Vísir - 08.12.1964, Blaðsíða 8
8
V í S IR . Þriðjudagur 8. desember 1964.
VISIR
Otgefandi: Blaðaútgáfan VISIR
Ritstjóri: Gunnar G. Schram
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson
Fréttastjórar: Þorsteinn Ó Thorarensen
Björgvin Guðmundsson
Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178
Auglýsingar og afgreiðsla ingólfsstræti 3
Áskriftargjald er 80 kr. á mánuði
I lausasölu 5 kr. eint. — Sími 11660 (5 línur)
Prentsmiðja Vísis — Edda h.t
Norrænn fjárfestingarbanki
Ilír í blaðinu í gær skýrði fjármálaráðherra, Gunnar
Thoroddsen, frá áætlunum, sem ræddar voru á fundi
norrænufjármálaráðherrannaum stofnun norræns fram
kvæmdabanka. Á fundinum í Khöfn benti Gunnar
Thoroddsen á þá miklu þýðingu sem slík stofnun gæti
haft fyrir ísland, stofnun, sem veitti aðsoð, fyrir-
greiðslu og ábyrgðir í sambandi við lánsútveganir er-
lendis. Auk þess yrði slíkur banki eða sjóður mikil-
/ægur hlekkur í norrænni samvinnu. Verður mál þetta
;ekið upp til umræðu á fundi Norðurlandaráðsins, sem
íaldinn verður hér í Reykjavík í febrúar í vetur.
|>að er ekki að efa, að framkvæmd þessa áforms
nundi verða mikilvæg fyrir íslendinga. ísland er í
hraðri uppbyggingu, en fyrir löngu er ljóst, að sú upp-
hygging verður ekki framkvæmd einungis með inn-
endu fé. Erlent lánsfé er hér þýðingarmikil lyftistöng.
/ieð því verða framkvæmdir allar hraðari óg unnt er
ið hefjast handa á mörgum vettvöngum í senn. Er þess
ikemmst að minnast að hvílíkum notum enska lánið
jvonefnda kom, er 250 milljónum króna var veitt til
nargháttaðra framkvæmda í atvinnuvégurh lahdsins.
Jgglaustmundi slíkur norrænn fjárfestingarbanki fyrst
)g fremst koma okkur íslendingum og Finnlendingum
íð notum. Erlent fjármagn er fyrir löngu orðið virkt
ramkvæmdaafl í efnahagslífi hinna Norðurlandanna,
nda hafa þau lengi sótt eftir því á fjármagnsmörkuð-
ím álfunnar. Þess vegna er það eðlilegt, að við
slendingar bindum nokkrar vonir við hugmynd-
na um þessa norrænu fjármagnsstofnun, ekki sízt
/egna þess að almennur skilningur er nú loks að skap-
ast hér á landi á því að erlent fjármagn er til þurftar
en ekki óþurftar í efnahagslífi þjóðarinnar.
Milljarður Timans
Tramsóknarflokkurinn hefur lengi séð ofsjónum yfir
vexti og viðgangi Reykjavíkurborgar. Ástæðan er sú,
að þar hafa miklar og stórstígar framfarir átt sér stað
á skömmu árabili undir stjóm Sjálfstæðisflokksins.
Framsóknarmenn hafa þar hvergi komið nærri. Fyrir
vikið notar Tíminn hvert tækifæri sem gefst til þess
að ófrægja höfuðborgina og stjóm hennar. Síðasta
dæmi þess mátti sjá á föstudaginn, er Tíminn lýsti því
yfir, að „Borgarar greiði milljarð“ samkvæmt nýju
fjárhagsáætluninni. Átti þetta að vera dæmi um gjald-
þyngsli Reykvíkinga. Þessa háu tölu fann Tíminn
þannig út að reikna afnotagjöld almennings fyrir raf-
magn, kalt og heitt vatn og aðra venjulega þjónustu
með opinberum gjöldum. Slík reikningslist er auðvitað
fráleit og hér er skrökvað um einar 400 milljónir. Nið-
urstöður fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar em
uefnilega ekki nema rúmar 600 milljónir. Afganginum
nefur Tíminn bætt við á þann snilldarlega hátt að taka
rafmagnið og vatnið með í reikninginn!
