Vísir - 17.02.1965, Page 2
V1 S IR . Miðvikudagur 17. febrúar 1965.
SÍÐAN
stæðum, sem Ringo giftist hár-
greiðslukonu heldur af hreinni
og djúpri ást að sögn erlendra
fréttastofnana.
-K
X-
Það þurfti annars ekki að
koma á óvart að Ringo gengi út,
því hann var búinn að vera trú-
lofaður Maureen í eitt og hálft
ár, — átta dögum eftir að hann
var einn af hinum frægu Beatl-
es. Og það er einmitt á þessum
18 mánuðum, sem Beaties hef-
ur virkilega hlotið vinsældir. Og
það er mikið Ringo að þakka.
*
Á fimmtudaginn grétu litlar
stúlkur um alian heim. Tilefnið?
„Bítiil númer eitt“, — Ringo
Starr — gekk í heilagt hjóna-
band. Innst inni höfðu milljónir
ungra stúlkna gert sér smá von
um að standa frammi fyrir prest
inum og játa með ákafa spurn-
ingu hans um hvort hún vildi
ganga að eiga þennan mann.
Sú, sem hlaut hnossið, heitir
Maureen Cox. Hún er 18 ára
gömul og er hárgreiðslukona.
Það var ekki af praktískum á-
Herra og frú Beatles fóru í
stutta brúðkaupsferð, en voru
Ringó og frú Maureen.
HJÓNABAND RINGÓS HRYGGÐ-
AREFNI MILLJÓNA STÚLKNA
komin aftur til London á mánu-
dag, en þá hófst kvikmyndataka
á nýrri Bítlamynd. Raunar voru
þau búin að taka forskot á sæl-
una í sumar, þvi þá fór Maureen
með Bítlunum í afslöppunarferð
til Jómfrúareyjanna í Kyrrahati
(Virgin Islands).
>f
ið sér inn eitthvað um 2000
milljónir króna síðan þeir byrj-
uðu. Sjálfir hafa þeir fengið
sinn hluta af öllu, því þótt að
tennur skattayfirvaldanna séu
beittar, ná þær ekki öllu og
sagt er, að 1964 hafi hver þeirra
um sig fengið í sinn hlut um
160 milljónir króna, — þegar
þeir voru búnir að borga öll
gjöld og skatta.
Þessi litla stúlka brast í óstöðvandi grát, þegar hún frétti um hjónaband bítilsins Ringó Starr
eða Richard Starkey, eins og hann mun heita. Þannig voru viðbrögð ungra stúlkna víða um
heim.
Hjónaleysin voru gefin saman
í ráðhúsinu í Liverpool og þar
voru aðeins foreldrar þeirra
og tveir úr Bitlahljóm-
sveitinni, þeir George Harrison
og John Lennon. Bæði eru þau
hjónin kornin af sárafátækum
verkamannafjölskyldum í Liver-
pool, en þau þurfa sennilega
ekki að kvíða framtfðinni.
Daily Mail upplýsti fyrir
nokkru, að Bitlarnir hefðu unn-
*
Maureen litla þarf þvf engu
að kvíða, en hún hefur samt
orðið til þess að aðdáendur
Ringos hafa orðið fyrir mikilli
sorg, a. m. k. stúlkumar.
*
HUNDALÍF í U.S.A. í Kári skrifar:
£ • '
Amerfskir hundar hafa það ekki
of gott. Að vísu vilja eigend-
ur þeirra flest fyrir þá gera, og
það er einmitt það, sem að er
Mjög algengt er að hundar séu
látnir sofa í sérstaklega sniðn-
um flónelsnáttfötum á hitapúð-
um, sem eru hitaðir með raf-
magni, ef þeir hafa þá ekki feng
ið sitt e’igið litla tjald með mad-
ressu, en þau kosta litlar þús-
und krónur ef eitthvað er f þau
spunnið.
Ef hundur yfirstéttarfólks fær
að fara með f vetrarfriið, hvort
heldur farið er til St. Moritz
eða bara Squaw Valley, þá er
saumaður sérstakur skíðafatnað
ur á hundkvikindið. Einnig er
svona nokkuð til í verzlunum
tilbúið á ca 400 krónur hver
nylon skíðajakki á hund. Fyrir
litla kjölturakkann sem fer ekki
nema örsjaldan út, er hægt að
fá eyrnaskjól með bjöllum. Verð
aðeins 200 krónur.
