Vísir - 01.10.1964, Page 15
VÍSIR . Fimmtudagur 1. oktöber 1964.
Victor Francis:
HÆTTULEGIR
PENINGAR
Sakamálasaga
Harry Shaw aðstoðarlögreglufull
trúi horfði beizkur á svip á pappírs
íirkina, sem hann fyrir næstum
hálfri klukkustund hafði sett í rit-
vélina. Hann var í vandræðum með
hvemig hann ætti að komast frá
þessu og var ekki búinn að skrifa
nema: Ákæruvaldið gegn . . . .
Þá hafði hann farið að hugleiða,
að það getur stundum verið erfið-
ara að semja ákæru heldur en að
handsama glæpamanninn, sem af-
brotið framdi og menn vilja fá
dæmdan. Og það yrði engan veg-
inn auðvelt að semja skjalið, því að
það var haugur bréfa og skjala sem
á borðinu lá málið varðandi. I þess-
um vanda fagnaði Harry þvf, að
Innam fulltrúi, roskinn maður, hvít
hærður, kom inn. Hann hélt á vél-
ritaðri tilkynningu:
— Ég hefi rétt í þessu fengið sím
skeyti frá lögreglunni í Los Ange-
les, sagði hann. Við verðum að vera
viðbúnir komu eins þessara glæpa
kónga, sem menn kannast við af
blöðum eða vegna þess, að atferli
þeirra hefir bitnað á þeim. Þetta er
sem sagt ein ..stóra kanónan" úr
Siegelbófaflokknum, sem tók sig út
úr og fór að býrja á eigin spýtur.
Það var víst farið að verða heitt
undir skósólum hans suður í Kali-
forniu, svo að hann er á leið hing
að til Chicago, til þess að skipta
um vinnustað. Við höfum mynd af
honum úr glæpamanna”albúminu“,
en fátt annað að styðjast við eins
og sakir standa — en við verðum
sem sagt að gera ráð fyrir, að nýi
vinnustaðurinn sé Chicago.
Hann tók vindling upp úr brjóst
vasanum og kveikti í,
— Hann gæti orðið — verður
sjálfsagt erfiður, — við fáum víst
nóg að gera, nema við yrðum svo
heppnir, að geta náð honum fljót
lega sagði Harry Shaw í nöldurstón
— Við vérðum að gera ráð fyrir
því. Siegel-bófaflokkurinn er allur
í molum eftir að Bagsey var gerður
„óskaðlegur“, en þessi náungi ætlar
sér greinilega að halda áfram og
sennilega ekki í smáum stíl, þegar
hann er kominn af stað. Hann virð-
ist hafa sín sambönd hér í borginni.
Hann gæti beitt þeirri aðferð, að
fá með tilstyrk manna hér tök á ein
hverjum, sem ekkert afbrot hefir
framið, og nota sem verkfæri.
— Hvaða bófi er þetta, sem við
eigum að gefa gætur að?
— Hann kallar sig Rico Motta.
Við getum aðeins gizkað á hvers
konar fólk það er, sem hann reynir
að ná sambandi við — einhverjir
vesaiings einfeldningar mætti segja
mér, sem þora ekki annað en sitja
og :tanda eins og hann skipar fyrir.
Nái ítaan í einhvern nógu heimskan
til þesa að vinna það „verk“, sem
hann hefir f huga, mun verða leikur
fyrir hann að losa sig við hann, þeg
ar verkið er unnið. Motta er ekki
maður sem skiptir ágóðanum. Hann
er gersamlega samvizkulaus, kald
rifjaður fantur.
Meðan Harry Shaw reis á fætur
og reyndi að melta þær upplýsing
ar, sem fulltrúinn hafði látið hon
um í té, gerðist dálítið í einu út-
hverfi borgarinnar.
Eddie okkur Carter lagði bílnum
sínum fyrir utan gamalt og hrörlegt
hús. Hann fór inn, leit á skellurnar
á veggfóðrinu í forstofunni, brotið
stigahandrið — og leizt ekki á blik
una. Samt hélt hann áfram þar til
hann kom að herbergi, sem á stóð
talan 11.
— Kom inn, var svarað hvassri
röddu.
Eddie gekk tvö eða þrjú skref
inn í herbergið og sá þar gamalt
járnrúm með þvældum sængurfatn
aði í, ómálað borð, slitna skjala-
tösku, sem á því var, og tvo stóla.
— Hver sendi yður hingað,
félagi? var sagt að baki hans.
Eddie kipptist við og varð hálf
smeykur og ætlaði að snúa sér við,
er sagt ^ar sömu röddu:
Standið kyrr í sömu sporum og
horfið út um gluggann meðan þér
svarið fyrirspurnum mínum. Hvað
an komið þér?
