Vísir - 15.09.1964, Síða 7

Vísir - 15.09.1964, Síða 7
V í S IR . Þriðjudagur 15. september 1964. 7 Með grein þeirri sem Vísir birtir hér, eru rifjaðar upp minn- ingar af frú Dóru Þórha'lsdóttur, forsetafrú, að heimiii hennar á Bessastöðum. Þetta er eitt af mjög fáum blaðaviðtölum sem hún átti. Birtist það árið 1954, er hún hafði gegnt hinni tignu stöðu í tvö ár og fyrir dyrum stóð fyrsta opinbera heimsókn forseta- hjónanna tii annarra Ianda,-til Danmerkur. Viðtalið birtist í danska kvennabiaðinu Tidens Kvinder og er eftir Sigurlaugu Bjarnadóttur. Það gefur okkur myndina af hinni virðulegu, fögru konu og hús- móður, er sómdi sér i æðstu stöðu. Á köldum og næðingssömum marz-degi erum við stödd á ís- lenzka forsetasetrinu, um 14 km. leið frá höfuðborg íslands, Reykja vík, á Bessastöðum á Álftanesi. Það er af engri tilviljun, að for- seta Islands var valið aðsetur á þessum stað. Bessastaðir hafa frá gamalli tíð verið höfðingja- og menntasetur, — Snorri Sturlu son var um skeið eigandi þeirra, það var amtmannssetur um tíma og latínuskóli um hálfrar aldar skeið eða þar til árið 1846, að hann var fluttur til Reykjavíkur. Við þennan skóla hlutu margir þjóðfrægir Islendingar menntun sína. Þjóðskáldið Grímur Thomsen bjó þar um nær þrjá áratugi, þar til hann andaðist árið 1896 og Ijóðskáldið Jónas Hallgrímsson gekk þar í skóla. Þegar Bessastöðum var breytt, í bústað hins íslenzka ríkisstjóra árið 1941 og síðar forseta, er íslenzka lýðveldið var stofnað þremur árum síðar, voru gerðar gagngerðar breytingar á þessu fræga setri, aðalbyggingin stækk uð og endurbætt og ýmsar um- bætur gerðar á jörðinni. Nú eru þar rennisléttir vellir og umhverfi allt hið snyrtilegasta. Á þessum kyrrláta stað, fjarri skarkala höfuðborgarinnar, bjó hinn fyrsti forseti lýðveldisins íslands, herra Sveinn Björns- son, þar til hann andaðist árið 1950. Nú situr staðinn eftirmaður hans í forsetaembættinu, herra Ásgeir Ásgeirsspn. Þar veitir blómin min“, segir forsetafrúin, en hún varð 61 árs fyrir hálfum mánuði, hinn 23. febrúar. BLÓMIN EIGA GÓÐA DAGA. Það er stundum sagt í gamni, að blóm þrífist bezt hjá þeim, sem tala við þau, og áreiðanlegt er, hvað sem því líður, að blóm forsetafrúarinnar á Bessastöðum eiga góða daga. Hún hefir yndi af að annast blóm og blómarækt, enda standa afmælisrósir hennar furðulega blómlegar og ferskar nú hálfum mánuði eftir að henni voru færðar þær. Við enda dag- stofunnar er sérstakur blóma- skáli, sem, eins og orðið gefur til kynna, er fullur af blómum, jafnvel nú, er hinn íslenzki vetur ríkir enn einvaldur úti fyrir. HÍBÝLI FORSETASETURSINS. Forsetafrúin sýnir okkur híbýli staðarins, sem eru öll mjög vist- leg og vel úr garði gerð, þó að ýmsir erfiðleikar hafi verið á að breyta l.inum gömlu húsa- kynnum, þannig að fulinægjandi yrðu, sem forsetabústaður. Hið gamla og nýja hefir verið sam- ræmt á smekklegan og þjóðlegan hátt og það er í hæfilegum mæl'i gætt persónuleika forsetahjón- anna. Hin heimilislega hlýja og íburðarleysi, sem ríkir hér á heimili þe’irra er í engu frábrugð- in hverju öðru fallegu íslenzku heimili, sem stjórnað er af rausn og myndarskap. Biskupsdóttirin er varð forsetafrú hann viðtöku ráðamönnum ís- lenzku þjóðarinnar, erlendum sendiherrum og öðrum gestum. En honum veitist þar einnig næði til að íhuga velferðarmál þjóðar- innar, sem falin eru forsjá hans ' Það er vindasamt þarna úti á Álftanesinu. Fjöll og hæðir eru þar engin til skjóls, en fögur er útsýnin til hins víðr fjallahrings umhverfis Faxaflóa — og út til bafsins í vestri. En þetta átti ekki fyrst og fremst að vera sögu- og náttúru- lýsing af Bessastöðum. Við ætluð- um að heimsækja forsetafrúna, frú Dóru Þórhallsdóttur, sem hef- ir verið svo elskuleg að veita okkur viðtöku og leyfa okkur að fræðast lítilsháttar um hina vanda sömu virðingarstöðu hennar, sem húsmóður á forsetaheimilinu. YLUR OG BLÓMAANGAN. Þægileg og heimilisleg hlýja streymir á móti okkur jafnskjótt sem hinar einföldu og traustlegu útidvr forsetabústaðarins opnast. 