Vísir - 19.06.1964, Side 15

Vísir - 19.06.1964, Side 15
VÍSIR . Föstudagur 19. júní 1964. TUNÞÖKUR BJÖRNiíí.; EjNÁRSSON símí aoass — Gegn slíkri ásökun! Nei, ég tel það fyrir neðan virðingu mína. En það er leið til þess að sanna sakleysi mitt. Þessi mað- ur segir, að fái ungfrúin sjónina geti hún vitnað gegn mér. Leyf ið mér að lækna hana, svo að nún fái sjónina aftur ,og svo skulum við bíða átekta og sjá, hvort hún þekkir mig. - Nei, nei, hrópaði Angela, snertið ekki dóttur mína, ég fyrirbýð yður það, Hannibal Gervason gekk nær Paroli. — Ég banna það líka, sagði hann. Og ég styð ákæru Ósk- ars Rigault því að þrátt fyrir vináttu okkar hefur það lagzt í mig, að þér væruð sekur. Vel má vera, að hugboð mitt sé rangt, og ef þér eruð saklaus skal ég hjálpa yður eins og mér er frekast unnt til þess að þér getið réttlætt yður í allra aug- um. Ungfrú Emma-Rósa getur með einu orði fellt úrskurð um það hvort þér séuð sekur eða ekki sekur. En til þess þarf hún að sjá yður. Ég býðst til að gera uppskurðinn. Hann er hvorki eins érfiður né hættulegur og þér hafið viljað vera láta. Og ég er þess fullviss, að mér mun heppnast þessi aðgerð, sem tek- ur aðeins skamma stund. Óskið þér að ég geri aðgerðina, frú Angela? Það er yðar að taka á- kvörðunina. Angela hikaði. — Já, sagði nú Emma Rósa, hundrað sinnum já. Ég veit nú, að ég þekki rödd launmorðingj- ans, Það fór oft ónotahrollur um mig, er ég heyrði hann tala, hræðilegur grunur vaknaði í hug mfnum, en svo sagði ég við sjálfa mig: Það getur ekki ver- ið. Dómarinn þekkir hann, faðir minn segir hann líka snilling og vitran mann, en þegar ég hefi séð hann, kemst enginn efi að, því að ég man greinlega hvernig hann lítur út, maðurinn. sem myrti afa minn og hratt mér út. Og sé það hann, getur enginn framar ásakað móður mína. Ég bið yður að gera aðgerðina, herra læknir. Á þessu andartaki kom hreyf ing á Paroli, eins og hann ætlaði að færa sig nær dyrunum, en Caseneuve lagði hönd sína á öxl hans og neyddi hann til að standa kyrran. De Gevrey hafði gefið honum bendingu svo lítið bar á, að stöðva hann. — Leyfið þér, að ég geri að- gerðina? spurði Gervasoni öðru sinni. — Ég hefi ekki rétt til þess að neita, sagði Angela hálfstam- andi. Og svo hallaði Hannibal Ger- vasoni höfði Emmu Rósu aftur og tók sama lækningatækið og Paroli hafði handleikið. Aðgerðin tók aðeins nokkrar mínútur. Gérvasoni var viss um, að allt hefði heppnazt vel. — Lítið í kringum yður, sagði hann. — Sjáið þér? Emma Rósa reis upp og leit í kringum sig á alla, sem við- staddir voru, einn af öðrum, fyrst á vini sína, en er hún kom auga á Paroli, fór titringur um allan líkama hennar. — Þarna, sagði hún skjálfandi röddu, og benti á Paroli, er mað urinn, sem ég sá við lík afa míns. Hann er maðurinn, sem tvívegis ætlaði að drepa mig. Svo hneig hún aftur í stóln- um meðvitundarlaus, en Gerva- soni smurði augu hennar og lagði þykkt bindi yfir þau. Angela reis upp, hægt, virðu- lega og ávarpaði dómarann: — Er það þá ég, sem er sek? — Nei, það verður strax gefin út yfirlýsing um, að þér hafið verið ranglega ákærðar og fang- elsaðar. Yður munu verða greiddar skaðabætur, en það getur ekki afmáð þann órétt, sem þér hafið orðið að þola. Paroli gerði síðustu tilraun til Iþess að bjarga sér. — Þessi stúlka lætur blekkj- ast, alveg eins og þessi Óskar! Rigault. Ég mótmæli, ég . . . Hann fékk ekki að tala út. — í fangelsið með hann sagði de Gevrey. Caseneuve og Flogny létu ekki segja sér það tvisvar, hand- járnuðu hinh fræga Paroli og óku í leiguvagni með hann í fangelsið. „Ég reyndist þá lögreglunni snjallari“, sagði Óskar við sjálf- an sig. „Nú get ég sofið róleg- ur“. Þetta sama kvöld var Cecile Bernier einnig fangelsuð Angelo Paroli vildi ekki láta alla van- virðuna bitna á sér og ákærði hana. Tveim mánuðum síðar var launmorðinginn dæmdur til líf- láts og Óskar Rigault var meðal viðstaddra, er hann var gerður höfðinu styttri undir fallöxinni. „Nú er mín hefnt“, sagði hann, „fullkomlega“. Cecile fékk 5 ára fangelsi. Angela Bernier