Vísir - 10.03.1964, Blaðsíða 3

Vísir - 10.03.1964, Blaðsíða 3
V1S IR . Þriðjudagur 10. marz 1964. 3 SiStSivi?: "i v;, ; %'j v*W*F!7-! . §111 : : . .....' . L 4 vqmwmMMi. v t? «| MYNDIR FRÁ ÚTFÖR ÞJÓÐSKÁLDSINS FRÁ FAGRASKÓGI „Meðan við áttum Davíð fannst okkur Norðlendingafjórð ungur fylla landið hálft“, sagði sr. Benjamin Kristjánsson í lík- ræðu sinni við útför Davíðs Stef ánssonar f Möðravallakirkju f gær. „Sjálfur var hann eins og andi skáldskaparins holdi klæddur, þessi vörpulegi og myndarlegi maður, sem alla hreif með rödd sinni og per- sónuleik". Davíð Stefánsson var lagður til hinztu hvíldar í Möðruvalla- kirkjugarði síðdegis í gær. Þar hvílir hann við hlið foreldra sinna og ættingja undir Staðar- hnjúk í faðmi þess norðlenzka fjarðar sem hann orti þau kvæði um er aldrei gleymazt. Þjóðskáldið er aftur komið heim. Kista Davfðs Stefánssonar borin f Möðruvallakirkju. í kirkju báru vinir skáldsins og sveitungar, þeir Friðrik Magnússon, Vésteinn Guð- mundsson Ingimar Brynjólfsson bóndi á Ásláksstöðum, Helgi Helgason bóndi á Kjarna og Þórir Áskelsson og Kristján Rögnvaldsson frá Akur- eyri. Meðan kistan var borin í kirkju lék Páll ísólfsson sorgarmarz eftir Beethoven. innanlands og utan. Fremstir ganga þeir Gylfi Þ. Gíslason og Bjarni Benediktsson. Aðrir sem kistuna báru úr kirkju voru Jóhann Hafstein, Tómas Guðmundsson, Jóhannes Nordal, Þórarinn Bjömsson, Guðmundur G. Hagalín og Karl Kritsjánsson. Páll ísólfsson Iék sorgarmarz eftir Chopin er kistan var hafin úr kirkju. Að leiðarlokum Að Iokinni minningarathöfninni i Akureyrarkirkju á Iaugardaginn var kista skáldsins flutt á líkvagni út í Fagraskóg. Þar var hún borin til stofu af bróðursonum hans Stefáni og Magnúsi og öðrum ættingjum. í stofunni stóð hún uppi þar til húskveðjan hófst kl. 2 e.h. í gær. Við húskveðjuna vom sungnir sálmamir „Á hendur fel þú honum“ og „Kallið er komið“. Sr. Benjamfn Kristjánsson flutti húskveðjuna. v

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.