Vísir - 19.06.1964, Side 2

Vísir - 19.06.1964, Side 2
VÍSIR . Föstudagur 19. júní 1964. „Þjóðin væntir þess að ég færi henni olympiskt gull í haust“, sagði hinn 21 árs gamli Japani Jijima í viðtali við Verner Christensen blaðamann BT fyrir nokkru, en hinn ungi japanski spretthlaupari tók þátt i móti í fyrrakvöld í Kaup- mannahöfn. Jijima segist hafa verið send- ur af ríkinu til Evrópu til að koma aftur í þeirri beztu þjálf- un, sem hægt verður. Eins og kunnugt er náði hann frábær- um tíma í 100 metra hlaupi á móti í Berlín, 10.1 sek., sem er bezti árangur í greininni í ár, aðeins sekúndubroti iakara en heimsmetið. Aðspurður kvaðst Jijima — segir nýjasta stjarn- an i heimi frjáls- /jbróttanna, Japaninn Jijima, sem hefir náð bezta tima i lOOm. i ár ekki vera með öllu vonlaus um að hreppa guliverðlaunin í 100 metra hlaupinu í Tokyo í haust, en þar verða þá haldnir Ólym- píuleikar, svo sem kunnugt er. „Væri það ekki grobb í mér ef ég svaraði játandi? Ég heid það, en ég get sagt að ég geri mér vonir um gull, einmitt vegna þess að leikarnir verða í haldnir í heimalandi mínu. Það yrði stórkostlegt ef Japan ynni gull- ið i þessari sígildu grein, — ég mun gera allt til að svo verði,“ segir Jijima. Jijima er námsmaður við há- skólann í Tokyo, en sem stend- ur hafa námsbækur þokazt til hliðar, a.m.k. fyrst um sinn. Japanir leggja allt upp úr því að ná sem flestum gullverðlaun- um á leikunum í haust, og án efa mun það takast í mörgum greinum. Hver veit nema ungi japanski spretthiauparinn Jijima verði einn þeirra, sem hlýtur verðlaun. *S)OBsaiisiiras« Lélegt uppstökk fyrír ká- . .v. v:::i: v. . : ... . . v ^ Þama reynir Kjartasi Guðjónsson „uppstökkið“. ("4 t Frjálsíþróttamenn kvarta oft undan aðstöðunni, — eða öilu heldur aðstöðuleysinu á íþrótta- völlurh og mannvirkjum okkar. Stafar þetta vissulega oft, af því að ekki er nóg um fjármuni i íþróttum okkar, a.m.k. ekki nóg til að gera allt, sem gera þarf. Hástökkvarar kvarta t.d. sár- an undan uppstökkinu á Laug- ardalsvellinum. Þessar tvær myndir eru úr hástökkinu á Laugardalsvelii á 17. júní-mót- inu. Sú minni sýnir „spyrn- una“, hin stökkvarann í tilraun sinni. Er óþarft að geta þess að svo Iéleg spyrna gereyði- ieggur árangur íþróttamannsins. Rétt er að geta þess að á gamla íþróttavellinum á Melunum er uppstökkið mjög gott og hefur fengið lof fjöimargra stökkvara. •<s>- - . . . og liéí fellir hann. F.ram og Þróttur keppa í 1. deild í knattspyrnu í kvöld kl. 20.30 á Laugardalsvellinum í Reykjavík. — Fram er nú í neðsta sæti á mótinu og hefur tapað öllum sínum leikj- um, en Þróttur hefur 2 stig eftir 3 leiki. Er ekki að efa að þessi tvö lið munu í sumar berjast um 1. deildarsætið og má þvi vænta fjör- ugs leiks liðanna. ■ Blómabúbin M&MMi Hrisateis: 1 o símar 38420 & 34174 Nú fyrir skömmu gerðu Frjáls- íþróttasamband íslands og íþrótta- kennaraskóli íslands með sér samn ing um rekstur leiðbeinendanám- skeiðs .f frjálsum íþróttum. Eitt af því sem staðið hefur ís- lenzku frjálsíþróttalífi hvað mest fyrir þr.ifum er. skortur leiðbein- er.da. Með þessum samningi við íþróttakennaraskólann vill stjórn FRÍ leitast við að bæta úr þeim tilfinnanlega skorti leiðbeinenda er ríkt hefur. Fyrsta leiðbeinendanámskeiðið verður haldið að Núpi við Dýra- fjörð dagana 18, —25. júlí n. k. Pm framkvæmd námskeiðsins mun Héraðssamband Vestur-ís- firðinga sjá, en aðalkennari verður Benedikt Jakobsson en auk hans mun kenna Valdimar Örnólfsson. Stjórn FRI fagnar þeim áfanga er náðst hefur með samningi þess- um og vonast til að íþróttabanda- lög og héraðssambönd notfæri sér þann möguleika að koma af stað leiðbeinendanámskeiðum í heima- héruðum sfnum. Kski kvisddur i Mánudagskvöldið 22. júní kl. 9 fer fram verðlaunaafhending fyrir skiðamót sem haldin hafa verið hjá reykvískum skíðafélögum i vetur. í þetta sinn fer verðlaunaafhend- ingin fram í Skíðaskálanum í Hveradölum. Norski skíðaþV.Ifarinn Ketil Rödsæther (Kiki) fer á þriðjudags- morgun til Noregs, og er kaffi- kvöld þetta ennfremur kveðju- samsæti' fyrir Kiki. Reykvískir skíðamenn mætið vel og stundvíslega. Sætaferðir frá B.S.R. kl. 8 og aftur í bæinn að hófinu loknu kl. 1. ,«jjraitas::a

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.