Vísir - 15.09.1964, Side 2

Vísir - 15.09.1964, Side 2
V1SIR . Þriðjudagur 15. september 1964. Endurminningar frá bernsku heimilinu í LAUFÁSI Frú Dóra Þórhallsdóttir ritaði tyrir nokkrum árum eftirmáia við bókina „Sögur Þórhalls biskups,“ sem AI- menna bókafélagið gaf út, þar sem hún lýsti föður sín um og bemskuheimili sínu. Það kemur glöggt fram af þeirri frásögn, hver áhrif uppeldið á menningarheim- ili hafði á uppvöxt hennar. Birtast hér nokkrir kaflar úr þeirri frásögn: J^aufás við Reykjavík er nokk- uð jafngamall mínu minni. Við vorum öll fædd systkinin, ég yngst, þegar Laufáshúsið var byggt 1896. Áður bjuggu foreldr ar okkar I húsi Stéingríms Thor steinsson, þar sem nú er Lands- símahúsið, og síðar í Helgasen- húsi, þar sem nú er Skjald- breið. En pabbi vildi, að við börnin kæmumst á gras. Hann keypti land, þar sem hét í Mó- húsum, enda voru þar tómar mýrar og mógrafir, flutti til- höggið hús frá Noregi og reisti það við suðurenda Tjarnarinnar. Það hús stendur enn, með við- bót, sem gerð var, þegar hann varð biskup. Þangað fluttum við svo um haustið 1896, ég þá kom in á fjórða ár. Um nafngiftina þurfti enga umræðu. Þar skyldi heita I Lauf ási, þó hvorki væri þar lauf né ás. „Vakri Skjóni hann skal heita, honum mun ég nafnið veita, þó að meri það sé brún“, kvað Jón Þorláksson á Bægisá. En það hygg ég, að „Laufás“ hafi borið nafn með rentu. Þó að Reykjavíkurbær hafi nú teygt sig um öll holt og tún, þá var þar sveit fyrir sextíu ár- um, og pabbi og mamma bjuggu okkur þar heimili, sem ég hygg, að um menning og heimilisbrag hafi brugðið mjög t:i hins gamla Laufáss við Eyjafjörð. Yfir þeim forna stað var dýrðarljómi í hug skotum okkar barnanna. Það voru beztu sögurnar, sem pabbi sagði okkur frá varpinu þar, skepnunum, heimilisfólkinu og stóra bænum, fallega, sem afi okkar lét reisa með mörgum vistarverum. Prestshús, skrúð- hús, brúðarhús, dyraloft, hvert nafnið geymd: sína sögu. Svo var þar kirkjan, sem Tryggvi afi byggði fyrir séra Björn, og reynitrén miklu, við kórbak, sem hann hafði gróðursett á leiðum foreldra sinna. Þessar sögur, mest frá æskuárunum, sagði pabbi okkur, þegar hann lagði sig eftir máltíð. Stundum end- uðu þær snubbótt, þegar hann sofnaði út frá sögunni, en við þorðum ekki að láta bæra á okkur. Þannig lifði gamli Lauf- ás I nýja Laufási og ekki síður í öllum daglegum störfum og búskap. JTeimilið var alltaf mann- margt'. "Otihús voru byggð, fjós og hlaða, og móar og mýrar ræktaðar, alls um fjörutíu og fimm dagsláttur. Börn vinafólks foreldra okkar dvöldu hjá okk- ur Iangdvölum á námsárunum. Góðui\ sveitabragur var á heim- ilinu, setið við tóvinnu á kvöld- um og lesið á kvöldvökum, bæði lestrar og sögur. Á hverjum morgni fór pabbi í „fjósagall- ann“, sem við kölluðum, leit eftir bústörfum, talaði við skepn umar e'ins og þær skildu hann, en þær urðu mannelskar og vitrar af þessu viðmóti. Þegar hann gekk út á tún og kallaði „Strákar!" þá komu reiðhestarn ir hlaupandi til að sækja brauð- bitann sinn. Hestarnir voru ekk'i sízt okk- ar mikla skemmtan, Sokkl, Litli rauður og fleiri. Gaman var á haustin, í sláttarlok, þegar þeir voru heima, og við fengum að skreppa á hestbak á kvöldin í smáréiðtúra. Og stundum í lengri ferðalög um landið. Fyrsta lang ferðin, sem ég fór, var alda- mótaárið, þegar pabbi og mamma