Vísir - 17.03.1964, Blaðsíða 2

Vísir - 17.03.1964, Blaðsíða 2
VÍSIR . Þriðjudagur 17. marz 1964. rMaraþon" á afmæfísmétí KR í badminton Keppnin stóð til kl. 11 um kvöldið, en átti að Ijúka fyrir kvöld- Lengsta badminton- farið á Islandi fór fram inn. Þar fengust úrslit keppni, sem fram hefur í KR-húsinu á laugardag ekki fyrr en kl. rúmlega mat oð réttu lagi -<$> 11 um kvöldið, en hún hófst kl. 4.20 þá um dag- inn. Hefði keppni átt að ljúka um kvöldverðar- leytið með réttu lagi, en vegna sérlega harðra leikja varð hvað eftir annað að framlengja, og því varð keppni ekki lok ið fyrr. ★ Það var afmælismót KR í tilefni 65 ára afmælis félagsins, sem varð að þessu mikla maraþon- móti, þar sem flestir leikir end- uðu svo, að leika varð aukaleiki. Sigurvegarar á mótinu urðu: 'k Óskar Guðmundsson I einliða- leik karla. Óskar vann Jón Árna^ son í mjög erfiðum leik með7 10-15, 15-11 og 15-7. Jón Árnason varð hins vegar sigurvegari ásamt Viðari Guð- jónssyni í tvíliðaleik. Þeir sigr- uðu þá Óskar Guðmundsson og Garðar Alfonsson í mjög spenn- andi viðureignum. Lauk þeim 17-15 og 18-17. T<r Jónína Nieljohníusdóttir og Rannveig Magnúsdóttir unnu ÓSKAR GUÐMUNDSSON var mótsstjóri og vann einliðaleik- inn að auki. þær Júlíönu ísebarn og Halldóru Thoroddsen með 15 — 10 og 15 — 6 í tvíliðakeppni kvenna, en talsverð barátta var einnig í þeirri keppni. í 1. fl. var baráttan ekki hvað minnst. Steinari Pedersen og Inga Ingimundarsyni tókst að hreppa sigurinn gegn þeim Emil Ágústssyni og Guðmundi Jóns- syni með 16 — 18, 15 — 2 og 18 -15. Aðaldómarar I þessum miklu viðureignum badmintonmanna voru Ernst Jensen, Karl Maack og Hilmar Ágústsson. Mótstjóri var Óskar Guðmundsson. Myndin sýnir Valsstúlkurnar fagna sigri að leikslokum. Harka í mfl. kvenna í gærkvöldi Þrír hörkuspennandi leikir fóru fram í meistaraflokki kvenna í gærkvöldi. Valur vann FH meS 9:8 í mjög spennandi viðureign, þar sem barizt var til síðasta blóðdropa. Ármanni tókst að sigra Breiðablik með 2 mörkum, 13:11, sem er mun minna en búast mátti við, og Víkingsstúlkumar áttu í hreinum vandræðum með Þrótt lengst af, en tókst að buga þær síðustu mínúturnar og vinna 11:6. Glímkapisi fellur á sjálfs sín bragii Hinn nýi íþróttaritstjóri Þjóð- vlljans, „kolIega“ minn Eysteinn Þorvaldsson, sá ástæðu til að senda mér tóninn i dálkstúf, sem hann kallar „á dagskrá“. Raunar er ekki mikil ástæða til að svara nöldri Eysteins, eftir að ferill kappans í sambandi við mál þetta er kann- aður. Málið spannst út af þvi, að á íþróttasíðu Vísis er fundið að því að bezta glimumanni ísiands er meinað að keppa nema á tveim glímumótum í Reykjavík. Að vísu var sagt, að það væri á einu móti, en þau mistök miklar Eysteinn óg- urlega fyrir sér. Eysteinn Þorvaldsson er gamall iðkandi glímunnar og hefur undan- farin ár verið í stjórn glímudeildar Ármanns, en einmitt sú deild hef- ur unnið mest að því að bola Ár- manni J. Lárussyni út úr islenzkri glímu. Er svo komið að Ármann J. Lárusson hefur TVÖ tækifæri á að keppa á opinberum mótum, sem er ekki mikið fyrir toppmann í íþrótt. Það er skiljanlegt, að Ey- steinn hafi orðið sem glóðarhaus, þegar hann las Vísi daginn eftir að Flokkaglíma Reykjavíkur fór fram. Að vísu voru missagnir i umræddri frétt, — en þær voru hlægilega smávægilegar. Aðalkjarn inn var hins vegar eftir og það er aðförin að Ármanni J. Lárus- syni. Með heimskulegum skrifum EÞ í Þjóðviljanum hefur hann neytt mig til að rifja upp leiðindamál það, sem átti sér stað, þegar Ár- mann J. Lárusson var sviptur þátt- tökurétti í Skjaldargllmunni, en í þeirri glímu hafði Ármann sigrað oftar en nokkur annar frá 17 ára aldri. Ljóst var, að sigrar Ármanns sviðu sárt. Einveldi hans var af mörgum talið óheillavænlegt og ein hvern veginn varð að klekkja á manninum. Og 1961 kom tækifærið óvænt upp I hendurnar. ÁJL gekk í Umf. Breiðablik í Kópavogi og var þar með ekki Iengur á umráða- svæði ÍBR. Á skjaldarglímunni 1961 var Ármann ekki með vegna þess, að þátttökutilkynning hans kom of ssint. Öðrum keppanda með sama formgalla var hins vegar ekki meinað að glíma í sömu glímu. 1962 var Ármanni enn meinað að vera með og var sú neitun byggð á úreltum og eldgömlum regl um um þátttöku. Fyrir Skjaldarglímuna 1963 var Ármann J. Lárusson og allir utan- bæjarmenn útilokaðir frá glímunni. Blandaðist engum hugur um hvers vegna þær reglur voru settar, sem útilokuðu þátttöku annarra en Reykvíkinga. Var þarna stigið spor aftur á bak, þvi að í tæp 50 ár hafði glíma þessi verið opin öllum þeim íþróttamönnum, sem æsktu þátttöku og var í anda íþróttanna í þvi tilliti. Var þó ekki hægt að bera við of mikilli þátttöku í glím- unni nema síður væri. Mikil blaðaskrif urðu um málið á sínum tíma og er ekki ástæða að rekja þetta leiða mál nánar, en ó- hætt er að fullyrða, að hér er um eitt soralegasta mál innan íþrótta- hreyfingarinnar að ræða, enda fá- títt að reglum sé breytt á þann veg sem hér var gert, eingöngu til að klekkja á einum manni, bezta manni viðkomandi greinar í land- inu, ekki sízt þar sem reglurnar voru settar eftir að mótið var aug- lýst og var þar um leitt atvik af hálfu ÍSl að ræða. Það var því mikið óhapp fyrir Eystein Þorvaldsson, þegar hann lét blóðþrýstinginn hækka svo mjög við að lesa Vlsi á fimmtudag- inn, því við að rita pistil sjnn komst þetta leiðindamál hans og félaga Ármann J. Lárusson. hans aftur „á dagskrá". Læt ég þetta svo nægja um glímuna og einkavandamál Eysteins Þorvalds- sonar, glímumanns og ritstjóra, en læt lesendum eftir að dæma í þessu máli. Ég held, að Eysteinn hafi fa]i ið heldur flatt á sjálfs sín bragði. - jbp -

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.