Vísir - 06.06.1964, Side 10
10
V1SIR. Laugardagur 6. júnf 1964.
Fréttatilkynning
fró Sjávcsrútvegsniálaráðaineytiiiu
Samkvæmt 1. gr. laga nr. 40. 9. júní 1960, um takmarkað
leyfi til dragnótaveiða í fiskveiðilandhelgi Islands undir
vfsindalegu eftirliti, getur ráðherra, samkvæmt tillögum
fiskideildar atvinnudeildar háskólans og Piskifélags Islands,
ákveðið fyrir eitt ár í senn, að dragnótaveiði sé heimil á
tilteknu svæði eða svæðum á tímabilinu 15. júní til 31. októ-
ber eða skemmri tfma, eftir því sem nánar er ákveðið.
Fiskifélag lslands hefur leitað álits sveitarstjórna og ann-
arra aðila, sem hagsmuna hafa að gæta í þessu efni.
1 samræmi við ákvæði téðra laga og athuganir Fiskifélags
Islands hefur sjávarútvegsmálaráðuneytið ákveðið að leyfi
til dragnótaveiða skuli veitt frá og með 19. þessa mánaðar
á eftirgreindum svæðum:
I. Milli ifna réttvísandi norðaustur um Bjarnarey sunnan
Vopnafjarðar, og réttvísandi norðaustur frá Kögri sunn-
an Héraðsflóa.
n. Milli Iína réttvísandi austur úr Borgarnesi norðan
Seyðisfjarðar, og réttvísandi austur frá Gerpi.
Þ6 skulu veiðar óheimilar innan lfnu úr Borgamesi I
Skálanes fyrir mynni Seyðisfjarðar, og úr Flesjartanga
f Fjúksnes fyrir mynni Mjóafjarðar.
m. Frá i línu réttvfsandi austur úr Hafnamesi norðan Fá-
skrúðsfjarðar að Ifnu réttvísandi austur úr Hafnames-
vita að sunnan.
Þó skulu veiðar óheimilar innfjarða í Fáskrúðsfirði inn-
an línu úr Hafnamesvita að sunnan í Hafnarnes að
norðan.
VI. Frá lfnu réttvfsandi suðaustur úr Kambsnesi norðan
Breiðdalsvíkur suður og vestur um að lfnu réttvísandi
suður úr Geitahlíðarfjalli (22° v. 1.) austan Grinda-
vfkur.
V. Samfellt §væði frá lfnu réttvísandi vestur úr hólmanum
Einbúa í Ósum, fyrir Faxaflóa, Breiðafjörð og Vest-
firði, að línu réttvfsandi norðaustur frá Geirólfsgnúpi
á Ströndum.
1 Faxaflóa takmarkast svæðið af línu, sem hugsast
dregin þannig:
1. Or Garðskagavita um punktinn 64° 8' n. br., 22°
42’ v. 1. f Gerðistangavita.
2. Or Hólmbergsvita um bauju nr. 6 f Faxaflóa í Kirkju-
hólsvtta.
Á Vestfjörðum er dragnótaveiði óheimil innfjarða, innan
Ifna, sem hér segir:
1. Or Ólafsvita um Tálkna, þvert fyrir Patreksfjörð og
Tálknafjörö.
2. Milli Svarthamra að sunnan og Tjaldaness að norðan í
Arnarfirði.
3. Milli Keldudals að sunnan og Arnarness að norðan í
Dýrafirði.
4. Milli Mosdals að sunnan og Kálfeyrar að norðan í
önundarfirði.
* 5. Milli Keravíkur að sunnan og Galtarbæjar að norðan í
Súgandafirði.
6. Milli Óshóla að vestan og Bjarnarnúps að austan f
ísafjarðardjúpi.
7. MiIIi Marfuhorns í Grunnavík að sunnan og Láss að
norðan í Jökulfjörðum.
Bátum innan lögmætra stærðarmarka, sem skráðir eru og
gerðir hafa verið út frá verstöðvum á þessum svæðum, verða
veitt leyfi til að veiða hvar sem er á svæðunum. Enn-
fremur hefur sjávarútvegsmálaráðuneytið‘ ákveðið, að svæðið
frá lfnu réttvísandi norður úr Nestá á Vatnsnesi (20° 40' v.
