Vísir - 11.03.1964, Blaðsíða 9

Vísir - 11.03.1964, Blaðsíða 9
VÍSIR . Miðvikudagur 11. marz 1964. 9 Gunnar Thoroddsen fjármálaráðherra Landhelgisdeilan leyst i i ~ r • i J pennan dag iynr prem árum Fjögur meginatriði. 11. marz 1961, einni stundu fyrir hádegi, var undirritaður samningur milli íslendinga og Breta um lausn fiskveiðistríðs- ins, sem þá hafði geisað í 5 misseri. Alþingi hafði faliizt á til lögur ríkisstjórnarinnar um þá lausn og fól hún í sér fjögur meginatriði: 1) Bretar viðurkenndu 12 milna fiskveiðilandhelgi fslands. 2) Bretar viðurkenndu mikil- vægar breytingar á grunnlínum á fjórum stöðum umhverfis land ið ,en af því leiddi aukningu fisk veiðilögsögunnar um 5065 fer- kflómetra. 3) Brezkum skipum var heimil að að stunda veiðar á takmörk- uðum svæðum á milli 6 og 12 mílna, takmarkaðan tíma á ári, næstu 3 ár. 4) Ríkisstjórn fslands lýsti yfir því, að hún mundi halda áfram að vinna að framkvæmd ályktunar Alþingis frá 5. maí 1959, varðandi útfærslu fisk- veiðilandhelginnár við ísland — þ.e. að afla beri viðurkenningar á rétti íslands til alls land- grunnsins — og að ágreiningi um hugsanlegar aðgerðir skyldi vísað til Alþjóðadómstólsins. Mikilvægur áfangi í sjálfstæðisbaráttunni. Lausn landhelgisdeilunnar var mikilvægur áfangi í þess- um þætti sjálfstæðisbaráttu hinn ar Islenzku þjóðar. Sá aðili, sem ekki aðeins hafði mótmælt 12 mílna útfærslunni 1958 eins og margar aðrar þjóð ir, heldur beitt flota sínum þeim mótmælum til áréttingar, féll nú berum orðum frá þeim mótmælum og viðurkenndi 12 mílumar. Friður var á kominn í ófriðar stað. Stórfelld stækkun landhelg- innar hafði fengizt til viðbótar stækkuninni 1958, með hinum breyttu grunnlínum. Hin nýju friðunarsvæði voru fjögur: Á Húnaflóa, sunnan Langaness, á Faxaflóa og loks á Selvogs- banka, en þar var stækkunin Gunnar Thoroddsen mest og þar eru þýðingarmestu hrygningarsvæði nytjafiska við ísland. Og um framtíðarstefnuna var það skýrt fram tekið svo að eng- inn gæti verið í vafa, að ís- lendingar muni halda áfram að vinna að því að eignast land- grunnið allt. Það atriði i þessum samningi, sem stjórnarandstæðingar deildu harðast ét, var hin tak- markaða og tímabundna heim- ild brezkra skipa til veiða milli 6 og 12 mílna. En þá er rétt að minnast þess, að sumarið 1958, meðan vinstri stjórnin var enn við völd, áttu sér stað við- ræður um málið á vegum At- lantshafsbandalagsins. í þeim viðræðum var þátttökuríkjum þess boðið af Islands hálfu, að þeim skyldi heimilt að láta skip sín stunda veiðar um þriggja ára skeið, milli 6 og 12 mílna, allt umhverfis landið, gegn þvl skilyrði að þau viðurkenndu 12 mílurnar og að vissar breytingar yrðu gerðar á grunnlínum. Þær breytingar væru þó miklum mun minni en fallizt var á I marz 1961, m.a. engar á Faxa- flóa og Selvogsbanka. Þessu til- boði íslenzku stjórnarinnar var hafnað. HeiIIaspor. í dag falla niður hinar tíma- bundnu og takmörkuðu veiði- heimildir erlendra skipa innan 12 mílna markanna. Nú ættu allir að sjá, að samningurinn frá 1961 var heillaspor fyrir Island. Svo segir I snilldarþýðingu Brands ábóta á Alexanders sögu, að spekingurinn Aristótel- es gaf lærisveini sinum, Alex- ander mikla, það heilræði, að eigi skuli á minnast eftir teknar sætt-ir umliðið sundurþykki. Það væri hyggilegt af Islend- ingum að fylgja þessu heilræði hins spaka manns. Eigi svo bókstaflega, að ekki megi rifja upp sögulegar staðreyndir og skýra þær. Fremur í þeirri merk ingu, að ýfa ekki upp gömul sár að óþörfu, heldur sættast heil- um sáttum. Við sendum hinni brezku þjóð bróðurkveðjur I trausti gagn- kvæmrar vináttu og skilnings meðan aldir renna. Takmarkið er landgrunnið allt um útfærslu, fyrir Haag dóm- stólinn. En með því, að Islend- ingar hafa ávallt grundvallað allar sínar aðgerðir í landhelgis málum á alþjóðarétti og eins og þeir hafa talið að túlka bæri alþjóðalög og munu að sjálf- sögðu gera það framvegis mun þetta ákvæði ekki verða neinn Þrándur í Götu frekari aðgerða Islendinga í Iandhelgismáíum. — Hver voru aðalatriði samn- ingsins við Breta frá 1961? — Þau voru þessi: 1) Með samningnum var leyst deilan við Breta, er staðið hafði í 2 y2 ár en hún hafði reynzt mjög hættuleg og hefði getað leitt til óbætanlegs tjóns fyrir báða aðila. 