Vísir - 23.04.1965, Síða 3

Vísir - 23.04.1965, Síða 3
PlSIR . Föstudagur 23. apríl 1965. Víðnvnngshlaup ÍR: Aðeins einu sinni jafn- margir hlauparar í mark I gær vann Kristleifur Guðbj'órnsson glæsilegt og velheppnað Viða- vangshlaup — hið fimmtugasta i röðinni — KR og Skarphéðinn unnu sveitakeppnina Kristleifur Guðbjörnsson rann fyrstur í mark í 50. Víðavangs- hlaupi IR, sem fram fór í gær og lauk í Lækjargötunni fyrir neðan Menntaskólann þar sem milli 5-6000 manns horfðu á hlaupalokin, en það er án efa mesti áhorfendafjöldi sem horft hefur á þetta sögufræga hlaup. Á eftir Kristleifi komu tveir félagar hans úr KR, þeir Agnar Leví og bróðir Kristleifs, Halldór Guðbjörnsson. Aðeins einn kepp úr Breiðabliki, en Þórarinn Arnórs- son úr ÍR fór fram úr Hafsteini Sveinssyni að heita mátti á mark- línunni, en Marinó Eggertsson úr N.-Þingeyjarsýslu kom rétt á eftir Hafsteini í mark. Komu nú keppendur hver af öðr- um í mark, og skiluðu sér allir, sem lagt höfðu af stað og er það óvenjulegt. Voru keppendur 33 tals- ins og hafa aldrei svo margir kom- ið í fnark síðan 1932 og er það mesti fjöldi sem komið hefur í mark í hlaupinu. Var hlaupið í alla staði glæsilegt og sýnir að það er hægt að halda fjölmennt víðavangs- hlaup hér, aðeins ef unnið er að því að fá menn til þátttöku nógu tímanlega. Þátttaka Reyk- víkinga í hlaupinu varð reykvísk- um íþróttum til skammar, — að- eins fjórir menn, en 29 utanbæjar- menn. Það virðist nokkurs konar ,,motto“ hjá reykvískum íþrótta- mönnum að taka aðeins þátt í því skyni að sigra. Eftir hlaupið var haldið afmælis- hóf og mættu þar þátttakendur, starfsmenn og fleiri gestir, m. a. fjórir af þeim 5 keppendum sem enn eru á lífi og tóku þátt í fyrsta víðavangshlaupinu, en þá voru 8 keppendur. Var það 1916. Þeir sem þama mættu voru Jón Kaldal, Otto B. Arnar, Ólafur Sveinsson og Guðmundur Guðjónsson. Jón Þorkelsson gat ekki mætt. Verðlaun voru afhent í hófinu og fékk Kristleifur styttu til eign- ar, gefna af Morgunblaðinu, og farandbikar að auki. Þrír fyrsu menn fengu verðlaunapeninga og allir keppendur minnispeninga. Þriggja manna sveit KR fékk aðeins 6 stig, eða jafn fá og mögu- legt var, og hlaut bikar Þjóðvilj- ans gefinn í fyrra, en þá vann ÍR hann. Sveit Breiðabliks úr Kópa- vogi varð önnur með 20 stig, sveit Skarphéðins með 31 stig, Keflavík ur með 31 stig, en alls voru þriggja manna sveitirnar 8 talsins. Skarphéðinn vann keppni 5 manna sveitanna og fékk bikar gefinn af starfsmönnum íþrótta- vallanna. Skarphéðinn vann þennan bikar f fyrsta sinn sem um hann var keppt, en það var 1961, en undanfarin 3 ár hefur ekki verið hægt að keppa um hann vegna þátttökuleysis. Skarphéðinn fékk nú 35.5 stig, en Breiðabliksmenn úr Kópavogi urðu aðrir með 40 stig, Keflvíkingar með 49.5 b-sveit Keflavíkur með 98 og b-svéit Skarphéðins með 102. Tvær sveitir voru í 10 manna sveitakeppninni og vann Skarp- Fimmtugasta Víðavangshlaupið að hefjast. Halldór Guðbjömsson hef- ur tekið forystuna, þá koma Hafstelnn Sveinsson, Agnar Leví, Helgi Hólm og Kristleifur Guðbjörnsson. héðinn Keflavík í þeirri keppni með 101.5 stigi gegn 108.5, og var því keppni þessara aðila spennandi og mjött á mununum. Var þarna keppt um bikar gefinn af Tíman- um og fengu Skarphéðinsmenn hann til eignar. Fimmtán fyrstu menn í Víða- vangshlaupinu: 1. Knsfléifúr 'Guðbj. KR, 8.38.7. 2. Agnar Leví, KR, 8.41.7. 3. Halldór Guðbj., KR, 9.01.2. 4. Þórður Guðm. Breiðabl. 9.13.2. 5. Þórarinn Amórsson, ÍR, 9.14.2. 6. Hafst. Sveinss., HSK, 9.14.4. 7. Marinó Eggertss., UNÞ, 9.18.4. 8. Jón Sigurðsson, HSK, 9.24.4. 9. Sig. Geirdal, Breiðabl. 9.31.0. 10. Helgi Hólm, ÍBK, 9.35.0. 11. Gunnar Snorrason, Breiða- blik, 9.36.0. 12. Marteinn Sigurgeirsson, HSK, 9.37.0. 13. Karl Hermannsson, iBK, 9.37.2. 14. Sölvi Sigurðsson, ÍBK, 9.37.2. 