Vísir - 12.10.1964, Blaðsíða 2

Vísir - 12.10.1964, Blaðsíða 2
*gg T?~ i tt'TEM V1SIR . Mánudagur 12. október 1964. Fögur japönsk stúlka, ein meðal áhorfenda við setningarathöfnina á laugardag. íþróttamenn heimsins hafa safnazt saman á miðjum leikvanginum. BANDARÍKJAMENN | SKARA FRAM ÚR Frjálsíþróttakeppnin er enn ekki hafin á Oiympíu, og á ekki að hefj ast fyrr en á miðvikudaginn. Að- alleikvangurinn í Tokyo, sem tekur 72 þúsund manns í sæti, hefur því verið auður síðan Olympíuleikarnir voru opnaðir þar á laugardaginn. Hins vegar hófst kepprii í gær f eftirfarandi greinum: SUND Sundkeppnin á Olympíuleikun- um f Tokyo ætlar að verða hörð og æsispennandi. Var það mál manna, að fram að þessu séu það áhorfendurnir í sundhöllinni, sem séu þeir e'inu sem eru ánægðir yfir þeim kostnaði, sem þeir hafa lagt í langa ferð og aðgöngumiða. 1 sundkeppnum þeim sem fóru fram í gær var barizt um hvert brot úr sekúndu, en niðurstaðan í heild er sú, að bandarísku keppendurnir murii þar sýna yfirburði f flestum greinum, enda hafa þeir nú lagt geysiríka áherzlu á að þjálfa góða sundmenn. Þeir sem nú verða helzt fyrir barðinu á bandarfsku kepp- endunum eru Ástralíumenn og Japanir, sem áður voru fremstir i flokki. Keppt var í níu riðlum í 100 m skriðsundi karla og skyldu 24, sem fengju bezta tímann valdir til að taka þátt í þremur undanrásum, átta f hverri. Þessir voru með beztan tfma: Ilman frá Bandaríkj- unum 53,9 (nýtt Olympíúmet), Don Schollander frá Bandaríkjunum 54,0 og sfðan þrír með sama tfmann 54,3 — þeir Austin frá Bandarfkj- unum, Goth'alles frá Frakklandi og McGregor frá Bretlandi. Hman a o k e Guðmundur Gíslason 5. í riðlinum % Guðmundur Gislason varð fimmti f sínum riðii í fjórsundi á Olympíuleikunum í morgun. Hann náði tímanum 5.15.5. ís- landsmet hans er 5.05.7, en það er sett í 25 metra laug, svo að þetta afrek hans i Tokyo í 50 metra laug er allsæmilegt Ilann var þó langt á eftir fyrsta manni f mark. Fyrstur í hans riðli varð Gerhard Hetz frá Þýzkalandi á 4.57.6. 2) Ungverj- inn Csaba Ali á 5.05.4, 3) Olle Ferm, Svíþjóð 5.10.5, 4) Flem- ing Alexander frá Ástralíu 5.10.8. Næst kom íslendingur- inn. Síðastur og áttundi í mark f þessum riðli var Thailending- urinn Narong Chok-Umnuay á tímanum 5.44.1, svo að Guð- mundur má vel við una. Fyrstir í öðrum riðlum voru John Gilchrist frá Canada á 4.58.3 og Roy Saari frá Banda- ríkjunum á 5.02.3. Er þetta ekki sérlega' góður tími hjá heims- meistaranum Saari, en sennilega leggur hann sig ekki svo mjög fram í undanriðli. setti Olympíumet sitt í þessum und anriðli þrátt fyrir slaka samkeppni. Næstur f hans riðli var Gropaiz frá Frakklandi á 55,8. En keppnin í hinum riðlunum var mjög hörð. 1 200 metra bringusundi kvenna vöidust fyrst 26 keppendur sam- kvæmt tíma sfnum f undanúrslitum og af þeim voru átta valdar til loktúrslita, sem verða f dag (mánu dag). Þar var rússneska sundkonan Svetlana Babanina með bezta tím- ann 2,48,3, sem er nýtt Olympíu- met. Næst henni kom B. Svijmer frá Þýzkalandi með 2,48,8. Keppnin í undanrás f 200 metra baksundi karla var ákafJega hörð og var synt undir gamla Olympíu- metinu f hverjum riðli. Bennett frá Bandaríkjunum synti á 2,14,7 og Japaninn FukuNíima á sama tíma, Graef frá Bandaríkjunum á 2,14,5. DÝFINGAR KVENNA Þar lauk undankeppnum í gær (sjö æfingum) og eru þessar efstar: Ingrid Kramer frá Þýzkalandi með 94,69, Mary Willard frá Banda- ríkjunum með 92,68 og Jeanne Ellen Collier frá Bandarfkjunum með 89,94. FIMMTARÞRAUT Fyrstu grein í fimmtarþraut lauk í gær. Var það reiðmennska og eftir hana var Mexikaninn Tovar Torres efstur með tímann 2,39,6. Annar er Austurríkismaðurinn Rost þriðji Jansson frá Svíþjóð. Annars eru allir tíu þeir efstu mjög líkir að stigatölu, svo ekki verður enn séð hver er sigurstranglegastur. KNATTSPYRNA Þrír leikir voru leiknir í henni Framh. á bls. 6. OLYMPÍULMARNIR SETTIR í TOKYO Á LAUGARDAG Olympíuleikarnir voru settir f Tokyo á laugardaginn með stórkost legri skrautsýningu, þegar fþrótta- menn alls heimsins gengu f skrúð- göngu inn á aðalleikvanginn í Tokyo. Það sem setti mestan svip á hátfðina voru litirnir. Það var japanskur ballettstjórnandi, sem skipulagði þessa hátfð og var Hta- samspilið dásamlega fagurt. Annað sem setti svip á setningarathöfnina var hin meðfædda japanska kurt- eisi. Menri mirinast þess við opnun olympfuleikanna í Róm, hvflíkt 6- hemju öskur var rekið upp, þegar ítalski flokkurinn kom inn á sviðið. Japanirnir kunnu sér hóf og klöpp- uðu kurteislega fyrir sinni sveit. Þó áhorfendafjöldinn væri að sjálf- sögðu yfirgnæfandi japanskur bjó með hverjum þeirra tilfinningin fyr- ir þvf hvað væri kurteist. Það hafði verið versta veður und anfarna daga, rigning og rok. En opnunardagurinn rann upp léttskýj- aður með fallegum hvítum skýja- ! bólstrum. Sólin skein björt og hlý. Þegat Hirohito keisari kom til heið- Hlauparinn Sakai hleypur upp löngu þrepin að olympíukolunni. Reykinn frá blysinu ber yfir marinfjöldann. lursstúku sinnar, þögðu menn. Það leikana. i- hefur nú sannazt enn einu sinni, að keisarinn er sonur sólarinnar. Hátíðlegasta stundin rann upp, þegar hinn ungi japanski íþrótta- maður Yoshinori Sakai, atóm- Framh. á bls, 6.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.