Vísir - 23.04.1965, Blaðsíða 8

Vísir - 23.04.1965, Blaðsíða 8
V í S I R . Föstudagur 23. april 1963. 8 VISIR Otgefandi: Blaðaútgáfan VISIR Ritstjóri: Gunnar G. Schram Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjórar: Jónas Kristjánsson Þorsteinn Ó. Thorarensen Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178 Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3 Áskriftargjald er 80 kr á mánuði I lausasölu 5 kr. eint. — Simi 11660 (5 línur) Prentsmiðja Vísis - Edda h.f Landsfundurinn i gær hófst 16. landsfundur Sjálfstæðisflokksins .Til fundarins eru komnir um 700 þingfulltrúar úr öllum kjördæmum og sýslum landsins. Þessi landsfundur Sjálfstæðisflokksins, stærsta stjórnmálaflokks þjóð- arinnar, sýnir glöggt hve öflugur flokkurinn er, hve sterku baráttuliði hann á á að skipa um land allt. í síðustu kosningum jók Sjálfstæðisflokkurinn fylgi sitt um á fjórða þúsund atkvæða og telur nú 41,4% íslenzku þjóðarinnar til fylgismanna sinna. Sú háa tala sýnir að nær helmingur þjóðarinnar treystir Sjálfstæðisflokknum bezt til þess að vera í farar- broddi í baráttunni fyrir betri lífskjörum þjóðarinnar. gíðustu fimm ár hafa verið mesta framfaratímabilið í sögu þjóðarinnar. Aldrei hafa framkvæmdir verið jafn miklar, aldrei hafa þjóðartekjurnar aukizt svo mjög sem á því tímabili. Að nokkru er það að þakka gjöfulu árferði. En hitt ræður ekki síður miklu að þjóðin hefur búið við stjórnarfar bjartsýni og stór- hugar, stjórnarfar frelsis á öllum sviðum. Næstu ár mun Sjálfstæðisflokkurinn halda áfram þeirri forystu í landsmálum. Verkefnin bíða enn mörg, og sum erfið svo sem kjarasamningar á þessu sumri. En með samstarfi stéttanna og samtökum góðviljaðra manna mun takast að koma þeim í heila höfn. Það er skylda flokksins og það er ósk þjóðarinnar. Aukinn kaupmáttur £ ræðu sinni á landsfundinum í gærkvöldi gerði Bjami Benediktsson að umtalsefni þær fullyrðingar að kaupmáttur verkakaupsins hefði farið minnkandi að undaförnu og að hlutdeild launþega í þjóðartekj- unum færi minnkandi. Hvort tveggja er þetta rangt. Skýrsla Framkvæmdabanka íslands yfir tímabilið 1948 — ’62 sýnir glöggt að „í höfuðdráttum hefur hlut skipti launþega fylgt þróun þjóðartekna“ eins og bankinn kemst að orði í ársriti sínu. Sé miðað við kaup Dagsbrúnarmanna og grunntöluna 100 árið 1959, sem var hagstætt verkamönnum þá er sambæri- leg tala nú 104.3 Sé víðtækari samanburður gerður og litið á umsamið tímakaup verkafólks og iðnaðar- manna og framfærsluvísitöluna sést að kaupmáttur nú 1. marz hafði hækkað í 110.6. Þessar tölur eru samkvæmt upplýsingum Efnahagsstofnunarinnar. Gefa þær vissulega allt aðra mynd af þróuninni en málgögn stjórnarandstöðunnar hafa til þessa haldið fram. Sést hér svart á hvítu að júnísamkomulagið hef- ur veitt miklu verulegri kauphækkun en fyrri hækk- anir, sem voru mun meiri að krónutölu, en reyndust óraunverulegar, sagði forsætisráðherra. Höfuðatriðið er að sú braut verði farin í næstu samningum að kjarabætur veiti launþegum raunverulegar kaup- hækkanir, en ekki