Vísir - 17.03.1964, Síða 5
V1SIR . Þriðjudagur 17. marz 1964.
\
útlönd í rnorgun
útlönd í morgun útlönd í morgun . ^ útl.önd í morgun
SICUR FYRIR NASSCR
A ÞJÓDÞINCIIIBYU
Það er talinn mikill sigur fyr-
ir Nasser forseta Egyptalands
og til áhrifaauka fyrir hann við
austanvert Miðjarðarhaf, að
þjóðþingið 1 Libyu hefur ein-
róma samþykkt að segja upp
hernaðarlega sáttmálanum, sem
gerður var við Bandaríkin, en
með þessu er í rauninni ákveðið
að bandarískar herstöðvar í land
inu verði lagðar niður og að
bandarískt og brezkt herl. verði
á burt úr landinu.
Frá .þessu var sagt í útvarpi
frá Kairo í gærkvöldi. Sam-
kvæmt fréttinni, sem útvarpað
var, ber að skilja ákvörðunina
svo, að með henni hafi einnig
verið ákveðið að segja upp vin-
áttusáttmálanum við Bretland
og hernaðarlegum og fjárhags-
legum viðbótarsamningum. —
Samningarnir við Stóra-Bretland
voru gerðir 1953 og við Banda-
ríkin árið eftir. Samningarnir
við Breta renna út 1973 og við
Bandaríkin tveimur árum fyrr.
Fyrir um það bil mánuði hélt
Nasser ræðu og sagði, að leggja
bæri niður allar erlendar her-
stöðvar í Libyu og á Kýpur og
hélt hann því og fram, að þeim
hefði verið komið upp í ógnun-
arskyni við Egyptaland.
í kjölfar þessarar yfirlýsingar
lýsti stjórnin í Lybíu yfir, að
samningar um herstöðvar yrðu
ekki framlengdir.
Bretland hefur litla flugstöð
við Tobruk, og nálægt Tripoli er
hin mikla Wheelus-herstöð
Bandaríkjanna.
Libya kom mjög við sögu í
styrjöldinni. Fjárhagslega var
landið upp á Breta komið og
síðar Bandaríkin, en nú
er þetta breytt eftir að olía
fannst og vinnsla hófst hvort-
Nasser
tveggja með vestrænni fjárhags-
legri og tæknilegri aðstoð, og
eru af vinnslunni miklar tekjur
núorðið..
RAUDSKINNAR RÁDAST
Á JARDFRÆDINGA
Jarðfræðilegur leiðangur í aust-
urhluta Perú hefir gegnum sendi-
stöð sína beðið um skjóta hjálp
vegna þess, að Rauðskinnar haldi
uppi árásum á leiðangursmenn.
í orðsendingunni var sagt:
Þeir munu vega okkur hvem af
öðmm, nema skjót hjálp berist.
Tveir okkar manna eru drepnir og^
30 Rauðskinnar. Þeir skjóta á okk-
ur af bogum sínum fimmtu hverja
mínútu.
Hjálparleiðangur var sendur af
stað frá bænum Requena, en. .ó-
víst að hann nái til leiðangurs-
manna í tæka tíð.
Hubert Humphrey öldungardeild
arþingmaður hefir tilkynnt, að
hánn gefi ekki kost á sér sem vara
forsetaefni demokrata. Hann til-
greindi ekki ástæður.
Rúmenar gátu ekki
sættMaoog Krúsév
Vestrænir sendimenn í Moskvu
eru sagðir þeirrar skoðunar, að til
raun rúmensku sendinefndarinnar
til þess að miðla málum í hugsjóna-
deilu Rússa og Kínverja hafi reynzt
vita gagnslaus.
Sendinefndin, en formaður henn
ar var forsætisráðherra Rúmeníu,
IdJr tij^Gag-ra. við Svartahaf, eftir
ííeimKdmúná frá Peking, og. rséddi
við Krúsév, sem er í Gagra sér til
hvíldar.
Birt var stutt tilkynning um
viðræðurnar í Gagra og draga
menn þær ályktanir af henni, að
miðlunartilraunirnar hafi orðið ár-
angurslausar.
Síðan nefndin var í Moskvu haí'a
blöðin í Peking gert sér mikinn
1 mat úr árásum aðalkommúnistaleið
toga Nýja Sjálands á Moskvustefn-
I una varðandi alþjóðakommúnism-
! ann.
Skemmtanaskattur — Áætlunarráð ríkisins
*
Fundir voru í báðum þingdeild
um í gær.
Skemmtanaskattur.
1 efri deild mælti frú Auður
Auðuns fyrir áliti menntamála-
nefndar um
skemmtana-
skatt. Fjallar.
frv. um það, að
skemmtana-
skattur er tvö-
faldur af kvik-
myndasýning-
um og 25% af
öðrum skemmtunum. Þetta frv.
felur aðeins í sér þá breytingu,
að þetta álag er fest án tíma-
takmarkana, en áður var það
ákveðið frá ári til árs. Ekki þótti
menntamálanefnd fært að fella
þennan skatt niður án þess að
eitthvað annað kæmi þar í stað-
inn og mælir því einróma með
því. Var málinu síðan vísað til
3. umr.
Áætlunarráð ríkisins.