2) Það fékkst óafturkallanleg viðurkenning Breta á 12 mílna fiskveiðilögsögu Islands en þar með má segja, að 12 mílna land helgin hafi verið tryggð um alla framtíð. svæðið undanskilið. En þessi á kvæði jafngilda því f rauninni, að undanþágurnar giltu skemur en í 3 ár, eða aðeins í um 15 mánuði samfellt. Davíð Ölafsson — segir Davíð Ólafsson, fslendingar hafa undanfarin ár kynnt þau sjónarmið sín er- lendis, er liggja þvf til grund- vallar, að þeir telja sig eiga rétt til alls landgrunnsins og ég tel, að þeir eigi að halda því starfi sfnu áfram, segir Davfð Ólafsson fiskimálastjóri í við- tali við Vfsi í tilefni af því, að íslendingar fá í dag óskerta 12 mílna fiskveiðilandhelgi. — Leggur landhelgissamning- urinn við Breta frá 1961 nokkr ar hömlur á frekari aðgerðir Islendinga f landhelgismálum? — Nei, svo sannarlega ekki. Og allar staðhæfingar stjórnar- andstöðublaðanna um, að svo sé, eru tilhæfulausar með öllu. I samningnum við Breta var það einmitt tekið skýrt fram, að Islendingar myndu áfram vinna að landhelgismálum sínum á grundvelli ályktunar Alþingis frá 5, maí 1959 en í þeirri álykt un segir, að íslendingar muni vinna að því að afla viðurkenn- ingar 'á rétti Islendinga til land grunnsins alls. — Hvaða atriði landhelgissam komulagsins við Breta er það einkum er stjórarandstaðan hef- ur talið, að gæti torveldað að- gerðir íslendinga í landhelgis- málum í framtíðinni? Það er einkum það atriði, að íslendingar muni tilkynna Bret um með sex mánaða fyrirv. um frekari útfærslu íslenzkrar fisk- veiðilögsögu og fallast á að leggja ágreiningsmál er upp kunna að rfsa milli þjóðanna 3) Dregnar voru nýjar grunn línur á 4 stöðum og höfðu þær í för með sér verulega stækkun á fiskveiðilögsögu Islands mið- að við reglugerðina frá 1958. 4) Bretar féllust á, að umþótt- unartími þeirra á ytri 6 mílun- um væri miðaður við takmark- aðan tíma á ári hverju í 3 ár og bundinn við takmörkuð veiði- svæði. T. d. var allt Vestfjarða- 5) Yfirlýst var, að íslending- ar mundu áfram vinna að land helgismálum sínum, eins og við höfum áður rætt um. — Teljið þér ekki, að samning urinn frá 1961 hafi verið mikill sigur fyrir ísland? — Jú, vissulega. Ég tel, að hann hafi verið einn mesti stjórn málasigur er Island hefur unnið. Og það kom skýrt fram í blöð- um erlendis að talið var, að Is- lendingar hefðu staðið sig vel í landhelgisdeilunni við Breta og fengið hagstæða lausn á henni. — Hverju þakkið þér það, að hin hagstæða lausn fékkst? Ríkisstjórn Islands á að sjálf sögðu fyrst og fremst heiður- inn. Hún hélt vel og skynsam- lega á málum íslands og lét aldrei hrekja sig af réttri braut þrátt fyrir hatramman áróður stjórnarandstöðunnar. Það kom sér vel, að unnið hafði verið árum saman að þvf að kynna málstað Islands erlendis. En að sjálfsögðu hefði hinn góði ár- angur ekki náðst, ef Bretar hefðu ekki haft skilning á aðstöðu okkar og sérstöðu enda þótt þeir yrðu einnig að taka til lit til hagsmuna sinna fiski- manna. — Hvernig haldið þér, að á- standið væri í dag, ef við hefð- um ekki gert samninginn við fiskimálastjóri Breta? Haldið þér, að þorska- stríðið stæði enn? Að ræða málið á þann hátt er svipað og að deila nú um Upp- kastið frá 1908 og það er gerzt hefði ef því hefði ekki verið hafnað. Ég treysti mér ekki til þess að segja neitt um það hvernig ástandið væri í dag, ef samningurinn við Breta hefði ekki verið gerður, En hitt má benda á, að ástandið var orðið mjög hættulegt i þorskastríð- inu. Það hafði staðið f 2y2 ár og ekkert benti til þess að það væri að leysast. Sú staðreynd gefur ef til vill nokkra vísbend ingu um það hvað gerzt hefði. — Við ræddum áðan um land grunnið. Hafa fleiri þjóðir en Islendingar lagt áherzlu á að tileinka sér það? — Já, ýmsar þjóðir hafa gert það og nokkrar þjóðir hafa til- einkað sér landgrunnsbotninn. En til er alþjóðasamþykkt um það að ríki hafi rétt til þess að eigna sér landgrunnsbotninn og utanrfkissáðherra, Guðmund ur I. Guðmundsson hefur vikið að því í ræðu, að til athugunar væri að Islendingar gerðu það. — Hversu vfðáttumikil yrði fiskveiðilandhelgi Islands, ef við fengjum allt landgrunnið? — Um það er erfitt að segja, þar eð landgrunnið nær mjög misjafnlega Iangt út. En vfða nær það 60 — 70 mílur út. — Það yrði nokkuð stór land helgi. En hafa ekki nokkur ríki allt upp f 200 mílna landhelgi? — Jú, til eru ríki er tileinkað hafa sér 200 mílna Iandhelgi en það viðurkennir ekki nokkurt ríki svo stóra landhelgi. — Hafa fulltrúar íslands á er- lendum vettvangi iðulega vakið máls á landsgrunnsrétti ís- lendinga undanfarin ár? — Já, ekkert tækifæri hefur verið látið ónotað til þess að Fnunhald á bls. 5.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.