Vísir - 17.02.1965, Blaðsíða 4
VjSIR . Miðvikudagur 17. febrúar 1965.
MÖRG EGG í SÖMU FLUG-
VÉL SEM GÁTU BROTNAÐ
Dönsku blöðin hafa að und-
anfömu rætt allmikið um bil-
unina, sem varð í leiguflugvél
Loftleiða, er hún var lögð af
strað frá Kastrup-flugvelli með
danska ráðherra og þingmenn á
Norðurlandaráð. Ber þá fyrst að
geta þess, að það var aðeins einn
hreyfill sem skemmdist, en sam
kvæmt fréttum sem Vfsir hafði
í fyrsu um þetta mál, var þá
sagt að tveir hreyflar hefðu
stöðvazt.
Það var einkennileg tilviljun,
að það var sjálfur samgöngu-
málaráðherra Dana, Kai Lind-
berg, sem fyrstur farþegapna
varð þess var, að eitthvað var
að. — Ég heyrði smell, segir
hann, - síðan sá ég að einn
hreyfillinn stöðvaðist og rétt á
eftir kviknaði á merkinu um að (Einn þingmaðurinn sagði frá ein
spenna öryggisbeltin. Svo að af i kennilegri tilviljun, hann hafði
þessu þóttist ég mega ráða, að
eitthvað væri að.
Þegar þetta gerðist, voru flug
freyjurnar að undirbúa að veita
kaffi, en nú voru þær fljótar að
taka svunturnar af sér og ekk-
ert kaffi var veitt.
Ekki var að sjá neinn óróleika
á farþeguum, en þó var greini-
legt að menn höfðu ekki sömu
öryggistilfinninguna og áður.
Strax og flugvélin hafði lent,
hópuðust slökkviliðsbílar, sjúkra
bílar og aðrir öryggisverðir að
flugvélinni og fylgdu henni eftir.
Dönsku blöðín Segja að ráð-
herrarnir og þjngmennirnir hafi
tekið atburðinum með gaman-
semí eftir að beir voru l°ntir.
tekið með sér til skemmtilestrar
leynilögreglusögu og svo vildi til
að hún kallaðist „Dauðinn í
loftinu". Og menn minntust þess
að skömmu áður en lagt var af
stað, hafði K. B. Andersen sagt
í gamni, að nú þegar svo margir
ráðherrar og þingmenn væru
saman komnir í einni flugvél,
gæti verið komið tækifærið til
þeirrar „endurnýjunar" f stjórn-
inni, sem svo margir töluðu um
að væri nauðsynleg. Poul Möller
sagði að í þessari flugvél hefðu
verið saman komin mörg egg
sem 'gætu brotnað. Lis Groes
fyrrverandi ráðherra minntist
þess að hún og maður hennar
hefðu af tilliti til barnanna gert
Davids Thomsen forstjóri Loftleiða í Kaupmannahöfn ræðir
við Lindberg samgöngumálaráðherra, sem fyrstur varð var
við bilunina.
samkomulag um að ferðast
aldrei saman í flugvél.
Ot frá þessum hugleiðingum
ræða dönsku b'öð’n urn bað.
hvort það sé viðurkvæmilegt, að
svo margir ráðherrar og þing-
menn ferðist með sömu flugvél.
Fulltrúamir á Norðurlanda
ráði hafa verið önnum kafnir
þessa daga, sem ráðið hefur
setið á fundum. Þeir virðast
taka starfið allhátíðlega og
sitja stöðugt á nefndafundum
og á allsherjarfundum er
mjög vel mætt. Er eftirtakan-
legt hve mikill áhugi ríkir á
fundinum um viðfangsefnin,
og eins og allir séu samtaka
um að gera sitt bezta til að
vinna að auknu samstarfi
Norðurlandanna. Gefur það
manni sterka hugmynd um
það, að Norðurlandahugsjóp-
in sé ekki draumórar einir.
Þá hafa fulltrúamir líka
notað frístundir sínar til að
kynnast Islandi. Nokkur hóp
ur fulltrúa og starfsmanna
hefur t. d. skroppið austur á
Þingvöll, allmargir hinna
dösku fulltrúa, þeirra á með-
al Poul Möller, hafa farið í
heimsókn í Landsbókasafnið
til að kynna sér geymslu á
handritum þar.
í fyrrakvöld voru fulltrú-
amir í boðum í sendiráðum
sínum og skiptust þá einnig
um að bjóða þangað með sér
íslenzkum ráðherrum og full-
trúum.
I sænska sendiráðinu við „Smörgás“ borðið. Hér sjást m. a.: Erlander forsætisráðherra lengst
t. v., Gunnar Lange verzlunarmálaráðherra og Kling dómsmálaráðherra.
I danska sendiráðinu: Poul MöIIer ræðir við Bjame Paulsson
sendiherra.
I danska sendiráðinu, Guðmundur 1 Guðmundsson utanrikis-
ráðherra ræðir við K. B. Andersen menntamálaráðherra (og
handritaráðherra) Dana.
Kvöldboð í sendiráðunum