Vísir - 19.06.1964, Blaðsíða 7
VÍSIR . Föstudagur 19. júní 1964.
7
Hann hefir stýrt skólan-
um með einstakri prýði
Ekki alls fyrir löngu bar svo
við, að nokkur úlfaþytur varð
í vissum hópi myndlistarmanna
vegna gagnrýni, sem birtist hér
í blaðinu eftir Kurt Zier skóla-
stjóra Handíðaskólans, varðandi
vorsýningu Myndlistafélagsins
— en Kurt Zier hefur verið
myndlistargagnrýnandi Vísis um
nokkurt skeið. Létu nokkrir
myndlistarmenn, sem voru gagn
rýni hans ósammála, ýmislegt
eftir sér hafa í blöðúm í því
sambandi, yfirleitt prúðmann-
legt og rætnislaust. En þó brá
fyrir dálítið óviðkunnanlegum
vopnaburði — „Velmeðfarinn út
lendingur, sem hér hefur ieitað
húsa æ oní æ,“ „hann, út-
lendingurinn, sem ekki einu
sinni hefur íslenzkan borgara-
rétt“ og svo framvegis. Það
var meðal annars vegna þessa
orðalags, að Vísir sneri sér til
Lúðvígs Guðmundssonar, stofn-
anda og fyrrverandi skólastjóra
Handíðaskólans, sem veit
manna bezt 'tildrög þess, að
Kurt Zier hefur nú tvívegis
dvalizt hér um árabil.
„Það var á árunum fyrir
styrjöldina síðari, að ég tók að
undirbúa stofnun nýs skóla hér
í Reykjavík, en hafði áður ver-
ið skólastjóri vestur á ísafirði.
í sambandi við þann undirbún-
ing fór ég til útlanda árið 1938
og aftur 1939, meðal annars til
að undirbúa skólastofnunina.
Það, sem vakti fyrir mér, var
að stofna skóla, þar sem kennd-
ar væru listrænar handíðir og
myndlistir."
— Og vegna skorts á svo fjöl-
hæfum kennara hér, leitaðir þú
fyrir þér erlendis?
„Já, vitanlega gerði ég það,
því þótt hér væru margir góðir
listamenn og góðir hagleiks-
menn, taldi ég þó rétt að leita
fyrir mér erlendis, þar sem ég
vissi að einmitt slík skólastarf-
semi, sem fyrir mér vakti, hafði
staðið um áratuga skeið og var
lengst á veg komin. í Þýzka-
landi leitaði ég því meðal annars
ráða hjá kunningjum mínum í
hópi myndlistarkennara, m.a.
prófessora við myndlistahá-
skólann í Berlín. Eftir ábend-
ingu þeirra komst ég svo í sam-
band við ungan myndlistamann,
Kurt Zier að nafni, sem 'okið
hafði námi við myndlistaháskól-
ann í Berlín kringum 1931 með
prýðilegasta árangri. Svo mun
það hafa verið um 1932, að Al-
þjóðaskólinn í Genf, „École Int-
ernationale" leitaði fyrir sér um
þýzkan listamann, til að skipu-
leggja kennslu í myndlistum og
listrænum handíðum í skólan-
um. Réð hann síðan til sín
þennan unga listamann, Kurt
Zier, um nokkurt skeið.“
„Þegar ég var svo staddur
í Berlín, sumarið 1939, kynnti
ég mér náms- og starsferil Kurt
Zier, hafði samband við hans
fyrri kennara og ýmsa aðra, sem
til hans þekktu og að því búnu
fór ég þess á leit við hann, að
hann réðist til mín sem kenn-
ari við þennan fyrirhugaða vkóla
minn, sem ég síðan stofnaði,
sem einkaskóla, haustið 1939.“
— Hvað starfaði Kurt Zier
svo lengi við skólann í það
skiptið?
„Skólinn byrjaði í smæð og
af vanefnum, eins og við var að
búast. Kurt Zier starfaði síðan
við skólann sem yfirkennari í
tíu ár, eða til ársins 1949. En þá
var það af persónulegum ástæð-
um, að hann og kona hans flutt
ust aftur til Þýzkalands með
dætur sínar tvær. Þá gerðist
Kurt Zier kennari, og tveim ár-
um síðar skólastjóri við hinn
merka Odenwaldskóla f Mið-
Þýzkalandi. Því starfi gegndi
hann um tólf ára bil, eða til
1961.“
— Hver voru svo tildrög
þess að hann kom hingað aft-
ur?
