki áfram vegna verri markatölu en Svíar og Ungverjar. Ungverjar hafa áður stöðvað ís- land á þröskuldi úrslitakeppni HM. Fyrst þegar ísland var með lék Island síðasta leikinn i riðli gegn Ungverjum og hefði sigur gegn þeim hleypt Islandi áfram en svo varð ekki þá fremur en nú. Islenzka liðið var í leik þessum mjög ólíkt sjálfu sér og greinilegt var að hér mætti til leiks lið, sem ekki er vant landsleikjum og þeirri æðisspennu, sem þeim fylgir. öðru megin f sal hinnar glæsilegu íþrótta Jón Þ. Óiafsson. JON Þ. TIL USA Jón Þ. Ólafsson, hástökkvari, í ÍR-húsinu á laugardaginn og hélt utan í nótt með Loftlelða- setti hann þá nýtt íslandsmet í flugvél til Bandaríkjanna, en langstökki án atrennu, stökk , , , „ , „ 3.39. Aðeins munaði einum þar mun hann næstu 3 manuð. millimetra að Jón fengi stökkið stunda nám við háskóla San mæit 3.40, en þar eð stökkið Fransisco og æfa hástökk við náði ekki alveg í 3.40 verður hln beztu skilyrði, enda munu það -kki viðurkennt nema sem margir skólabræðra hans vera 3.39. Jón náði ágætum árangri góðir hástökkvarar með um og á sama móti í hástökki án at- yfir 2 metra. rennu stökk 1.72, að vísu utan Jón tók þátt í innanhússmóti keppni hallar í Bratislava höfðu ungversk ir stuðningsmenn komið sér fyrir með lúðra sína og öskurtól. Var ungverska liðið hvatt ákaft allan leikinn og hafði það sitt að segja. lslenzka liðið náði forystu í fyrri hálfleik í 3:2 og höfðu einnig for- ustu 5:3, en þá var eins og losnaði um og Ungverjar skora 4 mörk í röð. ísland jafnaði 7:7 en Ungverjar skora tvö næstu rétt fyrir hlé og stendur 9:7 I hálfleik, Seinni hálfleikur var mjög slakur og eitthvert það lélegasta, sem ís- lenzka liðið hefur sýnt. Islendingar hreinlega misstu allt vald á leikn- um og Ungverjarnir gátu beinlínis gengið í gegnum varnarbrotin. Eink um var Ungverjinn Orian skæður, en þann leikmann höfðu þeir ,,geymt“ fyrir leikinn gégn Islandi en ekki látið hann koma fram gegn Egyptum eða Svíum. íslenzka liðið átti slæman dag sem fyrr segir og engum Ieikmanni hægt að hæla. Vörnin var óþétt og lét hraða Ungverjanna rugla sig. Markverðirnir voru báðir lélegir og stafaði það fyrst og fremst af vörninni sem þeir höfðu fyrir fram an sig. Ragnar Jónsson var látinn víkja af leikvelli 5 mín. fyrir gróft brot. Þeir sem skoruðu mörk íslands í gær voru: Gunnlaugur Hjálmars- son 4, Ragnar Jónsson 3, Guðjón Jónsson, 2, Hörður Kristinsson, Ingólfur Óskarsson og Örn Hall- steinsson eitt hver. Sundmót Ægis Hið árlega sundmót Sundfélags- ins Ægis, verður haldið í Sundhöll Reykjavíkur fimmtudaginn 19. marz n.k. Keppt verður í eftirtöld- um greinum: 100 m flugsundi karla, 200 m. skriðsundi karla, 100 m bringu- sundi karla, 100 m bringusundi kvenna, 100 m skriðsundi kvenna, 100 m baksundi telpna, 50 m baksundi telpna, 50 m bringusundi telpna, 50 m skriðsundi drengja, 50 m bringusundi drengja og 4x 50 m bringusundi karla. Þátttökutilkynningum sé skilað fyrir 12. þ. m. til Torfa Tómasson- ar, sími 19713 eða Guðmundar Harðarsonar, sími 19067. f undfélagið Ægir. Frá sundmóti framhaldsskóia Hið síðara sundmót framhalds- skólanna 1 Reykjavik og nágrenni fór fram í Sundhöll Reykjavíkur fimmtudaginn 5. marz s.l. í sundkeppni stúlkna voru þátt- takendur frá 8 skólum. Keppt var í fjórum sundgreinum auk boðsunds. Keppnin var stigakeppni. Sveit stúlkna úr gagnfræðaskóla Kefla- víkur vann keppni stúlkna. Stúlk- ur frá sama skóla hafa unnið stigakeppnina þrjú undanfarin ár og hlaut þvl skólinn til eignar þann verðlaunagrip, sem um hefur verið keppt. Næstar að stigatölu urðu sveitir stúlkna úr Flensborg- arskólanum í Hafnarfirði og frá Gagnfræðaskólanum