Vísir - 17.02.1965, Síða 1
I
55. árg. — Miðvikudagúr 17. febrúar 1965. — 40. tbl.
Votnavextir
Norðanlands eru miklir vatna-
vextir þessa dagana vegna hlýind
anna sem komu strax eftir bylinn
á dögunum.
Má segja að allar ár og sprænur
séu 1 foráttuvexti og hafa sums
staðar flætt yfir vegi eða valdið
spjöllum á vegum, en hvergi svo að
til vandræða horfi eða til meiri
háttar vegaspjalla hafi komið.
LOGÐ MEGINAHERZLA A
EFUNGUEJ. T.A.
í morgun afgreiddi Efnahags-
málanefnd Norðurlandaráðs álit
sitt varðandi norrænt efnahags-
samstarf, þátttöku í EFTA og
varðandi hinn brezka 15% toll.
Samkomulag varð í nefndinni
um það að bera ekki fram gagn-
rýni eða vítur á Breta fyrir toll
inn, heldur gðeins að vinna að
því að brezki tollurinn verði hið
bráðasta afnuminn.
Þá er lagt til að stuðlað verðí
að eflingu EFTA og útvíkkun
efnahagssamstarfsins inan EFT
A, ennfremur að athugaðir verði
möguleikar á að EFTA styðji til
raunir til útvíkkunar verzlunar-
samstarfs Evrópu. Umræður hóf
ust um þetta mál í morgun og
hafði Bert'ii Ohlin frá Svíþjóð
framsögu í því.
Það er sýnilegt af þessu sam
komulagi í efnahagsmálanefnd
inni, að Norðurlöndin treysta
enn sem fyrr á samstarfið í
EFTA og vilja að það leiði til
• sawteiningsr- og samkomulags
við Efnahagsbandalagið.
Tillaga nefndarinnar, sem
mun verða samþykkt í ráðinu
er svohljóðandi:
Norðurlandaráð vísar því til
ríkisstjórnanna
1) I þeim ríkjum sem eru að-
ilar að EFTA að þær vinni sam
an að því á væntanlegum ráð-
herrafundi í EFTA að tryggja að
hinn brezki innflutningstollur
verði afnuminn skjótt og alger-
lega.
2 að þær vinni að frekari (þró
un hins efnahagslega samstarfs,
— einnig varðandi landbúnaðar
og sjávarútvegsvörur — ;nnan
EFTA og sé tekið tillit til sér-
stakra aðstæðna í hverju landi,
3) að ríkisstjórnirnar athugi
alla möguleika til að gera EFTA
hæfara að styðja viðleitnina til
að tryggja útvíkkuð evrópsk
verzlunarviðskipti,
4) Þá beinir ráð'ið því til
allra ríkisstjórnanna að halda á-
fram viðleitninni á að útvíkka
efnahagssamstarf Norðurlanda
innan ramma EFTA.
Lagercranz afhent verðlaunin
VERÐLA UNÍN 0G NORRÆNA HÚS-
IÐ VORU AFHENT í GÆRKVELDI
í gærkvöldi var haldin mikil
og vegleg hátíðasamkoma Norð-
urlandaráðs í Þjóðleikhúsinu,
þar sem það tvennt fór fram,
að bókmennta- og tónlistar-
verðlaun Norðurlandaráðs voru
afhent og að íslandl var af-
hent hið svokaUaða Nörræna
Á fundi Norðurlandaráðsins í gær. Sendiherra Finnlands á íslandi, frú T.L. Leivo-Larsen ræð
ir við Gunnar Thoroddsen fjármálaráðherra og A. Cappelen, fjármálaráðherra Noregs.
hús, sem nú er farið að byggja
-hér að frumkvæði Norðurlanda-
ráðs.
Athöfnin hófst með því að
Sigurður Bjarnason forseti Norð
urlandaráðs setti hátíðina. Hann
mælti m.a. á þessa leið:
Tilgangur Norðurlandaráðs
með veitingu listayerðlauna er
í senn sá, að örva hina skap-
andi list meðal norrænna
þjóða og stuðla að aukinni
þekkingu fólksins á norrænni
íist. Bókmenntirnar geyma nor
ræna sögu og menningararf.
■ „Blindur er bóklaus maður,“
segir gamalt íslenzkt máltæki.
