Vísir


Vísir - 03.09.1964, Qupperneq 3

Vísir - 03.09.1964, Qupperneq 3
 Þannig kvöddu Olympíuleikarnir í Róm fyrir tæpum fjórum árum. „Arrivederci a Tokyo“ eða velkomin til Tokyo stóð á ljósatöflunni, og nú er Tokyo tilbúin að taka á móti Olympíufólkinu. AÐALATRIÐIÐ VAR „AÐ TAKA ÞATT" ffÁ Sagt frá Olympiuleikunum, sem senn hefjast i Tokyo — Þar verða ekki margir „áhugamenn" þvi viðhorfin hafa breytzt frá timum Coubertin baróns Eftir rúmar fimm vikur hefj- ast Olympíuleikar f Tokyo í Japan. Það eru 18. Olympíuleik- ar nútímans, en fyrstu leikarnir voru haldnir í Aþenu 1896 og hafa verið haldnir með fjögurra ára fresti, — en 1916, 1940 og 1944 féllu leikarnir niður vegna heimsstyrjaldanna. Franski baróninn Coubertin Iagði áherzlu á að leikarnir væru aðeins fyrir áhugamenn og „aðalatríðið væri að taka þátt“. Það hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan Aþenu- leikarnir fóru fram. í gamla daga gerðust margir skemmtileg ir atburðir hjá þeim ágætu á- hugamönnum, sem þarna kepptu. Prestur brá sér úr hemp unni, komst við illan leik í keppnina í 400 metra hlaupi — hljóp á lökustu brautinni en vann samt Olympíusigur. Geita- hirðirinn Spiridon Louis varð þjóðhetja í Grikklandi þegar hann vann hina „klassisku“ Olympíugrein, Maraþonhlaúpið. Bandaríski Indíáninn Jim Thorpe vann glæsilega sigra í Amster- dam 1932 f tugþraut og fimmt- arþraut. Hann varð að skila aft ur verðlaununum eftir að upp komst að hann hafði tekið einn dal fyrir að Ieika kyifuknattleik með félögum sínum og tapaði dagsvinnu. Viðhorfin hafa breytzt, og nú sem stendur virðast einu hrein- ræktuðu áhugamennirnir búa á íslandi. Um allan heim er farið bak við reglurnar um áhuga- mennsku og fégreiðslur til í- þróttamanna víða viðurkenndar. Þannig er mjög hæpið að nokk- ur maður f Iiði stórveldanna í Tokyo verði hreinn áhugamað- ur. Verði slíkur maður þar inn- anborðs, kemur hann sannarlega ekki með neinar sigurvonir. Japanir halda nú Ifklega dýr ustu og glæsilegustu Olympíu- leika, sem haldnir hafa verið. Hefur fé ekki verið sparað. — Mannvirki hafa verið reist fýrir lygilegar upphæðir, bæði íþrótta mannvirki og ekki síður sam- göngutæki, en Tokyo hefur til þessa verið fræg fyrir einstætt ufferðaröngþveiti. Eflaust á það eftir að auka á erfiðleikana að Japanir hafa vinstrihandarakst- ur eins og tíðkast hér, en all- flestar þjóðir eru vanar hægri handar akstri. Myndsjánni í dag er ætlað að koma mönnum í nokkra Olym- píustemningu, enda er ekki langt þar til leikarnir hef jast, en það er 10. október n. k. Þeir munu standa í þrjár vikur. ..izr........................ Toppmenn OL f Tokyo 1964. Þessir þrír menn hafa nú stjórn leikanna með höndum. í klukkusmiðjunni sem framleiðir hundruð skeiðklukkna fyrir OL. BISŒBiœESŒE^ )

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.