Vísir - 15.09.1964, Side 3

Vísir - 15.09.1964, Side 3
V í SIR . Þriðjudagur 15. september 1964. I Dóra Þórhallsdóttir. forsetafrú Fædd 23. febrúar 1893 — Dáin 10. september 1964 MINNINGARORÐ ^ sólbjörtum vordegi árið 1929 var ég staddur framan við Alþingishúsið, með frænda mínum, sem nú er látinn. Gekk þá fram hjá okkur kona, sem hann heilsaði. Mér varð starsýnt á kon- una, þegar hún var að nálgast okkur og meðan hún gekk fram hjá, vegna þess, hve fögur mér þótti hún og fyfirmann- feg — og ég spurði hann hver hún væri. — Þetta er frú Dóra Þórhallsdóttir, kona Ásgeirs Ásgeirssonar alþingis- manns, svaraði hann. — Mikið finnst mér hún glæsileg, sagði ég. — Þú ert ekki einn um þá skoðun, svaraði hann — svo þykir víst flestum. Yfir þessa fyrstu minningu mina um frú Dóru hefur aldre'i fyrnzt. Ég þekkti hana æ síðan hvar sem ég sá hana, þótt fundum okkar bæri ekki saman fyrr en að mörgum árum liðnum. Við kynni kom strax í ljós, að hún var óvenjulega miklum hæfileikum og mannkostum búin. Þar fór saman útlit og innri gerð. Hún var af góðu og gagn- menntuðu fólki komin og erfði mestu eðliskosti ættar sinnar i svo ríkum mæii, að fátítt mun vera. Sjálf hefur hún lýst nokkuð bernskuárum sínum og æsku í föðurgarði og þvi lífsvega- nesti, sem það mikla menningarhe'imili lét henni í té. Auk þess hlaut hún beztu menntun bæði utanlands og innan. Á æskuárum frú Dóru fór sjálfstæð- ishreyfingin eldi um þjóðlífið. Hinn ríkjandi andi var sá, að hverjum íslend- ingi bæri að gera skyldu sína við fóst- urjörðina. Það mun faðir hennar ekki hafa vanrækt að brýna fyrir börnum sínum. Þá var og ungmennafélagshreyf- ingin á blómaskeiðinu, og frú Dóra var ein þeirra mörgu, sem fundu þar fagrar hugsjónir og þroskandi viðfangsefni. Hún var gædd þe'irri gáfu, að geta séð og tileinkað sér það bezta i öllu sem hún kynntist. Örlögin kröfðust' þess snemma af frú Dóru, að hún sýndi hvað hún hefði lært og hvers hún væri megnug. Tæp- lega tvitug að aldri varð hún að taka yið hússtjórn á heimili föður sins, að móður sinni látinni. Þetta var stórt og vandasamt hlutverk fyrir tvítuga stúlku, en hún leysti það af hendi með þeirri prýði, að þá þegar vann hún sér trausr og virðingu allra, sem til þekktu, ekki sízt reykviskra húsmæðra. Þessu mikla ábyrgðarstarfi gegndi hún I 4 ár. Hún var þvf enginn viðvaningur I heimilisstjórn árið 1917, þegar hún giftist Ásgeiri Ásgeirssyni, þáverandi guðfræðikandidat, sem verið hafði rit- ari hjá biskupnum föður hennar. Og áður en mörg ár liðu var hún komin í hóp þeirra kvenna, sem ef til vill reyn- ir hvað mest á um andlega stoð og styrk mönnum sínum til handa. Eiginmaður hennar Iagði út á stjórn- málabrautina og var kjörinn á þing fyr- ir Vestur-ísfirðinga árið 1923. Þar með hófst hans glæsilega sigurganga, sem mun eiga fáar hliðstæður f Islenzkri stjórnmálasögu. Honum voru auk þing- mennskunnar falin margþætt og ábyrgð- armikil störf f þjóðfélaginu. En þótt vegsemdin sé mikil er lif stjórnmála- nrannsins ekki tómum rósum stráð, sizt þeirra, sem f fylkingarbrjósti standa, og herra Ásgeir Ásgeirsson komst ekki hjá því, fremur en aðrir, að stundum væri svo á hann deilt, að undan sviði. Þá reyndi á styrk eiginkonunnar, og eðli hennar samkvæmt var styrkur hennar hvað mestur, þegar harðast og ómak- legast var að manni hennar vegið. Þegar herra Ásgeir Ásgeirsson varð forsætisráðherra, árið 1932, og þau hjón- m fluttu í ráðherrabústaðinn við Tjarn- argótu, kom engum á óvart, hvemig ,,Dyggð og tryggð þitt dæmi kenni. Dána! Þú varst íslenzk kona“. kona hans stóð i stöðu sinni þar. Þjóðin vissi þá þegar, að hún var kvenna