Vísir - 01.12.1964, Síða 2

Vísir - 01.12.1964, Síða 2
2 V í S í R desemfaer 1364. Sfaustmét S.R.R. > Haustmót SRR verður haldið í Sundhöll Reykjavíkur á mið- vikudagskvöld kl. 20.30. Keppt verður í sundknattleik, en þar leika tíi urslita Arínann og KR og í (5 sundgreinum, 100 m skriðsund karla, 200 metra bringusund karla. 100 metra baksund karla, 4x50 metra skriðsund karla, 100 metra bringusund kvenna, 50 metra skriðsund kvenna, og 3x50 metra þrísund kvenna. Mikiþ þátttaka er I mótinu, og má vænta fjörugrar keppni. ,Það varhlegið að okkur þá' Norræna •íslendisigar þurfa oð ganga ca. 125,000 km. til að eiga möguleika á að vinna bikarinn 1 Norræna skíðagangan verður haldin í vetur hvað sem tautar og raular. í fyrra stóð til að keppni þessi færi fram en snjór inn, frumelement skíðamanna og skíðaiðkunnar brást á öllum Norðuriöndunum að miklu Ieyti, nema helzt í Noregi, þar sem gangan fór fram að nokkru Ieyti. Nú hefur allt verið sett i gang aftur. Búið var að undirbúa mikinn áróður fyrir Norrænu skiðagöngunni og nú verður hann settur i gang aftur. Sagði Ölafur Þorsteinsson, formaður framkvæmdanefndar göngunnar blaðamönnum að göngunni væri ætlað það hlutverk að efia og auka skíðaíþróttina i löndunum og hvetja menn til að reynn hæfni sína. Hefði ganga sem þessi oftast sýnt að íþróttin hagnaðist verulega, áhugi al- mennings ykist að mun. Þetta er i fyrsta sinn, sem Island verður með í keppni þessari en áður hefur hún far- ið fram milli hinna Norðurland anna. Danir eru ekki með að þessu sinni. Til að sigra í þess- ari göngu verða a.m.k. 25 þús. íslendingar að ganga 5 kfló- metra hver, svo góð er þátttak- an hjá hinum þjóðunum að minni þátttaka nægir ekki til sigurs. Sem sagt 125.000 km. og hinn veglegi verðlaunabikar verður okkar. Á Islandi hefur landsganga á skíðum farið fram tvívegis og geflzt vel. í fyrra skiptið gengu 23.235 og í hið seinna 16.056 en þá spillti snjóleysi mjög fyr- ir framkvæmd hér syðra. Nú er einnig keppt milli sýslna og kaupstaða og verða verðlaun veitt þeim kaupstað sem hlýtúr hæstu hundraðstöiu og sömuleiðis þeirri sýslu sem hæst verður. fyrrverandi sýnir hér ásamt félögum sinum um næstu helgi. Heioisfrægir badminton- menn til Reykjawíkur > Um næstu helgi koma hingað til Reykjavíkur fjórir af beztu badmintonmönnum Dana og sýna hér badminton eins og það gerist bezt i heiminum í dag, en einn bessara manna er Erland Kops, fyrrverandi heimsmeistari i þessari íþrótt, en með honum koma hingað bróöir hans, Torben, Svend Ander- ^en og Henning Borch. *> Þeir félagar leggja upp frá Kaupmannahöfn á fimmtudaginn >im hádegi með Flugfélagi íslands og dvelja hér yfir helgina, sýna íþrótt sína hér og keppa sýningar- leiki. í gær voru 30 ár liðin frá þvi að 11 ungir menn komu saman til fundar í Reykjavík i þeim tilgangi að stofna golfklúbb, þann fyrsta, sem stofnaður var á fslandi, „Það var hlegið að