Vísir - 06.06.1964, Qupperneq 1
VÍSIR
54. árg. - Laugardagur 6. júní 1964. - 127. tbl.
TJALDBORG RIS SUNN-
AN HAFNARFJARÐAR
Það var óðum farið að fjölga
í gær í skátabúðunum miklu á
Höskuldarvöllum fyrir sunnan
Hafnarfjörð. Fréttamaður Vísis
var staddur þar í gær og fylgdist
með því þegar verið var að reisa
þar tjöld og smámsaman mynd
aðist þama heil borg úr tjöld-
um, — eins konar bæjarfélag —
t. d. með pósthúsi, sjúkraskýli,
og verzlun sem selur skátavörur,
gosdrykki og mjólk. Þá voru
þaraa liðsmenn úr hópi skáta,
sem héldu uppi löggæzlu likt og
Framh. á bls. 5.
ástandi á Tjörninni
Undanfarna daga hefur ríkt
algert neyðarástand í heimi
hinna fjölmörgu fugla á Revkja
víkurtjöm. Þýzkur svanur, stór
og fallegur, hefur valdið slík-
um usla að dýra- og fuglavin'r
menn eins og Kjartan Ólafs-
son brunavörður, láta hafa eft-
ir sér, „að annar eins ófriðar-
seggur hafi aldrei sézt á Tjörn
inni.“
Þessi þýzki svanur hefur und
BLAÐID I DAG
bls. 2 Krossgatan
3 Loftleiðir í nýju
byggingunni
6 „Kúnninn hefur rétt
fyrir sér“.
— 7 Iþróttir
— 9 Innrásin mikla í Nor-
mándl.
anfarna daga gert harða hríð
að Iitlum andarungum og tætt
þá til bana. Virðist það vera
drápsfýsn ein, því ekki Ieggur
hann bráðina sér til munns. í
gærdag urðu menn vitni að því
að svanurinn drap níu andar-
unga og þótti flestum nóg um.
Svanurinn hefur tekið saman
við kvensvan þýzkan, sem
fyrir var á Tjörninni og hafa
þau skötuhjúin kom'ð sér upp
tveim ungum. Færðist svanur-
inn mjög í aukana eftir að.af-
kvæmi hans fæddust og er fæst
um fuglum líft í nærveru hans.
Framh. á bls. 5.
S Biörgvín 6uð«
mundsson fréttu-
stjöri við VÍSB
Björgvin Guðmundsson va- í
gær ráðinn fréttastjóri við Vísi.
Hann er viðskiptafræðingur að
mennt, en hefur í meir en áratug
starfað við blöð og útvarp og l
unnið á ritstjórn Vísis um nokk- »
, urt skeið. Mun hann eftirleiðís t
1 gegna fréttastjórastörfum á rit- l
stjóm blaðsins ásamt Þorsteini 1
Ó. Thorarensen.
Viðræður við félögin
í Reykjavík að byrja
Búist er við því, að strax eftir
helgina hefjist samningaviðræð
ur við verklýðsfélögin í Reykja-
vík og á Suðurlandi yfirleitt. En
eftir er að ganga frá samning-
um við þessi félög og verða þeir
gerðir innan ramma samnings
rikisstjómarinnar \dð verklýðs-
hreyfinguna.
Ekki er búizt við, að samning
arnir við verklýðsfélögin syðra
verði eins erfiðir og flóknir og
samningarnir við félögin fyrir
norðan og austan enda var þar
um óvenju mikla samræmingu á
kjörum að ræða. En ei að síður
má telja víst, að samningarnir
við verkalýðsfélögin í Reykja-
vík taki nokkurn tíma enda fer
ávallt talsverður tími í að yfir-
fara samninga í heild. Telja má
víst, að verkaiýðsfélögin í
Reykjavtk svo sem Dagsbrún
muni fara fram á hliðstæðar
breytingar og félögin fyrir norð
an og austan fengu enda þótt
sumt eigi eingöngu við félögin
á Norður- og Austuriandi.
Sporhundurinn Nonni er orðinn gamall og þreyttur. Hann var við-
staddur á skátamótinu á Höskuldarvöllum í gær og hafði prýtt sig
með skátahatti og skátatrefli. Höfðu yngstu skátarnir gaman af því
að heilsa upp á hann. Hér sést hann mcð 9 ára Ijósálfi, Ingibjörgu
dóttur Marínós Jóhannssonar úr Hafnarfirði.
- i
Mikil Hstsýaing opnui á morgun
Mikil sýning íslenzkr
ar myndlistar verður
opnuð kl. 4 á morgun í
Listasafni íslands í Þjóð-
minjasafninu. Er þetta
yfirlitssýning um ís-
lenzka list síðustu fimm
ára. Er hún haldin í til-
efni 20 ára afmælis lýð-
veldisins og er einn þátt-
urinn í listahátíðinni.
Sýningin tekur yfir flesta
Listasafnsins og þar em sýnd
verk flestra kunnustu málara
þjóðarinnar 68 talsins. Hlutur
hinna yngri málara er þar til-
tölulega stærstur þar sem aðeins
eru sýnd verk frá sfðustu fimm
árum. Af eldri meisturum má
nefna Kjarval og Scheving og
Júliönu Sveinsdóttur. Abstrakt
listin er hins vegar í yfirgnæf
andi meirihluta á sýningunni.
Að sýningunni standa Bandalag
íslenzkra listamanna og Félag is
(enzkra myndlistarmanna, en
■ það er eina félag myndlistar-
manna sem í Bandalaginu
að því er formaður sýningar-
nefndar, Jóhannes Jóhannesson
listmálari tjáði Vísi f gær.
Alls sýna 32 listamenn á sýning
unni, en af þeim eru 9 mynd-
höggvarar. Tveir gestir sýna
með félagsmönnum, þeir Gunn-
laugur Scheving og Júlíana
Sveinsdóttir. Við opnun sýning
arinnar mun Ragnar Jónsson í
Smára flytja ávarp. Sýningin
verður opin í 3 vikur.
Listamenn liengja upp málverkið, Vomótt eftir Gunnlaug Scheving. Á myndinni em Steinþór Sig-
urðsson uppi í stiganum, Eiríkur Smitfa, Hjörleifur Sigurðsson og Þorvaldur Skúlason.
Þýzkur svanur veldur neyðar-