Vísir


Vísir - 15.09.1964, Qupperneq 8

Vísir - 15.09.1964, Qupperneq 8
8 V I S I R . Þriðjudagur 15. september 1964. ötgetandi: Blaðaútgáfan VlSIR Ritstjóri: Gunrai G. Schram. Aðstoðarritstjóri: AxeJ Thorsteinson Fréttastjórar: Þorsteinn Ö. Thorarensen Björgvin Guðmundsson Ritstjórnarskrifstofui Laugavegi 178 Auglýsingai og afgreiðsla Ingólfsstræti 3 Áskriftargjald ?r 80 kr á mánuði í lausasölu 5 kr eint — Simi 11660 (5 línur) Prentsmiðja VIsis - Edda h.f ÞJÓÐARSORG begar sú harmafregn barst um Iandið morguninn 11. þ. m., að forsetafrú Dóra Þórhallsdóttir væri látin, varð öll þjóðin harmi lostin. Fyrir fáum vikum, þegar forseti fslands tók við embætti sínu í fjórða sinn, stóð hún við hlið hans, og var eigi annað vitað en hún væri þá heil heilsu og hönd dauðans henni víðs fjarri. En hér fór sem oftar, að dauðinn er nær en við hyggjum. Með frú Dóru Þórhallsdóttur á þjóðin á bak að sjá ííinni sinna göfugustu dætra. Hún var öllum þeim kost- im búin, sem góða og mikilhæfa konu mega prýða. Vinsældir hennar um land allt voru svo miklar, að líks munu vart dæmi um aðra konu á íslandi fyrr eða ;íðar. Hún vann hug og hjarta allra, sem kynntust lenni, en þeir voru margir, ekki sízt nú síðustu tólf írin, sem hún skipaði húsmóðursætið á mesta tignar- leimili landsins. Með virðuleik og ljúfmannlegri fram- comu gekk hún þar um sali og fagnaði gestum þeirra hjóna á svo aðlaðandi hátt, að hún verður þeim öllum ógleymanleg. Á ferðum þeirra hjónanna um landið vakti viðmót hennar og framkoma öll óskipta virð- ngu og aðdáun. Það er rétt, sem sagt var hér í blað- 'nu, þegar skýrt var frá láti hennar: „Alltaf var hún íllra kvenna ljúfust og elskulegust við alla, kunni ekki ið fara í manngreinarálit; þess vegna var hún elskuð ig virt af öllum“. Hvar sem hún fór, hvort heldur ut- anlands eða innan, var hún þjóð sinni til sóma. Húsfreyjustaðan á forsetaheimilinu er umfangsmik- ið og vandleyst starf, ef allt á að fara vel úr hendi, en ;rú Dóra var þeim vanda vaxin. Allir, sem til þekkja, júka upp einum munni um það, að hæfari kona hefði ?kki orðið’til þess fundin. Hún var stjórnsöm og ákveð- in, gagnmenntuð og glæsileg og kunni þá list, að láta öllum líða vel í návist sinni. Hún var hefðarkona í þess orðs beztu merkingu. Þess vegna sakna hennar nú allir. En þótt missir þjóðarinnar sé mikill, er mestur harmur kveðinn að eiginmanni hennar og ástvinum. Peirra missir verður aldrei bættur. Skarð hennar í fjölskyldunni stendur opið og ófyllt, en fagrar minn- ingar um mikilhæfa og ástríka eiginkonu og móður munu geymast. Og minning hennar með íslenzku þjóð- inni mun lifa. Enginn, sem þekkti hana, mun gleyma henni. Hugur allrar þjóðarinnar stefnir nú til Bessa- staða í söknuði og hljóðri þökk. Vísir veit, að hann mælir þar fyrir munn allra lands- manna, er hann sendir forseta vorum og fjölskyldu íans innilegar samúðarkveðjur og biðjum þeim bless- unar og styrks í sorg þeirra. SVIPMYNDIR ÚR í dag kveöur islenzka þjóðin þá konu sem skipaði æðsta sess íslenzkra kvenna. Frú Dóra Þór- hallsdóttir stóð við hlið manns síns, herra Ásgeirs Ásgeirsson- ar forseta, sem fulltrúi þjóðar- innar. Hversu oft var hún ekki þjóð sinni og landi til sóma með sinni virðulegu og fögru fram- komu. Þannig var hún mótuð vlð upp eldi á annáluðu myndarheimili, biskupsheimilinu f Laufási við Reykjavík, og til þess hafði hún hlotið hina beztu menntun. Sem forsetafrú varð hún ímynd hinnar góöu húsfreyju og ástkæru eiginkonu og móður. Fjölskylduhópurinn var stór og vinahópurinn ennþá stærri. ForsetaheimiHð á Bessastöð- um fékk svipmót myndarskapar hennar og þar var jafnan gott að koma fyrir gesti, er að garði bar. öllu skipaði hún þar innan húss eftir smekkvfsi sinni eftir beztu kvenlegu kostum. Áhuga- mál hennar iutu að heimilinu, þeim iðnum og heimilislist, sem íslenzkar konur hafa um alda- raðir iðkað til að prýða um- hverfi sitt. Hún elskaði blóm sem jafnan fegruðu híbýli hennar og hún var jafnan ljúf og elskuleg í öllu sfnu fasi. Þannig mun for- setafrúin lifa i minningu þjóðar- innar. Vísir birtir hér f dag allmarg- ar myndir, er sýna ýmsa þætti úr lífi frú Dóru Þórhallsdóttur. Þetta eru svipmyndir úr sögu góðrar konu, þar sem hún sést er hún undi með fjölskyldu sinni, við heimilisiðn og á mannamótum. Frú Dóra Þórhallsdóttir með elzta barnið Þórhall ,á fyrsta ári. Myndin tekin árið 1919. iWIHWBBWW

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.