Vísir


Vísir - 17.03.1964, Qupperneq 6

Vísir - 17.03.1964, Qupperneq 6
6 VlSIR . ÞriBjudagur 17. marz 1964. <•>- Skrifa Loftur Steingrímur um kvikmyndir ýmsir lesendur Vísis hafa komið að máli við blaðið og bent á að nokkur Ijóður væri það á ráði þess að ekki birtust þar að staðaldri umsagnir um þær kvikmyndir, sem sýndar eru I kvikmyndahúsum borgarinnar. En eins og alkunna er þá eru kvikmyndir stærsta almennings- skemmtanin hér á landi eins og víða annars staðar, a. m. k. þang að til sjónvarpið heldur innreið sfna. Nú er I ráði að bæta úr þessu og mun Vísir hefja birtingu á stuttum greinum um þær kvik myndir, sem hér eru sýndar. Hefir blaðið fengið þá Loft Guð- mundsson og Steingrím Sigurðs- son til þess að annast þennan þátt. Loftur er lesendum að góðu kunnur fyrir greinar sínar um sýningar Þjóðleikhússins og Leikfélagsins og Steingrímur hefir ritað um hríð viðtöl og greinar hér í blaðið, sem marg- ar hafa vakið mikia athygli. Fyrsta kvikmyndagreinin birt- ist á 7. síðu Vfsis í dag og fjall- ar um brezku kvikmyndina um Christine Keeler og ástarfar hennar. -3> Landhelgin — Framh. af bls. 8 fiskveiðirétt á öllu eða hluta af svæðinu sem um er rætt f 2. grein til fiskimanna annarra samningsaðila ef þeir hafa veitt á svæðinu vegna „nágranna" fyrirkomulags. 10. grein. Engin ákvæði í þessum samn- ingi skulu hindra viðhald eða setningu sérstakrar fiskveiði- lögsögu f eftirfarandi þjóða- samstarfi: a) milli aðildarrfkja og auka- aðila Efnahagssamstarfs Evr- ópu, b) milli rfkja sem eru aðilar að Benelux efnahagsbandalag- inu, c) milli Danmerkur, Noregs og Svfþjóðar, d) milli Frakklands, Bretlands ‘og Norður-lrlands varðandi GranviIIeflóa og Miniquers og Echrehous, e) milli Spánar, Portúgals og nágrannalanda þeirra f Afrfku, f) varðandi veiðar f Skagerak og Kattegat. 11. grein. Strandrfki getur með sam- þykki annarra samningsaðila undanskilið beitingu 3. og 4. greinar um viss svæði til þess að gefa strandbúum forgangs- rétt ef þeir eru mjög háðir fiskveiðum við ströndina. 12. grein. Samkomulag þetta gildir um hafsvæðin við strendur samn- ingsaðilanna sem upp eru talin f viðbótarskjali. Þessu viðbótar- skjali má breyta með samþykki ríkisstjórna samningsaðila. Sér- hver tillaga um breytingar skal send rfkisstjórn Bretlands sem mun tilkynna það öðrum samn- ingsaðilum og gefa þeim upp- lýsingar um tímamörk, þegar breytingar ganga f gildi. 13. grein. Sérhver deila sem upp kann að koma milli samningsaðila um túlkun og beitingu þessa samn- ings, skal ef einhver aðili óskar þess lögð fyrir gerðardóm, nema aðilarnir komi sér saman um aðra aðferð til friðsamlegrar lausnar. 14. grein. 1) Samningur þessi skal liggja frammi til undirritunar frá 9. marz 1964 til 10. apríl 1964. Hann skal staðfestast í hverju aðildarrfki samkvæmt þeim stjórnarskrárreglum, sem f þeim gilda. Staðfesting skal afhent rfkisstjóm Bretlands eins skjótt og kostur er. 2) Samningurinn gengur f gildi þegar staðfesting 8 rfkja sem undirritað hafa hann, er fengin. Ef þvf marki hefur hins vegar ekki verið náð 1. janúar 1966, geta þau rfki sem þá þeg- ar hafa staðfest hann komið sér saman um sérstakt ákvæði um gildistöku hans. Hvort sem er mun samningur þá öðlazt gildi fyrir þær ríkisstjórnir sem hafa staðfest hann eða munu gera það. 3) Sérhvert rfki getur eftir að samningurinn hefur gengið f gildi gerzt aðili að honum með þeim skilyrðum sem samn- ingsaðilar fallas.t á. Akvörðun um að gera^t'aðili að samningn* um skal tilkynnt rfkisstjórn Bretlarids. 4) Rfkisstjórn Bretlands skal tilkynna öllum þeim rfkisstjórn- um er undirrita eða gerast að- ilar að samningnum um allar aðgerðir til staðfestingar hon- um sem fram koma og tilkynna þeim ríkisstjórnum sem undir- rita hann eða gerast aðilar um tfmaákvarðanir og gagnvart hvaða ríkisstjórnum samningur- inn tekur gildi. 