1 neðri deild héit Einar Ol-
geirsson áfram ræðu sinni frá
s. 1. fimmtudegi
um áætlunarráð
ríkisins. Hóf
hann nú að
skilgreina af-
stöðu Framsókn
ar til skipulags-
mála. Sagði
hann, að hingað
til hefði hún verið mjög óákveð-
in, I stjórn Alþýðu- og Framsókn
arflokksins á árunum ’34—’38
hefði Alþýðuflokkurinn komið
fram með þjóðhagsáætlun, sem
hefði verið drepin niður af Fram
sókn. Á dögum vinstri stjórnar-
innar hefði hún farið að ráðum
Vilhjálms Þórs í bankamálunum
í stað heildaráætlunar, sem Al-
þýðubandalagið og Alþýðuflokk-
urinn hefðu viljað koma á. En
nú, þegar þessi. flokkur er í
stjórnarandstöðu, ber svo við að
miðstjórn Framsóknarflokksins
gefur út langar yfirlýsingar um
þjóðhagsáætlun. Skoraði ræðu-
maður á Framsóknarmenn að
láta í ljós við umræðurnar hvar
þeir stæðu í þessum málum.
Þá minntist Einar á það, að
draga þyrfti fjármagn úr verzlun
og koma því í atvinnuvegina, ráð
stafa því £ þágu þjóðfélagsins, því
frjáls samkeppni væri hugtak,
sem hefði dáið drottni sínum fyr-
ir 30 árum.
Að lokum sagði hann, að hver
ríkisstjórn hefði of mikið á sinni
könnu til að hafa bein afskipti
af þessum málum og þess vegna
þyrfti að koma upp aérstakri
stofnun, sem sæ; um þau.
Þórarinn Þórarinsson sagði, að
þrjár stefnur væru £ þessum mál
um. í Banda-
ri'kjunum ri'kti
skipulagsleysið,
£ Rússlandi
væri skipulagið
of strangt. Á
Norðurlöndun-
um væri hins
vegar skipulag,
sem við ættum að halla okkur
að. Sjálfstæðisflokkurinn hallað-
ist að Ameriku, Alþýðubandalag
ið að Rússlandi og Framsóknar-
og Alþýðuflokkur að Norðurlönd
um.
Þá sagði hann, að árin ’34 — ’38
skæru sig úr sögunni sl. 30 ár,
að þvf leyti hvað þá hefði verið
gott skipulag á öllum hlutum. En
það hefði farið út um þúfur vegna
þess að þá hefðu kommúnistar
klofið svo Alþýðuflokkinn, að
hann hefði orðið til lítils gagns.
Árið 1942 hefðu Framsóknarmenn
borið fram þáltill. um alhliða
skipulagningu striðsgróðans að
styrjöldinni lokinni. Hún hefði
verið samþykkt og nefnd sett á
laggirnar, sem hefði unnið gott
starf. En starf hennar var stöðv-
að á dögum nýsköpunarstjórnar-
innar, sem sósfalistar áttu þó
sæti i. Þetta sýndi, að Framsókn
arflokkurtnn hefði átt frumkvæð-
ið að þessum málum en ekki stað
ið f vegi fyrir þeim, eins og Ein-
ar vildi vera láta.
Vinstri stjórnin gat ekki komið
þessum málum fram vegna þess
hve hún sat stutt að völdum, sem
hefði m. a. stafað af þvf, hvað
Alþýðubandalagið var innbyrðis
sundrað. Og valdamesti maður
þess hefði greitt atkvæoi með
stjórnarandstæðingum á örlaga-
stundu.
Það eru ekki Alþýðu- og
Framsóknarflokkurinn, sem hafa
unnið gegn framgangi heildar-
skipulagningar, heldur miklu
fremur Alþýðubandalagið, auk
þess sem Sjálfstæðisflokkurinn
hefur haft aðstöðu til þess, vegna
þess hve kommúnistar eru til-
tölulega sterkir hér á landi.
Að lokinnj ræðu Þórarins var
umræðum frestað.
í STUTTU MÁLI.
Efri deild.
Lausn kjaradeilu verkfræðinga
var vísað til 2. umr. og allsherj-
arnefndar.
Jarðræktarlög voru til fyrsti:
umræðu og stækkun Mosfells-
hrepps var vísað til 2. umr. og
allsherjarnefndar.
Neðri deild.
Einar Ingimundarson flutt’
breytingartillögu við frv. um rík
isborgararétt, þ. e. einni mann
eskju verði bætt inn á þessi lög
Þórarinn Þórarinsson mælti fvr
ir tveim frv., sem hann flytur um
Ferðaskrifstofu ríkisins og ferð?
skrifstofur almennt. Mæltist hanr
til að þessi frv. yrðu athuguð >
sambandi við ferðamálafrumvarp
ríkisstjórnarinnar.
Skúli Guðmundsson mælti fyro
álíti fjárhagsnefndar um afnám
laga um verðlagsskrár. Varð að
gera á því breytingar, vegna þess
að ekki var gert ráð fyrir, að
bóndi, sem greiddi landsskuld
samkvæmt verðlagsskrá, gæti
gert það á annan hátt. Niðurstað-
an varð sú, að fjárhagsnefnd flyt
ur breytingartillögu um að við
frv. bætist, að hagstofustjóri
skuli meta greiðsluna til peninga
verðs, nema aðilar komi sér sam
an um annað.
I