Vísir - 10.03.1964, Blaðsíða 7

Vísir - 10.03.1964, Blaðsíða 7
V í SIR . Þriðjudagur 10. marz 1964. 7 |I|jarni Bragr Jónsson hag- fræðingur ritar merka gre:n í ritið Úr þjóðarhúskapn um, sem Framkvæmdabank- inn gefur út en hann ritstýr- ir. Nefnist greinin Atvinnutekj ur alþýðustétta. Hefir hún að geyma mikinn fróðleik um þró un tekna verkamanna, sjó- manna og iðnaðarmanna árin 1948 — 1962, og samanburð tekna þeirra við þjóðartekjurn ar.. Tölulegar upplýsingar hafa fram að þessu verið held- ur af skornum skammti um þessi mál, en nú hefir orðið á því mikil úrbót. © 19% aukrnn kaup- máttur Margt fróðlegt ^kemur fram í grein Bjarna. Einna merk- ast er sú niðurstaða, að kaup- máttur atvinnuteknanna hefir aukizt á þessu tímabili, þess- um 14 árum, um 19.6%. Er þá vitaskuld reiknað með öll- um verðbreytingum og kaup- hækkunum á þessu tímabili, þannig að hér er um raunveru- lega kaupmáttaraukningu að • ræða. Ef reiknað er með fjöl- skyldubótum og skattalækkun- um verður hækkunin þó enn meiri eða rúmlega 21%. Þetta sýnir, að kjöf lægst launuðu stéttanna hafa' farið verulegá i, batnandi á þessu tímabili. Sýn- ir þessi tala, að áróður komm- únista er alrangur um það að hlutur alþýðustéttanna hafi far ið versnandi á þessu tímabili. Það veit reyndar hver og einn að ekki er rétt. Velmegun þess ara þriggja stétta hefir veru- lega aukizt. Og hér eru færð fyrir því óyggjandi rök. Hins vegar er því ekki að neita, að æskilegt væri að þessi kaup- máttaraukning hefði verið meiri, sérstaklega aukning kaupmáttar verkamannalaun- anna. H Minni hlutdeild í þjóðartekjunum Þetta sést af öðrum tölum, sem birtar cru í greininni. Þar er gerður samanburður á af- stöðu atvinnutekna þessara þriggja stétta til þjóðartekn- anna á þessu tímabili. Miðað er við grunntöluna 100 árið 1948. Talan fyrir 1962 er hins vegar 97.8. Þetta sýnir, að al- þýðustéttirnar hafa ekki hald- ið sama hlutfalli af auknum þjóðartekjum og þær höfðu 1948, þótt munurinn sé að vísu ekki mikill. Á sama tímabili hafa þjóðartekjurnar á mann nefniléga hækkað úr 100 í 122. Hvað sýnir þetta? Kannski er þetta stærsti áfellisdómur- inn, sem kveðinn hefir verið upp yfir þeirri verklýðsforustu sem stjórnað hefir kjarabar- áttu verkamanna þessi árin, kommúnistum. Þrátt fyrir ill- vígar deilur og hörð verkföll hefur hlutur þeirra ekki auk- izt heldur minnkað. Það sýnir nauðsyn þess að reka kjarabaráttuna á öðrum grundvelli en eilifum krónu- og prósentuhækkunum. Það þarf að faru inn á svið raun- hæfra kjarabóta — og alþýðu stéttirnar þurfa að losa sig und an áhrifum kommúnista í kjarabaráttunni. 1 gær skýrði Vísir frá því uu náðst hefði i sökudólgana, sem staðið hafa að fjölmörgum stór- innbrotum undanfamar vikur. í flestum innbrotanna virtist höf- uðkapp hafa verið lagt á leit að pcningum og minni áherzla lögð á önnur verðmæti, þótt þau VCUU 1^111 (lCUUli Þjófarnir notuðu einkum kú- bein til athafna sinna og frömdu með þeim hin feriegustu her- virki eins og einn lögreglu- manna komst að orði. Með þeim brutu þeir upp hverja hurðina á eftir annarri, hversu ramm- lega læstar sem þær voru, sprengdu upp skrifborð og skápa og réðust á stóra eld- trausta peningaskápa. Á myndunum hér að ofan sjást tveir peningaskápar, sem þjófarnir