vék ekki frá Emmu Rósu fyrr en hún var al- veg búin að ná sér. Skömmu eftir aftökuna gekk herra de Rodyl barón að eiga Angelu, en hafði áður beðizt lausnar frá embætti, og við sama tækifæri voru undirrituð skjöl, sem veittu Emmu Rósu öll rétt- indi að Iögum sem dóttir hans, og konu hans, Angelu. Ári síðar var herra Benjamín Leroyer frá Dijon svaramaður sonar síns, er hann gekk að eiga ungfrú Emmu Rósu de Rodyl, og var erfitt að sjá hvort var hrærðara, hann eða hin ágæta frú Fontana. Ekki þarf um það að spyrja að ungu hjónin voru eins ham- ingjusöm og elskendur í ævin- týri. Þau hjónin Angela og de Ro- dyl hafa hjálpað Óskari Rigault til þess að setja á stofn glys- varningsverzlun í miðhluta Par- ísar, og hann rakar saman fé, þegar hann slær ekki slöku við, sem er æ sjaldnar. Hann hefir ráðið Baunastöngina til sín sem kallara og risinn magri kann vissulega að lofsyngja varning- inn og verðlagið: — Hér seljum við allt fyrir 13 franka, kallar hann. Notið tækifærið. Hér fáið þið það fyrir 13 franka, sem kostar 20 annars staðar . . . Rene Dharville er áfram við laganám sitt og hefir ekki með öllu gleymt hinni fögru Soffíu Rigault Ekki þarf að taka fram, að Katrín gamla er aftur komin í þjónustu Angelu og fer aldrei frá henni. Hannibal Gervasoni keypti lækningastofnunina og er í miklu áliti. Clement Leroux gefur sig ein- göngu að leikritagerð og er hættur skrifarastörfum. Leikrit hans hlaut mikla aðsókn. Ung- frú Dortil vann mál sitt og fékk 50.000 franka fyrir puttana sína tvo og heldur áfram að léika með stuðningi góðra vina, þótt þess sjáist enginn vottur, að örli á leiklistarhæfileikum hjá henni. Sögulok. Verzlunarpláss við Njálsgötu um 60 ferm. gæti -verið veitinga- eða kvöldsala og margt fleira, 2 herb. íbúð á hæð við Rauðaiar- stíg. Skipti æskileg á 3-4 herb. íbúð. 2 herb, góð jarðhæð við Drípu- hlíð. 67 ferm. Sér inngangur. 3 herb. kjallaraíbúð v.ð Langholts veg. Prýðilega góð íbúð. 1 smíðuni i Kópavogi 2 og 3 herb, íbúðir — einbýlishús — tvíbýlis- hús — iðnaðarhúsnæði. Höfum kaupendur að góðum eign- um með miklum útborgunum. JÓN INGIMARSSON, lögmaður, Hafnarstræti 4 Sími 20555 Sölum. SIGURGEIR MAGNÚSSON Kvöldsími 34940. RETTI LYKILLiNN AÐ RAFKERFINU KEFLAVÍK Ökukennsla Kenni akstur og meðferð bit reiða fyrir minnapróf bifreiða- stjóra TRYGGVl KRISTVINSSON Hringbraut 55, Keflavtk Slmi 1867 DUN- OG FIÐURHREINSUN vatnsstíg 3. Sími 18740 SÆNGÚW RESI BEZl -kodday. Endurnýjum gömlu sængurnar, e:gum dún- og fiðurheld ver. Seljum æðardúns- og gæsadúnssængui — og kodda af ýmsum stærðum. Fæst í næstu búð. OSVIiísá úrin heiifisfr£e§u Wambi höfðingi Bongoanna kom .neð okkur, segir Tarzan þegar vélin er úr allri hættu. Hann ætlaði að ræða við þig um börnin sem Mamba sonur þinn stal frá þorpi þeirra. Mér þykir leitt að við skyldum ekki getað talað saman óhultir i þfnu eigin þorpi. Wambi og ég eigum ekki í neinum erjum, Tarzan, svar ar Wawa. Var .það ekki faðir minn, hinn miklu höfðingi Du'u, sem gaf Bongounum frelsi? Og það land sem nú er kallað Bongo aland? Wawa réttir Wambi nönd sína. Þessi kraftalausa hönd er allt sem ég get boðið þér í augna blikinu, segir hann. En ef Medu getur læknað mig, þá skal ég snúa aftur og sýna þessum syni mínum hver er hinn raunverulegi höfðingi Batusanna. Allra Batus- anna. THE SQNS05 CAME WITH ME, FK.1EM7 WAWA,T0 "’ISCUSS THS SAFE HETUR.N OF B0HS0 CHIL7REN Y0UK S0N, MAMS0, ST0LE.T00 BAP WE COULPW'T TALK. PEACEFULLY- Y0UK BATUSI VILLASE! WAMBI ANZ X,TARZAN, HAVE NO QUAKKELl j WASIT N0T MY FATHEK, GKEAT CHÍF PULU, 41 WH0 SAVE BCNS0 SLAVE-PEOPLE THEIR FK.EE- OM ANP THE LANP N0W CALLEP B0NS0 COUNTKY? C5JU0 OBSERVEJARZANl YtHIS WEAK HANP, WAMBI, 15 ALL X CAN IOFFEKMY /OFFEKYOU NOw! BUT...WHtN WE FRIENI7SHIP AKE 1N HIS VILLAGE, MAY5E CHIEF , HANP TO WAMBl! 1 MEPU'S WISE MEPICINE MEN CAN < -/1 MAK.E ME PLENTY STK0NG ASA1N. ' ji'HEN X WILL SHOWMY BAP SON, MAMB0,WH015 CHIEP...0F ALL BATUSISÍ j Herrasokkar I Míldatorgl crepe-nylon o 29.00 m

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.