Vísir - 15.09.1964, Page 16

Vísir - 15.09.1964, Page 16
VIS121 Þriðjudagur 15. september 1964 ekur ú hús Lögreglan í Reykjavík tjáði Vísi að gærdagurinn hafi verið mikiil árekstradagur og taldi samtals 10 bifreiðaárekstra á timabilinu frá klukkan háifeitt á hádegi til kl. 8 f gærkveldi. / Enginn þessara árekstra var þó stórvægilegur og ekki slys á fólki I sambandi við þá. Alvarlegasti áreksturinn, og sem haft gat alvarlegar afleiðingar, ef verr hefði til tekizt, var ekki milli tveggja bifreiða, heldur milli bif- reiðar og húss. Þetta atvik skeði á mótum Lauga xegar og Klapparstfgs. Þar sat kona við stýri bifreiðar sem svéigð'i af Laugaveginum og upp á Klapp- arstíginn. Er konan tók sveigjuna, sá hún mann fyrir framan bifreið- ina, sem var á gangi yfir götuna. Konan ætlaði að hemla, en fipaðist og steig á benzíngjafann í staðinn. Maðurinn slapp að vísu við bifreið- in«, en þess í stað varð húsið á bak við hann, Laugavegur 20, fyrir henni, og þar staðnæmdist bíllinn, allnokkuð skemmdur. Á húsinu sá einnig, en ekki stórlega. Hins vegar slapp konan við meiðsli. LEYSA ÞARF VANDAMÁL LOFT- LEIDA TIL LENGRI TlMA Á mánudaginn hefst hér í Reykjavík fundur flugmálastjóra Norður- landanna og verður þar enn til viðræðu, það vandamál, sem verið hef ur á döfinni í 12 ár, það er loftferðasamningur við Norðurlöndin og í því sambandi sérstak- lega flug Loftleiða. Auk flugmálastjóra Islands, Agnars Kofoed Hansens, mun flugmáfestjóri Svíþjóðar, Vin- berg, sitja þennan fund, en full- trúar flugmálastjóra Noregs og Danmerkur. Vísir átti í morgun tal við Agnar Kofoed Hansen flugmála- stjóra og spurði hann um verk- efni þessa fundar. Hann sagði að það sem lægi fyrir að þyrfti að gera, væri að leysa Loftleiða vandamálið í lengri tíma. Ef það tækist ekki væri það vegna þess, að flugmálastjómir hinna land anna hefðu fengið önnur fyrir- mæli frá ríkisstjórnum sínum og þá yrðu ríkisstjórnimar sjáif- ar að leysa málið. í sambandi við frétt, sem bor- izt hefur frá Norðurlandaráði um það að sænskur þingmaður hafi borið fram tillögu um að Islendingar og Finnar fengju að taka þátt í mánaðarlegum fund- um flugmálastjóra Norðurlanda, sagði Agnar Kofed Hansen að- spurður: — Ég tel að þessi tillaga sé óþörf, vegna þess að samvinnan milli okkar flugmáiastjóra Norð- urlanda hefur verið mjög náán og góð, nánast persónuleg vin- átta. Að undanfömu höfum við setið fundi saman aldrei sjaldn- ar en 3 sinnum á ári og stund- um oftar. Flugmálastjórar Nor- Framh. á bls. 2 NÆR 800ÞUSUND FJAR SLA TR- AD Á ÖLLU LANDINUIHAUST 130 þús. slútrað hjú Slúturfélagi Suðurlands Haustslátrun er nú hafin. Hófst hún í sláturhúsum Slát- urféiags Suðurlands i gær. Var þá slátrað í Djúpadal, á Hellu og á Selfossi. Einnig er slátr- un hafin f Reykjavík. Slátrað verður um 130 þús. fjár á veg- um Sláturfélags Suðurlands i haust, en alls er búizt við, að slátrað verði náiega 800 þús. <S> fjár á öllu Iandinu að þessu sinni. 