„Til þess lágu margar orsakir,
og ekki hvað sízt sú, að ég
var mjög farinn að heilsu um
þetta leyti, hafði raunar verið
það síðustu árin og haft í huga
að hverfa frá störfum þess
vegna, og 1961 var svo komið,
að ég sá mér ekki fært að
standa lengur í þessari erfiðu og
erilsömu stöðu. Og þá var það,
að ég leitaði að eftirmanni. Kom
mér þá vitanlega fyrst í hug
Kurt Zier, sem átti þá að baki
tuttugu ára ágæta reynslu sem
yfirkennari( og skólastjóri —
meðal annars við skóla minn,
eins og áður er getið. Þess skal
hér getið að frá byrjun ársins
1960 hafði ríkið og Reykjavíkur-
borg að öllu tekið að sér rekst-
ur Handíða- og myndlistaskól-
ans. Var þá ábending mín um
eftirmann að fullu tekin til
greina.. Fyrir mjög eindregin
tilmæli mín, lét hann tilleiðast
að flytjast á brott frá Þýzka-
landi og taka að sér skólastjóra-
stöðu við Handíða- og myndlista
skólann, enda þótt hann hyrfi
þá frá miklu betur launuðu
„Til þess að fá jákvætt svar
við þessari spurningu þarf vart
annað en athuga frásagnir af
myndlistasýningum hér, síðustu
tíu til fimmtán árin og þá dóma
sem ýmsir af þátttakendum
hafa hlotið. Því áð í sambandi
við sýningar hinna yngri mynd-
listamanna í ýmsum greinum
og listiðnmanna, sem verið hafa
fjölmargar, er þess oftast getið,
að viðkomandi hafi stundað
— Og eftir undanfarinni frá-
sögn þinni að dæma, virðist
skjóta dálítið skökku við, þegar
þar er talað um hann sem út-
lending, sem hafi „leitað hingað
æ oní æ?“
„Jú það kemur fram í einni af
þessum greinum, meira að segja
haft eftir fornvini mínum, Rik-
arði Jónssyni, að hann, þessi
velmeðfarni útlendingur, hafi
!□□□□□□□□[]□□ □□□□□□□□□ElQDDDDElDDnDDQ □□□□□□□□□
Það er kunnara en frá þurfi að segja, að listamenn eru
ekki alltaf sáttir innbyrðis. 1 sjálfu sér er það ekki nema
eðlilegt, og jafnvel hollt að menn deili, það hreinsar and-
rúmsloftið og hvetur menn til átaka, en séu allir á eitt sáttir
og sammála um allt ,er hætta á kyrrstöðu og doðadeyfð á
hvaða sviði sem er Að sjálfsögðu ber listamönnum sem öðr-
um að haga deilum sínum málefnalega og forðast alla rætni,
sakar þá lítt þótt deilt sé hart ef drengilega er á rökum og
vopnum haldið — en á stundum vill þar út af bregða, raunar
ekki frekar hjá listamönnum en öðrum, og verður ekki held-
ur neitt við því sagt, því að öll erum við menn, auk þess
sem sjónarmið öll verða yfirleitt takmarkaðri í fámenninu.
!□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□
nám í Handíða- og myndlista-
skólanum. Enda er það stað-
reynd, að þeir hafa langflestir
mótazt þar undir handleiðslu
Kurt Zier, fyrstu tíu árin, sem
hann kenndi við skólann — og
svo vitanlega síðustu þrjú árin
eftir að ég lét af stjórn og hann
tók við.“
— Og ekki orðið óþjóðlegri
í list sinni?
„Það er búið að þvæla szo
mikið um hið þjóðlega í listum,
að ég leiði hjá mér að svara
slíkri spurningu."
— En hvað um þær deilúr,
sem staðið hafa meðal mynd-
listamanna að undanförnu, þar
sem Kurts Zier hefur einmitt
mjög verið getið?
„Ég var erlendis þegar þær
hófust, en svo háværar urðu
þær, að bergmálið af þeim bar t
mér þangað til eyrna ti! annarr-
ar h'eimsálfu. Gat ég ekki annað
en undrazt mjög þessi læti, þeg-
ar til dæmis málgagns annars
Rætt við Lúðvíg Guðmunds■
son um Handíðaskólann og
myndlistarmál
starfi og virðingarmeira í sínu
heimalandi. og hefur hann síð-
an stýrt skólanum með ein-
stakri prýði.“
— Það er kannski útúrdúr; en
hvernig er það — hafa ekki
ýmsir af þeim sem stunduðu
nám í skólanum undir hand-
leiðslu Kurt Zier fyrstu tíu árin,
reynzt liðtækir liitamenn?
stærsta stjórnmálaflokksins
birtir meðal annars greinar eft-
ir sex kunna menn, þar sem
ráðizt er allharkalega, og ég
verð að segja með litlum rökum
eða engum á Kurt Zier fyrir
það, að hann hafi skrifað grein
um vorsýningu Myndlistafélags-
ins — en láðst að lofa þá sýn-
ingu ...“
leitað hér „húsa æ oní æ“.