1.) vestan Húnafjarðar að línu réttvísandi norður frá Straum-
nesi austan Málmeyjarfjarðar (19° 20' v. 1.) skuli opnað til
reynslu til dragnótaveiða. Þó skulu dragnótaveiðar óheimilar
á svæði í Skagafirði, sem takmarkast af línu, sem hugsast
dregin úr norðurenda Tindastóls (Landsendi) í Drangey og
þaðan beina stefnu í Hegranestá. Bátum, sem skráðir eru
og gerðir hafa verið út frá verstöðvum á hinu leyfða veiði-
svæði, verður einum veitt ieyfi til að veiða á svæði þessu,
en hins vegar verða þeim ekki leyfðar dragnótaveiðar ann-
ars staðar innan fiskveiðilandhelginnar.
Sjávarútvegsmálaráðuneytið, 4. júní 1964
VÉLHREIN GERNIN G
Vanir
menn
Þægileg
Fljótleg
Vönduð
vinna
ÞRIE. -
Sfmi 21857
Teppa-
hreinsun
húsgagnahreinsun
Sími 37389.
Opið allan sólarhringinn. Sími
21230. Nætur og helgidagslæknir
í sama síma.
Næturvakt f Reykjavfk vikuna
6.-13. júní verður í Vesturbæjar
apóteki. Á sunnudag í Austurbæj
arapóteki.
Næturlæknir í Hafnarfirði frá
kl. 13 í dag til mánudagsmorguns:
Bragi Guðmundsson, Bröttukinn
33, sfmi 50523.
tJtvarpið
Laugardagur 6. júnf
Fastir liðir eins og venjulega.
13.00 Óskalög sjúklinga.
14.30 í vikulokin (Jónas Jónas-
son).
16.00 Laugardagslögin.
Kolbrún
Jónasdóttir velur sér hljóm
plötur.
18.00 Söngvar í léttum tón.
18.30 Tómstundaþáttur barna og
unglinga (Jón Pálsson).
20.00 Kjarval: Thor Vilhjálmsson
rithöfundur les ,úr nýrri bók
sinni.
20.25 Kórsöngur í útvarpssal:
Söngfélag Hreppamanna
syngur. Söngstjóri: Sigurð-
ur Ágústsson frá Birtinga-
holti. Einsöng og tvfsöng
syngja: Guðmundur Guð-
jónsson, Ásthildur Sigurðar
dóttir og Sigurbjörg Hreið-
arsdóttir. Píanóleikari:
Skúli Halldórsson.
21.10 Leikrit: „Skál fyrir Mary“
eftir John Dickson Carr.
Þýðandi: Þorsteinn ö. Step
Teppa- og húsgagnahreinsunln JÍbLÖÐUM FLETT
NÝJfi TEPPAKREINSUNINi;
Fullkomnustu
vélar ásamt
þurrkara.
Nýja teppa- og
húsgagna-
hreinsunin
Slmi 37434.
Vélahreingerning :j
Vanir og
vandvirkir
menn.
Ódýr og
örugg
þjónusta.
ÞVEGILLINN, simi 36281
Á engi grænu við elfarnið. —
Hver ómur var hljómstef um sólþyrst blóm.
Þar hvíldust þau saman hlið við hlið.
Og við sólarsýn,
1 er sál mín fagnar, ég leita þfn.
Er vorfuglar kvaka og vængjum blaka,
Jf þá verðurðu brúður mín.
Stefán frá Hvítadal.