— Herra Johnson sendi mig hing
að, sagði Eddie og klóraði sér í
hnakkanum. Hann sagði mér, að
hann gæti kannski útvegað mér
peningana sem mig vantar. Hann
sagðist hafa talað um mig við yður
og þegar Johnson mælir með
manni, er það álíka og að hafa með
mæli þjóðbankastjóra til að fá lán.
Ég segi bara þetta eins og það er.
Maðurinn skellti nú aftur hurð
inni, en hann hafði falizt bak við
hana til hálfs. Hann tók höndina úr
kápuvasanum og sló á öxl Eddie.
— Nú skil ég, þér eruð Eddie
Carter, og engin ástæða til að vera
neitt taugaóstyrkur, Við skulum
bara vera rólegir, Eddie.
Maðurinn var allfeitlaginn og ein
hvern veginn fannst Eddie þrengra
í herberginu, er hann fór að virða
hann fyrir sér. Maðurinn var rauð
hærður og greiddi hárið aftur. Hak
an skagaði fram og hann var með
áttstrend gleraugu. Hann var herða
breiður og vel klæddur — helzt til
áberandi þó. Og yfir honum virtist
nokkur glæsibragur og kannski
hefði Eddie fengið traust á honum,
ef hann hefði ekki haft ferlegar
hendur, stuttar og breiðar og hnúa
miklar.
Maðurinn stóð um stund og
horfði á hann.
— Eruð þér einn vina Johnsons?,
spurði hann og settist klofvega á
annan stólgarminn.
— Ekki get ég nú sagt, að ég sé
í flokki vina hans, en ég þekki hann
og hann mig, því að ég er vanur
að aka honum 1 klúbbinn hans, og
mér finnst Johnson vera fyrirtaks
náungi. Ég held, að hann sé slyng
ur kaupsýslumaður, og mér þykir
vænt um, að hann vill greiða fyrir
mér. Við spjöllum stundum saman
um allt milli himins og jarðar og
stundum spyr hann mig: Ert þú
búinn að eignast eigin leigubíl,
Eddie, — Og ég segi 1 glettni: Nei,
en ég er að hugsa um að kaupa mér
einn í næstu viku. Og þá hlær hann
og gefur mér einn dollar í auka-
þóknun.
Maðurinn tók upp aluminium-
vindlahylki:
— Hérna Eddie, fáðu þér vindil.
Leigubílstjórinn hristi höfuðið.
— Hvers vegna viljið þér ekki
vindil? Eruð þér ekki enn farinn
að reykja?
Maðurinn hló við. Hann tók sér
vindil sjálfur og kveikti 1.
— Jú, víst reyki ég, sagði Eddie
og brosti • næstum, afsakandi.
Ég er nýorðinn tuttugu og tveggja
og ég er búinn að reykja 1 mörg ár
en það er of dýrt fyrir mig að
reykja vindla. Það er „lúxus“, sem
ég get ekki veitt mér, og eftir að ég
kynntist Mary geri ég allt sem ég
get til þess að nurla mér saman
nægilega miklu til þess að geta
keypt mér bíl, því að þá getum við
gift okkur. Allt þetta hefi ég sagt
herra Johnson. Ég hefi sagt honum,
að ef ég bara gæti . . .
— Ég veit þetta all saman, Eddie,
sagði maðurinn og blés frá sér blá
um tóbaksreyk. Johnson hefir eins
og ég sagði áður, sagt mér heilmik-
ið um yður. Hann hefir líka sagt
mér frá ýmsu, sem þér viljið vlst
helzt ekki tala mikið um — eða
að komist í hámæli. Hann sagði
mér, hann Johnson, að það væri
seigla í yður, og þér gætuð verið
harður í horn að taka. Það er piltur,
sem getur bitið frá sér, sagði hann
og er ekki hræddur við neitt, og
auk þess áreiðanlegastur allra leigu
bílstjóra í borginni. Og hann hefir
sagt við mig, að það væri synd og
skömm, að það skuli dragast svona
lengi, að þér getið eignazt bíl og
kvongazt Mary. Nú, ég veit, að
yður vantar lán, en það er ekki allt
af auðvelt að fá lán, jafnvel smá
lán — og svo er nú þetta með lán,
— þau eru hættuleg, það er eins og
menn séu alla ævina að Iosna úr
skuldasúpunni.
Þetta vissi Eddie veí og þess
v:gna sagði hann ekkert.