falskar hækkanir sem brenna burt í eldi vaxandi verðbólgu. Róbert Arnfinnsson, Valur Gislason og Bessi Bjamason. Járnhausinn Höfundar: Jónas og Jón Múli Arnasynir Leikstjóri: Baldvin Halldórsson Nýr islenzkur söngleikur hóf — að öllum líkindum ianga — göngu sína s.l. þriðjudagskvöld í Þjóðleikhúsinu .Höfundarnir eru engir viðvaningar á þessu sviði, þeir bræður Jónas og Jón Múli Árnasynir .Sameiginlega sömdu þéir hið óbundna mál gamanleiksins, Jónas samdi ljóð in, Jón lögin. Meðal höfunda má einnig með töluverðu réttlæti telja Magnús Ipgimarsson, sem útsetti músíkina, én góðar út- setningar útheimta ltka sína sneið af sköpunargáfu. Músíkin er í alla staði ,,hummleg,“ í gild andi söngleikjastíl og alveg sam bærileg við venjulega fram- leiðslu stórborganna. Maður get ur umlað lögin með leikurunum á sviðinu strax við fyrstu heyrn, en í því felst styrkur og jafn- framt veikleiki svona söngleikja. Það hefði óneitanlega verið gam an að heyra stundum svolítið „öðruvísi" eða „óvenjulega" lag línuslaufu, pínulítið af þeim ný- stárleika, sem aðgreinir „tunes“ og „h'ittunes" Það er kannski of mikil tilætlunarsemi. Mér fannst tilfinnanlega vanta tilraunir til ] að láta músíkina vekja, eða halda „gangandi" stemmingu, það hefði aukið mikið áhrif sumra alllangdreginna atriða, ef músík hefði legið í loftinu. Höf undarnir notuðu sér slíkt aðeins tvisvar, og lánaðist vel í bæði skiptin, annars vegar dansmúsík innan frá félagsheimilinu, hins vegar „andlegt" andrúmsloft sviðsins samfara söngnum „Am en og halelúja". Textinn er tilefni nokkurra góðra hlátra. Stundum er hann of áberandi viðleitni til fyndni, frekar en sannur húmor, og „skopstælingar“ á velþekktum skólaljóðum eru bara unglinga- gaman að mínu áliti. Söngleikurinn ”Jámhausinn“ hefur í raun og veru ekkert efni — einn söguþráð — heldur er hann myndaður af fjölmörgum ádeiluatriðum. Þessi atriði eru oftast vel til fundin, góðlátlegt grín er gert að ýmsum „týpum“ sem einkenna bæjarfélagið á timamótum. Mæðir þar mest á Róbert Amfinnssyni í hlutverki hins ”stórhuga“ framkvæmda- manns. Stórhugurinn felst að- allega í eymdarlegu áframpoti hans libido er ábatavonin. Hans tryggi fylgifiskur er ritstjórinn, Bessi Bjarnason. Þeir kumpánar. eru eins og báðar hliðar sömu fölsuðu myntarinnar, og ágætir sem slíkir. Gísli Alfreðsson og Ámi Tryggvason em aðrir þokkapiltarnir til. Sauðargæran skýldi þeim vel. Kristbjörg Kjeld í hlutverki Gullu-Maju prests- dóttur var eina manneskjan frá hendi höfunda, eðl'ileg og ýkju- ■ Iaus, en samskipti hennar og Rú riks Haraldssonar, síldarskip- stjóra, vom ekki í alla staði traustvekjandi. Eftirminnileg- asta ”týpan“ var Gunnar Eyjólfs son, prestur og spíritisti. Hann var mikill furðufugl í allri sinni smæð. Framh á bls. 5 Bessi Bjarnason sem Andrés ritstjóri, Róbert Arnfinnsson sem Eyvindur framkvæmdamaður Árni Tryggvason sem Páll Sveinsson stud. theol., Gunnar Eyjólfsson sem sr. Þorvaldur og Gísli Alfreðs- son sem Randver Örn stud oecon.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.