15. grein. Gildistfmi samnings þessa er ótakmarkaður. Þó getur hver samningsaðili, þegar 20 ár eru liðin frá þvf hann gekk í gildi, riftað honum með tveggja ára fyrirvara með tilkynningu til ríkisstjórnar Bretlands, sem mun aftur tilkynna öðrum samn ingsaðilum um það. Skip — Framh. af bls 16 er Sölumiðstöð hraðfrystihús- anna framleiðir. Mjög hörð samkeppni er nú milli skipafélaganna, en farm- gjöldin eru ekki lengur háð verð lagsákvæðum. Eru farmgjöld af þeim sökum orðin mjög mismun andi há. Hjúkrunarkonur — Framh. af bls. 1. þess að vinna, ef þær gætu komið börnum sínum f gæzlu á barna- heimili. Eitt barnaheimili er nú rekið f sambandi við sjúkrahús hér á landi, þ. e. við Kleppsspftalann. Þar eru nú 16 börn 10 hjúkrunarkvenna. Mikill skortur er nú á hjúkrun- arkonum á sjúkrahúsunum, og er það ástæðan fyrir því, að Lækna- félagið fór að athuga með hvaða ráðum mætti bæta þar úr. Er nú sérstök nefnd starfandi á vegum Læknafélagsins að lausn þessa máls. Loftleiðir — Framh. af bls. 1 viðræðum milli þessara tveggja félaga. Þess má geta að 17 eða 18 félög fljúga’ með farþega yfir Norður- Atlantshaf. Þeirra stærst eru Pan American, TWA, BOAC, Air France, KLM, Lufthanza, IRIS, SABENA og SWISS Air. „Þið segið góðar fréttir", sagði Alfreð Elfasson, forstjóri Loft- leiða, þegar Vísir las fréttina af New York fundinum fyrir hann f sfma í morgun. Og hann bætti við: „Ég kalla það góðar fréttir, þegar SAS og önnur IATA félög eru komin á þann grundvöll að viðurkenna Loftleiðir og vilja hafa samvinnu við ókkur. En þannig túlka ég þessa frétt“. Saltendur — Framh. af bls. 16. telur það alvarlegt, að á sama tíma og mikil sfld er við Noreg hafi ekki verið hægt að veiða upp í gerða samninga. Segir blaðið, að sfldarseljendur líti al varlegum augum á þessi mál. Hætt sé við þvf að Norðmenn falli út af mörkuðunum ef svo gengur til. Blaðið skýrir frá þvf að verð það, sem norskir saltendur vérða að greiða fyrir fersksfld- ina sé 21 norsk króna á hektó- lítra eða fsl. kr. 1,39 á kg. Verð ið hér á íslandi er kr. 1,42 á kg._________________ TIIEyja — Framh. af bls. 16. „Miklubraut“, sennilega vegna þess hve mikið fyrirtæki það er og dýrt að leggja hana. Gömlu flugbraut- ina nefna þeir aftur á móti Löngu- hlíð. Héðan f frá eiga flugsamgöngur við Vestmannaeyjar að batna stór- lega og eftirleiðis á að vera hægt að fljúga þangað daglega nema f stórviðri eða mjög lágskýjuðu. Hríð — Framh. af bls. 16 eftir Englandi, jafnvel allt til hér- aðanna f kringum London hefir snjór fallið. 1 gær var ekki nema eins stigs hiti f London á Celslus- mæli, en hér uppi á lslandi komst hitinn upp f 9 stig. Ein afleiðing óveðursins mllli Færeyja og Skotlands var sú, að tveimur íslenzkum togurum á útleið seinkaði, öðrum um sól arhring, hinum um tvo sólar- hringa. Það eru þeir Hafliði, sem selur í Vestur-Þýzkalandi og Ing ólfur Amarson, sem selur f Bret landi á morgun. Fleiri togarar eru á útleið. Þrfr lögðu af stað í gærkvöldi og nótt. Verði áframhald á kuldatíð á Bretlandi er hætt við að það hafi óhagstæð áhrif á fiskverðið. Um helgina var fannfergi svo mikið f Skotlandi, að umferð stöðvaðist um þjóðvegi og voru 7 enn ófærir f morgun. Búið var að ryðja snjó af vegum á Englandi, en um allt Bretland var við mikla samgöngu- erfiðleika á landi að etja og flug- samgöngur töfðust og skip við strendur landsins. Um helgina urðu menn svo hundruðum og þúsundum skipti að yfirgefa þfía sfna og brjótast til næstu þorpa eða hafast við í bif- reiðunum, og fór þannig m.a. fyrir brúðhjónum og brullaupsgestum, um 80 manns. SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ISLANDS RlKISÚTVARPIÐ TÓNLEIKAR f Háskólabfói fimmtudaginn 19. marz kl. 21. Stjómandi: IGOR BUKETOFF Einleikari: ALFRED BRENDEL Efnisskrá: Nielsen: „Helios“-forieikur Beethoven: Píanókonsert nr. 4 í G-dúr, op. 58 Berwald: Sinfonie Singuliere Aðgöngumiðar seldir í Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar og bókabúðum Lárusar Blöndal, Skólavöröustíg og Vesturveri f ^ Ponds-vörur Steinpúður í stórum og litlum dósum me?S spegli. Hreinsunarkrem, næringarkrem, andlitsvatn Augnabrúnablýantar, grænir, brúnir og svartir. Verð frá kr. 15.00. Varalitir. Verð frá kr. 25.00 Naglalakk. Verð frá kr. 22.00. SNYRTIVÖRUBÚÐIN Laugavegl 76 . Simi 12275 Plostelni Plastefni í borðdúka, gluggatjöld, hengi o. fl. VERZL. ÁSBORG. Baldursgötu 39. Afgreiðslumnður Afgreiðslumaður óskast sem fyrst. SÍLD & FISKUR, Hjarðarhaga. Snið og suumur Get enn tekið nokkra kjóla fyrir páska. SNÍÐASTOFA EDDU SCHEVING Bergþórugötu 2 — Sími 11738. Afgreiðslusturf Afgreiðslumaður óskast nú þegar. SÍLD & FISKUR, Bræðraborgarstíg 5. Atvinnu óskust Ungur maður með Verzlunarskólamenntun, góða enskukunnáttu og yanur að vinna sjálf- stætt, óskar eftir atvinnu í Reykjavík eða úti á landi. Tilboð sendist Vísi sem fyrst, merkt „Vanur - 100“

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.