Vísir - 06.06.1964, Page 8
8
VISIR. Laugardagur 6. Jöní 1909.
VISIR
Utgefandi: BlaBaútgáfan VÍSIR
Ritstjóri: Gunnar G. Schram.
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson
Fréttastjóran Þorsteinn ó. Thorarensen
Björgvin Guðmundsson
Ritstjómarskrifstofur Laugavegi 178
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3
Áskriftargjald er 80 krónur á mánuði.
í lausasölu 5 kr. eint. — Sími 11660 (5 línur)
Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f.
Vinnufríðurinn tryggður
SJamningar þeir sem nú hafa náðst við verkalýðsfé-
ögin eru tvímælalaust þeir beztu, sem unnt var að
gera, eins og sakir standa í þjóðfélaginu. Með því er
hins vegar ekki sagt að þeir séu eins og bezt verður á
kosið frá sjónarmiði þjóðarheildarinnar. Miklu varðar
hins vegar, að tekizt hefir að forða verkföllum og
tryggja vinnufriðinn. Öll þjóðin mun fagna því og meta
það átak sem ríkisstjórnin gerði til þess að heildar-
samkomulag kæmist á. Vonbrigðum veldur að ekki
náðist samkomulag til tveggja ára, eins og vonir stóðu
til heldur einungis til eins árs. Þá hefði það aukið mjög
festu í kaupgjaldsmálum ef breytingar á kaupi hefðu
ekki verið ákveðnar fyrir hvert vísitölustig, heldur
aðeins við 3 eða 4 stiga hækkun. Verðtryggingará-
kvæðið veldur og því að hætt er við að niðurgreiðslur
aukist mjög úr ríkissjóði. Verður að vona að betur tak-
ist til um framkvæmd verðtryggingarinnar en vísitölu-
bindingar kaups áður fyrr. Samkomulagið mun ekki
eitt stöðva verðbólguna, enda hafa ákvæðin um stytt-
ingu vinnutímans í för með sér raunverulega kaup-
hækkun frá því sem nú er. Til stöðvunar verðbólg-
unnar verður að grípa til fleiri ráða, sem draga úr
heirri ofþenslu framkvæmda og vinnumarkaðs, sem nú
ríkir. Úrbætumar í húsnæðismálum munu hins vegar
reynast hinar mikilverðustu. Mikilvægast er þó að
verkalýðshreyfingin hefur loks viðurkennt nauðsyn
þess að fara aðrar kjarabótaleiðir, en beinar grunn-
hækkanir. Það er mikill áfangi.
Sjómannadagur
Uinn árlegi hátíðisdagur sjómanna, sá 27. í röðinni
er á morgun. Hann skal alltaf vera fyrsta sunnudag í
júní.
íslendingar hafa allt frá því er land byggðist verið
miklir fiskimenn og farmenn. Þjóðinni er ljóst, hve
miklu störf sjómanna valda um afkomu hennar. Hún
veit að hún stendur í mikilli þakkarskuld bæði við þá,
sem sækja björgina í djúp hafsins og hina, sem „færa
varninginn heim.“ Án þeirra starfs værum við ekki
sjálfstæð menningarþjóð og gætum því ekki minnzt
20 ára fullveldis næstu daga. Sjávarútvegurinn er und-
irstaða allra framfara í landinu, og skal þó engan veg-
ínn gert lítið úr öðrum atvinnugreinum. Afl þeirra
hluta, sem gera skal, er fyrst og fremst sótt í gullkistu
hafsins. Bregðist hún, bresta flestar stoðir.
Hafið hefur lengst af verið gjöfult síðan við fengum
aðstöðu til að notfæra okkur auðlindir þess — en þó
aldrei eins og nú síðustu árin. Þetta má að nokkru
þakka bættri veiðitækni, en hin fullkomnustu tæki
reynast vanmáttug; nema þeim sé stjórnað af dug-
miklum mönnum. Það hafa íslenzkir sjónienn jafnan
reynzt og svo mun æ verða. Vísir óskar þeim og
þíóðimú ailri íii hamiugju með daginn,
REYKJA VÍKURBORGAR
Þaö var mikiö um að vera 1
skólagörðunum fyrir neðan
Hringbraut í morgun. Krakkam
ir kepptust við að sá. Enginn
vildi verða eftirbátur annarra
og það var hlaupið um með
garðvinnsiuáhöld og vatnskönn
ur. Aldrei hefur aðsókn að skóla
görðunum verið eins mikil, og
nú f sumar verða tun 480 böm
í skólagörðum Rvfkurborgar.
Skólagarðarnir f Reykjavík
eru nú tveir, annar þeirra er
starfræktur í gömlu Aldamóta-
görðunum fyrir neðan Hring-
braut, en hinn var starfræktur
f fyrsta skipti í fyrra inni f Laug
ardal og þar verða í sumar um
160 böm.