sprengdu upp og ger- eyðilögðu. Vinstra megin er skápur, sem brotinn var upp í birgðahúsi Rafveitna ríkisins að- faranótt s.l. sunnudags, en. hægra megin skápur, sem eyði- lagður var nokkru áður við inn- brot í benzínstöð Shell við Reykjanesbraut. Ragnar Vignir tók báðar myndirnar. VEGIR MILLI HtRAÐS OG FJARÐA FÆRIR S ALLAN Það sem af er þessu ári hefir verið einmuna tíð hér á Austur- landi. Jörð er alauð £ byggð og lítill snjór til fjalla. Fjallvegir allir svo að segja snjólausir. Hefir verið akfært milli Héraðs og fjarða svo að segja í allan vetur. Mun eins- dæmi að svo sé. Af og til hefir ver ið ekið bílum yfir Möðrudalsfjöll. Mundi sú leið alltaf hafa verið fær bílum í vetur ef uppbyggður vegur hefði verið kominn frá Möðrudal austur á Hérað. Þarf að leggja mik- ið kapp á að þessi vegur verði upp byggður. Sauðfénaður hefir verið léttur á fóðrum í vetur. Vonandi komast sauðfjárbændur nú í heyfyrningar nokkrar, enda er það nauðsynlegt hverjum bónda til að tryggja af- komu sína. Unnið hefir verið við byggingar og önnur mannvirki eins og um há- sumar væri. Hér er nú mikið talað um „barna veiðar'* framsóknarmanna á Hér- aði. Hygg ég að smölun barna allt ofaní 13 ára aldur í framsóknar- félagið mæti andúð allra hugsandi manna sem næstir standa. Mun Frá stotntundi launpegaktubbsms. Stofnfundur launþega- klúbbs HEIMDALLAR S4. fimmtudag stofnuðu milli 40 —50 ungir menn, sem fylgja Sjálfstæðisflokknum að málum, með sér launþegakiúbb, sem kemur til með að starfa á veg- um Heimdallar F.U.S. og Verka- lýðsráðs Sjálfstæðisflokksins. Tilgangur starfseminnar er að veita ungum mönnum úr hin- um ýmsu launþegasamtökum fræðslu um verkaiýðs- og þjóð- félagsmál. Fyrirhugaðir eru 7 fundir og ein helgarráðstefna fram til vors og verður starf- semin öll hin fjölbreyttasta, og má í þvf sambandi geta tveggja kynnisferða, sýningu kvikmynda er snerta sér í Iagi Iaunþegasam tökin og fleira. Á stofnfundinum var sam- eiginleg kaffidrykkja og fluttu þeir Gunnar Helgason, form. Verkalýðsráðs, og Styrmir Gunn arsson, form. Heimdallar, ávörp, en auk þess voru sýndar tvær kvikmyndir og rætt um fyrir- hugaða starfsemi klúbbsins. Eru ungir piltar hvattir til að taka þátt i þessari starfsemi, en næsti fundur verður í Val- höll. En í lok þess fundar verð ur Alþingishúsið heimsótt og skoðað undir leiðsögn, auk þess sem hlýtt verður á erindi um störf og sögu Alþingis. 1 ÍSíl:'1 :. méíí ii m Valgarð Thoroddsen. ! ijgsá h •.; \ v * þessi áróðursherferð forsprakltanna tæpast verða þeim til framdráttar. Fjórir af fimm stjórnarnefndar- mönnum félagsins eru starfsmenn kaupfélagsins og Búnaðarbankaúti- búsins, svo að auðsætt er hverjir að baki standa. — Fréttaritari, ValgarðThor- oddsen ráðinn slökkviliðs- I ° r ° STjon Valgarð Thoroddsen yfirverk- fræðingur hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur hefur verið skipaður slökkviliðsstjóri í Reykjavík. Val- garð er fæddur 1906, sonur hjón- anna Maríu og Sigurðar Thorodd- sen landsverkfræðings. Hann lagði stund á verkfræðinám í Noregi. Var ráðinn rafveitustjóri í Hafnar- firði 1939 og var þá jafnframt slökkviliðsstjóri. 1961 var hann ráð- inn yfirverkfræðingur hjá Rafmagns veitu Reykjavíkur.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.