Vísir - 01.08.1964, Qupperneq 1
VISIR
Ásgeir Ásgeirsson tekur við
forsetaembœtti í fjórða sinn
í dag nm kL 4 slSdegls mun þriSja sinn, sem hann, hefar
Ásgeir Ásgeirsson taka við em- orSiS sjálfkjörinn f þaS. Mnn
bættf forseta lslands I fjórSa hann undirrita eiSstaf f sal AI-
kjörtfmabOiS f röS og er þaB f þfngishússins aS viðstöddum
f jölda gesta.
Athöfnin hefst kl. hálf fjögur
meS því að gengið verðttr tfl
kirkju. Þar verða sungnir sálm-
ar, ritningarkaflar lesnir og
biskup íslands mun flytja á-
varpsorð.
Að þvi ioknu verður gengið i
sal Sameinaðs Alþingis. Athöfn-
in er fólgin í því, að Dómkirkju-
kórinn syngur uppi á pöilum.
Svo lýsir Þórður Eyjólfsson for-
seti Hæstaréttar kjöri forseta
íslands. Þá undirritar Ásgeir
Ásgeirsson eiðstafinn og forseti
Hæstaréttar afhendir honum
kjörbréf. Væntanlega mun for-
seti íslands þá koma út á svalir
Alþingishússins og þá flytur
hann ávarp í salnum. Að lokum
verður sunginn þjóðsöngurinn.
Það er ríkisstjórn, Alþingi og
Hæstiréttur, sem efna til þess-
arar viðhafnar og verða við-
staddir hana ráðherrar, Alþing-
isforsetar og hæstaréttardómar-
ar, erlendir sendiherrar og ýms
ir embættismenn.
IT 88$ ■Xvw.v/-' V ÍIM
Mynd þessa tók ljósmyndari Visis Bragi Guðmundsson í gær um hádegisleytið, þegar forsætisráðherraþjónin voru að ganga út i flug-
vélina við upphaf Ameríku-ferðarinnar. Lengst til vinstri sjást tvær dætur þeirra, Guðrún og Valgerður. í miðjunni er Kristján Guð-
laugsson, formaður Loftlciða.
Forsæ tísráðherra íNe w York
Bjami Benediktsson forsætis-
ráðherra og kona hans lögðu af
stað um hádegisleytið frá Kefla
vikurflugvelli í Amerikuferð
sína. Á fiugvellinum var til að
kveðja hann Guðmundur f. Guð
mundsson utanríkisráðherra, cn
hann var einnig þeirra erinda-
gerða að taka þar á móti syni
sínum sem kom með sömu flug
vél frá Luxemborg og forsætis-
ráðherra fór með til Ameríku.
Þar voru einnig mættir flugvall-
arstjóri og lögreglustjóri á Kefla
vikurflugvelli og yfirmenn vam-
arliðsins.
Kristján Guðlaugsson formað
ur Loftleiða bauð forsætisráð-
herrahjónunum að fá sér hress-
ingu í svítu hótelsins meðan beð
ið var eftir að flugvélin yrði til
búin til brottferðar. Síðan var
gengið út í flugvélina sem flaug
fullskipuð farþegum til Vestur-
heims. Um tíu Ieytið i gærkvöldi
lenti flugvélin svo á Idlewilde-
flugvelli við New York.
Meðan forsætisráðherra dvald
ist á Keflavikurflugvelli átti
fréttaþjónusta sjónvarpsins sam
tal við hann sem birtist í sjón
varpinu í gærkvöldi. Þar var
hann spurður hver tilgangurinn
væri með ferðinni og lýsti hann
þeim tengslum sem eru milli ís-
lendinga vestanhafs og heima-
landsins. Þar kom fram að hann
myndi hitta Johnson forseta i
förinni.
Vísir og
verzlunarfólk
VÍSIR er í ds.g tvöfaldur að
stærð, 32 siður, og er það gert
til að minnast hátíðisdags verzl-
unarmanna. Blaðið flytur mörið
efni, svo sem samtöl og ávörp
ýmissa forustumanna verzlunar-
fólks og á sviði verzlunar. Með-
al þeirra, sem skrifa í btafflð
eða samtöl eru birt við, eni
verzlunarmálaráðherra Gylfi Þ.
Gíslason, formaður landssam-
bands verzlunarmanna Sverrir
Hermannsson, Sigurður Magn-
ússon formaður kaupmannasam
takanna, Guðmundur H. Garð-
arsson form. V. R., Þorvaldur
Guðmundsson formaður Verzl-
unarráðs fslands og Hannes Þor
steinsson varaformaður Félags
íslenzkra stórkaupmanna. Þá
birtast jafnframt viðtöl við
ýmsa forustumenn sérgreinafé-
laganna og við verzlunarfólk.
Vísir óskar öllu verzlunar-
fólki ánægjulegra frídaga um
þessa helgi.
Tilmæli lögreglustjóra til ókumanna við verzlunarmannahelgi
SÝNID murssmi OG MET-
ID RÉTT UMFERÐARAÐSTÆÐUR
Sigurjón Sigurðsson Iögreglustjóri.
Nú fer í hönd mesta ferða-
helgi sumarsins. Vegna hinnar
geysilegu fjölgunar á bifreið-
um á siðustu árum verður að
reikna með því að umferðin
um þjóðvegina slái öll fyrri
met og þvi fylgir um leið auk
in hætta í umferðinni. Vísir
sneri sér i gær til Sigurjóns
Sigurðssonar lögreglustjóra og
ræddi stuttlega við hann um
þessa miklu umferðarhelgi. —
Það sem hann lagði meginá-
herzluna á var að beina þeim
eindregnu tilmælum til allra
ökumanna, að sýna tillitssemi
og meta rétt umferðaraðstæður.
Við spurðum lögreglustjóra:
— Búizt þér ekki við mikilli um-
ferð á þjóðvegunum?
— Ef veður verður gott, má
búast við meiri ferðalögum um
landið en nokkru sinni áður.
Þessi ört vaxandi umferð hefur
í för með sér slysahættu, sem
opinberum aðiljum og einstak-
lingum ber að vinna gegn.
— Hefur lögreglan mikinn við
. búnað að mæta þessu?
— Um verzlunarmannahelg-
ina hefur lögreglan í Reykjavík,
ríkislögreglan og lögreglulið
allra umdæma landsins fjölda
lögreglumanna að störfum úti á
vegum og á samkomustöðum,
þar sem vænta má fjölmennis.
Hlutverk lögreglumannanna er
m. a. að greiða götu manna og
vinna að slysavörnum. 1 því
starfi njóta lögreglumennimir
stuðnings og aðstoðar frá Bif-
reiðaeftirliti ríkisins, skátahreyf
ingunni, Félagi íslenzkra bff-
Framh. á bls. 6.