Vísir - 14.10.1964, Side 15
V1SIR . Miðvikudagur 14. október 1964.
15
NICHOLAS MONSARRATT
Brúðkaupsferðin
SAKAMALASAGA
Það var eitt gistihús í bænum,
tveir bankar, 4 verzlanir, tvö bíla-
viðgerðarverkstæði, ein kirkja. Mér
Ieizt vel á fólkið. Það kom kurt-
eislega fram við mig, alókunnugan
mann, en kurteis framkoma við ó
kunnuga þykir sjáifsögð í Suður-
Afríkubæjum. Og ég varð mjög var
við hina miklu hlýju, sem menn
báru f brjósti til Helenar. Það var
engu líkara en fólk Iiti á hana sem
barn, sem lent hefði í mikilli hættu
og væri nú heim komin heilu og
höldnu. Og þótt menn væru haldn-
ir nokkurri vantrú á allt, sem var
fjarlægt Plettemburg-vík, virtust
menn hamingjusamir yfir, að hún
var gift.
Ákaflega viðfelldin kona, allmjög
við aldur, eigandi einnar verzlunaj-
innar, faðmaði hana að sér, og
sagði: „0, elsku barnið mitt, —
slepptu Englendingar þér aftur, eft-
ir allt saman?“
Helena hló, er konan hafði mælt
þetta, og faðmaði hana að sér, og
sagði um leið og augu hennar ljóm-
uðu:
— Ég hef verið að heiman í 4
ár, — en sjáðu hvað ég veiddi með-
an ég var í Englandi.
Konan, frú Boersma, horfði S
mig, skoðaði mig frá hvirfli til ilja,
rannsakaði augun, en svipurinn var
samt móðurlegur:
— Sjáðu um að hann fái nógan,
góðan mat, væna mín. Þú mátt ekki
glata góðum manni.
Mér var sannast að segja farið
að líða vel, fólk tók mér svo vel,
eins og ég væri einn af því.
En svo, er við vorum á leið heim
til hádegisverðar, kom dálítið fyrir,
sem gerði mig svo undrandi, að
ég hef sjaldan orðið eins forviða á
ævinni. Við höfðum skilið .bilinn
eftir á verkstæði til lítils háttar við-
gerðar og fengum okkur smágöngu,
hönd I hendi, eftir gangstétt með-
fram aðalveginum gegnum bæinn.
Við komum allt í einu að litlu bíla-
viðgerðar-verkstæði, mjög óásjá-
legu, nálægt vegamótum, og Hel-
sna virtist allhissa.
— Þetta er nýtt, sagði hún, þótt
tiér sé annars ekkert nýtt af nál-
inni eftir útlitinu að dæma.
Maður nokkur hallaði sér upp að
benzíndælu og starði niður hæð-
ina og út á sjóinn, eins og við-
utan. Ég leit sem snöggvast á þenn
an grannvaxna mann, sem kom
mér einhvern veginn kunnuglega
fyrir sjónir, svo að ég fór að virða
hann betur fyrir mér. Og allt í
einu mundi ég eftir honum. Ég
hafði bara ekki þekkt hann aftur
strax sökum þess hve breyttur
hann var, en þessi maður hafði
bjargað lífi mfnu tvívegis í Hollandi
í síðari heimsstyrjöldinni, en við
vorum þá hermenn í fallhlífasveit.
Hann var harðsvíraðastur allra og
hann var ávallt í okkar hóp kall-
aður „Martin morðingi", — svo
kaldrifjaður var hann.