Og hann furðár sig á því, Rík-
arður, að þessi maður „skyldi
dirfast að koma fram með þetta
rætna orðagjáifur um íslenzka
list og listamenn.". Scmkvæmt
því, sem ég skýrði ,þér frá áð-
an, er ekki eins og Kurt Zier
hafi leitað hér þúsa sem ein-
hver þurfamaður eða umrenn-
ingur. Hann var ráðinn hingað
af mér, sem kennari við Hand-
íða- og myndlistaskólann, eftir
nákvæma athugun á náms- og
starfsferli hans og eftir áber\d-
ingu og eindregnum meðmælum
h.inna merkustu manna. Satt
bezt að segja skil ég ekki pann
hugsunarhátt, sem fram kemur
í þessum greinum. Kurt Zier
hefur unnið hér frábært starf,
og hygg ég það einróma álit
allra sem fylgzt hafa með ferli
hans á vegum Handíða- og
myndlistaskólans, að hann hafi
unnið þjóð vorri hið mesta gagn.
Hann hefur flestum útlending-
um fremur, sem ég þekki til,
lagt sig fram um að kynnast
sem bezt íslenzku þjóðinni, bök
menntum hennar, sögu og við-
horfum. og þegar á fyrsta starfs
ári sínu við skólann, hafði hann
náð þeim tökum á íslenzkunni,
að öll hans tilsögn fór fram á
íslenzku. Fornbókmenntir okk-
ar þekkir hann mörgum íslend-
ingum betur. Kemur því úr
hörðustu átt — burtséð frá hinu
kynduga orðalagi — þegar einn
af fyrrnefndum sexmenningum
talar um „ugg manns, sem hef-
ur láðst að þykja vænt um
þetta land!“ Slík ummæli geta
vart verið ómaklegri, þegar
maður eins og Kurt Zier á I
hlut...“
■yrOGAR. blað Sjálfstæðis-
manna í Kópavogi, gerir
að umtalsefni samningana,
sem komu á vinnufriði nú
fyrir skömmu. Blaðið segir:
0 Breytt viðhorf
Sá samningur, sem nýlega
hefur verið gerður milli aðila
vinnumarkaðarins fyrir til-
stuðlan ríkisstjórnarinnar, hef-
ur vissulega orðið til þess að
breyta viðhorfi þjóðarinnar til
nánustu framtíðar.
Verðbólgan hefur áratugum
saman verið hvað eftir annað
vágestur í þjóðlífinu og engri
ríkisstjórn hefur tekizt að
ganga fullkomlega af henni
dauðri. Sú ríkisstjórn, sem nú
situr við völd, lagði einörð til
baráttunnar og árangurinn
varð mikill og góður. En ekki
þarf marga gikki í hverri
veiðistöð, til‘ þess að skemma
út frá sér og eyðileggja, Það
þarf engum að vera launung-
armál, að hin harða og óvægi-
lega stjórnmálabarátta í þessu
landi hefur verið illvígari en
æskilegt má telja. Stjórnarand
staðan hefur haft til þess „að-
stöðu“ og „möguleika" að slíta
viðkvæma hlekki. Fram hjá
því verður ekki horft, að það
hefur hún notað sér.
Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks
ins og Alþýðuflokksins hefur
dugað betur en nokkur önn-
ur ríkisstjórn síðustu áratugi
við stjórnvöl lands og þjóðar
Hún hefur staðið af sér ágjöf,
sem að henni hefur verið
beint, og nú hefur hún náð
því að opna nýja leið til þess
að efnahagslegt öryggi megi
nást. Það hefur vakið athygli,
að gagnkvæmur skilningur og
friðsemd hefur verið með að-
ilum vinnumarkaðarins við þá
samninga. sem gerðir hafa ver
ið. Vonandi er það vísbending
um að skilningur á eðli efna-
hagsmálanna hafi aukizt og að
framundan séu bjartir tímar í
samskiptum stétta og lands-
manna allra.
Þjóðin gleðst nú að aflokn-
um þessum mikilvægu samn-
ingum ,og við óvenjulegt góð-
æri. Hún treystir þeirri ríkis-
stjórn, sem vel hefur farnazt,
til þess að vinna einarðlega að
tryggingu góðra lífskjara allra
landsmanna, í framtíð sem for
tíð.
BIFREIÐALEIGAN
Símar 2210-2310
KEFLAVÍK
miiHM