1 dagstofunni hittum við for- setafrúna. Það er glæsileg kona, í senn þægileg látlaus og virðuleg í viðmóti. Stofan er full af indæl- um blómailmi ,,Þetta eru afmælis FORSETAFRÚIN VEFUR OG SPINNUR. Setan á skrifstofustól forsetans, sem er með íslenzkum kross- vefnaði, úr fslenzku bandi, er gerð af forsetafrúnni sjálfri. Hún hefir einnig ofið dregilinn á traustlegu eikarborðinu f anddyr- inu og á efri hæð'inni, á hinu vistlega „dyralofti", sem er eins konar fordyri þar uppi, stendur íslenzkur rokkur. „Hann er nú þarna til lítils annars en skrauts", segir forsetafrúin, „ég tek stundum f hann til að teygja úr lopa í hosur og vettlinga fyrir barnabörnin“ og það fer ekki hjá þvf, að barnabörnin þurfi marga hosuna og -cttlinginn, því að þau eru þegar 10 talsins. Forsetahjónin eiga þrjú upp- komin börn, tvær dætur og einn son, sem eru öll gift og búsett í Reykjavík. BISKUPSDÓTTIRIN t LAUFÁSI. Sjálf er forsetafrúin komin af merkum íslenzkum prestsættum, dóttir hins mæta og þjóðkunna manns, Þórhalls Bjarnarsonar, biskujfc í Laufási i Reykjavfk. Biskupssetrið f Laufási var alla tfð orðlagt fyrir rausn og glæsi- leik, og biskupsbörnin voru vina- mörg og félagslynd, svo að heim- ilið var miðstöð æskufólks og glaðværðar. — Tryggvi bróðir hennar átti síðar eftir að verða forsætisráðherra Islands og Dóra forsetafrú íslands. Biskupsdóttirin frá Laufási, hin núverandi forsetafrú lslands, hef- ir þannig frá fyrstu tíð verið vön að umgangast margt fólk og taka þátt í félags- og samkvæm- islífi höfuðborgarinnar. Eigin- maður hennar, herra forsetinn, Ásgeir Ásgeirsson, á og langan stjórnmála- og embættisferil að baki. Hann gegnd'i um skeið embætti forseta sameinaðs AI- þ’ingis og forsætisráðherra Is- lands "i árunum 1932 — 34, svo að frú Dóra hefir þegar um langt skeið haft skyldum að gegna sem húsmóðir á háttsettu embættis- mannsheimili — og hún hefir jafnan leyst hlutverk sitt af hendi með prýði. SKYLDURNAR VERÐA AÐ SITJA I FYRIRRÚMI. — Auðvitað fylgir stöðunni nokkur vandi og ábyrgð — segir forsetafrúin stundarkorni síðar, er við höfum lokið göngunni um forsetabústaðinn og sitjum yfir rjúkandi kaffi og kökum í dag- stofunni. Hinar ýmsu embættis- legu skyldur verða að sjálfsögðu að sitja í fyrirrúmi, þó að þær samræmist ekki alltaf persónu- legum óskum f þessa eða hina áttina. Ég lít á stöðu mfna fyrst og fremst sem húsmóðurstöðu, og hver húsmóðir hefur að mfnu á- liti miklu og göfugu hlutverki að gegna, sem hún verður að helga hug sinn allan og krafta. Að ann- ast vel um manninn sinn og börnin og reyna að láta öllum á heimilinu líða e'ins vel og föng leyfa, er ærið verkefni, sem eng- in góð húsmóðir lítur á sem hjá- verlt. — KANN VEL VIÐ SIG Á BESSASTÖÐUM. — Fannst yðrr þér ekki vera neitt útilokaðar frá umheiminum fyrst f stað, eftir að þér fluttust frá Reykjavík hingað út til Bessastaða? — Nei, ég fann ekkert til þess, þó að viðbrigðin væru að vísu nokkuð mikil. Ég hafði átt heima í Reykjavík alla tfð, í Laufási 35 fyrstu ár ævi minnar, fyrst heima í föðurhúsum og sfðan 13 fyrstu árin eftir að ég gifti mig. En ég kann vel við mig einnig hér á Bessastöðum. Á vorin og sumrin er hér yndislega failegt, náttúran full af lífi og gróanda, þegar hún vaknar af vetrardróm- anum, og æðarfuglinn og krían vitja varplanda sinna. ÞYKIR VÆNT UM SVEITINA. Heima í Laufási var rekið stærðarbú í tíð föður míns, sem var mjög hne'igður fyrir búskap, og lét hann okkur systkinin vinna öll venjuleg sveitaverk. „Það er ekki að vita, nema þú þurfir á þvf að halda, að kunna til þess sfðar meir. — Bezti skólinn er að kunna að Yinna", sagði hann, og þó að það ætti ekki fyrir mér að liggja að verða sveitakona, er ég föður mínum ævinlega þakk- lát fyrir það, hve mikinn hug hann hafði á, að kenna okkur heilbrigða vinnu og að meta gildi Framh. á bls. 2.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.