Sá er munurinn á styrjaldartíma
og friðartíma, að á hinum fyrr-
nefnda eru menn þjálfaðir undir
mannvíg, sem þeir fá heimild til
samkvæmt ákvörðun ríkisstjórna
sinna. Það er hlutverk, sem þeir
eru skikkaðir til. Og menn verða
að vera slyngir í „listinni", — þess
vegna er þessi langa og fullkomna
þjálfun undir það. Og ef til vill
framar flestum einmitt fallhlífaher-
mennirnir — mennirnir í víkinga-
hersveitunum. Nú fannst mér orð-
ið langt síðan þetta var — þótt
árin' væru raunar ekki ýkja mörg,
er við Martin vorum saman í Hol-
landi, Það var nú hræðilegt um að
hugsa, hvernig við höfðum verið
þjálfaðir undir það, sem við höfð-
um orðið að gera — til þess að
gera okkur hæfa til þess að náð
yrði hinu göfuga marki, að sigra í
styrjöldinni. Ég komst svo hátt, ef
ég má orða það svo, að ég varð
jhöfuðsmaður í einni víkingasveit
:flotans, landgöngusveit, sem barð
ist allt frá Walcheren-ey, Hollandi,
jtil Salerno á Italíu. Ég man fyrst
I eftir George Martin, sem algerlega
jóþjálfuðum nýliða lágvöxnum,
j grönnum.’Hann kom til okkar ein-
hvern tíma sumars 1943. En hann
var ekki óreyndur lengi. — Hann
þjálfaðist svo fljótt, að furðu
gegndi— • - iíirnrt/iiitiii ni'iij
Um þetta Ieyti var það hlutverk
flokks míns að kanna varnir fjand-
mannanna handan Maas-fljóts, en
könnunarhlutverk okkar átti að
jvera forspil að því, að mikið lið
yrði sett á land. Til þess að gegna
þessu hlutverki var iðulega farið
í smábátum yfir fljótið í skjóli
myrkurs. Við framkvæmd þessa
hlutverks var mikilvægast að koma
að fjandmönnunum, varðmönnum
þeirra, óvörum, — koma aftan að
þeim, grípa fyrir munn þeirra um
leið og stungið var rýting í bak
þeirra, kyrkia þá, draga burt með
okkur hálfdauða fanga, — allt í
skepnustigs-kæruleysi fyrir mann-
legu Iífi, en við vorum að vinna
að sigri föðurlands okkar og við vor
um stoltir af leikni okkar og af-
rekum.
George Martin var fljótastur allra
að læra þessar bardagaaðferðir —
Hann þótti sannast að segja svo
efnilegur þegár í byrjun, að f fyrsta
sinn er hann varð manni að bana,
hlaut hann morðingja-viðurnefnið
og það festist við hann. Hann varð
slyngur að beita hvers konar brögð
um við mannvígin, — en ýmis
brögðin, meðal annars judo brögð,
kenndi ég honum. Og brátt fór að
bera á því, að hann blátt áfram
hlakkaði yfir því, er hann fékk tæki
færi til mannvíga. Ég sá hann einu
sinni skjóta sjö skotum í maga á
þýzkum hermanni, sem ekki var
nógu fljótur til þess að lyfta upp
höndum og biðjast griða.
En Martin morðingi hafði tvíveg-
is án nokkurs vafa bjargað Iífi
mínu, einu sinni með þvf að vera
nógu fljótur til þess að grípa til
byssunnar, — í annað skipti með
því að beita byssustingnum.
Og nú, á götu í suður-afrísku
þorpi, gekk ég til hans, rétti fram
hönd mfna og sagði hressilega, f
tón hins gamla stríðsfélaga:
— Sæll, „morðingi".
Ég geri ráð fyrir, að Martin hljóti
að hafa verið eins undrandi og ég,
þvf honum varð blátt áfram bilt við,
er ég ávarpaði hann, og ég hélt f
svip, að hann ætlaði að hoppa í
loft upp. Hann kippti höndunum
úr vösunum svo snöggt, að það
minnti mig glöggt en ekki skemmti-
lega á liðna tímann, en þar næst
horfði hann á mig fast og lengi,
dró svo andann djúpt og sagði:
— Herra trúr, það er „skipper-
inn“
— Sæll, „morðingi", sagði ég
aftur.
