Vísir - 17.03.1964, Blaðsíða 15
V f SIR . Þriðjudagur 17. marz 1964. 75
sagði de Gevrey, sem varð alls
hugar feginn, en ég lofa ykkur
því að gera allt, sem í mínu
valdi stendur, — kalla þau vitni,
sem hann vill fá, og sannist sak-
leysi hans skal ekki standa á
þeirri viðurkenningu, sem hann
krefst.
- Og ég fæ að heimsækja
hann, þegar ég vil?
— Daglega eina stund i við-
talsstofunni.
mátti til þess koma, að Óskar
yrði viðstaddur, og nú gekk
leynilögreglustjórinn að honum
og hvíslaði:
— Ég ráðlegg yður eindregið,
að tala við hana. Hún er kann
ski komin með mikilvægar upp
lýsingar. Þér getið sent fangann
burt og ég get fjarlægt mig á
meðan.
— Jæja, látum þá svo vera,
en ég bið yður að koma og vera
við yfirheyrsluna yfir Angelu
Bernier, en hún fer fram bráð-
lega.
Dómarinn gaf þjóninum bend-
ingu um, að le:-3a fangann inn
í næsta herbergi.
Svo kom Soffía inn og hafði
þykka slæðu fyrir andlitinu. Nú
svipti hún henni frá.
— Jæja, vinur minn, það er
sannarlega erfitt að ná fundi
þínum. Hann gaf henni bendingu
um að þagna og sagði alvarlega:
— Það er ekki viðeigandi, að
þú komir hér. Þetta er í fyrsta
skipti, sem þú kemur hér og
verður að vera í síðasta skiptið.
- Það er alveg undir sjálfum
þér komið. Hefðirðu komið til
mín hefði verið óþarft fyrir mig
að koma. En ég verð ekki lengi,
— ég óska bara upplýsinga, og
þegar ég hefi fengið þær er ég
farin.
Hún settist eins og hún væri
heima hjá sér:
— Við erum ein og þess vegna
skaltu leggja öll hátíðlegheit til
hliðar. Ég óska upplýsinga. Er
það satt, að maður að nafni
Óskar Rigault hafi verið hand-
tekinn og sakaður um morð í
hraðlest nr. 13.
- Já.
— Er hann Parísarbúi?
- Já, fæddur í Belleville 1857
Soffía fölnaði.
— Það er þá svo. Hann er
bróðir minn. Og hann er ákærð-
ur.
- Já, og allt bendir til sektar
hans.
- Þetta eru ósannar sakargift
ir. Óskar bróðir minn hefir ekki
framið morð. Hann á ekkert illt
til. Ég ábyrgist hann. Skrifið
beiðni um að sleppa honum þeg-
ar.
— Þú gerir að gamni þípu.
- Nei. Ég ábyrgist, að hann
verði kyrr í borginni og mæti
nær sem þess er krafizt.
- Það er ekki hægt?
— Hvers vegna ekki? Séu
menn auðugir er þeim sleppt
gegn tryggingu og ef það stend
ur á því að fá peninga, gætir
þú lagt þá fram.
- Nei, nú er nóg komið, sagði
de Gevrey þurrlega, þú ert fram
úr hófi ósanngjörn, — jafnvel
hin nánu tengsl okkar í milli
geta ekki afsakað afskipti þín,
- þeirra vegna get ég ekki
gleymt skyldum mínum sem em
bættismaður.
- Orð, orð, sagði Soffía, ég
krefst þess, að bróður mínum
sé sleþpt - eða ég geri uppsteit.
- Ef þú heldur þannig áfram
j hringi ég og læt vísa þér út,
sagði de Gevrey ströngum rómi.
- Vísa mér út, jæja, engillinn
minn, ætli þér sé ekki annara um
stöðu þína og virðingu en að
þú hættir á slíkt. Heldurður
|ekki, að til sé fólk, sem hlakki
yfir því, er það fréttist að de
Gevrey dómari hafi átt vingott
við systur — Óskars Rigault. Ef
ég segði nú frá þvf í stúdenta-
kránum.