15. Vilhjálmur Björnsson, UMSE, 9.46.0. Kristleifur Guðbjörnsson að koma að marki. Agnar Leví fyrir aftan hann. andi í viðbót kom frá höfuð- borginni, Þórarinn Arnórsson, sem varð fimmti í röðinni, en fjórði varð komungur og efni- legur hlaupari úr Kópavogi, Þórður Guðmundsson og kom mjög á óvart. Hlaupið mun hafa verið um 3000 metrar að þessu sinni. Það hófst vestan við Tjarnarbrúna í Hljóm- skálagarðinum og var hlaupið suð- ur Vatnsmýrina, Njarðargötu, í Hljómskálagarð aftur og norður Fríkirkjuveg og endað í Lækjar- götu þar sem útihátíðahöld barna- dagsins fóru fram. KR-irtgarnir þrlr hlupu mjög létt og vel, og eru án efa í góðri æf- ingu, einkum Kristleifur og Agnar. Vann Kristleifur nokkuð létt en Agnar ógnaði stöðugt. Halldór var allnokkuð á eftir, en næstu fjórir menn háðu harða baráttu, sem lauk með sigri Þórðar Guðmundssonar FYRSTA TAPÍR / KÚRFUKNA TT- LEIK í SEX ÁR IGÆRKVÖLDI r_ KR vann IR í æsispennandi leik og braut þar með virki ÍR — „Einmift það sem okkur vanfaði/#, segir hinn banda- ríski þjdlfari KR Loks féll vígi ÍR í körfuknattleik. KR vann sinn sætasta sigur frá stofnun körfuknattleiksdeildar félagsins, 61:48, og nú er nauðsynlegt að nýr leikur fari fram um hvort félagið hreppir íslandsmeistara- titilinn og hina fallegu PanAm-styttu sem nú er keppt um í fyrsta sinn. Leikurinn í gær var hreinasta hrollvekja og sjaldan hefur verið jafn mikið fjör í körfuknattleiknum á Hálogalandi og í gærkvöldi, þar sem mikið fjölmenni horfði á leikinn. ÍR hefur ekki tapað leik fyrir íslenzku liði líklega í ein 6 ár, og hefur unnið bæði Reykjavíkur- og Islandsmótið á þessum árum. Þess vegna er sigur KR talsvert merkur atþurður í íþróttalífinu. Hefur KR-sigri sundum verið spáð en alltaf hefur ÍR farið með sigur af hólmi vegna meiri leikreynslu. — „Þetta var það sem þurfti". sagði -----------------------,„iau hinn bandaríski þjálfari KR-liðsins. „Nú vita strákarnir að þeir geta unnið IR. Það var einmitt það sem þá vantaði.“. Fyrri hálfleikur var æsispenn- andi í leiknum í gær og leiddu lið- in á víxl og munaði sjaldnast nema einu stigi. Greinilegt var að áhorfendur voru mun meira á bandi KR, því velheppnuðum körfuskot- dmwii mmiwmmi.. um þeirra var mun meira fagnað en ÍR-inganna. I hálfleik var stað- an 27:26 fyrir KR. Seinni hálfleikurinn var afar vel leikinn af KR og var eitthvað það bezta sem lengi hefur sézt í körfu- knattleik hér. Fór þar saman hug- kvæmni í spili, hraði, ákveðni og hittni á körfuna. Áhorfendur voru mjög ákafir og hvöttu liðin af megni. „Fleiri mörk, KR-ingar“ var kallað kunnuglegri röddu utan úr salnum. Það var Egill rakari. Hann hefur sjaldan sézt í sam- bandi við körfuknattleikinn, en það er eins og það stafi af honum ein- hver heppni fyrir KRi því oftast fer hans lið með sigur af hólmi. KR komst nú 5 stig yfir 33:28, en iR-ingar og þá einkum Þorsteinn Hallgrímsson minnkuðu það for- skot í eitt stig í 35:34. Ekki tókst IR þó að ná forskoti í leiknum í seinni hálfleik. KR-ingar gættu vel að sér og héldu uppi linnulausum árásum á körfu ÍR-inga, — með góbum árangri. Komust þeir brátt 6 stig yfir 43:37 og höfðu 47:39 yfir þegar 7 mínútur voru eftir. Breyttist þessi munur. ekkert næstu 3 mínúturnar, og var staðan 49:43. Þá varð það að Þorsteinn Hall- grímsson, bezti maður ÍR-liðsins braut af sér, — það var 5. brot hans, I leiknum og varð hann þvl að víkja af leikvelli þær 4 mínútur sem eftir voru. Þetta gerði algjör- lega út um leikinn eins og gefur að skilja, síðasti vonameisti {R var slokknaður. Að vísu lækkaði Agnar forskot- ið í. 49:45 en Einar Bollason skor- aði tvö stig úr vítaköstum og Hjörtur skoraði fallega körfu og enn fékk Einar tvívegis vítaköst og skoraði úr þeim 3 stig. Þá var staðan orðin 56:45 og lítið eftir af leiknum. Lauk leiknum með sigri KR 61:48, og var það að allra dómi sanngjarnt. Beztu menn liðanna voru þeir Ein- ar Bollason (22 stig), Kolbeinn og Kristinn hjá KR, en af iR-ingum voru Þorsteinn Hallgrímsson og Hólmsteinn Sigurðsson beztir. Ekki hefur verið ákveðið hvenær úrslitaleikur þessa móts verður haldinn, en ekki ósennilegt að það verði innan skamms. Verður fróð- legt að fylgjast með þeirri viður- eign. KR missti naumlega af sigri í I. flokki í körfuknattleiksmótinu í gær. Unnu stúdentar KR óvænt með 39:37 og urðu 3 félög jöfn að stigum í mótinu með 4 stig og þurfa að leika aftur sfn á milli. Eru það KR, stúdentar og Ármann.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.