Hann starði á mig lengi og sagði
svo:
— Orðið langt síðan ég hef ver-
ið ávarpaður með þessu strfðstíma
yið.urnefni, .......... . .. ’
Nú fannst mér tími til kominn
að kynna þau Martin og Helenu, en
hún vissi hvorki upp né niður. Ég
sagði henni í stuttu máli frá því,
að við hefðum verið félagar á víg-
stöðvunum, og meðan þau svo
skiptust á nokkrum orðum, virti
ég Martin nánar fyrir mér. Hann
hafði breytzt mikið á þeim árum,
sem liðin voru, síðan við skildum,
en vitanlega höfðum við allir
breytzt á þessum árum. En breyt-
ingin, sem orðin var á honum, var
fremur einkennileg. Það var allt
jafn ósnyrtilegt við hann og vinnu-
staðinn, óhreinleikans og sóðaskap-
arins blær á honum. Ég ályktaði,
að hér væri hermaður, sem hefði
sigrað á stríðstíma, en beðið ósig-
ur á friðartíma, og undir niðri í
huga hans æsing, og hann hefði
ekki enn viðurkennt ósigur sinn.
Hann minnti mig á hund, sem ligg-
ur í leyni undir einhverju, reiðu-
búinn að bíta í ökla þeirra, sem
fram hjá fara.
Þegar ég spurði hann hvað hann
hefði starfað síðan við skildum,
svaraði hann út f hött:
— Eitt og annað.
En svo bætti hann við:
— Gekk erfiðlega að setjast að
nokkurs staðar — var óeirinn. —
Hann benti á bilaverkstæðið.
— Haft þetta seinustu 2 — 3 árin.
— Hvernig gengur?
— Svona og svona.
Kona kom út úr útbyggingu —
ung kona, með uppgjafarsvip,
klædd ódýrum og óhreinum baðm-
ullarkjól. Martin kynnti hana sem
konu sína og svo stóðum við öll
þögul snöggvast, eins og allir sam-
ræðuþræðir hefðu slitnað.
— Martin bjargaði lffi mínu fyrir
mörgum árum, sagði ég svo og
Helena varð eitt bros og sagði:
— Þá á ég honum miklar þakkir
að gjalda.
— Það var fyrir mjög löngu síð-
an, sagði Martin og glotti við rétt
sem snöggvast.
Konan hans horfði á okkur, á-
hugalaus, án þess að reyna að kom
ast í nánari kynni við okkur með
því að segja neitt. Sólargeislarnir,
sem skinu á hið þunna, gulleita hár
hennar voru of leitandi og of bjart-
ir fyrir baðmullarkjólinn.
— Jæja, Martin, sagði ég. Ég
verð héma 3 — 4 vikur. Við spjöll-
um betur saman síðar.
— O.K., skippari, sagði Martin.
Við Helena kvöddum þau og
jhéldum áfram göngu okkar. I
— Fremur dapurlegt, sagði Hel-
ena.
— Já, sagði ég. Hann hefur ekki
haft heppnina með sér, eins og ég,
sem fékk þig.
Bílasala
Matthíasor
Stmai 2454I' - í4541
Mercedes Benz 180 190 og 220
1955-’64.
Chevrolet Chewelle ’64 lítið ekinn.
Ford Comet ’62, '63 og ’64 góðir
bflar
Consul Cortina ’62 og ’64, lltið
xeyrðir.
Opel Rekord ’58—’64.
Opej Caravan ’55—’64.
Volvo station ’55 ’59 ’62
Volvo Amason ’58 ’61 ’64
Saab ’62 ’63 ’64
Moskowitch '57—’64
Volkswagen ’56—’64
Austin Gipsy '62 ’63 benzfn og
diese! bílar
t.and Rover ’61 '62 ’63.
Volkswagen 1500 '62 '63 fólksbif-
reiðir og station.