— Hvað munduð þér segja, Eddie,
ef þér yrðuð allt í einu eigandi 5000
dollara?, spurði ókunni maðurinn
hikandi. — Ég sagði eigandi, — ég
átti ekki við lán, heldur að þér
ynnuð yður inn 5000 dollara.
— Það myndi gerbreyta fram-
tíðarhorfum mínum, ef ég gæti unn-
ið mér inn 5000 dollara, svaraði
Eddie ákveðinn og horfði I augu
mannsins með áttstrendu gleraug-
un.
— Fyrirtak, þá er allt 1 lagi, sagði
maðurinn. Þér takið yður frí eitt
kvöld og verðið bílstjóri fyrir mig.
Þér eigið að aka mér á vissan stað
og sækja mig á tilteknum tíma, en
ekki á sama stað. Þegar þér sækið
mig verð ég með tösku, sem verður
full af „góðum dollurum". Þvl næst
akið þér mér á stað, þar sem ég
borga yður 5000 dollara — fyrir
minnistap.
— Að vissu leyti vildi ég gjarnan,
sagði Eddie hikandi, en . . . . Mað-
urinn opnaði töskuna á borðinu.
— Það eru þúsund dollarar 1
henni þessari. Þá megið þér eiga og
ef eitthvað skyldi misheppnast er
hér hjálpartæki, sem getur dugað
ódeigum manni í nærri hverri raun.
— Hann tók litla skammbyssu upp
úr töskunni og lagði á borðið.
— Og kannski vilduð þér nú!
kveikja í vindli. Eddie?
Það var eins og Eddie hefði kyngt i
einhverju.
— Jú, þakka yður fyrir . . . þegar ,
þér þurfið á mér að halda ,herra ;
. . . ? |
— Kallið mig bara Rico, sagði i
maðurinn.
1 hvert skipti, sem nýr yfirlög-
regluþjónn var skikkaður til þess að
starfa undir stjórn Harry Shaw,
var hann vanur að segja:
Mín reynsla er sú, að sé heil-
brigð skynsemi 10 af hundraði, 40
af hundraði ástundunarsemi og 40
af hundraði rétt hugboð meginstoð
ir lögreglumanns, sé hinn sami eins
vel til starfsins fallinn og hægt er
áð búast við
Og þá mundi hinn nýi yfirlög-
regluþjónn venjulega segja:
Neodon
Munið Neodon-þéttiefnin. Þau
eru margs konar til notkunar
eftir kringumstæðum.
Beton-Glasúr á gólf, þök og
veggi. Þolir mikið slit, frost og
hita og ver steypu fyrir vatn’i
og slaga og því að frostið
sprengi pússninguna.
Alla venjulega húsamálningu
höfum við einnig eg rúí’agler.
Málningarvörur sl
Bergstaðastræti 19 . Sími 15166
T
A
R
Z
A
N
Láttu hann tala Tarzan, segir
Tshulu. Hann myrti manninn I
flugvélinni fyrir minna en hálfri
klukkustund. Hvað segir þ(i um
það Jim? spyr Tarzan. Það hefur
verið skotið úr byssunni þinni
nýlega. Ég sagði þér að ég hefði
hætt póstfluginu til þess að verða
ríkur sem fyrst, svarar flugmað-
urinn. Nú ættir þú að koma þér
héðan burt' áður en ... Áður en
maðurinn sem þú ætlar að hitta
kemur aftur? spyr Tarzan. Hann
kemur ekki aftur Jim. Hann er
dauður.
?5
— En þá vantar 10 af hundraði
til.
— Mikið rétt, mundi Harry Shaw
segja, það þarf líka heppni og þá
er komið upp í 100%.
En það var hvorki heilbrigð skyn
semi, ástundunarsemi eða hugboð
sem varð orsök þess — skömmu
eftir að Eddie fór af fundi Rico
Motto — að Harry Shaw nam
staðar I smágötu, vegna uppþots,
og hafði hópur manna safnazt þar
saman. Þetta var um kvöld, og yfir
borginni lá bjarmi neonljósanna.
.■iW,
OÚN- og
FIÐURHREINSUN
Vatnsstíg 3 . Sími 18740
REST BEZT-koddaf.
Endurnýjuxn gömlu
s.ængumar, eiguin
dún- og fiðurheld ver.
Selium æðardúns- og
gæsadúnssængur —
og kodda af ýmsum
stærðum.
o PHNER
verkstæðið
l?evgslaáasfi(r(i 3 •■ Síwi IQÓ5I
Fré
ir&iiiðslcálcisiuiti
Smurt brauð_og snittur
cockteilsnittur
brauðtertur. - Símar
37940 og 36066.
BÍLA OG
BÚVÉLA
SALAN
v/Mikiatorg
Sími 2 3136