Ég spurði nýlega skólagenginn ungling við hverja væri átt með fleir-
tölunafninu „Guðmundarnir“. Hann vissi það nú ekki, en um síðustu
aldamót könnuðust alEir við Guðmundana. Það voru þrír ungir og
ötulir læknar, allir ættaðir, fæddir og uppaldir í Húnavatnssýslu,
bændasynir, sinn úr hverju hreppsfélagi og næstum jafngamlir: Guð-
mundur Magnússon, fæddur í Holti f Ásum 1863, Guðmundur Bjöms-
son, fæddur 1864 í Gröf f Víðidal, og Guðmundur Hannesson, fæddur
1866 á Guðlaugsstöðum f Blöndudal. Þeir voru allir stúdentar frá
Latinuskólanum í Reykjavík, líklega sendir þangað eftlr áeggjan
sóknarpresta, sem meðal annars gerðu landinu mikinn greiða með
því að stuðla að menntun efnilegra pilta, sem þeir urðu varir við í
sóknum sfnum. Stúdentar þessir tóku allir læknispróf frá Kaupmanna-
hafnarháskóla og hlutu hver öðrum betri einkunn. Komu svo brátt
heim til ævilangs starfs á fósturjörðinni og sjaldan hefur hún fengið
betri sendingu, nauðsynlegri og kærkomnari, óg lézt sá síðasti í
hárri elli, árið 1946.
Ingólfur Gíslason: Læknisævi.
KÓPAVOGS-
BCAR!
Málið sjálf, við
lögum fyrir * ‘
ur
komin
LITAVAL
Álfhólsvegi 9
Kópavogi.
Sfmi 41585.
1^4 ocAvmGrp-oiR^
Laugavegi 30, sfmi (0260 —
Opið kl, 3-5.
Gerum við og jámklæðum þök
Setjum i einfalt og tvöfalt gler
o. fl. — Útvegum allt efni.
TÓBAKS- Jffif
KORN
Þetta er að komast í lag með
ferðalagið .. ákveðið að ég
skreppi til Afríku til að kynna
mér lifnaðarhætti krókódíla með
tilliti til þess, að þeir verði fluttir
inn hingað til landsins og ræktun
þeirra hafin í tjörnunum hérna
frammi á heiðinni ... Jafnfranit
því verði svo sett á stofn í sýsl-
unni krókódílaskinnasútuna rvérk-
smiðja, töskugerð og skógerð og
ég veit ekki hvað, til að koma
f veg fyrir brottflutning fólks úr
sveitum þar annars vegar, og
skapa stórkostleg útflutningsverö
mæti annars vegar ... Það, sem
mér finnst sniðugast við þessa
áætlun og fyrst og fremst, gsrir
það að verkum, að ég tekst þessa
löngu og vandasömu ferð á he.nd
ur, er þó það, að þarna er verið
að leitast við að skipuleggja þann
ig útflutning á lambakjöti bæði af
ungu og fullorðnu, að ekki þurfi
að greiða tugmilljónir í útflutn-
ingsbætur, með þvf að fulivinna
úr kjötinu sem hráefni verðmæta
og eftirsótta vöru fyrir erlendan
markað .. . það er að segja,
breyta því í krókódílaskinn, með
þvf að láta krókódílana éta það,
og sjá allir hvílík lyftistöng pað
ætti að geta orðið sauðfjárrækt-
inni f héraðinu, enda munu bún-
aðarsamtökin kosta för mína að
einhverju leyti ... meira get ég
ekki sagt um þetta að svo stöddu,
og er víst búinn að segja helzt til
mikið, þar sem enn er ekki allt
fastráðið — stendur mest á nið-
urstöðum örnefnanefndar, þar
sem gera má ráð fyrir að nöfn
á tjarnarpollum og kringum þá á
heiðinni breytist kannski eitt-
hvað eða jafnvel ný staðarnöfn
myndist með hingaðkomu og dvöl
þessara afríkönsku gesta ...
MÉR ER
SAMA
hvað hver segir ... siðferðið á
bílastæðum er ekki beysnara en
annars staðar; eða trúir þvf nokk
ur heilvita rnaður, að það sé ein-
göngu innflutningurinn, sem ger-
ir hvað bílunum fjölgar ört og
óskaplega?
STRÆTIS-
VAGNHNOÐ
Á baðströndinni í Berskvísuvík
er byrjuð sumarins rómantík,
hlið við hlið, eins og liðin lík,
liggja þar skutlur í engri f!ík.