— I hamingju bænum, tal-
aðu ekki svona hátt.
- Gott og vel, ég skal tala
lágt - ég skal meira að segja
steinþegja; ef þú gérir það, spm
ég bið þig um. 1 fyrsta lagi vil
ég fá að tala við bróður minn,
en ekki sem dómari, sem telur
víst fyrirfram, að hann sé sekur.
Ég þekki bróður minn. Og ég
bið hann að segja mér sannleik
ann. Sé hann sekur, en því trúi
ég ekki getur hann siglt sinn
sjó, en segist hann vera saklaus,
sleppirðu honum gegn trygg-
ingu. Og ég fer ekki nema ég fái
ákveðið svar.
23.
De Gevrey var ofsareiður, en
hann var í ógurlegum vanda —
hann gat aðeins eitt gert, dregið
allt á langinn, í von um að henni
snerist hugur.
— Þú misnotar aðstöðu þína,
sagði hann og bætti svo við treg
lega: — Bróðir þinn er þarna
inni.
Hann benti á dyr hliðarher-
bergisins. Hún ætlaði að æða
inn í það, en hann aftraði henni.
— Bíddur, sagði hann. Þú
skalt fá að tala við hann, en
þú verður að gera það í návist
minni. Allt verður að fara ró-
lega fram. Hugleiddu embættis
manns stöðu mína.
- Já, já, sagði Soffía, því að
nú komst engin hugsun að,
nema að hún fengi að sjá bróður
sinn.
De Gevrey opnaði dyrnar.
— Komið inn, Rigault, sagði
hann, og gaf lögregluþjóninum,
sem þar var bendingu um, að
hann skyldi bíða þar.
Óskar þekkti þegar systur
sína og faðmaði hana að sér, en
hún leiddi hann út að gluggan-
um, svo að hún gæti virt hann
vel fyrir sér, er hún spyrði hann.
— Þú verður að segja mér
eins og er, Óskar . . ,
— Guð minn góður, Soffa, þú
trúir þessu þó ekki — að ég sé
morðingi?
— Nei, en þú verður að sverja
við allt, sem þér er heilagt, að
það sé ekki satt — við minningu
foreldra okkar, sem voru heiðar
legar manneskjur. Horfðu í augu
mér —
— Horf þú í augu mér og þú
getur lesið svarið í þeim — ég
sver við minningu foreldra okk-
ar, að ég er saklaus.
i, — Ég vissi það, Óskar, en
ég 'yárð 'áð; heyra þig segja þafi"
.. . herra dómari þarna getið þér
séð - þér verðið að sleppa hon-
um.
De Gevrey hugleiddi hvernig
hann gæti fengið Soffíu til að
skilja, að hann gæti ekki sleppt
bróður hennar, og má því geta
nærri hve undrandi hann var, er
Óskar kom honum til hjálpar:
- Sleppa mér, það tek ég
ekki í mál.
— Hvers vegna ekki?, spurði
hún undrandi.
— Heyrðu nú, ég er ekki neinn
græningi, og ég fer ekki í nein
ar grafgötur um kynni þín og
dómarans — en það er þitt
mál, ekki mitt, - en þú vilt nota
þér þau til þess að ég sleppi, en
þannig vil ég ekki fá frelsi mitt.
Ég get vel búið á ríkisins kostn
að nokkrum dögum lengur. Ég
vil fara, þegar sakleysi mitt er
viðurkennt - og það þýðir ekk-
ert að fá mig til að skipta um
skoðun.
- Þetta er hárrétt afstaða,
- Jæja, maður verður að láta
sér nægja það, sem maður getur
fengið.