hæf- ust til þess að skipa það sæti. Og hún brást ekki því trausti. Margír, sem að- éins höfðu þekkt hana af afspurn, fengu þjóðarinnar. Forsetaembættið var ungt að árum og reglur og siðvenjur engan veginn fast mótaðar, en eins og gefur að skilja reynir þar mjög á húsfreyjuna um öll formsatriði. — Það Iætur að Margar þúsundir Islendinga hafa komið að Bessastöðum þau tólf ár sem þau hjón hafa setið staðinn, og virðingin D fyrir forsetaembættinu hefur vaxið með |! hverju ári. Þar verður ekki gert upp á r| milli hjónanna, svo samhent sem þau U voru í öllu frá upphafi samvista, en hitt má öllum vera auðsætt, að við fjöl- jg mennar móttökur gesta hlýtur andi hús- freyjunnar ævinlega að svífa yfir vötn- um og móta mjög þau áhrif og minn- ingar, sem gestimir taka með sér frá heimsókninni. Það er líka mál allra, sem kynni höfðu af frú Dóru Þórhallsdóttur, að hún hafi í hvívetna kunnað framkomu sannra hefðarkvenna. Reisn hennar og tigin- mennska var svo mikil, að hver sem ® náigaðist hana, hlaut að gera það með | virðingu; en jafnframt var hún þó svo | Ijúf og alþýðleg í viðmóti, að hver sem | var gat yrt á hana án þess að óttast i fráhrindandi andsvar. Þetta var ekki | venja, sem hún hafði tam’ið sér, til þess' | að þóknast náunganum. Það var með- | fæddur eiginleiki — menning hjartans, sem hún átti I svo ríkum mæli, eins og fiú Guðrún heit’in Erlingsson komst eitt sinn að orði um þau hjón í blaðagrein. Þótt óþarft sé, má þessu til árétt- ingar geta hér ummæla nokkurra æsku- ' vinkvenna frú Dóru. Þær hafa tjáð mér, ao frá fyrstu minnum hafi aldrei borið skugga á vináttuna, og þær minnast þess ekki, að þær hafi nokkru sinni séð frú Dóru skipta skapi, og vissu þær þó að hún var ekki skaplaus kona. Þetta ber vott um sálarþroska, sem sjaldgæfur er, hvar sem um lönd væri leitað. Það er engu líkara en skaparinn hafi lagt frv Dóru 1 brjóst alla þá eiginléika, sem fslenzku þjóðina hefur dreymt um að sjá sameinaða i fari einnar konu. — Og' að leiðarlokum getum við öll tekið okkur f munn kveðjuorð Einars Bene- diklssonar til frænku sinnar og sagt: pá tækifæri til að sjá hana, og sjón varð sögu ríkari. Árið 1952 verða þáttaskil í lífi og starfssögu þeirra hjóna. Herra Ásgeir Ásgeirsson er kjörinn forseti Islands, hann hverfur af sviði stjórnmálanna og vefður æðsti maður og einingartákn Iikum, að þrátt fyrir allt, sem á undan var farið, reyndi hér enn meira en áður á hæfile'ika frú Dóru sem húsfreyju á hefðarheimili. Og nú má segja að öll þjóðin hafi fengið tækifæri til að kynnast því, hve stjórnsöm og frábær húsfreyja hún var. íslenzkar konur dáðu frú Dóru Þór- hallsdóttur og voru stoltar af henni, en það vorum Við karlmennirnir ekki síður. Þegar sú harmafregn barst um Iandið, morguninn 11. þ. m. að hún væri látin, drúpti öll þjóðin höfði f sorg og samúð. í minningu okkar allra verður hún á- vallt ímynd þeirrar tiginmennsku, hjarta- hlýju og háttvísi, sem íslenzkar konur má mest prýða. — Öll þjóðin vottar eiginmanni hennar, börnum og öllum ástvinum innilega samúð, með djúpri virðingu og þökk. Víglundur Möller. Minni forsetafrúarinnar (Ort 1955) Glæstar myndir göfgra kvenna Gestrisni og góðvild mesta geymast söguspjöldum á. garði hæstum ríkir á. Á ævisögur afreksmenna Höfðingsbragur, hljóðlát festa íslendinga bjarma slá. húsfreyjunnar lýsir brá. Hátt í dag ber heiður slíkan Bregður tign og björtum sóma helzta kona þessa lands, Bessastaða yfir hag. hún á jafnan heillaríkan íslands dætra æðsta blóma hlut í giftu forsetans. allir hylla þennan dag. ►> Ragnar Jóhannesson. ■

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.