fóru ríðandi með okk- ur öll systkinin til Þingvalla, það elzta ellefu ára, og ég yngst sjö ára. Þetta var m'ikil langferð. Við vorum sjö tíma á leiðinni til Kárastaða, þar sem við gist- um. Mikill var undirbúningur- inn og tilhlökkunin, lærð kvæði og sögð saga. Við systurnar riðum í söðlum og dragsíðum reiðpilsum, og var teymt undir mér. Morguninn eftir gengum við í fylkingu til Þingvalla. Sung ið var alla leiðinai ísland far- sælda frón, Fanna skautar faldi háum o. fl. Landið og sagan var svo lifandi, að þessi ferð hefur aldrei gleymzt síðan, og betri en nckkur bílferð getur verið. Fjölskyldan f Laufási, biskupshjónin Valgerður Jónsdóttir og Þór- hallur Bjarnarson. Fyrir aftan þau standa börnin Svava, Tryggvi og Bjöm. Fremst situr yngsta dóttirin Dóra. ^ð heyskap gengu allir jafnt, og kom fyrir, að pabbi kæmi í flekk til okkar, og sagði að við ættum að „raka með höfð- inu“ en ekki með höndunum einum í hugsunarleysi. Við vor- um ekki ein í flekk, heldur ara grúi af krökkum, því fleiri sem byggðin þéttist. Laufás var leik- völlur nágrennisins, og Björn bróðir hafði lag á að láta krakk ana gera smágagn, þótt mis- jafn væri. Og aldrei þreyttist mamma á að gera þeim gott í stórum hópum, Ieiksystkinum okkar og þessu l'iðlétta kaupa- fólki. Það kom fyrir, að við fengum orð í eyra um fjósalykt, og þó mest í glensi. Og ekki mun faðir okkar, blessaður, hafa farið varhluta af því um dag- ana. Um hann mun vera sagan af biskupnum, sem leit á heyin hjá presti, og lagð'i ýmsa dóma á gæði og notagildi. „Á þessu hafði hann vit“, er haft eftir presti, eftir á, en hann veit ekkert um það, hvar hann er I „rang“!“ ... 1 I I ( 1 i I I Biskupsdóttirin — Framhald i bls. 7 hennar. Mér þykir alltaf vænt um sveitina og sveitabúskap sfðan. GOTT STARFSFÓLK. — Hve margt er í heimili hjá yður hér á forsetasetrinu? — Við höfum verið 6—7: Við hjónin og auk þess ráðskona, tvær aðrar stúlkur, ráðsmaður, sem um Ieið er bílstjóri forsetans og annar varabílstjóri, sem jafn- framt gegnir ýmsum almennum störfum. sér um innkaup til heimilísins, annast viðhald og hirðingu húsa o.s.frv. Við höfum verið lánssöm með það, hve góðu starfsfólki við eigum á að skipa. Það vinnur allt störf sln af trúmennsku og dugnaði. Þegar stórar opinberar veizlur eru ann- ars vegar, verðum við auðvitað að fá aukafólk til aðstoðar. PERSÓNULEG HUGÐAREFNI — Gefst yður ekki nokkurt tóm til að sinna persónulegum hugðarefnum yðar? — Jú, það fer aldrei svo, að ekki komi dagur og dagur, sem ég get ráðstafað eftir vild. Þær frístundir nota ég ýmist til að prjóna á barnabörnin eða taka á móti þeim í heimsókn — eða þá til að lesa. Ég hefi mjög gam- an af bókum, bæði ljóðum, æviminningum og öðrum fróð- leik — að ógleymdum skáldsög- unum. Ép u°fi einnig ætíð haft mikið yndi af tónlist, það var mikið spilað og sungið á æsku- heimili mfnu, og góðir hljóm- leikar veita mér alltaf hina beztu skemmtun. Hið sama er að segja um leikhús, — og einstaka sinn um bregðum við okkur f bíó. FÉLAGSSTARSEMI — Þér hafið tekið þátt f ým- iss konar félagsstarfsemi, er ekki svo? — Mér hefur alltaf fallið vel að vera með og starfa f félagi með öðru fólki. Fyrsta félagið, sem ég gerðist félagi f, var Ungmennafélag Reykjavfkur, þegar ég var unglingur, en ung- mennafélagshreyfingin fór þá yf- ir sem nokkurs konar