við Lindar- götu í Reykjavík. Til keppni í sundgreinum pilta komu þátttakendur frá 12 skólum. Keppt var í fimm einstaklingsgrein um og einu boðsundi. Menntaskólinn í Reykjavík og Kennaraskóli Islands urðu jafnir að' stigum, en þar sem Mennta- skólinn vann boðsundið var þeim skóla úrskurðaður sigurinn. Hlaut skólinn í verðlaun keramikdisk. Næstir og jafnir að stigum urðu gagnfræðadeild Laugarnesskóla og Iðnskóli Hafnarfjarðar. SÁ BETRi VANN — en við vorum langt undir getu assrns r Islendingarnir urðu fyrir miki- um vonhrigðum Ásbjörn Sigurjónsson, form. H.S.Í. var í döpru skapi, þeg- ar Vísir ræddi við hann í síma nokkrum mínútum eftir að leik lauk í Bratislava. „Við komum heim eins og lúbarðir hundar eftir úrslit sem þessi“, sagði hann. „Við höfðum óneitanlega gert okkur stórar vonir um að standast Ungverjana, enda höfðu Svíar unnið þá með tals- verðum mun, en svona fór, það brást allt.“ íslenzka liðið kemur heim um næstu helgi. Ásbjörn sagði að liðsmenn færu nú til Prag, en þaðan yrði farið á miðviku- dag til Kaupmannahafnar og þaðan heim. Islenzka liðið kemur heim með góða sigra þrátt fyrir að það kæmist ekki í úrslitin. Sigur gegn Svíum er skrautfjöður, sem vert er að geyma. Islendingar hafa hér tapað leik vegna lítillar reynslu í opinberum mótum. Liðið hefur fengið of fáa landsleiki vegna skorts á húsnæði m. a. Því fyrr sem nýja íþróttahöllin kemur því betra. Þá getum við farið að bjóða beztu landsliðum heim til Islands og komizt bet- ur inn í alþjóðlegan handknatt- leik. ekki berjast / bráð „Islenzku piltarnir léku mjög veikan Ieik“ sagði Karl Benedikts son landsliðsþjálfari f viðtali við fréttamann CIK-fréttastofunnar í gærkvöldi. „Við vitum, að betri að- ilinn vann, en þetta var Iangt fyrir neðan það sem við máttum búast við“. Fréttastofan segir að leikurinn í gær milli lslands og Ungverjalands hafi verið hraður og harður, en ungverski markvörðurinn Kovacks hafi átt mest lof skilið í þessum leik. íslenzka liðið hafi vantað alla nákvæmni og kraft gegn Ungverj- unum og því hafi svona farið. Mörk Ungverja skoruðu Adorja og L. Kovacsk 6 hvor, StiIIer, Racz og Fenyo 3 hver. Cassius Clay var í gær kjör- inn „hnefaleikari mánaðarins" af WBA — alþjóðasambandi hnefaleikara. Sonny Liston, fyrrv. heimsmeistari verður á lista sambandsins að láta sér nægja 3. sætið á eftir Doug Jones, sem er 1. áskorandi Clays og Ernie Terrel, sem er annar í röðinni. Fjórði á listan- um er Eddie Machen og fimmti Zora Folley, þá Cleveland Will- iams. Floyd Patterson kemur í 7. sæti á listanum. Floyd hefur skorað á Clay í keppni, en framkvæmdastjóri Clay hefur í því tilefni látið hafa eftir sér: „Floyd er allra huggulegasti maður, en eftir öllu að dæma er hann einn af aumustu meisturum hnefaleika- sögunnar“. Floyd æfir nú af kappi fyrir „come-back“, sem hann ætlar að gera eftir tvo fyrstu-lotu-ósigra sfna gegn Sonny Liston. Annar kappi, sem hefur á- huga á bardaga við Clay, er Bretinn Henry Cooper, sem Clay vann naumlega á stigum í jún." f fyrra. Cooper vann þá það afrek að senda unglinginn Clay í gólfið með heljamiklu höggi. Cooper hefur afþakkað boð frá bæði Eddie Machen og Dough Jones um keppni og framkvæmdastjóri Coopers, sem í gær var tilnefndur í 8. sæti á áskorunarlistanum, sagði: „Við höfum aðeins á- huga á Clay og engum öðr- um“. Cassius Clay hefur nýlega verið gerður að heiðursborgara Louisvilleborgar og fékk „lykla borgarinnar“ afhenta við hátíð- lega athöfn. Á blaðamannafundi eftir þá athöfn trúði hann blaðamönnum fyrir því að hann hefði ekki í hyggju að fara út f bardaga á þessu ári.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.