Fyrir nokkru var auglýst eftir
bömum til innritunar í Skóla-
garðana, eftir um það biÞklukku
stund strax fyrsta daginn, voru
þátttökulistamir útskrifaðir —
Börnum á aldrinum 9 til 14 ára
er heimil þátttaka, en sam-
kvæmt upplýsingum frá Sigurði
Runólfssyni kennara, sem veitir
skólagörðunum neðan Hring-
brautar forstöðu, eru engin börn
á aldrinum 13 og 14 ára f görð
unum. Hvert barn fær um 25
til 30 ferm. reit til þess að sá f.
Ræktaðar eru kartöflur, gul-
rófur, næpur, salat, spínat,
hreðkur, hvítkál, blómkál, græn-
kál, og blöðrukjál, ejnnig fá böyn
in nokkrar blómaplöntur tilþes's
að fegra reitina með. Hver þátt
takandi greiðir 250 krónur í
þátttökugjald og er þá allt inni-
2 ungar stúlkur að vlnnu f skólagörðunum.
*HIÍ ^
falið. uðu börnin að koma og sæktu
Sigurður sagði okkur að strax flest garðana „fyrir hádegi, en
klukkan átta á morgnana byrj- fæstir eru milli 3 og 5 á daginn.
Eldsvoði að Háafelli /
SKORRADAL
Talsverður eldsvoði varð á
bænum Háafelli í Skorradal í
fyrradag, en húsið stendur þó
uppi og a.m.k. tvö herbergi í
því auk eldhúss, sem eldurinn
náði alls ekki til.
Vísir átti í gærmorgun tal við
Hreggvið Guðgeirsson vara-
slökkviliðsstjóra í Borgarnesi,
en hann fór við sjöunda mann
úr Borgarnesi á brunastaðinn og
með þau tæki sem slökkviliðið
Maður og kona slösuðust í
ökuferð við Hafnarfjörð í
fyrradag, er bifreið þeirra lenti
út af veginum, reif sig tvívegis
í gegnum girðingu, braut marga
girðingarstólpa og hafnaði að
lokum á kirkjugarðinum.
Þessi atburður barst lögregl-
unni f Hafnarfirði til eyrna
á 8. timanum í fyrrakvöld.
Samkvæmt frásögn lögreglunn-
ar mun bifreiðin hafa komið
eftir Kaldárselsveginum, en i
henni voru hjón og eitt barn.
Svo virðist sem maðurinn
hafi ekið full greitt þegar hann
nálgaðist Hafnarfjörð, en þar
misgir hann stjóm ð farartæk-
þar hefur yfir að ráða.
Hreggviður sagði að kvaðn-
ingin til slökkviliðsins hefði bor
izt um 5-leytið í fyrradag, og
50 mínútum síðar var - hann
kominn á staðinn með lið sitt,
slökkvitæki, dælu og slöngur.
Mikinn mannafla dreif að úr
ýmsum áttum, bæði frá Hvann-
eyri og nærliggjandi bæjum og
flýtti það slökkvistarfinú til
rauna. Annars var mjög erfitt
inu, þannig að það þeytist út af
veginum og á girðingu, rffur sig
inn úr henni og út úr á öðrum
stað, en hafnaði við svo búið
á kirkjugarðsveggnum, meira
og minna í klessu.
1 þessari ferð hafði bifreiðin
rifið girðinguna niður á 24
metra svæði og brotið 14 girð-
ingarstaura. Bifreiðin var mjög
illa farin og hjónin meira og
minna slösuð, en barnið slapp
að mestu ómeitt. Talið var að
konan væri mun meira slösuð
en maðurinn, en bæði voru þau
flutt f slysavarðstofuna f
Reykjavlk. Hann var áberandi
drukkinn.
að kæfa eldinn vegna þess að
húsið var allt einangrað með
heyi og reiðing og í þetta læsti
eldurinn sig. Var slökkvliðið
samtals f 3 klst. þar efra unz
eldurinn var að fullu kæfður.
Allt er á huldu með eldsupp-
tök og þykja þau næsta furðu-
leg, því ekkert eldfæri var
neins staðar nálægt þar sem
eldurinn kom upp og ekkert
rafmagn f húsinu. Húsmóðirin
var ein heima með 4—5 ára
telpu serri var sofandi, þegar
eldsins varð vart. Bóndinn var
fjarverandi, en kom að vörmu
spori heim. Húsmóðirin ætlaði
að síma eftir hjálp, en síma-
þráðurinn var þá brunninn
sundur. Hins vegar sást reyk-
hafið af bæ hinum megin við
Skorradalsvatn og var þaðan
gert aðvart á nærliggjandi bæi
svo og slökkviliðinu f Borgar-
nesi.
Hreggviður varaslökkviliðs-
stjóri rómaði viðbrögð fólksins
eftir að eldsins varð vart, en þá
lokaði það dyrum og öllum
glufum til að súrefni kæmist
sem minnst inn. Fyrir bragðið
var eldurinn ekki eins magnað-
ur og mikill og annars hefði
orðið.
íbúðarhúsið á Háafelli er úr
timbri, einlyft með risi. Það er
allmikið skemmt eftir brunann,
og einnig hafa innanstokksmun-
ir skemmzt, brunnið, sviðnað
eða skemmzt af vatni.
Hofnaði é kirkjugarðiniim
eftir sögulega ökuferð