Hillman Imp ’64, ókeyrður
Taunus 17 M ’62 ’63 ’64
Skoda Octavia ’59 ’60 ’61 ’62
Skoda 1202 station ’62
Willýs jeppar f miklu úrvali
Rambler Classic ’62 ’63
Ford fairline 500 ’60 ’64
Chevrolet ’58 1 1. fl. standi.
Höfum einnig mikið úrval af vöru-
bifreiðum. sendiferðabifreiðum
langferðabifreiðum og Dodge
Weaponum. allir árgangar.
W.’AV
Bílasala
Matthíasar
J QUICK., BULVO! MOIABUZZI HA.S OEPE&E7 A
PAKATKOOPEKS TO LEAVE... IN KIINETY-TWO
INNUTESl OUR CHIEF'S 6IVEN HIS INSTRUCTI0N5
BUT WANTS T0 TALK WITH YOU... ,-----
Á meðan ber glæpalýður hinn
ar fölsku verzlunarstöðvar Tarz
an og Tshulu meðvitundarlausa
til grafarinnar 1 skóginum. Þetta
er gott dagsverk, Nikko, segir
Bulvo, ég sagði Zud að útvarpa
til foringja okkar Mombuzzi
sendingunum, sem hann náði nið
ur á segulbandið. Zud hefur ekki
tíma Bulvo, við þurfum tvær
klukkustundir til þess að koma
af stað öllum tækjum hans og
fela þau í skóginum. Fljótur
Bulvo, segir Zud. Mombuzzi hef-
ur skipað fallhlífarmönnúnum að
leggja af stað eftir 92 mínútur.
Foringi okkar hefur gefið mér
fyrirskipanir en vill tala við þig.
SÆNGUR
REST-BEZT-koddar
Endurnýjum gömlu
sængurnar, eigum
dún- og fiðurheld ver.
Seljum æðardúns- og
gæsadúnssængur —
og kodda af ýmsum
stærðum.
DÚN- OG
FIÐURHREINSUN
Vatnsstfg 3. Sími 18740.
.v.w.v.w.w.%v.vww
VARALITUR
hlnna vandlátu
Neodon
Munið Neodon-þéttiefnin. Þau
eru margs konar til notkunar
eftir kringumstæðum
Beton-Glasúr á góll, þök og
veggi. Þolir mikið slit, frost og
hita og ve; steypu fyrir vatnl
og slaga og þvl að frostið
sprengi pússninguna.
Alla venjulega húsamálningu
höfum við einnig cg rúðagler.
Mólningarvörursf
Bergstaði.stræt< 19 . Simi 15166
T IL. SÖLU
2ja herb. íbúð, risíbúð við
Miklubraut.
2ja herb. fbúð á hæð við mið-
bæinn.
2ja herb. íbúð tilbúin undir tré-
verk við Ljósheima.
3ja herb. fbúð við Kleppsveg.
Þvottahús á sömu hæð.
3ja herb. fbúð við Kaplaskjóls-
veg. Gott heildarverð ef út-
borgun er rífleg.
3ja herb. íbúð við Hjarðarhaga
í sambyggingu, teppl fylgja.
4ra herb. ibúð 1 kjallara við
Nökkvavog. Utborgun 270.
þús.
4ra herb. íbúð við Kaplaskjóls-
veg. Nýleg íbúð, 1 stofa. 3
svefnherbergi og eldhús.
4ra herb. íbúð i Austurbænum
1 stofa, 3 svefnherbergi og
eldhús. íbúðarherbergi fylgir
í kjallara.
4ra herb. íbúð 143 ferm. fok-
held efri hæð, á nesinu f
Kópavogi.
Jón Ingimarsson lögm.
Hafnarstræti 4 símj 20555.
Sölum. Sigurgeir Magnússon
kvöldsfmi 34940
ÍVwtuti ?
prcntsmfðja & gúmmfstlmpIagerA
Elnholtl 2 - Sfml 20?í0 *