Sá maður er alislaus og ósjá-
andi, sem enga bók á.
Virðingin fyrir bókinni, frá-
sögn hennar af örlögum ein-
staklinga og þjóða, sögu kyn-
slóðanna er Norðurlandabúum
í blóð borin. í.henni varðveit-
ist sál mannsins í umróti ald-
anna. Hún endurspeglar gleði
og þjáningu, vit og vanþroska,
dýpstu rök mannlegra tilfinn-
inga, trúar og vantrúar.
, Um stöðu hljómlistarinnar í
ríki listanna. hefur verið sagt,
að hún sé drottning drottning-
anna meðal þeirra. Möguleikar
hennar til þess að túlka mann-
legar tilfinningar eiga sér eng
in takmörk. Hún frjóvgar hug
ann og lýkur upp töfraheímum
fegurðar og hreinleika. í tón
um hennar birtist í senn kraft
ur stormsins, kvak smáfuglsins
og hlátur eða grátur barnsins.
í henni bregður fyrir heiðum
himni sumarsins og þrumum og
eldingum óveðursins.
Jafnvel eldgos úr iðrum
jarðar getur bergmálað í verk
um tónskáldanna.
BÓKMENNTAVERÐLAUN
AFHENT
Jóhs. A. Dale flutti erindi
um höfvindana Olof Lager
crantz og William Heinesen
Að lokum sagði Dale, að í ár
sé verðlaununum skipt — senni
lega I fyrsta og seinasta skipti
— milli tveggja rithöfunda og
tveggja bóka. Þess vegna vilji
hann undirstrika, að þrátt fyrir
það ,að peningaverðlaununum
sé skipt, þá eigi hvor verðlauna
hafanna þökk okkar óskipta.
Eftir að forseti Norðurlanda
ráðs hafði afhent Lagercrantz
verðlaunin flutti hinn sænski
Framh. á bls. 6
BLAO'O ' DAG
31s. 2 Hjónaband Ringós
er hryggðarefni
— 3 Ný smásaga eftir
Heinesen
— 7 Fundir Norður-
landaráðs
— 9 Herranótt, leik.
dómur
— 11 Fellur Reykjavík
urlið í 2. deild?
INNBROTAFARALDURIBÆNUM
Allmikið hefur verið um inn-
brot hér í borg að undanfömu.
Eitt innbrotanna var í Isa-
foldarprentsmiðju í Þingholts-
stræti 5 aðfaranótt laugardags-
ins. Hafði þjófurinn farið um all
ar hæðir byggingarinnar og leit
að að verðmætum í hverri hirzlu
læstri sem ólæstri, þ. á m. i kaffi
skápum starfsfólksins, skrifborð
um og víðar. Er talið að hann
muni hafa haft nokkur þúsund
krónur upp úr krafsinu.
Á föstudagskvöldið, á tímabil
inu frá kl. 19.15-20.15 var
brotizt inn í Þvottahúsið Lín að
Hraunteigi 9 með þeim hætti
að brotin var upp hurð. Þaðan
var stolið um 20 krónum í smá-
mynt.
Brotizt var inn í Bókaverzlun
Lárusar Blöndals á Skólavörðu-
stíg um helgina. Höfðu rúður
verið brotnar í hurð bakdyra-
megin og síðan skriðið inn. Stol
ið hafði verið einhverju smáveg-
is af skiptimynt úr peninga-
kassa, ennfremur pennasettum
o. fl.
Síðastliðinn föstudag kærði
maður yfir því við rannsóknar-
lögregluna, að stolið hefði verið
akkeriskeðju af skipi, sem hann
hafði átt um skeið, en var í þann
veginn að selja. Sjálfur hafði
hann keypt þessa akkerisfesti
úr gömlum braggagrunni við
sunnanverða Öskjuhlíð, og þar
hafði hún legið í hirðuleysi ár-
um saman. Fyrir nokkrum dög-
um hafði svo um samizt við
borgaryfirvöldin, að þau keyptu
af honum festina og fór verk-
stjóri frá borginni á staðinn til
að skoða hana. Þá var hún kyrr
á sínum stað. En nú í lok síðustu
viku, þegar átti að sækja hana,
var hún allt í einu horfin.
Þarna hlýtur annaðhvort
kranabíll að hafa verið að verki
eða þá nokkurt margmenni við
Framh. á bls. 6
Ý