Soffía stakk 20 frönkum að
Óskari, svo að hann gæti látið
kaupa fyrir sig smávegis, sem
hann ef til vill langaði í. Svo
kvöddust þau systkinin með
kærleikum. Þegar Óskar var far
inn sagði Soffía við de Gevrey:
— Kemurðu í kvöld — vinur
minn?
— Það er óvíst, nei, ég get
það ekki vegna anna, sagði de
Gevrey, sem nú sá fram á, að
hann yrði að slíta vinskapnum
hið fyrsta við Soffíu.
- Jæja, þú lætur þér ekki
leiðast,sagði Soffía háðslega að
skilnaði.
Angela Bemier var leidd fyrir
de Gevrey. Hún var náföl og út-
grátin.
— Hvað hafið þig gert við
dóttur mína?, spurði hún beisk
lega. Þér ætlið víst að yfirheyra
mig aftur, en ég segi ekki orð,
fyrr en þér svarið spurningu
minni.
— Hún er í umsjá þemu yðar
- ég var til neyddur að loka
verzlun yðar.
- — Ég Kéfí béðíS um áð fá að
tala við Fernand de Rodyl, —
veit hann, að ég var handtekin
og er fangi?
- Þetta er allt honum óvið-
komandi. Aðeins ég get fyrir-
skipað, að yður verði sleppt —
en því aðeins að þér getið sann
að sakleysi yðar — ella verðið
þér að mæta fyrir rétti.
- Gerið það þá hið fyrsta
- kannsk^ réttlætiskennd kvið
dómenda mynist meiri en yðar.
— Þér neitið þá enn sekt yð-
ar?
- Já,
- Þér hötuðuð föður yðar?
— Hafði ég nokkra ástæðu
til þess að elska hann?
- Þér töluðuð um hann ógn-
andi við systur yðar, Cecile
Bernier.
- Ég, hin óskilgetna dóttir,
sagði hinni skilgetnu mitt
álit á föður hennar og henni.
— Höfðuð þér nokkurt ásök-
unarefni á hendur henn.i?
- Það kemur mér einni við?
«
T
A
R
1
A
H
NOW REAZy FO?. ScCONP
meficikiejakzan! YOUR. r-
WOWAN flenty brave! )
Copr. \wt0, Bdfar PUr Durrouitu. Inc.—Tl
Distr. by Unitcd Fcature Sj
HERE'S THE MESSASE FOCTOR. 70ÍA1NIE
WANTS RA710E7 TO ttOíASUZZl AtR SASE !
LISTEN... ‘GENEZAL YEATS, AmBUZZI: ■
me FREf/CA/AENT HEZE. RUSH 'COPTER
TO V/LLA6E OF THE H.EPICINE ME/V,
Þá erum við tilbúin fyrir lyf
númer tvö, segir svertingjalækn-
irinn. Hún er mjög hugrökk
stúlka. Segðu henni að það muni
vera eins og eldur, en það sé
ekki eldur. í sama bili opnast
dyrnar og Joe kemur inn, þungbú
inn á svip. Hvað er að, spyr
Tarzan. Hér er skeytið, sem Dr.
Dominie vill láta senda til höf-
uðstöðvanna: Sendið strax þyrlu
til þorps frumskógalæknanna og
gefið mér vald til þess að færa
Naomi hjúkrunarkonu burt, með
valdi ef nauðsynlegt reynist. Dom
inie.
v/Miklatorg
Sími 2 3136
16 mm filmuleiga
Kvikmyndavélaviðgerðir
Skuggamyndavélar
..Flestar gerðir sýnipgarlampa
Ódýr sýningartjöld
Filmulím og fl.
Lj ósmyndavörur
Filmur
Framköllun og kópering
Ferðatæki (Transistor)
FILMUR OG VÉLAR
Freyjugötu 15
Sími 20235
ÞVOTTAHÚS
Vesturbæjar
Ægisgötu 10 • Sími 15122
Butterfly-pils
Punný i©nonýs
sími 16738
Miklatorgi