okkur fyrst“. sagði Hallgrímur Fr. Haligrimsson, forstjóri Skeljungs h.f., „fólk sagði að við værum vitlausir að vera að berja boltann og hlaupa eftir honum“. En þetta breyttist. Brátt urðu fleiri og fleiri „vit- lausir“ og nú eru félagar f Golfklúbb Reykjavíkur 225 tals- ins og sú tala stöðugt vaxandi. Að auki starfa fjórir golfklúbb- ar aðrir i landinu. Golfklúbburinn var ekki nema 2ja ára þegar hann fékk úthlut- að svæði á öskjuhlíðinni fyrir starfsemi sína. Þarna voru 9 holur, en fyrir tveim árum urðu golfmenn að vfkja fyrir stórbyggingum, sem þrengdu að vellinum á allar hliðar. í Graf- arholtslandi eru nú nothæfar 12 holur, en þarna á að verða full- kominn 18 holu völlur í fram tíðinn'i Golfskálinn við þennan nýja og glæsilega völl er fok- heldur. Það hafa orðið miklar fram- farir á þessu sviði sem öðrum eftir því sem tímarnir breytast Það verður mikil breyting þeg- ar golfmenn geta tek'ið hinn nýja golfskála { notkun ásamt hinum glæsilega golfvelli full- búnum, enn stærra stökk jafn- vel en þegar þeir fluttu úr Laúgá’rdálhum I öskjuhiiðíná'. en í Laugardal stendur i raun- — Segir Hallgrimur Fr. Hallgrimsson, einn af frumkvöðlum golf- /jbróftarinrar á Islandi, sem festi hér rætur fyrir 30 árum inni vagga golfíþróttarinnar. Aðalhvatamenn að stofnun golfklúbbs á Islandi voru Svéinn Björnsson (þáverandí sendiherra), Gunnlaugur Einars- son, læknir, Valtýr Albertsson, læknir. Eftirtaldir menn sátu undir- búnings-stofnfund Golfklúbbs íslands 30. nóv. 1934: -Gunn- laugur Einarsson, læknir, fund- arboðandi, Valtýr Albertsson, læknir fundarboð., Ásgeir Ás- geirsson, fræðslumálastj., Björn ^ÓIafsson, stórkaupmaður, Eyj- 5 ólfur Jóhannsson, framkvæmaa-' :-*fstjóri, Gunnar Gu8ións.s<tey sk'ipamiðlari, Hallgrímur Fr. Hallgrímsson, forstjóri, Harald- ur Árnason, kaupmaður, Kjart,- an Thors, framkvæmdastjóii Magnús Kjaran, stórkaupmaður og Sveinn Björnsson, sendi- herra. Þessir menn sátu í fyrstu stjórn Golfklúbbs íslands (en hann hét svo fyrstu árin), kosn- ir á stofnfundi 14. des. 1934: Gunnlaugur Einarsson, lækni- formaður, Helgi H. Eiríksso.n, verkfræðingur, varaformaður. Gunnar Guðjónsson, skipamiðl- áfi,‘ rit'arí', Gbtfred Bernhöft, týr Albertsson, læknir, Eyjólf ur Jóhannsson, forstjóri og Guðmundur J. Hlíðdal, póst. og símstjóri. — Stofnendur 57. Núverandi stjórn Golfklúbbs Reykjavíkur: Þorvaldur Ás- geirsson, heildsali, formaður, Tómas Árnason, hrl. varafor- maður, Óttar Yngvason, laga'- nemi, ritari, Gunnar Þorleifs- son, bókbindari, gjaldkeri, Ing- ólfur ísebarn, múrari, Guð- mundur Halldórsson, húsgagna- bólstrari og Páll Ásg.-Tryggva- son, deildarstjóri í utanríkisráðu neytinu. — Félagatala 1964: OO5 Emilía Björnsdóttir, símamær á Visi, sýnir hér auglýsingaspjald frá Norrænu skíðagöngunni. Spjöldum þessum verður dreift mjög víða í auglýsingaskyni.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.