1 ár var sumarslátrun, þar eð diikakjöt var á þrotum áður en haustslátrun skyldi hefjast. Hef ur þegar verið slátrað um 3000 fjár í sumarslátrun Sláturfélags Suðurlands. — í fyrra var slátr- að alls á öllu landinu 780.723 fjár. Er talið, að talan verði að- eins lægri í ár. VERÐIÐ ÓKOMIÐ Ekki hefur enn náðst sam- komulag í sex manna-nefndiimi, er fjallar um verð landbúnaðar- afurða. Hefur nefndin haldið marga fundi, en mikið ber enn á milli bænda og neytenda. Ekki hefur málinu þó enn verið vís- að til yfimefndar. Á meðan verð ið er ókomið frá verðlagsnefnd- inni gildir sumarverðið, sem er bráðabirgðaverð og gildir þar til hið eridanlega hefur verið afráðið. KARTÖFLUUPP- SKERA MISJÖFN í morgun var glatt á hjalla meðal bamanna í Vogaskólanum. Ljósm. jbp. Kartöfluuppskeran stendur nú sein hæst, og er æði misjafnt hljóð ið i þeim borgurum, sem garða eiga. Sumir eru fremur hressir, en aðrir hund-óánægðir. Ekki liggja enn fyrir endanlegar upplýsingar um uppskeruna, en vitað er að hún er töluvert misjöfn, og skiptist nokkuð eftir svæðum. Töluvert margir skikar eru leigð- ir í Borgarmýrinni, og hafa sumir orðið fyrir nokkru tjóni af völdum næturfrosta. Aðrfr inni við Rauða- vatn, hafa sloppið vel. Skemmdirn- ar fara mest eftir því hvernig garð arnir liggja. Þeir, sem standa hátt, skemmast lítið sem ekkert — séu frostin ekki því grimmari — cn þéir, sem liggja lágt, mega ekki við miklu, því að kuldinn Ieitar nið ur, og er verstur í dalverpum og lautum. BÖRNIN K0MA / SKÓLANN Furið ív heimsókn í Voguskólu í morgun þegur 11 og 12 úru börn mættu í fyrstu sinn Böm í 11 og 12 ára bekkjum bamaskólanna f Reykjavík mættu f skóla sína f fyrsta sinn á haustinu í morgun. Hafa þau aldrei fyrr þurft að mæta svo snemma, en þessi lenging skólatfmans er í samræmi við samþykktir kennaraþings f sum ar. Þegar Vfsismenn heimsóttu Vogaskólann við Gnoðarvog í Reykjavík vom börn í 6. bekk (eins og nú er farið að kalla 12 ára bekk) að fá stundatöflu sína hjá kennurunum. Telpurnar runnu fram í hóp- um og skvöldruðu hátt. Dreng irnir stigu margir á bak hjól- hestunum, enginn sást þó á skellinöðru. Köld sólin lýsti upp skóiahúsin þrjú og malar- borna skólalóðina. Röð af gul um blómum glitraði við inn- ganginn í skólann. „Hvernig er að byrja svona snemma i skólanum?“ „Voða gaman,“ sögðu sumar stúlkurnar. „Ekki mér,“ sagði ein kot- roskin. „Hvers vegna?“ „Ég missti af Skeiðaréttinni" ,Hvat hefur þú verið í sveit?1 „Ég hef verið fjögur sumur á Oddgeirsstöðum f FIóa.“ Hún heitir Margrét og bar höfuð og herðar yfir stöllur sinar. Hinar virtust fegnar yfir þvi að vera komnar í „skjól“. „Hvar eru skellinöðrumar?“ „Löggan lætur mann aldrei í friði með neitt smávegis,“ sagði freknóttur pottormur með skarð miiii framtannanna. Að öðru leyti var bersýnilegt að börnin hlökkuðu flest til skólans og fögnuðu því að vera byrjuð aftur. Inni í skólanum sjálfum sá- ust kennarar, ungar kennslu- konur gengu virðulega úr kennslustofunum upp á kenn arastofuna. Skólastjórinn, ung- ur ;naður úr Skagafirði, Ásgeir Sigurjónsson, sem hefur verið settur skólastjóri f vetur til að gegna starfi Helga Þorláksson- ar, tók á móti okkur með glöðu geði og kynnti okkur fyr ir einum bekkjanna 6. bekk J. G., en þar var Jóhanna Guð- mundsdóttir, sem kennt hefur f 27 ár, að láta börnin skrifa stundaskrár fyrir veturinn. Á borðunum lágu námsbækurnar, heilsufræði landafræði o.fl. Bömin voru prúðmannleg, og auðfundið, að Jóhanna hafði góð tök á bömunum með mildri hendi. Þegar frá var haldið voru böm úr 11 ára bekkjum að fjör ugum leik úti fyrir. Þau voru hraustleg eftir útiveru sumars ins og höfðu safnað forða í sig til þess að standast innisetur Iangs vetrar. Hún missir af Skeiðaréttinni.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.