Hundar, sem eru teknir með
í kokteil-veizlur, eru búnir upp
í tilefni dagsins. Þeir eru með
kokteil-hálsband úr flaueli, en
fyrir karlkynið er líka til lftill
flibbi með slaufu. Verð mjög
skaplegt, eða um 200 krónur.
Litashampoo er til í fjöl-
breyttu úrvali á 100 krónur
flaskan, og þeir rfkustu láta
skipta um lit á hundum sínum
vikulega.
Einn „andvaka“ hefur sent
Kára orðsendingu og beðið hann
að koma á framfæri kvörtun út
af bílflauti á nóttum.
Hann kvaðst senda blaðinu
þessa umkvörtun vegna þess að
stöðvarbíll hafi staðnæmzt fyrir
utan næsta hús kl. 4 að nóttu
til að taka farþega. Farþegarnir
hafi sennilega verið eitthvað
seint fyrir, en þá hafi viðkom-
andi bílstjóri látið flautuna
ganga án afláts og ekki hætt
fyrr en fólkið kom út.
Þolir ekki vansvefti.
„Andvaka" sagði, að það væri
ekki af geðvonzku einni eða úr-
illsku að hann kvartaði. Hann
væri veill fyrir hjarta og þyldi
illa vansvefti, sízt af öilu þyldi
hann skyndihávaða á nóttu, því
þá vaknaði hann fengi öran
hjartslátt og um svefn væri ekki
að ræða úr því.
Ámælisvert og varðar
við lög.
Kári telur sig geta frætt „And
vaka“ á því, að samkvæmt lög-
reglusamþykkt Reykjavfkurborg
ar er bifreiðum óheimilt að
þeyta hom að nóttu og varðar
við lög ef bílstjórar eru staðnir
að þessu. Ef skrásetningarmerki
viðkomandi bifreiðar næst er
sjálfsagt að kæra málið fyrir
lögreglunni.
Hins vegar tekur Kári það
fram, að hann telur það furðu-
legt að nokkur leigubílstjóri
skuli gera sig sekan um slíkt
athæfi og telur það enn ámæl-
isverðara hjá þeim heldur en ein
hverjum unggöpum, sem ekki
hafa vanizt að taka tillit til
eins eða ne’ins.
Leifar eftir áramóta-
brennur.
Þá vill Kári vekja athygli
borgaryfirvaldanna á öðru atriði
sem varðar fyrst og fremst út-
lit og hreinlætissvip Reykjavik-
urborgar. Það er í sambandi við
áramótabrennur.
Áramótabrennur, sem leyfðar
ar eru af hálfu borgaryfirvalda,
fjölgar með hverju árinu sem
líður og fylla vafalaust hundrað-
ið áður en langir tímar líða.
Nú er það svo, að eftir hverja
brennu verður ýmislegt eft’ir af
ýmiss konar drasli, auk ösku,
sem ekki hefur og ekki getur
bmnnið. Þessa gætti með mesta
móti í vetur vegna mikilla snjóa
og skafla umhverfis marga kest
ina. Þetta hefur vafalaust víðast
hvar verið hreinsað, enda nauð-
synlegt og sjálfsagt að gera það.
Stakkstæðið við
S j ómannaskólann.
En það er þó a. m. k. einn
staður, sem ekki hefur verið
hreinsaður. Það er stakkstæðið
vestan v’ið Sjómannaskólann.
Þétta svæði er á ýmsan hátt
skemmtilegt, stakkstæðið ber
minjar um atvinnuhætti, sem nú
em að mestu eða öllu horfnir
hér í Reykjavík.
í öðm Iagi er fallegt útsýni,
mikið og vítt af þessu svæði. 1
þriðja lagi á fjöldi fólks leið
um það, m. a. stór hópur nem-
enda og annarra sem vinna í
Sjómannaskólanum.
En þarna er fullt af drasli,
ekki aðe’ins ösku, heldur fjölum,
járnarusli, pappa- og pappfrsleif
um og öðru þess háttar.
Þetta þarf og verður að
hverfa.