Noröurljós yfir Rjúpnahæð við
Reykjavík, þar sem önnur norður-
Ijósaljösmyndavélin er nú staðsett.
Hvergi er betri aðstaða til
norðurljósarannsókna en á ís-
landi, og áhugi á rannsóKn
þeirra verður æ meiri og rann
sóknin sjálf þýðingarmeiri með
tilliti til hinna nýju geimvís-
inda og geimferða. Það er þvi
í fullu samræmi við kröfur tím
Stórauknar norð-
urljósaathuganir:
►
10-20 rannsóknamenn víða
um land og ný
handbók
ans að íslendingar hafa veitt ó-
venjuháa visindastyrki til þess
ara rannsókna og að fengnar
hafa verið til landsins risastór
ar myndavélar, til að ljósmynda
norðurljósin reglulega eins og
nýverið var getið hér í blaðinu.
Dr. Þorsteinn Sæmundsson,
stjamfræðingur hjá Eðlisfræði
stofnun Háskóla islands, sem
rannsóknarstyrkinn hlaut úr
Vísindasjóði, stjórnar þessum
rannsóknum á norðurljósunum
hér á landi og hefir nú gefið út
handbók um norðurljósaathug-
anir. Hann hefir feinnig fengið
sér til aðstoðar 10 rannsóknar-
menn ,y;ða un^rttf oafcefur
hug á að tvöfaldfe wívd— 1
formála handbókarinnar segir,
að hún sé einkum ætluð þeim,
sem hafi hug á að vinna að
norðurljósarannsóknum á Is-
landi og sé þess vænzt að hún
verði til að stuðla að auknum
rannsóknum hérlendis á þessu
sviði.
Handbókin um norðurljósin
er gefin út með styrk úr Vís-
indasjóði og er henni skipt í
tvo hluta. Fyrri hlutinn fjallar
um eðli og einkenni norður-
ljósa og skýrir markmið rann-
sóknanna. Þar segir frá norður-
ljósum og suðurljósum, hæð
norðurljósa — sem eru 10 simi
um ofar skýjum og langt ofan
við öll veðrabrigði — frá or-
sökum norðurljósa og fyrirbær-
um, sem eru skyld þeim, frá
litum í norðurljósum, frá útliti
og háttum þeirra og loks segir
frá gildi og tilgangi norðurljósa
athugana.
Seinni hluti norðurljósabækl-
ingsins er útskýring á binu
Nvfe tóknkefifi* sem no't^i tsk^ji
%^%orðuri|<fc«?in og
gekk í gildi við uppháf'hins al
þjóðlega sólkyrrðarárs, 1. jan
úar 1964, en sólkyrrðarárið er
raunar tvö almanaksár, til loka
1965. Þegar hafa 10 menn í öll-
um landsfjórðungum gerzt að
stoðarmenn eða rannsóknar-
menn við norðurljósaathuganir
þær, sem eru að hefjast, en þær
byggjast ekki aðeins á mynda
tökum f himinhvolfinu heldur
og á sjónathugunum og lýsing
um glöggra manna sem gera
þær sjónathuganir. Ætlunin er
að fá ennþá fleiri greinargóða
áhugamenn og rannsóknarmenn
til að taka þátt í hinum kerfis
bundnu norðurljósarannsókn-
um hér á landi jafnvel að fjölga
athugunarmönnunum um helm
ing, svo að þeir verði t.d. um
20 að tölu. Athugunarmenn fá
að sjálfsögðu hina nýju norður
ljósahandbók í hendur ásamt
sérstökum eyðublöðum og leið
beiningum um útfyllingu þeirra
ekki óáþekkt og gera þarf við
veðurathuganir. ■■ -ns
Tilgangur og gildi norður-
ljósaathugana:
I hinni nýju handbók um
norðurljósaathuganir segir m.
a. um þetta atriði:
Sambandið milli norðurljósa
annars vegar, og jarðstrauma,
segulstorma og háloftatruflana
hins vegar, er eingöngu þekkt
í höfuðdráttum. Sama er að
Framhald á bls. 4.
Hlutar úr norð
urljósa'ilmum.
Hver einstök
mynd sýnir allan
himk '.nn niður
að sjóndeildar-
hring.