þjóðar- vakning á Islandi. Var það mjög þróttmikil, fjörug og skemmti- leg félagsstarfsemi. Einnig var ég meðlimur í Lestrarfélagi kvenna f Reykjavfk og f stjórn þess um 15-20 ára skeið. Nú hef ég verið gerð að heiðursfélaga þess. 1 skólanefnd Kvennaskól- ans í Reykjavík átti ég sæti um nokkurt skeið og í sóknarnefnd Dómkirkjunnar. Sfðan ég flutt- ist hingað til Bessastaða hef ég orðið að Ieggja þessa félags- starfsemi að mestu Ieyti til hlið ar. EKKI 1 ÍSLENZKU EÐLI Mér þætti samt mjög leitt, ef staða mín, sem forsetafrúar þyrfti að útiloka mig frá mínum góðu vinum og félögum frá gam alli og nýrri tíð. Ég vona, að ekki komi til þess. Ég fer eftir sem áður f heimsókn til vin- kvenna minna, þegar mér gefst færi á, og þær koma til mfn. Við erum 10 saman f saumaklúbb, og hann á að koma saman hjá mér á morgun. Ég fer einnig reglu- lega f gamla bridge-klúbbinn minn, en tvær okkar hafa verið saman í honum síðustu 20 árin. Ég teldi það ófært og illa farið — segir forsetafrúin — að for- SKTPAFRÉTTIR SKIPAUTGCRÐ KIKISINS M.s. HEKLA fer vestur um land í hringferð 19. þ.m. Vörumóttaka f dag og á morg un til Patreksfjarðar, Sveinseyrar Bíldudals, Þingeyrar, Flateyrar, Suðureyrar, Isafjarðar og Siglu- fjarðar. Farseðlar seldir á föstu- dag. filAs. Bcsfidur fer á niðvikudag til Rifshafnar, Ólafsvíkur, Grundarfjarðar, Stykk ishólms, Skarðstöðvar, Króksfjarð arness, Hjallaness, Búðardals og Flateyrar. Vörumóttaka f dag. JARÐVI NNUÁ/ÉLAR SÍHAR: 34305 40089 vlÖFNU setaheimilið og forsetafjölskyld- an gerði sér far um að halda sér frá almenningi. Slíkt liggur ekki f fslenzku eðli. Hitt er annað mál, að mér þykir vænt um og sjálfsagt, að forsetaem- bættinu sem slíku sé sýnd til- hlýðileg kurteisi og virðing. HLAKKAR TIL ENDURFUNDANNA. — Hyggið þér ekki gott til heimsóknarinnar til frænda okk ar á Norðurlöndum, sem nú stendur fyrir dyrum? Það birtir yfir svip forsetafrú- arinnar: — Jú, ég er f engum vafa um, að hún muni verða á- nægjuleg og heillarík. Við hjónin höfum þegar átt þess kost að kynnast nokkuð þjóðhöfðingjum þessara frændþjóða okkar, er við höfum verið á ferð á Norðurlönd úm og er sumir þeirra hafa sótt okkur heim á Islandi fyrr á ár- um, og við hlökkum til endur- fundanna, sem við eigum 1 vænd um. Þetta er f fyrsta skipti, sem forseti íslenzka lýðveldisins fer í opinbera heimsókn til Norður- landanna, og við vonum af heil- um hug, að hún megi gera sitt til að styrkja enn vináttu- og bræðraböndin, sem tengja sam an hinar norrænu frændþjóðir. sib. Loftleiðir — Framh. af bls. 16. egs, Svfþjóðar og Danmerkur hafa haldið fundi með sér mán- aðarlega, þar sem þeir eiga við sérstakt vandamál að strfða, að reyna að styðja sameiginlegt flugfélag landanna, SAS, og þurfa f því skyni að fylgjast mjög vel með því sem gerist um vfða veröld. Það er ekki þörf fyrir slíkt vegna okkar vandamáls og starfsins vegna gæti ég aldrei farið að bæta við mig mánaðarlegum fundum með þessum hætti. Aðstaða okkar er líka orðin allt önnur nú, þegar gott sfmasamband er komið á, — en því má ekki gleyma, að það var Alþjóða flugmála- stofnunin ICAO, sem kom því sfmasambandi á austur og vest- ur um haf. STÚLKUR ÓSKAST Óskum að ráða nokkrar stúlkur á bókbands- vinnustofu okkar. FÉLAGSBÓKBANDIÐ, Ingólfsstræti 9 n

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.